Morgunblaðið - 23.01.2015, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Jöklar á norðanverðu landinu og
sérstaklega Drangajökull hafa
undanfarin 20 ár verið á talsvert
öðru róli en aðrir jöklar landsins.
Á sama tíma og stórjöklarnir hafa
rýrnað hvert einasta ár og skrið-
jöklarnir hopað hafa komið nokkur
ár sem Drangajökull hefur aukið
við sig og sömuleiðis jöklar beggja
vegna við Eyjafjörð.
Þetta segir Oddur Sigurðsson,
sérfræðingur á sviði jöklarann-
sókna hjá Veðurstofunni, en hann
hefur í fjölda ára fylgst með þróun
jökla, mælt þá og myndað. Hann
segir að síðastliðinn vetur og vet-
urinn þar áður hafi verið mikil
snjósöfnun á Norðurlandi og jökl-
ar þar hafi aukið við sig þessi tvö
ár.
„Á síðustu 20 árum hafa komið
ár sem þeim hefur aukist efni á
sama tíma og stóru jöklarnir;
Langjökull, Hofsjökull, Mýrdals-
jökull og Vatnajökull, hafa allir
minnkað hvert einasta ár,“ segir
Oddur. Drangajökull er fimmti
stærsti jökull landsins á eftir Mýr-
dalsjökli, en allir eru þeir meira
en 100 ferkílómetrar að stærð.
Svona eindregið og mikið hop
þekkjum við ekki úr sögunni
„Það hafa nánast allir jöklar
hopað og svona eindregið og mikið
hop þekkjum við ekki úr sögunni,“
segir Oddur. „Hvert nýtt ár er
viðbót við þessa þróun og það
kemur okkur ekki lengur á óvart
að þessi þróun haldi áfram. Sumir
segja að það geri mann bara
hræddan að stefnan skuli vera
svona eindregin í loftslaginu og
við þekkjum ekkert þessu líkt.
Þetta á við skriðjökla út úr meg-
injöklum, en einnig staka jökla.
Reyndar er kannski ekki heppilegt
að tala um skriðjökla því allir jökl-
ar skríða.“
Stórjöklarnir hafa rýrnað, nema
Drangajökull sem er á öðru róli
Síðustu 20 ár hafa komið ár sem jöklum
á norðanverðu landinu hefur aukist efni
Ljósmynd/Oddur Sigurðsson
Drangajökull er fimmti stærsti jökull landsins Myndin er tekin úr Kalda-
lóni í september árið 2001. Frá vinstri efst á myndinni eru Hljóðabunga,
Reyðarbunga og Hrollaugsborg. Það ár var snælínan mjög neðarlega á
jöklinum sem þýðir að þetta ár hefur jökullinn aukið við sig.
Velferðarráð
Reykjavíkur-
borgar ákvað á
fundi sínum í
gær að afnema
viðbótargjald fyr-
ir notendur
ferðaþjónustu
fatlaðs fólks. Í
gjaldskrá verður
1.100 króna gjald fyrir hverja ferð
umfram 60 á mánuði fellt niður og
miðað við hálft gjald í strætó. Var
tillagan samþykkt einróma á fund-
inum. Í tilkynningu frá Reykjavík-
urborg segir einnig að ákveðið hafi
verið að fresta ákvörðun vegna
breytinga á reglum um hámarks-
fjölda ferða til næsta fundar hinn 5.
febrúar, í ljósi athugasemda sem
komu fram í áliti umboðsmanns
borgarbúa sem bárust velferðarráði
seint í fyrradag.
Velferðarráð mun áfram funda
með Strætó og fylgjast náið með
framkvæmd þjónustunnar eftir því
sem kemur fram í tilkynningunni.
„Borginni er í mun að framkvæmd
ferðaþjónustu fatlaðs fólks gangi
eins vel og kostur er og að breyt-
ingar á fyrirkomulagi verði til að
bæta hana,“ segir í tilkynningunni.
Viðbótar-
gjald fellt
niður
Breyting á ferða-
þjónustu fatlaðra
Aðstæður hóps vísindamanna til
mælinga við gosstöðvarnar í Holu-
hrauni voru erfiðar í gær, að sögn
Evgeniu Ilyinskaya eldfjallafræð-
ings.
