Morgunblaðið - 23.01.2015, Síða 26

Morgunblaðið - 23.01.2015, Síða 26
26 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015 • Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. • Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og alhliða prentumsjón. • Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. • Kjaran er viðurkenndur söluaðili á prentlausnum af Ríkiskaupum. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is • BLI A3 MFP Line of the Year 2013 • BLI A3 MFP Line of the Year 2012 • BLI A3 MFP Line of the Year 2011 bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ríkisstjórn Úkraínu skýrði í gær frá því að uppreisnarmenn, sem njóta stuðnings Rússa, hefðu náð alþjóðaflugvellinum í Donetsk á sitt vald eftir harðar árásir síðustu daga. Varnarmálaráðuneytið í Kænu- garði viðurkenndi að stjórnarher- inn hefði aðeins nokkrar byggingar í grennd við flugvöllinn á valdi sínu. Alþjóðaflugvöllurinn var áður einn af bestu og fjölförnustu flug- völlum Austur-Evrópu. Flugstöðin var endurbyggð fyrir jafnvirði tæpra 130 milljarða króna fyrir lokakeppni Evrópumótsins í fót- bola í Úkraínu og Póllandi árið 2012 en margar bygginganna hafa verið lagðar í rúst. Flugvöllurinn hefur haft táknræna þýðingu fyrir stjórnarherinn og uppreisnarmenn- ina, að sögn fréttaskýrenda. Þeir segja að það sé mikið áfall fyrir ríkisstjórn Úkraínu að uppreisnar- mennirnir skyldu ná flugvellinum á sitt vald og það veiki stöðu hennar í samningaviðræðum við aðskiln- aðarsinnana í austurhéruðum landsins. Skýrt var frá brottflutningi her- liðsins frá flugvellinum nokkrum mínútum eftir að minnst þrettán óbreyttir borgarar biðu bana þegar flugskeyti eða sprengjum var skot- ið á rafknúinn strætisvagn nálægt miðborg Donetsk. Stjórn Úkraínu kenndi uppreisnarmönnum um árásina en stjórnvöld í Rússlandi neituðu því og sögðu að stjórnar- hermenn hefðu verið að verki. Segja þúsundir rússneskra hermanna í Úkraínu Uppreisnarmenn drógu úkra- ínskan stjórnarhermann, sem þeir höfðu tekið til fanga, að staðnum þar sem árásin var gerð og borgar- búar gengu í skrokk á honum. Seinna voru um 20 fangar úr röð- um stjórnarhermanna fluttir á staðinn og hópur borgarbúa kast- aði á þá snjóboltum og glerbrotum úr strætisvagninum, að sögn fréttaveitunnar AFP. Alls biðu 40 manns bana í árás- um í Austur-Úkraínu í gær og yfir 5.000 hafa látið lífið í átökunum frá því að þau hófust í apríl á liðnu ári. Stjórnin í Kænugarði sagði í fyrradag að um 9.000 rússneskir hermenn hefðu verið sendir til Austur-Úkraínu til að berjast með uppreisnarmönnunum. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sagði að rússneskir hermenn hefðu verið sendir inn í austurhéruð Úkraínu síðustu mánuði. „Ég vil ekki nefna neina ákveðna tölu, því við höfum séð að Rússar hafa sent herlið frá og til Úkraínu síðustu mánuði og þeir eru með fjölmennar hersveitir við landamærin. Við höfum líka séð fleiri þungavopn og rússnesk hern- aðartæki í Austur-Úkraínu.“ Hættur að tala um Nýja-Rússland Nokkrir fréttaskýrendur telja að Rússar hafi aukið stuðninginn við uppreisnarmennina að undanförnu. Aðrir eru á öðru máli og segja að fram hafi komið vísbendingar um að Vladímír Pútín Rússlansforseti og ráðherrar hans séu að reyna að koma í veg fyrir að átökin harðni. „Ef Úkraínuher sækir fram og kemst inn í Donetsk, svo dæmi sé nefnt, þarf Pútín forseti að bregð- ast við því og lendir þá í ógöng- um,“ hefur fréttavefur breska ríkisútvarpsins eftir Dmítrí Trenín, forstöðumanni Carnegie-mið- stöðvarinnar í Moskvu. „Ef hann reynir að snúa þróuninni við þarf hann að stórauka hernaðaraðstoð- ina og það gæti haft hörmulegar afleiðingar. Það er ekki það sem hann vill.