Morgunblaðið - 23.01.2015, Page 28

Morgunblaðið - 23.01.2015, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Enn er gripiðtil aðgerðatil að bjarga evrunni. Mario Draghi, bankastjóri Seðla- banka evrunnar, tilkynnti í gær að bankinn myndi verja 60 millj- örðum evra (9.200 milljörðum króna) á mánuði til kaupa á ríkisskuldabréfum gefnum út í evruríkjum og veðtryggðum skuldabréfum frá mars að telja fram í september á næsta ári. Spáð hafði verið að nú yrðu prentvélarnar settar í gang og markaðirnir þegar gert ráð fyr- ir því í bókum sínum. Þessi aðgerð heitir á máli innvígðra „magnbundin íhlut- un“ og er ætlað að hleypa lífi í máttvana hagkerfi. Hagvöxtur á evrusvæðinu er með minnsta móti, þýska efnahagsvélin farin að hiksta og óttinn við verð- hjöðnun eða langvarandi stöðn- un fer vaxandi. Hugsunin er sú að með því að seðlabankinn prenti peninga til að kaupa skuldabréf muni vext- ir lækka, sem verði til þess að einstaklingar og fyrirtæki taki lán, neysla og útgjöld aukist, ný störf verði til og efnahagurinn taki við sér. Þetta er sú leið, sem farin hefur verið í Bandaríkjunum undanfarin sex ár og margir hafa hvatt til þess að það sama yrði gert á evrusvæðinu. Ang- ela Merkel, kanslari Þýska- lands, hefur hins vegar verið al- gerlega andvíg því, einkum á þeirri forsendu að þá kæmust þau ríki, sem eru í mestu klandri, hjá því að takast á við rót vandans og ráðast í umbæt- ur, sem vissulega kunni að vera sársaukafullar, en muni þegar upp er staðið skila traustari undirstöðum fyrir efnahaginn. Sýn Merkel er sem sagt sú að frekar en að ýta vandanum á undan sér eigi að taka á honum. Ekki er hægt að segja að þetta hafi virkað hingað til á evru- svæðinu, en þá er líka rétt að halda til haga að ekki hefur verið ráðist í um- bætur af offorsi, enda stjórnmálamönnum nokk- ur vorkunn. Það er ekki væn- legt til vinsælda og endurkjörs að kvelja kjósendur. Síðan er auðvitað undirliggj- andi vandi evrunnar og helsta ástæðan fyrir því að hún hefur nú verið í gjörgæslu í hálfan áratug. Upptaka evrunnar var pólitískt keppikefli, lausnar- gjaldið fyrir því að Þýskaland fengi að sameinast, án þess að efnahagslegar forsendur væru fyrir hendi. Tæki og tól til að halda úti sameiginlegu myntsvæði margra ríkja og draga úr mis- vægi þegar uppsveifla var á einum stað og niðursveifla á öðrum voru ekki fyrir hendi. Evran er peningahít. Gallinn við að grípa nú til „magnbundinnar íhlutunar“, það er að segja peningaprent- unar til kaupa á skuldabréfum, á evrusvæðinu er að vextir eru nú þegar í lágmarki. Stýrivext- ir Seðlabanka evrunnar voru 0,05% og þeim var ekki breytt í gær, enda lítið svigrúm til lækkunar ætli menn að halda sig plúsmegin við núllið. Því eru hverfandi líkur á því að þessi aðgerð muni hafa þau áhrif á vexti að útlán muni aukast. Þeir eru það lágir fyrir. Hinir nýprentuðu peningar munu þá frekar fara í að kaupa hlutabréf og fasteignir með til- heyrandi hættu á bólumyndun. Hefði Draghi ætlað að auka neyslu í raun hefði honum sennilega verið nær að dreifa þessu fé beint til almennings á evrusvæðinu. Seðlabanki evr- unnar uppfyllir væntingar markaða en hætt er við að að- gerðin reynist gagn- laus fjáraustur í evruhítina} Prentvélarnar ræstar Vímuefnaneyslahefur farið minnkandi meðal unglinga á Íslandi ef marka má kann- anir og er það vel. Vandinn er þó því miður ekki úr sögunni og á mbl.is var í gær haft eftir Þórði Kristjánssyni, skóla- stjóra í Seljaskóla, að komið hefðu upp tilfelli þar sem nem- endur hefðu reykt kannabis á skólatíma. Hann bætir við að í slíkum tilfellum sé nemendum vísað úr skóla og þá sé ekkert úrræði til að taka við þeim. