Morgunblaðið - 23.01.2015, Side 19

Morgunblaðið - 23.01.2015, Side 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015 Í öllu þessu ferli sýnist hafa verið beitt skipulegum blekkingum og rangri upplýsingagjöf til Alþingis og almennings til að ná málum fram. Rétt til upprifjunar er vert að halda til haga að þegar Framsókn- arflokkurinn hélt því fram vorið 2009 að lán hefðu verið afskrifuð áður en þau voru færð í hina nýju banka var það miskunnarlaust barið niður af yf- irvöldum sem rangfærslur, þótt yf- irvöld vissu að rétt væri.“ Friða erlenda kröfuhafa Í greinargerðinni segir að við lest- ur fundargerða hinnar svokölluðu stýrinefndar um samninga við er- lenda kröfuhafa sumarið 2009 komi í ljós að meginverkefni nefndarinnar virðist hafa verið að friða hina er- lendu kröfuhafa með því að leita leiða til að taka upp/fara framhjá lögmæt- um úrskurðum FME frá október 2008 til þess að bæta hlut erlendra kröfuhafa og færa þeim ávinning í sinn hlut. Þessi vinna nefndarinnar hafi síð- an leitt til þess að gerðir voru samn- ingar milli fjármálaráðuneytisins og skilanefnda föllnu bankanna á árinu 2009. Í hverjum banka fyrir sig hafi verið samið um að taka skyldi upp mat FME / Deloitte LLP á verðmæti þeirra krafna sem fluttar höfðu verið yfir í hina nýju banka. „Ákveðið var í þeim störfum að víkja skyldi frá forsendum og stofn- úrskurðum Fjármálaeftirlitsins frá október 2008 þannig að starfsmönn- um bankanna var sigað á viðskipta- vini bankanna til þess að færa skila- nefndunum af geðþótta ávinning/ hagnað umfram þá niðurstöðu sem orðið hafði samkvæmt lögmætri ákvörðun FME sem tekin var með heimild í 5. gr. neyðarlaganna,“ segir orðrétt í greinargerðinni. Í lok greinargerðarinnar segir Víglundur: „Að lokum er rétt að halda til haga að enn er tími til rann- sóknar á þessum þáttum þar sem fyrningarfrestur þessara meintu auðgunarbrota sýnist vera 10 ár. Það er því nægur tími fyrir Alþingi að hlutast til um rannsókn þessara mála. Vel má hugsa sér að þingið feli um- boðsmanni sínum slíka rannsókn eða þá embætti ríkissaksóknara.“ Sjá nánar á mbl.is þar sem skoða má stofnúrskurði FME og önnur skjöl Víglundar. felld Samsett mynd/Eggert Bankarnir Víglundur ger- ir opinbera stofnúrskurði FME frá í október 2008. „Hér legg ég fram gögn sem staðfesta að bank- arnir hafi eignast nettókröfur, eftir að búið var að afskrifa þær að stórum hluta,“ sagði Víg- lundur Þorsteinsson í samtali við Morgunblaðið. Víglundur rifjar upp að framsóknarmenn hafi á sínum tíma haldið því fram að svona hafi þetta gerst, en þáverandi stjórnvöld, ekki síst Stein- grímur J. Sigfússon, þáverandi fjármálaráð- herra, og hans samverkamenn hafi ávallt sagt að svo hafi ekki verið. „Vinstri stjórnin hún blekkti og laug allan tím- ann. Það var aftur og aftur logið, þegar því var haldið fram að staðhæfingar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um að afskriftirnar hefðu verið dregnar frá, áður en lánin voru flutt í nýju bank- ana, væru rangar,“ segir Víglundur. „Steingrímur J. Sigfússon, til þess að frið- þægja erlenda kröfuhafa, lét rífa upp stofn- úrskurði FME og breyta, til ábata fyrir hrægammasjóði,“ sagði Víglundur. „Eftirleikurinn voru sam- felldar blekkingar og svik, sem gengu svo langt að það var ekki bara að skuldararnir og þjóðin væru blekkt, í dag- legum umræðum um málið, heldur hafa dómstólar verið blekktir allan tímann, því þessi gögn hafa aldrei verið lögð fyrir dómstóla. Það hafa frá hruni verið kveðnir upp margir dómar, þar sem fram hefur komið að bankarnir hafa þóst eiga annað en þeir eignuðust í raun,“ segir Víglundur. „Með neyðarlögunum voru kröfur haldlagðar til að jafna á móti innlánum og jafnframt voru öll tryggingaréttindi haldlögð. Bankarnir eign- uðust þannig aldrei neitt annað en nettó það sem var fært í bækur þeirra 2008. Jafnframt var öllum erlendum kröfum bank- anna umbreytt í íslenskar krónur miðað við gengi 30. september 2008.“ Víglundur segir að vitanlega hafi neyðarlögin verið sett til þess að eyða snöggt og ákveðið eins mikið og mögulegt var áhrifum hrunsins á al- menning og atvinnulíf í landinu og til þess að koma í veg fyrir langvarandi stöðnun vegna rétt- arágreinings. „Þegar Steingrímur J. fór í sína vegferð 2009 og lét rífa upp stofnúrskurði FME, þá eyddi hann þar með þeim jákvæðu áhrifum sem hefðu getað orðið og framlengdi kreppu á Íslandi, sem enn stendur,“ sagði Víglundur Þorsteinsson að lokum. „Skuldarar og þjóðin voru blekkt“ Víglundur Þorsteinsson Skannaðu kóðann til að sækja skjöl og gögn Víglundar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.