Morgunblaðið - 23.01.2015, Page 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Ég er ekki ennþá alveg búin að átta mig á þessu og er í
hálfgerðu áfalli. Ég bjóst aldrei við svona góðum
árangri,“ segir Ólöf Embla Kristinsdóttir hjá VBC sem
varð Evrópumeistari í flokki hvítbeltinga undir 64 kg í
brasilísku jiu jitsu (BJJ). Evrópumótið er haldið í Lissa-
bon í Portúgal og stendur til 25. janúar.
Eftir glímuna kom í ljós að andstæðingur hennar í
úrslitaglímunni var Luciana Cristina Leite Galvao. Hún
er litla systir stórmeistarans Andres Galvaos en hún æfir
einnig hjá bróður sínum.
Ólöf hafði ekki hugmynd um hver andstæðingurinn
var og segir hlæjandi að hún hefði eflaust verið öðruvísi
stemmd fyrir glímuna ef hún hefði vitað hversu sterkur
andstæðingur hún væri.
Ólöf, sem er tvítug að aldri, byrjaði að æfa BJJ fyrir
einu og hálfu ári. Áður hafði hún æft sund í níu ár. „Það
hefur eflaust hjálpað mér því ég var í góðu formi.“ Hún
náði að keppa á nokkrum mótum heima áður en hún fór á
Evrópumótið. Ólöf hefur mjög gaman af glímunni og seg-
ist ætla að halda áfram af krafti enda gaman að eiga við
andstæðingana og reyna að hugsa út fyrir boxið. Æfinga-
félagi Ólafar, Guðrún Björk Jónsdóttir hjá VBC, vann til
silfurverðlauna í flokki hvítbeltinga undir 79 kg. „Við er-
um alveg í skýjunum með árangurinn,“ segir Ólöf sem var
að fara að styðja við bakið á félögum sínum á mótinu.
Á Evrópumeistarmótinu eru 22 Íslendingar frá
fimm félögum skráðir til leiks. Keppt er eftir fimm-
beltaflokkum: hvítu, bláu, fjólubláu, brúnu og svörtu, en
auk þess eru keppendur einnig flokkaðir eftir aldri og
þyngd. 3.400 keppendur eru skráðir til leiks sem gerir
þetta að stærsta BJJ-móti sem haldið hefur verið til
þessa.
22 Íslendingar keppa á stærsta Evrópumeistaramóti í brasilísku jiu jitsu í Lissabon
Evrópumeistari Ólöf og Luciana C.L. Galvao voru
kampakátar eftir glímuna en Ólöf bar sigur úr býtum.
Ekki áttað
sig á sigrinum
Morgunblaðið/Eggert
Ljósmyndari Sigríður Ella Frímannsdóttir opnar ljósmyndasýningu þann
5. febrúar á Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Grófarhúsinu.
um fólksins til að vinna myndaröðina
með því.
Í pels á ströndinni
Verkefnavinnslan í vinnustof-
unni gengur þannig fyrir sig að þátt-
takendur fara út að mynda að
morgni til, mynda allan daginn og fá
svo endurgjöf eða viðbrögð frá kenn-
urunum og svo er haldið áfram.
„Þetta er alveg rosalega lærdóms-
ríkt og gengur dálítið hratt fyrir sig.
Maður verður að vera snöggur að
átta sig og það er virkilega gaman að
vinna svona,“ segir Sigga Ella. „Í lok
námskeiðsins var síðan yfirferð yfir
Ljósmynd/Sigga Ella
Flottur Teknar voru myndir af 21
einstakling með Downs-heilkenni.
Hugsunin að baki er sú
hvort við séum smám
saman að útrýma fólki
með Downs-heilkenni í
kjölfar tækninnar.
öll verkefnin og lítil sýning á Þjóð-
minjasafninu. Mary Ellen gaf nem-
endum umsögn og ég fékk góða um-
sögn sem ég var rosalega ánægð
með. Hún mælti hiklaust með því að
ég færi að vinna á setti í kvikmynd-
um hér heima eða erlendis svo það
er eitthvað sem ég er að skoða og
hefði mikinn áhuga á að prófa,“ segir
Sigga Ella sem meðan á vinnustof-
unni og náminu stóð fór út að mynda
með alla pelsana í farteskinu og þá
hófust töfrarnir.
Annars vegar myndaði hún tón-
listarfólk í pelsum á heimilum þeirra
og hins vegar fór hún á hina ýmsu
staði og myndaði ókunnugt fólk í
pelsum. „Mig langaði að vera með
pelsinn þar sem hann á í rauninni
ekki heima. Það eru ekkert allaf allir
í pels. Þannig að ég keyrði bara út
um alla Reykjavík með pelsana, fór
upp í Breiðholtið og í Nauthólsvík
þar sem fólk var á ströndinni í sund-
fötum, fór með pels út á Granda í
fiskvinnsluna og fékk fólk til þess að
vera með mér. Allir nema einn tóku
ótrúlega vel í það,“ segir ljós-
myndarinn Sigríður Ella Frímanns-
dóttir um verkefni síðasta árs.
Áhugasamir ættu að bregða sér
á sýninguna sem opnuð verður 5.
febrúar á Ljósmyndasafni Reykja-
víkur í Grófarhúsinu. Einnig má
skoða verk Siggu Ellu á vefsíðu
hennar, www.siggaella.com.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
CHEVROLET LACETTI STATION
05/2007, ekinn 141 Þ.km, 5 gíra.
TILBOÐ 690.000, ásett verð 890 þkr.
Raðnr.253201 áwww.BILO.is
HYUNDAI GETZ GL
08/2005, ekinn 130 Þ.km, bensín, 5 gíra.
TILBOÐ 590.000. Ásett verð 890 þkr.
Rnr.253199 á www.BILO.is
VW CADDY sendibíll
01/2005, ekinn aðeins 78 Þ.km, bensín,
5 gíra, klæddur að innan, mjög snyrtilegur!.
Verð 880.000. Raðnr.253190 á www.BILO.is
M.BENZ ML 320CDI AMG
Árgerð 2007, ekinn 158 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur, AMG útlit. Verð 5.290.000.
Raðnr.253164 áwww.BILO.is
HONDA CR-V Lifestyle
12/2011, ekinn 49 Þ.km, sjálfskiptur. STAÐ-
GREIÐSLUTILBOÐ 3.990 þkr. ásett verð 4.290 þkr.
Raðnr.282860 áwww.BILO.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is