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins lögðu á fundi skóla- og frí- stundaráðs Reykjavíkur á miðvikudag fram tillögu um að koma á sérúrræði fyrir grunnskólanema með áfengis- og vímuefnavanda. Mun tillagan vera að undirlagi skólastjóra í Árbæ og Breið- holti. Það getur verið afdrifaríkt fyrir ungt fólk að misstíga sig og því þarf samstöðu um að tryggja að fyrir hendi séu úr- ræði, sem komi í veg fyrir að það flosni upp úr námi. Leita þarf ráða til að neysla leiði ekki til að ungmenni flosni upp úr námi} Ungt fólk og vímuefni Þ egar skipa þarf varamann í mann- réttindaráð í höfuðborg lands er ekki nema sjálfsagt að til verksins veljist maður sem hefur opin- berlega lýst yfir andúð sinni á fólki tiltekinna trúarbragða. Hafi viðkomandi einnig ítrekað viðrað þær skoðanir sínar að samkyn- hneigt fólk eigi ekki að njóta sömu mannréttinda og aðrir er auðvitað borðleggjandi að rétti kandí- datinn er fundinn. Hvað þá ef viðkomandi finnst mannréttindaráð óþarft. Sé þetta ekki nóg, má bæta við að téður varamaður er í allt öðrum stjórnmálaflokki en hann er fulltrúi fyrir í ráðinu. Þetta gerðist ekki í einu af þeim löndum heims þar sem mannréttindi og réttindi minni- hlutahópa eru lítils metin. Þetta er heldur ekki atriði í farsakenndri B-mynd, heldur gjörningur borgarfulltrúa Framsóknar og flugvallarvina sem virðast hafa álitið að ef mínusarnir væru bara nógu margir, þá yrði úr plús. Borgarfulltrúar Framsóknar og flugvallarvina völdu Gústaf Níelsson ekki af handahófi úr þjóðskrá til að sitja í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar. Þeir völdu hann sér- staklega, leituðu meira að segja út fyrir raðir eigin flokks- manna. Ástæðan hlýtur að vera sú að þeir hafi talið skoðanir hans fara saman við stefnu framboðsins. Þeir sem gagnrýndu þessa skipan eru að sjálfsögðu sak- aðir um pólitískan rétttrúnað, eins og við mátti búast. Gagn- rýnin, sem m.a. kom frá ýmsu framáfólki Framsóknar- flokksins, varð síðan til þess að ákveðið var að draga skipanina til baka, tilkynning kom frá borgarfulltrúunum um að þeir hefði ekki þekkt til afstöðu Gústafs og að skipanin hefði ekki ver- ið í samræmi við stefnu Framsóknarflokksins. Þessar skýringar kalla á ýmsar spurningar. Eins og til dæmis hvers vegna í ósköpunum sé verið að velja mann til setu í ráði, þegar síðar er fullyrt að ekki hafi verið vitað hver afstaða hans er til þess málaflokks sem ráðið sinnir. En sú spurning, sem líklega er brýnast að fá svar við, er þessi: Hver er eiginlega stefna Framsóknar- flokksins fyrst borgarfulltrúar hans koma fram fyrir hönd flokksins með þessum hætti? Í grundvallarstefnuskrá Framsóknarflokks- ins er kafli sem ber yfirskriftina mannréttindi. Þar segir m.a. að flokkurinn hafni hvers konar mismunun sem geri greinarmun á fólki eftir kynþætti eða kynhneigð. Þetta lítur vel út, en það eru at- hafnirnar sem segja mest til um hver stefna einstakra flokka er í raun. Verkin tala hærra en stefnan. Að róta í pólitískum sorphaugum eftir fordómum, sem hugsanlega kunna að falla einhverjum í geð og verða til þess að hala inn einhver atkvæði, hefur sem betur fer átt lítt upp á pallborðið í íslenskum samfélagi og viðbrögðin við þessari umdeildu skipan borgarfulltrúanna í Reykjavík staðfesta það. Framsóknarflokkurinn þarf að gera upp við sig hvern- ig flokkur hann vill vera. Almenningur á rétt á að fá að vita það, ekki síst þeir mörg þúsund landsmenn sem kusu flokk- inn í síðustu alþingiskosningum. annalilja@mbl.is Anna Lilja Þórisdóttir Pistill Rótað í pólitískum ruslahaugum STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldur@mbl.is Norska fjármálafyrirtækiðDNB spáir mjúkri lend-ingu í norska hagkerfinu íkjölfar olíuhrunsins. Kjersti Haugland, yfirhagfræð- ingur hjá DNB, fór yfir þessa spá bankans í samtali við Morgunblaðið í Ósló í gær. Hún segir þess vænst að olíu- hrunið muni hafa mest efnahagsleg áhrif á vesturströnd Noregs, einkum í höfuðstað