Morgunblaðið - 23.01.2015, Síða 31

Morgunblaðið - 23.01.2015, Síða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015 ✝ Jóhann Ingi-mar Hannesson fæddist í Bolungar- vík 17. apríl 1933. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Ísa- fold 17. janúar 2015. Foreldrar hans voru Sigurjóna Guðrún Jóhanns- dóttir, f. 4. maí 1910, d. 1995, og Hannes Lárus Guðjónsson, f. 6. ágúst 1905, d. 2003. Jóhann átti fimm systkini: Inga Hafdís, f. 1930, d. 1997. Guðjón, f. 1935. Sigurður, f. 1936. Sævar, f. 1937, og Rúnar, f. 1940. Jóhann kvæntist 29. desem- ber 1956 eftirlifandi eiginkonu sinni, Elsu Björnsdóttur frá Stykkishólmi, f. 6. júlí 1935. For- eldrar hennar voru Björn Hildi- mundarson, f. 1906, d. 1983, og Elísabet Magnúsdóttir, f. 1912, d. 1984. Börn Jóhanns og Elsu eru: 1) Sigrún Jóna, f. 14. október 1956, gift Þorsteini Gunnarssyni, f. 28. júlí 1954. Börn þeirra eru: a) Jó- hann Ingi, f. 10. júlí 1980, maki Dagný Thelma, f. 5. ágúst 1983. Þau eiga þrjú börn: Óliver Ottó Um fermingu flytur hann suð- ur á Vatnsleysuströnd, þá eru foreldrar hans fluttir að Hall- dórsstöðum. Þar byrjaði hann strax að vinna fyrir sér í fiskverkun og sjómennsku, síðar á Keflavíkur- flugvelli við ýmis störf. Jóhann og Elsa hófu búskap sinn í Vogum suður með sjó. Jó- hann starfaði á rafmagnsverk- stæði ÍAV til 1967, þá byrjaði hann í múrverki hjá Sigga bróð- ur sínum. Árið 1970 kaupir hann sér sendiferðabíl og byrjar að keyra á Sendibílastöð Kópavogs. Fljót- lega varð hann í fastri vinnu með bílinn hjá Málningu hf. í Kópavogi allt þar til haustið 2006. Hann var í sóknarnefnd Kálfatjarnarkirkju, ritari og meðhjálpari til margra ára. Hann var stofnfélagi Lkl. Keili og gegndi þar trúnaðarstörfum og var mjög virkur í starfi við fjáraflanir o.fl. Jóhann og Elsa bjuggu í Vog- um í 50 ár. Þau fluttu í Garðabæ árið 2006. Jóhann var dugnaðarforkur alla tíð og átti það illa við hann að þurfa að hætta að vinna eftir að hann missti sjónina að mestu. Jóhann dvaldist á Vífils- stöðum og hjúkrunarheimilinu Ísafold síðustu þrjú ár. Útför Jóhanns verður gerð frá Vídalínskirkju í Garðabæ, í dag, 23 janúar 2015, kl. 13. og Kamillu Jönu, f. 10. nóvember 2008, og Diljá Maren, f. 7. júní 2010, b) Guðný Ottesen, f. 13. júlí 1983, gift Hrannari Má, f. 22. maí 1977. Þau eiga tvo syni, Styrmi Þey, f. 8. júní 2010, og Tandra Stein, f. 5. nóvember 2012. 2) Hannes Lárus, f. 8. október 1959, kvæntur Jóhönnu Björgvinsdóttur, f. 1. maí 1960. Börn þeirra eru: a) Arnbjörg Elsa, f. 18. ágúst 1977, gift Guð- bergi Reynissyni, f. 17. nóvem- ber 1971. Þau eiga fjögur börn: Róbert Andra, f. 13. maí 2001, Elvu Sif, f. 4. janúar 2004, Sunnu Dís, f. 4. júlí 2010, og Birtu Maríu, f. 27. apríl 2014, b) Jóhann Ingimar, f. 19. apríl 1988. Hans barn: Natalía Ósk, f. 1. desember 2006. Jóhann Ingimar fluttist þriggja ára frá Bolungarvík til Reykjavíkur með foreldrum sín- um. Þegar seinna stríðið skall á var hann sendur í sveit norður í V-Húnavatnssýslu til Júlíusar Frímannssonar í Meðalheimi á Ásum. Þar átti hann góð ár. Hann var drengur góður. Það eru fyrstu orðin sem koma upp í huga mér þegar ég hugsa um pabba. Hann var ávallt tilbúinn að rétta hjálparhönd. Hverjum sem er. Hann hafði mætur á þeim sem voru duglegir, báru sig vel og komu fram á heiðar- legan hátt. Þegar maður kom heim 12 ára gamall úr fiskvinnu, dauðþreyttur, þá var hann stolt- ur og sagði: Rosalega hefur þú gott af þessu. Eins þegar við systkinin og síðar barnabörnin komu heim með einkunnir úr skólanum var hann ánægðastur með hvað við höfðum fengið háa einkunn í hegðun og ástundun, það væri undirstaðan