Morgunblaðið - 23.01.2015, Síða 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015
ORKUSJÓÐUR
Í 2. grein reglugerðar um Orkusjóð nr. 514/2003 eru tilgreindar
eftirtaldar heimildir til styrkveitinga úr Orkusjóði:
Orkusjóður auglýsir
rannsóknarstyrki 2015
Við úthlutun styrkja 2015 verður sérstök áhersla lögð á:
Orkustofnun fylgir stefnu stjórnvalda um rafræna stjórnsýslu og skal senda
rafrænar umsóknir af vef Orkustofnunarwww.os.is
Nánari upplýsingar á www.os.is, og hjá Orkusjóði, Rangárvöllum við Hlíðarfjallsveg,
603 Akureyri í símum 569 6083 - 894 4280 - Netfang Orkusjóðs er jbj@os.is
að veita styrki eða áhættulán til hönnunar eða smíði frumgerðar tækja
og búnaðar til rannsóknar og nýtingar orkulinda
að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði hagkvæmrar orkunotkunar,
þ.m.t. til fræðslu og upplýsingastarfsemi
að veita styrki til verkefna sem stuðla að nýtingu á innlendri orku í stað
jarðefnaeldsneytis og styrkja alþjóðasamvinnu um slík verkefni
hagkvæma orkunýtingu og orkusparnað
innlenda orkugjafa
vistvænt eldsneyti og sparnað jarðefnaeldsneytis
öflun þekkingar á þessum sviðum ogmiðlun hennar
rannsóknir, þróun og samstarf sem að þessu miðar
atvinnusköpun
Umsóknarfrestur er til 6. mars 2015
ORKUSTOFNUN
ORKUSJÓÐUR
Margir líkja mosk-
um við tilbeiðsluhús
kristinna manna, gyð-
inga, hindúa eða búdd-
ista án þess að skilja,
að moska þjónar ekki
aðeins tilbeiðsluþörf
múslíma heldur er hún
stjórnstöð fyrir allt
veraldlegt og andlegt
líf múslíma. Íslam ger-
ir ekki greinarmun á
veraldlegum og trúar-
legum þáttum lífsins. Samkvæmt
íslam er lífið sjálft aðeins hluti
trúarlífsins en önnur trúarbrögð
líta svo á að trúin sé hluti lífsins.
Frelsi einstaklings er víðsfjarri eðli
íslams. Reglur íslams ráða yfir öllu
lífi og hegðun manna. Skyldan til
undirgefni við Allah er skilyrðis-
laus.
Moskan er skóli, dómstóll, æf-
ingastöð, samkomuhús en ekki ein-
göngu tilbeiðslustaður. Allar mosk-
ur heimsins eru að fyrirmynd
fyrstu moskunnar, mosku Múham-
eðs í Medína. Þar kvað Múhameð
upp dóma, hverja skyldi lífláta,
hvernig haga skyldi árásum og
stríði. Moskan var geymslustaður
vopna, æfingastöð fyrir stríðsmenn
Múhameðs og bardagasveitirnir
voru sendar þaðan til að ræna,
rupla, drepa og hneppa í þrældóm,
kúga heiminn undir Allah og Mú-
hameð, – undir yfirráð íslams.
Allar moskur gegna sama hlut-
verki sem moska Múhameðs í Med-
ína. Verkefni moskunnar er oft hul-
ið almennum múslímum. Alkunna
er þó að ýmislegt fer fram innan
moskanna sem brýtur gróflega
gegn þeim samfélögum sem hafa
leyft starfsemi þeirra. Vopn hafa
iðulega fundist í moskum. Þar eru
lögð á ráðin til að kúga löndin undir
alræðið og kannanir sýna að í 80%
af moskum í Vesturlöndum er boð-
að jihad, hatur, dauði og tortíming
manna af öðrum trúar-
brögðum eins og boð-
að er í helstu trúar-
ritum múslíma,
kóraninum, hadíðum
og sirah.
Engum kom á óvart
að sprengjuverksmiðja
Hamas fannst í mosku
á Gaza. Hins vegar
vakti meiri athygli
þegar vopn fundust í
moskunni í Finnsburys
Park í London. Imam-
inn þar, Abu Hamza,
þjálfaði hermdar-
verkamenn og geymdi vopn í mosk-
unni. Hann sá ekkert athugavert
við þessa hegðan enda í samræmi
við handbækur íslams. Aðrir imam-
ar styðjast við sömu bækur, sama
stýriverk.