“ Fréttaveitan Reuters segir að Pútín sé hættur að tala um yfir- ráðasvæði uppreisnarmannanna sem „Nýja-Rússland“ og noti þess í stað orðin „alþýðulýðveldin Lúg- ansk og Donetsk“. Fréttaskýrend- ur telja að þetta geti verið til marks um að málflutningur Pútíns í Úkraínudeilunni kunni að breyt- ast. Rússar hafa notað orðið Nýja- Rússland yfir landsvæði sem Katr- ín mikla innlimaði í Rússland á átjándu öld. Áfall fyrir stjórnina í Úkraínu  Uppreisnarmenn í Austur-Úkraínu náðu alþjóðaflugvellinum í Donetsk á sitt vald  Talið veikja stöðu stjórnarinnar í Kænugarði í friðarviðræðum  Meira en 5.000 manns hafa fallið í átökunum AFP Fangar sýndir Úkraínskir hermenn, sem uppreisnarmenn tóku til fanga, látnir krjúpa í Donetsk eftir að árás var gerð á strætisvagn í borginni. 4 km DONETSK Lesta- stöð Leninskí- hverfi Mikið manntjón í árás á strætisvagn Stjórnarhermenn fóru frá flugvellinum Átökin í Úkraínu harðna Svæði á valdi upp- reisnarmanna RÚSSLAND LÚHANSK DONETSK Lúhansk Gorlivka Mariupol Donetsk Asovhaf 20 km ÚKRAÍNA Rúm milljón hefur flúið » Yfir 5.000 manns hafa látið lífið í átökunum í austurhér- uðum Úkraínu frá því að þau hófust í apríl sl. þegar uppreisnarmennirnir náðu Donetsk og Lúhansk á sitt vald. » Um 1,2 milljónir manna hafa flúið heimkynni sín vegna blóðsúthellinganna, flestir þeirra til Rússlands. EPA Mannskæð árás Vopnaðir uppreisnarmenn við strætisvagn eftir að hann varð fyrir árás nálægt miðborg Donetsk í gær. Minnst 13 manns biðu bana. Efnahagur Rússlands hefur snar- versnað síðustu mánuði vegna lágs olíuverðs og það er farið að hafa áhrif á daglegt líf landsmanna. Það er ekki aðeins áhyggjuefni fyrir Rússa, heldur einnig fyrir grann- þjóðir þeirra, að mati Tors Bukk- volls, sérfræðings í málefnum Rúss- lands við rannsóknastofnun norska hersins. „Ráðamenn, sem hrekjast út í horn, eru ófyrirsjáanlegri en aðrir ráðamenn. Það getur verið ógnvæn- legt, einnig fyrir önnur lönd en Rúss- land,“ hefur fréttavefur Aftenposten eftir Bukkvoll. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað um rúman helming frá því í fyrrasumar og það hefur orðið til þess að tekjur rússneska ríkisins hafa minnkað til mikilla muna. Um 50% af tekjum rússneska ríkisins koma frá olíu- og gas- vinnslu. Um 68% af útflutnings- tekjum Rússa koma frá sölu á olíu og gasi, þar af 33% frá útflutningi á hráolíu, einkum til Evrópu. Lækkun olíu- verðsins hefur orðið til þess að gengi rúblunnar hefur lækkað mjög gagnvart Bandaríkjadollar. Fyrir ári greiddu Rússar 33 rúblur fyrir dollarann en nú kostar hann 63 rúblur. Gengisfallið hefur ýtt undir vax- andi verðbólgu sem má einnig rekja til þess að rússneska stjórnin ákvað að banna innflutning á matvörum frá Vesturlöndum til að svara refsi- aðgerðum þeirra vegna Úkraínu- deilunnar. Verð á kjöti, fiski og grænmeti hækkaði t.a.m. um 20% á liðnu ári og verð á sykri hækkaði um 40%, að því er fram kemur á frétta- vef Aftenposten. Bukkvoll telur að ef andstaðan við Vladimír Pútín forseta eykst í Rúss- landi verði það vegna hækkandi mat- vælaverðs. „Allar skoðanakannanir benda til þess að Rússar óttist mest verðbólgu. Ef verð mat- væla heldur áfram að hækka getur stuðningurinn við Pút- ín minnkað hratt,“ hefur Aft- enposten eftir Bukkvoll. Hann bendir þó á að fylgi Pútíns er enn mikið í Rússlandi. Um 70% myndu kjósa hann ef kosið væri nú, ef marka má kannanir. Verðbólga hættu- legust fyrir Pútín Vladimír Pútín

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.