að frekari námi. Hann vann mikið daga sem næt- ur og mikið úti á landi, Það var lítið um að pabbi tæki sér frí frá vinnu, fyrsta fríið sem ég man eftir er þegar hann, rúmlega fertugur, og mamma fóru í fyrstu sólarlandaferðina. Á kvöldin og um helgar vann hann við að byggja við Hofið, þá fékk ég að fylgjast með honum á loftinu við múrverk og smíðar. Þegar hann byrjaði í sendi- bílaakstrinum var stundum unn- ið langt fram á kvöld að gera við bílinn til að komast í vinnu næsta dag. Þá var kallað í mig til að pumpa upp bremsurnar eða halda á ljósahundinum. Alltaf var hann að kenna manni hvað bæri að varast, hvernig átti t.d. að smyrja nýja legu og margt fleira. Aldrei að fara undir bíl sem er tjakkaður upp nema hafa búkka undir hon- um, þetta sagði hann milljón sinnum. Alltaf til í að ræða hlut- ina og leiðbeina hvernig best væri að vinna verkin. Þegar maður hugsar um reynsluna sem hann hafði öðlast allt frá unglingsárunum, kemur upp í hugann: sjómennska, fisk- verkun, vinna í þvottahúsi, bíla- viðgerðir, rafvirkjun, staura- og mastursvinna, vinna við kynd- ingu, bátaútgerð, múrverk, byggingarvinnu og síðast sendi- bílaakstur. Ef ég var í vandræðum með eitthvað og hann gat ekki redd- að því, þá var manni bent á ein- hvern mann úti í bæ, farðu til hans og segðu að þú sért sonur hans Jóa Hannesar og hann bjargar þessu fyrir þig. Hann keyrði hjá Málningu hf. í tæp 30 ár. Upp úr tvítugu fór ég að leysa hann af í keyrslunni þegar hjónin brugðu sér í utan- landsferð. Ég fann strax hvað öllum þótti vænt um karlinn, aldrei nein vandræði, allir treystu hon- um og þurftu ekki að hafa áhyggjur ef hann tók hlutina að sér. Átti vini út um allan bæ, og allir að spyrja Hvar er Jói? þeg- ar ég mætti á trukknum. Maður mátti vara sig á að það voru margir sem svínuðu í veg fyrir mann, því þeir vissu að Jói trukkur gaf alltaf séns. Hann gaf sér oft tíma til að hjálpa og leiðbeina sérstaklega ungu fólki sem var að byrja sinn feril á vinnumarkaðinum. Það sýnir best sú tryggð sem forráðamenn og starfsmenn Málningar hf. sýndu honum eftir að hann hætti að keyra þegar þeir buðu honum á hverju ári í jólakaffi. Hann komst ekki í boðið síðustu tvö árin, þá heimsóttu þeir hann á Ísafold og færðu honum glaðn- ing. Síðast en ekki síst var hann góður afi og langafi, barnabörn- in hændust að honum, hann var alltaf að taka þau með í allskon- ar ferðalög og þau muna jóla- dagasölu fyrir Lions. Þau voru með honum í kirkjunni þegar hann var meðhjálpari, mætti oft á kvöldin til okkar með ís og ávexti undir hendinni. Pabbi dvaldist á Vífilsstöðum og Ísafold í rúm þrjú ár og á starfsfólkið skilið bestu þakkir fyrir frábæra umönnun og alúð sem honum var sýnd. Hanna þakkar fyrir allt og geymir góðar minningar um mann sem tók henni eins og sinni eigin dóttur alla tíð. Takk fyrir allar minningarnar. Hannes og Hanna. Elsku pabbi minn, ég þakka þér fyrir allt. Allar minningar og hvað þú varst mér góður fað- ir. Ég vil þig, pabbi, kveðja, þótt brostin sé þín brá og bleikt og fölt sé ennið, er kossi’ þrýsti ég á. Ég veit ógerla enn þá, hve mikið ég hef misst, en mér er ljóst, að fölt er ennið, sem ég hefi kysst. Þótt lát þitt góði faðir, nú leggist þungt á mig þá lengst af finn ég huggun við minninguna’ um þig. Hún stendur mér svo skýr, og hún er svo helg og heit og hreinni’ bæði og ástríkari’ en nokkur maður veit. Ég vil hér ekki ljóða neitt lof eða hól um þig, en lengst af þessi hugsun mun fróa og gleðja mig. Og lengi mun þín röddin lifa’ í minni sál til leiðbeiningar för minni’ um veraldarál. Og tár af mínum hrjóta hvörmum og heit þau falla niður