Moska er merki um yfirráð ísl-
ams jafnvel í landi þar sem múslím-
ar eru í minnihluta og ákall til
þeirra að endurheimta landið undir
yfirráð Allah og sharíalög. Mú-
hameð sagði Gabríel erkiengil hafa
fært honum þau skilaboð Allah að
allur heimurinn væri ein allsherjar
moska. Þeir sem neita þessu hafi
brotið af sér gegn Allah. Múslímum
er ætlað að endurvekja yfirráð Al-
lah yfir svæðum sem hafi verið tek-
ið frá Allah með rangindum. Þeir
sem verjast þessari „göfugu“ ætlun
séu því í raun árásaraðilar gegn Al-
lah og því er jihad ekki árás músl-
ima á „kuffar (skammaryrði músl-
ima fyrir alla þá sem ekki eru
múslimar) heldur varnaraðgerðir
gegn rangindum sem kuffar hafa í
frammi gegn Allah og Múhameð
(sem nú hefur legið dauður í
ómerktri gröf í 1383 ár).
Hér er ástæða til að rifja upp
orð, sem Erdogan, forseti Tyrk-
lands gerði að sínum:. „Moskurnar
eru herskálar okkar, hvelfingarnar
hjálmar okkar, bænaturnarnir
byssustingir og hinir trúræknu her-
menn okkar.“ Það eru því ekki mín
orð að moska sé vígi óvinarins í
landi okkar heldur orð íslamistans.
Einn helsti tilgangur með mosku
er að vinna að „hijra“ einstaklinga
og með því að íslamísera samfélagið
þar til íslam er ráðandi og getur
kúgað samfélagið undir sína stjórn
og þá auðvitað sérsaklega „kuffar“
en ekki síður konur og börn. Hijra
hét flutningur Múhameðs frá
Mekka til Medína þegar staða hans
breyttist frá því að vera heldur illa
þokkaður götuprédikari í voldugan
og grimman herkonung. Það felst í
hijra að taka upp múslimska háttu
t.d. fyrir konur að klæðast í slæður
yfir hár og jafnvel fyrir andlit og
láta hvergi sjást í hold nema
kannski á höndum og á andliti. Sér-
staklega jafngildir þetta að flytjast
frá „jahiliyyah“ (fáfræði fyrir daga
íslams) til fullrar íslamiseringar,
þar með talin innleiðing sharíalaga.
Trúfrelsisákvæði stjónarskrár-
innar eiga ekki við um íslam vegna
þess að íslam stenst ekki skilyrðin
sem stjórnarskráin setur fyrir iðk-
un hennar hérlendis. Hér er vísað í
63. grein stjórnarskráinnar: „Allir
eiga rétt á að stofna trúfélög og
iðka trú sína í samræmi við sann-
færingu hvers og eins. Þó má ekki
kenna eða fremja neitt sem er
gagnstætt góðu siðferði eða alls-
herjarreglu.“
Þeir, sem þekkja íslam, vita að
íslam samræmist ekki góðu siðferði
eða allsherjarreglu. Flestir sem
ekki þekkja íslam ættu að hafa
hugboð um þetta sama.
Hvaða boðar íslam sem ekki
samræmist allsherjarreglu? Hér
koma nokkur atriði: Misrétti milli
karlmanna og kvenna. Misrétti milli
múslíma og annarra trúarhópa.
Dauðarefsingar fyrir að ganga af
íslamstrú. Dauðarefsingar fyrir
samkynhneigð. Limlestingar fyrir
t.d. þjófnað. Dauðarefsingar fyrir
að hallmæla íslam eða Múhameð.
Bann á tjáningarfrelsi um íslam.
Karlmönnum er leyft að eiga fjórar
konur. Margt fleira ljótt má tína til.
Fari svo að moskan í Sogamýri
rísi fyrir peninga frá arabískum
salafistum, sem hafa verið að
styrkja ISIS og Al Kaída, ber lög-
reglunni að stöðva boðun íslams í
húsinu. Sama á við um starfsemi
beggja félaga múslíma á Íslandi,
nema þessi félög lýsi yfir andstöðu
við þau ákvæði í trúarritum sínum
sem stríða gegn allsherjarreglu
(þ.e. öll íslensk lög) og góðu siðferði
eins og við skilgreinum það.
Hvað er moska?
Eftir Valdimar H.
Jóhannesson » Alkunna er þó að
ýmislegt fer fram
innan moskanna sem
brýtur gróflega gegn
þeim samfélögum sem
hafa leyft starfsemi
þeirra.
Valdimar H
Jóhannesson
Höfundur er á eftirlaunaaldri.
