Morgunblaðið - 23.01.2015, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 23.01.2015, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015 Trúlofunarhringar - okkar hönnun og smíði jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind                                    ! " # "" ## $!  %%# $$% &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 !"  !" ##% $ "$ ##% $!! # %# ! $" "%   $ # $" ""# #$ $%"  # %"$ $$ %"" Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Norðmenn seldu 10,5% meira magn af þorski á síðasta ári en árið 2013. Veiddu þeir alls 475 þúsund tonn og hækkaði verð um 4,9%. Heildar- verðmæti útflutningsins fór því úr 112,5 milljörðum íslenskra króna í 130,2 millj- arða, sem er nærri því 16% hækkun milli ára. Þá veiddu Norðmenn tæplega 154 þúsund tonn af ufsa, sem er nærri 6 þúsund tonnum meira en árið 2013. Ýsuafli Norðmanna minnkaði hins vegar milli ára og dróst útflutningur saman á nærri öllum afurðaflokkum hennar nema ferskri óunninni ýsu. Þar jókst útflutningur um 5,7%. Norðmenn veiddu meiri þorsk en minna af ýsu ● Útreikningar Hagstofunnar sýna að launavísitalan hélst nærri óbreytt í desember síðastliðnum frá fyrri mán- uði. Vísitalan hækkaði því frá árslokum 2013 um 6,6% en hún er reiknuð út frá reglulegum launum í hverjum mánuði sem greidd eru fyrir umsaminn vinnu- tíma hvort sem um er að ræða dag- vinnu eða yfirvinnu. Sömu gögn sýna að kaupmáttar- vísitala launa lækkaði í desember um 0,3% frá fyrri mánuði en á árinu 2014 hækkaði vísitalan um 5,8%. Launavísitalan hækkaði um 6,6% á síðasta ári STUTTAR FRÉTTIR ... VIÐTAL Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Hagfræðingurinn Derek Ridyard fór yfir kosti og galla víðtækra og matskenndra heimilda samkeppnis- yfirvalda í Bretlandi á fundi Sam- taka atvinnulífsins í gær en hann tel- ur að Ísland eigi ekki að taka upp breska kerfið í einu vetfangi heldur taka minni skref og móta það að eig- in þörfum. Ridyard er stofnandi RBB Economics og hefur yfirgrips- mikla þekkingu og reynslu á sviði samkeppnismála. „Frá árinu 2002 hafa farið fram fimmtán sérstakar rannsóknir í Bretlandi þar sem sam- keppnisyfirvöld taka fyrir ákveðinn geira atvinnulífsins án þess að grun- ur leiki endilega á saknæmri hátt- semi aðila. Þessar rannsóknir fara fram á grundvelli víðtækra heimilda samkeppnisyfirvalda en með þessum hætti getur tekist að leiðrétta ástand og finna hluti sem draga úr skilvirkni markaðarins sem annars væri erfið- ara að gera,“ segir Ridyard en bend- ir jafnframt á að varhugavert geti verið að beita opnum og matskennd- um heimildum sem þessum. „Í að- eins einu máli af þessum fimmtán var ekkert aðhafst. Er það vegna þess að svo mikið er að í bresku hag- kerfi eða getur verið að stundum leitu menn logandi ljósi að einhverju sem er kannski ekki fyrir hendi?“ Ferlið þarf að vera opið Eðli ríkisvalds er slíkt að beiting þess þarf að vera bæði réttlætanleg og nauðsynleg. Ridyard bendir því á að rannsóknarferli samkeppnisyfir- valda þurfi að vera opið og gegnsætt. „Þegar þú gefur stofnunum svona víðtækt vald til rannsókna þarf að takmarka beitingu þess og tryggja að allt ferli sé opið og gegnsætt því þetta er ekki gallalaus heimild. Vissulega verður kerfið sveigjan- legra og getur tryggt skilvirkar lausnir þar sem þörf er á en það get- ur líka orðið of sveigjanlegt og verið íþyngjandi fyrir fyrirtæki. Ríkið er svo ekki alltaf besti aðilinn til að bæta stöðu markaðarins. Við sáum það í máli breska samkeppniseftir- litsins gegn gulu síðunum í Bret- landi. Fyrirtækið var vissulega í markaðsráðandi stöðu en ákvörðun um verðþak á þjónustu þess var nokkuð íþyngjandi þótt hún reyndist á endanum ekki nærri því jafnáhrifa- rík og aðrar lausnir sem markaður- inn kom með sjálfur í formi Google og annarra netfyrirtækja er leistu gulu síðurnar af hólmi á mörgum sviðum.