kinn, því vafinn dauðans er nú örmum hann elsku – hjartans pabbi minn. (Kristján Albertsson) Elsku pabbi, það er sárt að kveðja en gott að vita að nú líður þér vel. Þín dóttir, Sigrún Jóhannsdóttir. Þá er komið að því að kveðja Jóhann, tengdaföður minn. Kynni mín af Jóa hófust þegar ég kynntist Sigrúnu dóttur hans. Jói tók mér strax vel og auðvelt var að kynnast honum. Við urðum miklir vinir og fé- lagar alla tíð og náðum vel sam- ann. Jói hafði góða nærveru, var traustur og trúr, með hjartað á réttum stað, hann var einstakur maður og alltaf var húmorinn til staðar hjá honum. Alltaf var hann tilbúinn að aðstoða alla sem leituðu til hans um aðstoð, hann kunni ekki að segja nei við nokkurn mann, var alltaf með lausnir. Hann var stoltur af fjölskyldu sinni og var tilbúinn að gera allt fyrir hana. Við áttum margar góðar stundir saman og þín verður sárt saknað af fjölskyld- unni. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Þinn tengdasonur, Þorsteinn Gunnarsson. Elsku yndislegi afi minn. Ég hef nú alltaf sagt að ég sé alin upp að hluta til hjá afa og ömmu í Hofi og afi var einfaldlega besti afi í heimi þar sem hann elskaði barnabörnin sín skilyrðislaust og gerði allt fyrir þau. Ég var svo heppin að fá að „eiga“ hann svolítið fyrir mig fyrstu árin þar sem ég er fyrsta og elsta barna- barnið og lengi vel átti ég hann bara ein, alla vega í mínum huga. Ég var ótrúlega mikil afa- stelpa og fór út um allt með afa og ömmu. Hvort sem það var með í vinnuna hans afa, heim- sókn í Hólminn, ófáar gistinæt- urnar, Lions-fjölskylduferðir og að selja jóladagatöl rétt fyrir að- ventuna. Að fara með afa í slíkar söluferðir krafðist mikillar þol- inmæði og maður þurfti að þekkja vel til því afi þekkti alla og datt inn í kaffi í öðru hverju húsi og þá þurfti maður oft að leita að honum, ófá bank á hurð- ir og lítil stelpa að spyrja hvort afi sinn væri nokkuð staddur í kaffi. Afi var mikill ísmaður og var því alltaf til ís heima hjá ömmu og afa. Súkkulaðibitaís og vanilluís og fullt af frostpinnum sem við börnin fengum að vild. Afi var líka duglegur að kíkja í heimsókn með ís. Og í bland við ísinn var það Tommi og Jenni. Allt tók afi upp á Beta og vhs fyrir okkur og þannig var ég alin upp. Tommi og Jenni og ís. Afi átti lausnir við nánast öllu, t.d. ekki binda hnút á plastpokana heldur búa til lykkju svo hægt sé að nota þá aftur. Ekki leggja matardiskana hvern ofan á ann- an því þá þarf maður að vaska upp báðar hliðar. Teppi og rú- ðuskafa voru nauðsynjahlutir í bílnum ef maður skyldi verða stopp einhvers staðar á braut- inni yfir vetrartímann. Ef mað- ur var með kvef átti maður að nudda lauk aftan á hálsinn, það væri allra meina bót. Vera með vettlinga í erfiðum verkum svo maður færi ekki illa með hend- urnar. Og helst taka inn nógu mikið af þaratöflum. Afi ráð- lagði líka um lífsins mál og eitt sinn sagði hann við mig: Elsa mín, þegar hún Sigrún frænka þín var lítil og kom heim eftir að strákarnir voru búnir að stríða henni sagði ég henni að segja bara „já“ og þá létu þeir hana í friði. Eitt skipti notaði ég þetta ráð frá afa og almáttugur. Það fór úr slæmu í hræðilegt. Afi fékk sko að heyra það, að það væru breyttir tímar og svona ráð dygðu ekki lengur. Afi og amma voru dugleg að koma í heimsókn þegar þau höfðu heilsu til og þegar ég eignaðist elsta barnið mitt og fyrsta lang- afabarnið kom afi oft og að sjálf- sögðu með ís. Síðustu ár hef ég saknað þess mikið að sjá ekki bílinn þeirra keyra upp að og afa koma röltandi inn. Mín allra kærasta minning er þegar ég sagði afa að ég væri að fara að gifta mig og ég spurði hann