Morgunblaðið - 23.01.2015, Page 26
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP)
eru margverðlaunuð fyrir hönnun,
myndgæði, notagildi, umhverfisvernd
og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga,
rekstrarleigusamninga og alhliða
prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur
sem eiga það sameiginlegt að gera
kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
• BLI A3 MFP Line of the Year 2013
• BLI A3 MFP Line of the Year 2012
• BLI A3 MFP Line of the Year 2011
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Ríkisstjórn Úkraínu skýrði í gær
frá því að uppreisnarmenn, sem
njóta stuðnings Rússa, hefðu náð
alþjóðaflugvellinum í Donetsk á
sitt vald eftir harðar árásir síðustu
daga.
Varnarmálaráðuneytið í Kænu-
garði viðurkenndi að stjórnarher-
inn hefði aðeins nokkrar byggingar
í grennd við flugvöllinn á valdi
sínu. Alþjóðaflugvöllurinn var áður
einn af bestu og fjölförnustu flug-
völlum Austur-Evrópu. Flugstöðin
var endurbyggð fyrir jafnvirði
tæpra 130 milljarða króna fyrir
lokakeppni Evrópumótsins í fót-
bola í Úkraínu og Póllandi árið
2012 en margar bygginganna hafa
verið lagðar í rúst. Flugvöllurinn
hefur haft táknræna þýðingu fyrir
stjórnarherinn og uppreisnarmenn-
ina, að sögn fréttaskýrenda. Þeir
segja að það sé mikið áfall fyrir
ríkisstjórn Úkraínu að uppreisnar-
mennirnir skyldu ná flugvellinum á
sitt vald og það veiki stöðu hennar
í samningaviðræðum við aðskiln-
aðarsinnana í austurhéruðum
landsins.
Skýrt var frá brottflutningi her-
liðsins frá flugvellinum nokkrum
mínútum eftir að minnst þrettán
óbreyttir borgarar biðu bana þegar
flugskeyti eða sprengjum var skot-
ið á rafknúinn strætisvagn nálægt
miðborg Donetsk. Stjórn Úkraínu
kenndi uppreisnarmönnum um
árásina en stjórnvöld í Rússlandi
neituðu því og sögðu að stjórnar-
hermenn hefðu verið að verki.
Segja þúsundir rússneskra
hermanna í Úkraínu
Uppreisnarmenn drógu úkra-
ínskan stjórnarhermann, sem þeir
höfðu tekið til fanga, að staðnum
þar sem árásin var gerð og borgar-
búar gengu í skrokk á honum.
Seinna voru um 20 fangar úr röð-
um stjórnarhermanna fluttir á
staðinn og hópur borgarbúa kast-
aði á þá snjóboltum og glerbrotum
úr strætisvagninum, að sögn
fréttaveitunnar AFP.
Alls biðu 40 manns bana í árás-
um í Austur-Úkraínu í gær og yfir
5.000 hafa látið lífið í átökunum frá
því að þau hófust í apríl á liðnu ári.
Stjórnin í Kænugarði sagði í
fyrradag að um 9.000 rússneskir
hermenn hefðu verið sendir til
Austur-Úkraínu til að berjast með
uppreisnarmönnunum. Jens
Stoltenberg, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins, sagði að
rússneskir hermenn hefðu verið
sendir inn í austurhéruð Úkraínu
síðustu mánuði. „Ég vil ekki nefna
neina ákveðna tölu, því við höfum
séð að Rússar hafa sent herlið frá
og til Úkraínu síðustu mánuði og
þeir eru með fjölmennar hersveitir
við landamærin. Við höfum líka séð
fleiri þungavopn og rússnesk hern-
aðartæki í Austur-Úkraínu.“
Hættur að tala um
Nýja-Rússland
Nokkrir fréttaskýrendur telja að
Rússar hafi aukið stuðninginn við
uppreisnarmennina að undanförnu.
Aðrir eru á öðru máli og segja að
fram hafi komið vísbendingar um
að Vladímír Pútín Rússlansforseti
og ráðherrar hans séu að reyna að
koma í veg fyrir að átökin harðni.
„Ef Úkraínuher sækir fram og
kemst inn í Donetsk, svo dæmi sé
nefnt, þarf Pútín forseti að bregð-
ast við því og lendir þá í ógöng-
um,“ hefur fréttavefur breska
ríkisútvarpsins eftir Dmítrí Trenín,
forstöðumanni Carnegie-mið-
stöðvarinnar í Moskvu. „Ef hann
reynir að snúa þróuninni við þarf
hann að stórauka hernaðaraðstoð-
ina og það gæti haft hörmulegar
afleiðingar. Það er ekki það sem
hann vill.“
Fréttaveitan Reuters segir að
Pútín sé hættur að tala um yfir-
ráðasvæði uppreisnarmannanna
sem „Nýja-Rússland“ og noti þess í
stað orðin „alþýðulýðveldin Lúg-
ansk og Donetsk“. Fréttaskýrend-
ur telja að þetta geti verið til
marks um að málflutningur Pútíns
í Úkraínudeilunni kunni að breyt-
ast. Rússar hafa notað orðið Nýja-
Rússland yfir landsvæði sem Katr-
ín mikla innlimaði í Rússland á
átjándu öld.