olíuiðnaðarins, Stafangri, og í Norður-Noregi, þar sem hafa ver- ið miklar væntingar um olíu- og gas- vinnslu á nýjum svæðum, þar með tal- ið Barentshafi. Olíuhrunið muni seinka vinnslu á nýjum svæðum en eftir því sem olíu- verðið hækkar á ný á næstu árum muni fjárfesting í slíkum verkefnum aukast á ný. Horfir bankinn í því efni til þess að olíuvinnsla úr leirsteini í Bandaríkjunum geti í sumum til- fellum verið á mörkum þess að vera arðbær þegar olíuverðið er jafn lágt og nú. Verð gæti hækkað um 40% í ár Sérfræðingar DNB spá því að meðalverð á tunnu af olíu verði um 65 dalir í ár og að verðið í árslok verði um 70 dalir. Olíuverðið er nú um 50 dalir og þarf það því að hækka um 40% í ár til þess að spáin gangi eftir. Að sögn Haugland spáir bankinn því að atvinnuleysi í Noregi aukist úr 3,5% í fyrra í 4,5% árið 2017 – þegar það nái hámarki – og að 24 þúsund fleiri verði þá á atvinnuleysisskrá en nú. Samdráttur í olíugeiranum muni koma niður á hagvexti. Samdrátturinn í olíuiðnaðinum muni hafa í för með sér að kaup- máttur aukist aðeins um 0,5% í ár sem sé minnsta aukningin frá 1995. Á hinn bóginn skapi það öðrum atvinnugreinum tækifæri að launa- kostnaður sé að lækka. Fyrirtæki í öðrum greinum muni þannig verða samkeppnisfær í launum hjá sérfræð- ingum, til dæmis verkfræðingum, sem olíugeirinn hefur sogað til sín. Ávöxtunin vegur á móti lækkun Þeirri reglu hefur verið fylgt í Noregi frá árinu 2001 að norska ríkis- stjórnin má nota að hámarki sem nemur 4% af verðmæti norska olíu- sjóðsins til opinberra útgjalda. Haugland segir að núverandi ríkisstjórn hafi ákveðið að hlutfallið skyldi vera 3% í ár. Vegna góðrar ávöxtunar sjóðsins verði útgjöldin aðeins sem svarar 2,5% af verðmæti olíusjóðsins. Það sé mat bankans að jafnvel þótt olíuverðið lækkaði niður í 40 dali á tunnuna og ekkert svigrúm væri til að leggja sjóðnum til fé muni vextir og arðsemi fjárfestinga í ár vega þar upp á móti. „Það setur svig- rúmið sem er fyrir hendi í samhengi,“ segir Haugland og bendir á að veik- ing norsku krónunnar hafi aukið virði eigna sjóðsins í öðrum myntum. Vaxtalækkun heldur verði uppi Greiningardeild bankans telur að húsnæðisverð muni haldast stöð- ugt í Noregi. Vaxtalækkanir norska seðlabankans muni lækka greiðslu- byrði norskra húsnæðislána sem eru að sögn Haugland flest með breyti- lega vexti. Það muni vega á móti nei- kvæðum áhrifum olíuhrunsins á hag- kerfið. Norðmenn skulda að meðaltali sem nemur 200% af árlegum ráðstöf- unartekjum og hefur hlutfallið aldrei verið svo hátt. Minni umsvif í olíuiðnaðinum muni koma niður á hótel- og ráð- stefnugeiranum í Noregi, einkum í Stafangri, og á veitinga- og þjónustu- geiranum. Bókanir á norskum hótel- um hafi minnkað. Á hinn bóginn muni lægra gengi norskrar krónu skapa tækifæri í ferðaþjónustu. Olíuhrunið hægir á hagvexti í Noregi Morgunblaðið/Baldur Frá gullöldinni Olíugróði síðustu ára í Noregi birtist í glæsilegum skrif- stofubyggingum við aðaljárnbrautarstöðina í Ósló. Greiningar- deild DNB telur að gengi norsku krónunnar hafi lækkað of mikið vegna olíu- hrunsins. Það sé of lágt skráð og muni hækka um 5% gagnvart evru í ár. Rökstyður Haugland það með vísan til efnahagshorfa í Noregi. „Það er engin kreppa í Noregi,“ segir hún. Haugland segir neikvæðar efnahagshorfur á evrusvæðinu hafa neikvæð áhrif á fjárfestingar norska olíu- sjóðsins í Evrópu. Hins vegar hafi inngrip Evrópska seðla- bankans með magnbundinni íhlutun, eða peningaprentun, haft jákvæð áhrif á verðmæti eignasafnsins. Hún segir sér- fræðinga DNB vera bjartsýnni á horfurnar á evrusvæðinu en sér- fræðingar margra fjármálafyr- irtækja og telji ekki að evru- svæðið muni liðast í sundur. Engin kreppa í Noregi SÉRFRÆÐINGAR DNB Kjersti Haugland

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.