hvort hann treysti sér ekki til að koma. Afi var sparsamur á orðin sín en sagði: Viltu að ég leiði þig inn kirkjugólfið? Ef hann hefði haft heilsu, þá hefði ég haft afa og pabba sitthvorumegin við mig. Elsku afi minn. Söknuður- inn er ólýsanlegur. Síðustu ár hafa verið þér erfið, erfitt að geta ekki séð og tjáð sig al- mennilega. En ég fékk alltaf við- brögð frá þér. Þegar ég kynnti þig fyrir nýjasta langafabarninu þínu, henni Birtu Maríu, síðasta sumar, vildi hún knúsa afa sinn og strjúka kinnarnar og tilfinn- ingarnar sem komu fram í and- litinu þínu sögðu meira en allt. Ég elska þig, elsku besti afi minn. Ég trúi því að þú verðir okkar mesti verndarengill og við munum passa ömmu fyrir þig. Þín sonardóttir, Arnbjörg Elsa. Jæja, elsku afi minn, þá ertu búinn að kveðja okkur í síðasta skiptið og upp koma hjá mér margar minningar um þig. Það er svo ótal margt sem þú kennd- ir mér og svo ótal margt sem ég fékk að bralla með þér, t.d. allar álfabrennurnar sem þú leyfðir mér að hjálpa þér með í Vog- unum fyrir Lions. Við vorum að- alkarlarnir þarna í því að skvetta olíu á brennuna og halda í henni lífi. Og ófáar eru göt- urnar sem við gengum saman um Suðurnesin að selja jóla- dagatöl. Þú áttir erfitt með að fara göturnar í I-Njarðvík þar sem þú þekktir mann í öðru hverju húsi þar og þá þurftir þú að stoppa við í kaffi á öllum stöð- unum. Þegar ég var í kringum fermingu fór ég með þér og þú sagðir mér að selja öðrum meg- in í götunni og þú ætlaðir að taka hinum megin, svo þegar ég var búinn þá fór ég að leita að þér og þá varstu bara búinn með tvö hús því þú varst dreginn inn í kaffi og restin af götunni eftir. Þegar þú bauðst mér með í ferðalag með Lions og við krakkarnir vorum alltaf að reyna að stelast í pilsnerinn þá sagðir þú að pilsnerinn væri hollari en kókið, okkur fannst það svo skrítið. Þegar það var frí í skólanum (fyllerí hjá kennur- unum eins og við kölluðum það) fékk ég að fara með þér í vinn- una að keyra út fyrir Málningu hf., það var alltaf rosalegt sport, draumurinn hjá mér var alltaf að taka við bílnum hjá þér þegar þú værir kominn á aldur og halda keyrslunni í fjölskyldunni. Það var alltaf svo notalegt að koma í Hofið og einnig á Garða- torgið til þín og ömmu, kynd- ingin alltaf á fullu þannig að ef ég sofnaði í leðursófanum í stof- unni vaknaði ég kófsveittur og límdist fastur við sófann. Þegar ég bjó hjá ykkur í eina önn í skóla þegar pabbi og mamma fluttu í Njarðvík kláraði ég 8. bekk í Stóru-Vogaskóla, þá fékkstu greiddar barnabætur í fyrsta skiptið og þú varst mjög hissa. Þegar ég keypti fyrsta bíllinn varstu tekinn með á rúnt- inn í bæinn til að skoða hann og jú eftir að þú varst búinn að sparka í öll dekkin og opna allar dyr þá: Jú Jói, það er eitthvert vit í þessum bíl sagðir þú. Það var líka alltaf þannig að ef mað- ur var í einhverjum vandræðum með peninga gat maður alltaf kíkt til þín og þá reddaðirðu manni, árið 2006 kom ég til ykk- ar ömmu og sagði ykkur þær stóru fréttir að ég væri að verða pabbi. Þá varðstu hugsi en tókst svo utan um mig og óskaðir mér til hamingju og sagðir þessa gullnu setningu sem ég mun alltaf muna: að ég ætti að vera góður við börnin mín því það væru jú þau sem myndu velja á hvaða elliheimili ég yrði settur. Hinn 1. desember sama ár kom svo í heiminn lítil prinsessa sem fékk nafnið Natalía Ósk og var henni sko tekið vel af þér. Hún hafði miklar áhyggjur af þér þegar fréttin kom um að þú vær- ir mjög veikur og ættir stutt eft- ir. Hún grét mikið og spurði einnig mikið og velti því fyrir sér að þegar þú dæir myndirðu kannski hitta mömmu þína og pabba og