“ Íslendingar taki lítil skref í einu Spurður um Ísland segir Ridyard skynsamlegt fyrir Íslendinga að fara varlega í sakirnar. „Það er erfitt að gera ríkar kröfur um samkeppi á öll- um sviðum þegar landið telur færri en 350 þúsund manns. Þess vegna er ekki alltaf æskilegt að minni lönd horfi til aðferða stærri landa. Íslend- ingar ættu að fara rólega í sakirnar og skoða þá þætti breska kerfisins sem henta miðað við aðstæður hér á landi.“ Víðtækar rannsóknarheim- ildir varhugaverðar Morgunblaðið/Eggert Fundur Derek Ridyard fræddi gesti á fundi SA um sérstakar rannsóknarheimildir breska samkeppniseftirlitsins.  Frá 2002 hafa 15 sérstakar samkeppnisbrotarannsóknir farið fram í Bretlandi Á þriðjudaginn tilkynnti Marel fækkun 150 stöðugilda hjá fyrirtæk- inu og segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, þetta skref í að ein- falda reksturinn. „Við störfum á kvikum og síbreytilegum markaði. Til þess að viðhalda samkeppnis- stöðu okkar og sækja aukna mark- aðshlutdeild ákváðum við fyrir ári síðan að taka ákveðin skref til ein- földunar á rekstri til að þjónusta þarfir viðskiptavina okkar enn bet- ur.“ Aðgerðirnar eru liður í því að ná yfir 100 milljóna evra rekstrarhagn- aði sem fyrirtækið hefur kynnt fjár- festum sínum og stefnt er að árið 2017. Sameina verksmiðjur Á síðasta ári voru kynnt áform um að samþætta framleiðslustarfsemi Marel í færri og stærri verksmiðjur en fyrirtækið rekur 17 verksmiðjur víðsvegar um heiminn. „Við kynnt- um í þessari viku samþættingu á allri framleiðslu okkar fyrir kjöt, kjúk- linga og áframvinnslu matvæla undir einu þaki í Gainesville í Georgíu-ríki og erum því að samþætta þá fram- leiðslustarfsemi sem var í Des Moi- nes í Iowa við framleiðslu okkar í Gainesville. Á síðasta ári tilkynntum við sambærilegar aðgerðir í Hollandi og Danmörku. Allar þessar aðgerðir munu styðja við frekari vöxt með lægri tilkostnaði en áður. Tilgangur- inn er að ná skilvirkari þjónustu við viðskiptavini og nýta tækjabúnað og starfsmenn betur en áður,“ segir Árni en áhersla verður einnig lögð á enn frekari nýsköpun. „Við stígum mikilvæg skref til að hlúa enn betur að nýsköpunarstarfi félagsins með því að tilkynna um fjárfestingu í nýrri nýsköpunarmiðstöð í Des Moi- nes í Iowa í Bandaríkjunum. Ný- sköpun og markaðssókn eru drif- kraftar frekari vaxtar til að sinna ört stækkandi markaði á heimsvísu.“ Morgunblaðið/Ómar Störf Marel samþættir framleiðslu- starfsemi sína í Bandaríkjunum. Marel stefnir á frekari nýsköpun  Fækkað um 150 stöðugildi til að einfalda reksturinn Heimir Örn Herbertsson, hæsta- réttarlögmaður hjá LEX, telur heppilegra að endurskoða verk- efni í stað þess að auka heim- ildir Samkeppnisstofnunar. „Við eigum að einblína á raunveruleg verkefni sem steðja að varðandi samkeppnisstöðu og markaðinn frekar en að víkka út rannsókn- arheimildir.“ Endurskoðun ÞÖRFIN Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.