Hérlendis er að
finna hóp sem sam-
anstendur af vel
menntuðum ein-
staklingum, þessir að-
ilar hafa hlotið gráðu
í ýmsum fræðum sem
bæði er vöntun á hér-
lendis sem og gætu
nýst okkur vel.
Ástæða þess að
þessir aðilar geta
ekki starfað á sínu
sérsviði er sú að þeir hlutu mennt-
un sína í öðru landi og menntun
þeirra er af þeim ástæðum ekki
metin til jafns við þá sem mennta
sig hér heima.
Við höfum lækna, raftækni- og
efnafræðinga sem starfa á
matsölustöðum og við ræstingar.
Þarna er ekki verið að hjálpa fólki
að aðlagast og taka þátt í íslensku
samfélagi.
Sumir hafa reynt að fá nám sitt
og gráður samþykktar hérlendis
en alltof margir fá þau svör að til
þess þurfi viðkomandi að taka 3-4
ár í háskóla til að fá „íslenskan
stimpil“. Það er ótrúlegt að fólk
eigi að þurfa að endurtaka nám
sem það hefur nú þegar lokið til
að vera almennilega viðurkennt
hérlendis.
Af samtölum mínum við
einstaklinga í þessari stöðu eru
margir sem segjast vera tilbúnir
til þess að reyna við skólann aftur,
en aðstæður þeirra eru svo margs-
konar að fæstir hafa möguleika á
því þrátt fyrir vilja. Fólk er komið
með fjölskyldur, hefur haft lág
laun í einhvern tíma og sér ekki
svigrúm til þess að leggja í kostn-
aðinn sem því fylgir að framfleyta
fjölskyldu og vera í fullu námi.
Úrbætur
Sem betur fer eru einstaka fög
að leita leiða til að
bæta úr þessu en það
á ekki að þurfa að
knýja fólk fram aftur
og aftur á milli skóla,
starfsstétta og stofn-
ana. Ef hérlendis
væri byggt upp kerfi
sem hjálpaði ein-
staklingum sem eru
fullfærir í sínu fagi að
aðlagast íslenskum
aðstæðum sem að
þeirra sérsviði snúa
og verkferlum hér-
lendis þá eiga einstaklingar sem
flytja til Íslands ekki að þurfa að
byrja algjörlega upp á nýtt til að
fá það staðfest að þeir hafi gengið
í skóla.
Spurningin er líka hvort munur
sé á þeim Íslendingum sem læra
erlendis og koma svo til landsins
aftur til að hefja störf og þeim
einstaklingum sem ólust upp í
öðru landi, lærðu þar og koma svo
til Íslands til að hefja störf.
Það er brýnt að
menntamálaráðherra leiti leiða til
að hjálpa fólki sem flytur til Ís-
lands að láta meta menntun þess.
Við búum í fjölmenningarsam-
félagi og viljum að landið okkar
taki vel á móti fólki sem vill flytja
hingað, til þess þurfum við einmitt
að búa til verkfæri til að láta það
ganga. Virkjum þau sem hafa
þekkinguna og getuna til starfa.
Svo er aldrei að vita hvað við get-
um lært af þeim.
Virkjum þau
Eftir Jóhönnu Maríu
Sigmundsdóttur
Jóhanna María
Sigmundsdóttir
» Þarna er ekki verið
að hjálpa fólki að að-
lagast og taka þátt í ís-
lensku samfélagi.
Höfundur er þingmaður
Framsóknarflokksins.
Vart hefur þing komið saman aftur
fyrr en stjórnarandstaðan byrjar sín
hefðbundnu upphlaup. Nú er hún að
amast við því að viðræðum við ESB
verði slitið. Skorað er á ríkissstjórn-
ina að halda striki sínu í því máli.
Einnig er stjórnarandstaðan að fetta
fingur út í það að verðtrygging sé
ekki afnumin. Það er nú kannski
ekki jafn einfalt mál og stjórnarand-
staðan vill vera láta. Hvers vegna af-
nam vinstri stjórnin ekki verðtrygg-
inguna ef það er svona auðvelt? Það
er einkenni á þessari stjórnarand-
stöðu að hún hefur allt á hornum sér.
Rétt er að benda á að vinstri flokk-
arnir sátu með hendur í skauti allt
síðasta kjörtímabil, létu allt reka á
reiðanum og tóku ekki á einu eða
neinu. Það er því auðvelt fyrir þá að
finna að öllu.
Sigurður Guðjón Haraldsson.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Upphlaup
Alþingishúsið Innandyra er tekist á um framhald aðildarviðræðnanna við ESB.