Morgunblaðið - 23.01.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.01.2015, Blaðsíða 4
Morgunblaðið/Styrmir Kári Biskup og munkar Pétur Bürcher Reykjavíkurbiskup ásamt Benediktsmunkunum frá Frakklandi. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ábóti og tveir munkar úr St. Wandr- ille-klaustri Benediktsreglunnar ná- lægt Rúðuborg í Frakklandi eru staddir hér á landi. Erindi þeirra er m.a. að kanna aðstæður á Úlfljóts- vatni með klausturhald í huga. Munkarnir og prestar kaþólskra hér á landi sungu messu í kirkjunni á Úlfljótsvatni í gær. Endanleg ákvörðun um klausturhald og hve- nær það hefst verður tekin síðar. Reiknað er með að þrjá til fimm munka þurfi til að hefja klaustur- haldið. Benediktsmunkar fást gjarnan við búrekstur og jarðrækt auk bæna- gjörðar. Til greina kemur að munk- arnir í klaustrinu á Úlfljótsvatni muni starfa við skógrækt á staðnum, en jörðin er sem kunnugt er í eigu Skógræktarfélags Íslands og Skáta- hreyfingarinnar. Kaþólskir eru nú um 3,5% þjóð- arinnar og telja um 13.000 manns. Fjöldi þeirra hefur þrefaldast á síð- asta áratug. Margt hefur áunnist í tíð Péturs Bürchers, biskups í Reykja- víkurbiskupsdæmi, sem lætur senn af embætti af heilsufarsástæðum. Hann afhenti Frans páfa lausn- arbeiðni sína fyrir nokkrum mán- uðum. Gerð er grein fyrir helstu störfum og verkefnum Bürchers biskups á árunum 2007-2015 í Kaþ- ólska kirkjublaðinu. Þar kemur m.a. fram að hann hafi lagt áherslu á að fjölga prestum og eru þeir nú 18 tals- ins. Þeir ásamt 31 nunnu úr alþjóð- legum trúarreglum þjóna söfnuði kaþólskra hér á landi. Þá hefur Bürcher biskup staðið fyrir framförum á sviði menntunar, trúfræðslu og helgisiða innan kirkj- unnar, m.a. með útgáfu bóka. Einnig hefur hann unnið að því að styrkja fjárhag og innviði biskupsdæmisins. Í biskupstíð sinni hefur hann keypt, helgað og blessað þrjár nýjar kirkjur og tvær nýjar kapellur. Þær eru kirkja Heilags Jóhannesar Páls II á Ásbrú á Keflavíkurflugvelli, Corpus Christi-kirkjan á Egilsstöðum, Kirkja Heilagrar fjölskyldu Jesú, Maríu og Jósefs á Höfn í Hornafirði, lítil kapella í biskupshúsinu í Landa- koti og húskapella hjá Systrum Móð- ur Theresu frá Kalkútta. Kaþólskir eiga nú alls 18 guðshús víða um land. Talin er brýn þörf á að byggja tvær nýjar kirkjur og er stefnt að því að byggja kirkjur á Selfossi og Reyð- arfirði. Einnig þarf að stækka Mar- íukirkju í Breiðholti og eins Péturs- kirkju á Akureyri. Unnið er að því að koma á fót Mið- stöð fyrir menntun og námskeið í Stykkishólmi. Hún verður í húsnæði við spítalann þar sem áður var rek- inn leikskóli. Benediktsmunkar kanna klausturstofnun  Kaþólskum fjölgar og kirkjan færir út kvíarnar 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015 Jón Gunnarsson, formaður at- vinnuveganefndar Alþingis, lagði fram munnlega tillögu á fundi nefndarinnar í gær um að skoðað yrði hvort fjórir virkjanakostir til viðbótar við Hvammsvirkjun ættu að vera í nýtingarflokki. Lilja Raf- ney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri-grænna, greindi frá þessu á þingfundi í gær og vakti tillagan mikil viðbrögð á meðal þingmanna. Forsætisnefnd kölluð saman „Þetta mál er ekki bara háð venjulegri þinglegri meðferð eða meirihluta í nefndum. Um svona mál gilda sérstök lög, hvernig eigi að breyta virkjunarkostum og færa milli flokka. Í þeim lögum segir að ráðherra eigi að gera til- lögur um nýja virkjunarkosti á grundvelli umsagnar verkefna- stjórnarinnar, ekki formaður at- vinnuveganefndar. Hér er því um lögbrot að ræða,“ sagði Guðmund- ur Steingrímsson, þingmaður Bjartrar framtíðar. Aðrir þing- menn stjórnarandstöðunnar sögðu í ræðum sínum að breytingartil- lagan bryti gegn samkomulagi flokkanna um rammaáætlunina. Gerðu þeir því skóna að markmið stjórnvalda væri að afnema rammaáætlun. Var Einar K. Guð- finnsson, forseti Alþingis, hvattur til að kalla saman forsætisnefnd til þess að kanna hvort Jón gæti lagt fram umrædda breytingartillögu. Í kjölfar fundarins steig Einar í pontu og sagði að hann gæti ekki sem forseti þingsins skert rétt manna til þess að koma með breyt- ingartillögur. Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar, gagnrýndi síð- an Jón Gunnarsson harðlega í um- ræðum um fundarsköp forseta, sem hófust eftir að forseti þingsins lauk máli sínu. Kallaði hann Jón „pólitíska gungu“ fyrir að þora ekki að skrifa tillögur sínar niður á blað. „Það hefur enginn séð til- lögu háttvirts þingmanns, hann hefur ekki þorað að skrifa hana niður á blað. Hvar er hana að finna? Hún er bara í hausnum á háttvirtum þingmanni. Ég vor- kenni houm að vera svona mikill pólitískur heigull að þora ekki að fara fram með eigið mál,“ sagði Róbert. Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra sagði að farið væri með margt rangt mál í þingsal. Breytingartillagan hefði aðeins verið lögð fram til umsagnar í þinginu. Þá hefði engin ákvörðun verið tekin um að virkja. bmo@mbl.is Vilja skoða fjóra nýja virkjunarkosti  Tillaga lögð fram munnlega á þingi  Deilt var um lögmæti tillögunnar Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Lögmæti Deilt var um lögmæti til- lögu Jóns Gunnarssonar í gær. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Byrjað er að pressa repjufræ í Ás- gerði í Hrunamannahreppi. Repju- olían verður notuð í minkafóður í stað aðkeyptrar fitu og allt hratið sömuleiðis sem próteingjafi í fóðrið. Er þetta nýjung hér á landi. Feðgarnir og loðdýrabændurnir Þorbjörn Sigurðsson og Sigurður Jónsson í Ásgerði hafa ræktað repju og nepju í þrjú ár. Þorbjörn segir að þeir hafi verið að prófa sig áfram með mismunandi afbrigði og upp- skeran verið misjöfn. Í sumar feng- ust aðeins 1,5 tonn af þurrkuðu fræi af hverjum hektara en áður höfðu mest náðst 2,8 tonn. Safnast hafa upp um 30 tonn af repjufræi og nú ákváðu bændur að kaupa sér pressu til að gera úr því verðmæti. Þorbjörn segir að notuð sé að- keypt olía til að styrkja minkafóðrið á sumrin, þegar auka þurfi orkuna í því. Þorbjörn segir að repjuolía úr þeirra eigin uppskeru komi aðeins í stað hluta þeirrar olíu sem keypt er að. Hann tekur fram að repjuolían sé mjög góð í fóðrið en margfalda þurfi ræktunina til að hún geti komið al- veg í stað annarrar fitu. Prófa hvernig hratið virkar Þorbjörn hefur hug á því að nota hratið sem til fellur við pressunina til að auka próteinið í fóðrinu. Segir að oft vanti prótein á veturna og í minna mæli á sumrin. Fiskimjöl hef- ur mikið verið notað í þessum til- gangi en það er dýrt enda hágæða- prótein. „Við eigum eftir að prófa hvernig hratið virkar, hvernig hægt er að nýta það í stað aðkeyptra hráefna,“ segir Þorbjörn og lætur þess getið að hann sé að afla sér upplýsinga hjá sérfræðingum um þetta. Hálmurinn sem til fellur við repju- ræktina nýtist einnig, ýmist sem undirburður undir dýrin eða til sölu í svepparækt. „Þetta er liður í að nýta landið sem maður á. Ég rækta korn og repju með skít frá búinu og nota engan tilbúinn áburð. Svo er gaman að fást við eitthvað nýtt,“ segir Þorbjörn. Liður í að nýta landið sem maður á  Loðdýrabændur í Ásgerði rækta repju og nota olíuna og hratið í fóður fyrir minkana  Olían kemur að hluta til í stað aðkeyptrar olíu og reynt verður að nota hratið í stað fiskimjöls Ljósmynd/Ólafur Eggertsson Repjupressun Feðgarnir og minkabændurnir í Ásgerði taka nýju pressuna í notkun, f.v. Páll Sigurðsson, Sigurður Jónsson og Þorbjörn Sigurðsson. Benediktsreglan er stærsta klausturreglan í kaþ- ólskum sið. Hún er kennd við Benedikt frá Núrsíu sem stofnaði regluna á 6. öld e. Kr. á Ítalíu. Bene- diktsklaustur geta ýmist verið munka- eða nunnu- klaustur. Ellefu klaustur voru stofnuð hér í kaþ- ólskum sið. Á meðal þeirra voru Benediktsklaustrin Þingeyraklaustur, Munkaþverárklaustur og Hítar- dalsklaustur. Viðeyjarklaustur var mikilvægt menntasetur en þar starfaði lengstum Ágústínus- arregla en einnig Benediktsreglan um stutt skeið og tók þá Ágústínusarreglan aftur við klaustrinu. Eins tilheyrðu nunnu- klaustrin á Kirkjubæ og Reynistað Benediktsreglunni. Stærsta klausturreglan BENEDIKTSREGLAN ANNAÐIST REKSTUR NOKKURRA KLAUSTRA HÉR Á ÖLDUM ÁÐUR, M.A. Í VIÐEY Heilagur Benedikt frá Núrsíu. Virkjanirnar sem um ræðir eru Hvammsvirkjun, Holta- virkjun, Urriðafossvirkjun í Þjórsá og Hagavatns- virkjun. Í nóvember á síðasta ári lagði Jón fram tillögu á Alþingi um að átta virkjunarkostir yrðu skoðaðir og mætti sú tillaga mikilli andstöðu á þingi. Jón Gunnarsson vísaði gagnrýni þingmanna á bug í gær og sagði að aðeins stæði til að skoða hvort þessir kostir ættu heima í nýtingarflokki og að umsagnar- frestur hefði verið gefinn fram í febrúar. Eins og stað- an er í dag eru þessir fjórir kostir í bið. Fjórir kostir úr biðflokki DEILT UM VIRKJANIR Á ALÞINGI Jón Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.