Morgunblaðið - 23.01.2015, Page 14

Morgunblaðið - 23.01.2015, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015 Traust og góð þjónusta í 18 ár HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18, LAUGARDAGA 11-14 Er ekki kominn tími á að fá sér góð les-, tölvu- eða fjærgleraugu Verð frá 19.900,- umgjörð og gler Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I www.linan.is Opið mánudaga til föstudaga 11 - 18 I laugardaga 11 - 16 ÚT SA LA10 - 50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUMHÚSGÖGNUM OG SMÁVÖRU Sly SVEFNSÓFI / Svefnbreidd 140x200 Spingdýna / verð áður kr. 139.900 Valmont 3ja sæta sófi Verð áður kr. 151.300 ÚTSALA kr. 109.900 ÚTSALA kr. 128.600 S V E F N S Ó F I Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Fjölbrautaskólanum í Ármúla (FÁ) var í vikunni afhentur Grænfáninn í fimmta sinn. Skólinn hefur tekið þátt í verkefni Landverndar, Skólar á grænni grein, í 10 ár, eða lengst framhaldsskóla hér á landi. Um alþjóðlegt um- hverfisverkefni er að ræða sem Landvernd gerð- ist aðili að árið 2000. Í dag eru um 230 skólar í landinu þátttak- endur, allt frá leikskólum upp í há- skóla, og nemendur þeirra alls um 45 þúsund talsins. Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- ráðherra afhenti fulltrúa FÁ fánann við formlega athöfn. Við sama tæki- færi opnaði Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra Verkefna- kistuna, sem er rafrænn vettvangur á netinu fyrir kennara til að skiptast á verkefnum í tengslum við Skóla á grænni grein. FÁ fyrirmynd annarra skóla Katrín Magnúsdóttir, verkefnis- stjóri Skóla á grænni grein, segir það hafa verið vel við hæfi að athöfn- in færi fram í FÁ, sem hefði staðið sig afar vel í umhverfismálum og verið öðrum skólum fyrirmynd. „Þetta er umhverfismenntaverk- efni fyrir skóla, sem vilja taka sig á í umhverfismálum, setja sér markmið og uppfylla þau. Ef við metum það svo að viðkomandi skóli standi sig afhendum við Grænfánann til að flagga í skólanum. Verkefnið gengur aðallega út á að virkja nemendur og skólann allan og gera fólk betur meðvitað í umhverfismálum,“ segir hún. Af þessum 230 skólum eru flestir leik- og grunnskólar, en æ fleiri framhaldsskólar hafa tekið þátt í verkefninu. Að sögn Katrínar er misjafnt eftir skólum hvernig verk- efnið er framkvæmt. Í framhalds- skólum séu t.d. starfandi umhverf- isráð með þátttöku nemenda, sem fá vinnuna metna til eininga. Starfa umhverfisráð þá eftir þeim mark- miðum sem skólinn hefur sett sér. Víða í grunnskólum eru tveir nem- endur úr hverjum árgangi á ung- linga- (og miðstigi) skipaðir í svona ráð. Fundað er reglulega og áhersla lögð á lýðræðisleg vinnubrögð. Kall- að er eftir hugmyndum frá nem- endum og fulltrúar þeirra standa síðan fyrir fræðslu og kynningum til allra í skólanum. Tengir skólana betur saman Katrín segir Verkefnakistuna hafa komið til eftir að endurskoðun fór fram fyrir nokkrum árum á verk- efninu. Kennarar hafi óskað eftir vettvangi til að skiptast á hug- myndum og verkefnum og mark- miðið sé jafnframt að tengja skólana betur saman. Ekki þurfi að finna upp hjólið á hverjum stað. „Meginmarkmiðið hjá okkur er að auka umhverfisvitund nemenda og kennara. Það er mikilvægt að byrja snemma að leggja áherslu á hvað það skiptir miklu máli að ganga vel um umhverfið, taka ábyrgð á eigin hegðun og hugsa þetta í hnattrænu samhengi. Við tökum tillit til bæði mismunandi þema í Grænfánaverk- efninu og grunnþátta nýrrar aðal- námskrár allra skólastiga,“ segir Katrín. Grænfáni rafvæddur  Skólar á grænni grein skiptast á verkefnum á netinu  Fjölbrautaskólinn í Ármúla fékk Grænfánann í 5. sinn Morgunblaðið/Þórður Grænfáni Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra afhenti Bergdísi Helgu Jónsdóttur, formanni umhverfisráðs FÁ, Grænfánann við athöfn í vikunni. Grænfáninn » Við athöfnina í FÁ flutti Óm- ar Ragnarsson hugvekju um umhverfismál og Reykjavíkur- dætur sungu. » Alls eru um 230 skólar hér á landi þátttakendur í verkefninu Skólar á grænni grein. Katrín Magnúsdóttir Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins halda því fram að ný úttekt sem Intellecta vann fyrir innri end- urskoðun Reykjavíkurborgar um sameiningu skóla sé áfellisdómur yf- ir öllu sameiningarferlinu. Úttektin á stofnun skóla- og frístundasviðs borgarinnar og sameiningu grunn- skóla var lögð fram í borgarráði í gær. Fulltrúar meirihlutans líta öðr- um augum á úttektina og segja margt fá þar góða einkunn þótt al- varlegar athugasemdir séu gerðar við samráðsskort. Í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins segir að í úttektinni sé í einu og öllu tekið undir gagnrýni borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins á samein- ingu skóla. „Rauði þráðurinn í skýrslunni er að samráð var algjör- lega ófullnægjandi auk þess sem skorti framtíðarsýn og faglegar og fjárhagslegar forsendur. Í sem skemmstu máli fær sameiningarferl- ið, undirbúningur og framkvæmd verksins falleinkunn,“ segir þar. Miklar deilur urðu um sameiningu grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu á sínum tíma, sem meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar réðst í á síðasta kjörtímabili. Meirihluti Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri-grænna og Pírata bókaði á móti á borgarráðsfundinum í gær að þeir flokkar sem stæðu að nýjum meirihluta sem áttu á þessum tíma sæti í borgarstjórn hefðu ekki verið samstiga í afstöðunni til skóla- sameininga á síðasta kjörtímabili. Núverandi meirihluti væri hins veg- ar sammála um það mat að skýrslan bæri með sér að í verkefninu hefði margt verið vel gert og fengi góða einkunn en gerðar væru alvarlegar athugasemdir við mikilvæga þætti, ekki síst þá sem lytu að samráði við hagsmunaaðila og skorti á pólitískri samstöðu. Segja nýja úttekt vera áfellisdóm  Ólík sýn á skýrslu um sameiningu skóla Morgunblaðið/Sigurgeir S. Skóli Hvassaleitisskóli sameinaðist Álftamýrarskóla í Háaleitisskóla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.