Morgunblaðið - 23.01.2015, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 23.01.2015, Qupperneq 27
FRÉTTIR 27Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015 Brussel. AFP. | Ungi rannsóknar- blaðamaðurinn Tinni verður aðal- stjarnan á einni af helstu lista- verka- og forngripakaupstefnum Evrópu sem hefst í Brussel á morgun og stendur til 1. febrúar. Frumteikning sem notuð var á kápu Tinnabókarinnar Dularfulla stjarnan (L’Étoile mystérieuse) verður þá til sölu og uppsett verð hennar er 2,5 milljónir evra, jafn- virði rúmra 380 milljóna króna. Á teikningunni eftir belgíska myndasöguhöfundinn og listamann- inn Georges Remi, eða Hergé, sést Tinni með hundinum sínum, Tobba, horfa furðu lostinn á stóran svepp á grýttri strönd. Teikningin er ekki í lit eins og fullgerða myndin á bókarkápunni þar sem sveppurinn er rauður og hvítur og líkist þekkt- um skynörvandi sveppi. Adáendur Tinna og listaverka- safnarar hafa sýnt teikningunni mikinn áhuga. Færst hefur í vöxt að safnarar greiði miklar fjárhæðir fyrir þekktar teiknimyndir. Til að mynda var fágæt teikning af Tinna seld á 539.880 evrur, jafnvirði 82 milljóna króna, í desember og teikningar úr einni opnu Tinna- bókar voru seldar í maí sl. á 3,58 milljónir evra, sem svarar tæpum 350 milljónum króna. Það er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir teikningar af Tinna og ævintýrum hans. Viðurkenna myndasögu- höfunda sem listamenn Ekki er langt síðan listaverka- safnarar sýndu slíkum teiknimynd- um lítinn áhuga. „Fyrir 25 árum, þegar maður fór til teiknimynda- höfunda á borð við Tardi til að kaupa bókarkápu horfðu þeir undr- andi á mann og spurðu hverjir í ósköpunum hefðu áhuga á slíkum myndum,“ sagði Alain Huberty, einn eigenda gallerís sem selur teikninguna. Teikningin sem notuð var á kápu Dularfullu stjörnunnar, sem var fyrst gefin út árið 1942, er á meðal fimm Tinna-teikninga sem eru í eigu safnara. Langflestar teikn- ingar Hergé eru í eigu stofnunar sem fjölskylda hans kom á fót árið 1983. Safnarar tóku að kaupa slíkar teikningar á níunda áratug aldar- innar sem leið og seldu þær oft bókaverslunum sem selja teikni- myndabækur. Seinna fóru lesendur bókanna að sýna teikningunum áhuga og einnig uppboðsfyrirtæki sem viðurkenna nú myndasöguhöf- undana sem listamenn. Hergé var á meðal fyrstu myndasöguhöfundanna sem safn- arar sýndu áhuga og seinna bætt- ust við listamenn á borð við Belg- ann André Franquin, höfund bókanna um Viggó viðutan, og Peyo, höfund Strumpanna. „Verðið ræðst fyrst og fremst af nafni listamannsins og síðan af gæðunum,“ sagði Huberty. „Ein- stök verk seljast á einstaklega háu verði.“ Mikill áhugi er á teiknimynda- bókum í Bandaríkjunum. Mjög vel með farið eintak af fyrstu Super- man-bókinni frá júní 1938 var selt á 3,2 milljónir dala, jafnvirði rúmra 420 milljóna króna, í Bandaríkj- unum í júní síðastliðnum. Seljand- inn, Darren Adams, safnari í Wash- ington-ríki, sagði að þetta væri líklega besta eintakið sem til væri af bókinni og lýsti henni sem „helg- ustu“ teiknimyndabók sögunnar. Því eru þó aðdáendur Tinna alls ekki sammála. Tinna-mynd á 380 milljónir  Teiknimyndir stórhækka í verði AFP Eftirsótt Kona virðir fyrir sér frumteikningu sem notuð var á kápu Tinna- bókarinnar Dularfulla stjarnan. Hún verður til sölu í galleríi í Brussel. Bólivíumaður tekur þátt í göngu í tilefni af því að Evo Morales sór embætt- iseið forseta í þriðja skipti í gær. Morales varð fyrsti forseti Bolivíu úr röð- um indíána árið 2006 og var endurkjörinn til 2020 með 60% atkvæða í októ- ber. Hann hefur þjóðnýtt olíulindir og aðrar náttúruauðlindir landsins. AFP Morales sver forsetaeiðinn Ný könnun hefur leitt í ljós að um helmingur fullorðinna Japana stundar ekki kynlíf, eða þá mjög sjaldan. Þessi niðurstaða veldur stjórnvöldum í Japan áhyggjum vegna lágrar fæðingartíðni. Að meðaltali eignast hver kona aðeins 1,41 barn og það þýðir að íbúunum fækkar. Íbúarnir eru nú rúmar 126 milljónir en um fjórðungur þeirra er 65 ára eða eldri og hlutfall aldraðra hækkar stöðugt. Könnunin leiddi í ljós að 48,3% japanskra karl- manna stunduðu kynlíf í mánuðinum fyrir könnunina og 50,1% japanskra kvenna. Rúm 20% karlmannanna báru því við að þeir ynnu svo mikið að þeir gætu ekki stundað kynlíf sökum þreytu. 24% kvennanna sögðust ekki hafa stundað kynlíf vegna þess að það væri „of erfitt“. ÍBÚUM JAPANS FÆKKAR Yfirvöld hafa áhyggjur af litlu kynlífi TILBOÐ TILBOÐTILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ T ILBOÐ Hátúni 6a | 105 Reykjavík | Sími 552 4420 | www.fonix.is Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - Vefverslun: www.spilavinir.is - sendumumallt land! afsláttur Spil er frábær gjöf Sendum um allt land spilavinir.is Bezzerwizzer fÆst hjá okkur! Við aðstoðum þig við að velja spilin og pökkum þeim inn í gjafapappír fyrir þig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.