Áfall fyrir stjórnina í Úkraínu
Uppreisnarmenn í Austur-Úkraínu náðu alþjóðaflugvellinum í Donetsk á sitt vald Talið veikja
stöðu stjórnarinnar í Kænugarði í friðarviðræðum Meira en 5.000 manns hafa fallið í átökunum
AFP
Fangar sýndir Úkraínskir hermenn, sem uppreisnarmenn tóku til fanga,
látnir krjúpa í Donetsk eftir að árás var gerð á strætisvagn í borginni. 4 km
DONETSK
Lesta-
stöð
Leninskí-
hverfi
Mikið manntjón í
árás á strætisvagn
Stjórnarhermenn
fóru frá flugvellinum
Átökin í Úkraínu harðna
Svæði á valdi upp-
reisnarmanna
RÚSSLAND
LÚHANSK
DONETSK Lúhansk
Gorlivka
Mariupol
Donetsk
Asovhaf
20 km
ÚKRAÍNA
Rúm milljón hefur flúið
» Yfir 5.000 manns hafa látið
lífið í átökunum í austurhér-
uðum Úkraínu frá því að þau
hófust í apríl sl. þegar
uppreisnarmennirnir náðu
Donetsk og Lúhansk á sitt vald.
» Um 1,2 milljónir manna hafa
flúið heimkynni sín vegna
blóðsúthellinganna, flestir
þeirra til Rússlands.
EPA
Mannskæð árás Vopnaðir uppreisnarmenn við strætisvagn eftir að hann
varð fyrir árás nálægt miðborg Donetsk í gær. Minnst 13 manns biðu bana.
Efnahagur Rússlands hefur snar-
versnað síðustu mánuði vegna lágs
olíuverðs og það er farið að hafa
áhrif á daglegt líf landsmanna. Það
er ekki aðeins áhyggjuefni fyrir
Rússa, heldur einnig fyrir grann-
þjóðir þeirra, að mati Tors Bukk-
volls, sérfræðings í málefnum Rúss-
lands við rannsóknastofnun norska
hersins.
„Ráðamenn, sem hrekjast út í
horn, eru ófyrirsjáanlegri en aðrir
ráðamenn. Það getur verið ógnvæn-
legt, einnig fyrir önnur lönd en Rúss-
land,“ hefur fréttavefur Aftenposten
eftir Bukkvoll.
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur
lækkað um rúman helming frá því í
fyrrasumar og það hefur orðið til
þess að tekjur rússneska ríkisins
hafa minnkað til mikilla muna.
Um 50% af tekjum rússneska
ríkisins koma frá olíu- og gas-
vinnslu.
Um 68% af útflutnings-
tekjum Rússa koma frá
sölu á olíu og gasi, þar
af 33% frá útflutningi á
hráolíu, einkum til
Evrópu.
Lækkun olíu-
verðsins hefur
orðið til þess að
gengi rúblunnar
hefur lækkað
mjög gagnvart Bandaríkjadollar.
Fyrir ári greiddu Rússar 33 rúblur
fyrir dollarann en nú kostar hann 63
rúblur.
Gengisfallið hefur ýtt undir vax-
andi verðbólgu sem má einnig rekja
til þess að rússneska stjórnin ákvað
að banna innflutning á matvörum frá
Vesturlöndum til að svara refsi-
aðgerðum þeirra vegna Úkraínu-
deilunnar. Verð á kjöti, fiski og
grænmeti hækkaði t.a.m. um 20% á
liðnu ári og verð á sykri hækkaði um
40%, að því er fram kemur á frétta-
vef Aftenposten.
Bukkvoll telur að ef andstaðan við
Vladimír Pútín forseta eykst í Rúss-
landi verði það vegna hækkandi mat-
vælaverðs. „Allar skoðanakannanir
benda til þess að Rússar óttist
mest verðbólgu. Ef verð mat-
væla heldur áfram að hækka
getur stuðningurinn við Pút-
ín minnkað hratt,“ hefur Aft-
enposten eftir Bukkvoll.
Hann bendir þó á
að fylgi Pútíns er
enn mikið í
Rússlandi. Um
70% myndu
kjósa hann ef
kosið væri
nú, ef
marka má
kannanir.
Verðbólga hættu-
legust fyrir Pútín
Vladimír
Pútín