„Það var logn og þá berst mökk-
urinn beint upp í loftið og leggur
ekki með jörðinni. Þá er mun erf-
iðara að ná sýni. En það fór að bæta
í vindinn í kringum sólarlag og þá
var öllum mælitækjum hent út. Það
er líka verið að setja upp síritandi
mæli sem verður hérna áfram,“
sagði hún og átti von á að vís-
indamennirnir yrðu að störfum eitt-
hvað frameftir kvöldi.
Mæla við erf-
iðar aðstæður
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Hæstiréttur staðfesti í gær sex ára
fangelsisdóm yfir karlmanni fædd-
um 1981 sem dæmdur var í héraðs-
dómi fyrir frelsissviptingu, hótanir,
líkamsárás og nauðgun á barnsmóð-
ur og fyrrverandi unnustu sinni auk
brots gegn valdstjórninni aðfaranótt
og framundir morgun jóladags 2013.
Í dómnum kemur fram að mað-
urinn hafi haldið konunni nauðugri í
íbúð sinni í fimm klukkustundir áður
en henni tókst að flýja til nágranna.
Á þeim tíma hafi hann kýlt hana í síð-
una, hendur, andlit og hnakka og á
sama tíma hótað að berja hana til
dauða. Þá hafi hann notað hníf og
rispað konuna. Meðal annars beitti
hann konuna ofbeldi fyrir framan
barn þeirra.
Þá var hann sakfelldur fyrir að
nauðga konunni og þvinga hana til
samræðis og annarra kynferðismaka
meðan á frelsissviptingunni stóð. Í
dómi héraðsdóms er tekið fram að
atlagan hafi verið sérlega hrotta-
fengin. Í dómi hæstaréttar segir að
við ákvörðun sé ákærða til refsi-
þyngingar að nauðgunarbrot hans
var framið á sérstaklega meiðandi
hátt.
Loks var hann sakfelldur fyrir að
hóta lögreglumanni sem var á vett-
vangi við skyldustörf og að beita
hnífi gegn lögreglu er hún reyndi
inngöngu í íbúðina. Auk fangelsis-
dómsins er manninum gert að greiða
konunni 3,5 milljónir króna í skaða-
bætur og dóttur þeirra 800 þúsund
krónur. Þá var honum gert að greiða
áfrýjunarkostnað upp á rúmar 809
þúsund krónur.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hæstiréttur Íslands Staðfestur var
sex ára dómur yfir manninum.
Hæstiréttur stað-
festi sex ára dóm
Hélt barnsmóður
nauðugri, barði hana
og nauðgaði
Oddur hefur í fjölda ára í samstarfi við Jöklarann-
sóknafélagið fylgst með þróun skriðjökla, meðal
annars með mælingum á jökulsporðunum. Verið er
að leggja lokahönd á yfirlit um þróun þeirra á síð-
asta ári, en Oddur segist ekki eiga von á öðru en
að þróun síðustu tveggja áratuga hafi haldið áfram
í fyrra.
Á síðasta ári missti Ok eða Okjökull stöðu sína
sem jökull þar sem hann uppfyllir ekki lengur við-
mið til að hægt sé að kalla hann jökul. Árið 1890
var Ok 16 ferkílómetrar að flatarmáli, en hefur
minnkað jafnt og þétt síðan. Var jökullinn aðeins orðinn 0,7 ferkíló-
metrar sumarið 2012. Jöklar sem hafa hlotið sömu örlög og eru
nánast horfnir sem jöklar eru Forsælu-, Hattar- og Snótarjökul í
Kerlingarfjöllum sem hurfu um 1970 og Morsárjökull, sem var skrið-
jökull úr Hofsjökli í Lóni, svo dæmi séu tekin.
Mælingar á jökulsporðum
NOKKRIR SKRIÐJÖKLAR HAFA HORFIÐ
Oddur
Sigurðsson
Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033
Flottir í fötum
ÚTSALAN
í fullum gangi