kannski fæðast aftur. Takk fyrir allt afi. Allt sem þú kenndir mér og allt sem þú hjálpaðir mér með. Það er sko heiður að fá að vera alnafni þinn. Svo sjáumst við seinna, þá verð- ur sko partí þarna uppi. Takk fyrir að vera til fyrir okkur Na- talíu, við elskum þig endalaust. Jóhann Ingimar og Na- talía Ósk. Kallið er komið, komin er nú stundin að kveðja móðurbróður minn, sem var mér sem bróðir þar sem ég ólst upp til sjö ára aldurs á hans heimili hjá ömmu og afa. Ég veit að hann var tilbú- inn, eins og ætíð, þegar hann var kallaður til flutninga fyrir mig og mína fjölskyldu, alltaf til þjónustu reiðubúinn. Jói tókst á við veikindin með miklu æðruleysi og treysti Guði fyrir lífi sínu. Glæsimenni var hann, góðmennskan skein af til- finningaríkum og húmorískum manni og glettnin skein úr aug- um hans. Það hefur verið glatt á hjalla og vel tekið á móti þér, elsku frændi, og allar þjáningar á bak og burt. Minningar lifa um ókomna tíð og gott að minnast þeirra góðu stunda sem við átt- um saman. Takk fyrir allt, elsku frændi. Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skaparahimins og jarðar. Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki. Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann, vörður Ísraels. Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur. Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu. (121. Davíðssálmur) Elsku Elsa og fjölskylda, sem eruð búin að standa sem klettur við hlið hans í gegnum veikind- in, megi góður Guð styrkja og blessa ykkur öll. Guð blessi minningu Jóhanns. Árný Helgadóttir og fjölskylda. Jói var glaðlyndur, glettinn og umfram allt góður maður. Góðmennskan skein úr dökkum augunum og virtist vera rauður þráður í öllu sem hann gerði. Nú er hann Jói okkar horfinn frá okkur fyrir fullt og allt. Síðustu árin hvarf hann smám saman sjálfum sér og öðrum vegna veikinda sinna. Það var honum án efa erfið reynsla og sárt fyrir ástvini hans að geta lítið að gert. Við mæðgur erum tengdar Elsu og Jóa mjög nánum bönd- um sem bæði helgast af ættar- tengslum og einstökum vinar- tengslum. Þau hafa í gegnum tíðina reynst okkur afskaplega vel enda hófum við vegferð okk- ar saman á heimili þeirra sem hefur æ síðan staðið okkur opið og notalegra heimili er vand- fundið. Sama hvað komið var með stuttum fyrirvara þá var alltaf búið að galdra fram hlað- borð af kræsingum og alltaf var manni fagnað með innilegu faðmlagi og blíðustrokum en svo tók grínið fljótt við hjá Jóa og þessi tjáningarríku augu geisl- uðu af glettni og fjöri. Við viljum þakka Elsu og Jóa fyrir einstaka góðvild í okkar garð og trausta vináttu og sendum Elsu og fjöl- skyldu okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Guðríður Sigurðar- dóttir og Birna Sveins- dóttir. Jóhann Ingimar Hannesson HINSTA KVEÐJA Kveðja frá eiginkonu. Í friði og ró svo blítt þú blundar og bjart er í kringum þig. Í ljómann þú hverfur til lausnarans fundar, hann leiðir þig öruggan stíg. Að líta til baka er ljúft að minnast þess lífs sem við áttum hér og guði ég þakka þá gæfu að kvænast svo göfugum manni sem þér. Elskaði vinur, svo orðvar og prúður hve einlæg var lund þín og hlý. Á friðarins landi sem fagnandi brúður ég finn þig að lokum á ný. Elsku Jói, þín verður sárt saknað. Ástarkveðja, Elsa Björnsdóttir. Elsku langafi, við mun- um sakna þín mikið og varðveita minninguna um kallinn afa sem startaði þessu öllu eins og þú sagðir þegar við komum að heim- sækja þig. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Róbert Andri, Elva Sif, Sunna Dís og Birta María.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.