Morgunblaðið - 23.01.2015, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 23.01.2015, Qupperneq 35
gætir skilið við tárin. En þegar ég að dánarbeði þínu kom vissi ég að þú varst komin í hans faðmlag. Hamingjan og brosið á vörum þínum sannfærði mig um það að nú væru allar þínar þján- ingar liðnar og þú gengin með afa í andanna lönd. Bið að heilsa, elsku amma, þar til næst. Ellen Dagmar Björnsdóttir. Hún var falleg og hnarreist hún amma þótt ellin hafi verið farin að beygja hana undir það síðasta. Fædd í Vestmannaeyj- um árið 1917, næstelst átta systkina og farin að vinna strax og geta var til við að þurrka fisk. Hún hjálpaði mömmu sinni við heimilisstörf og axlaði þá ábyrgð sem var að vera elsta systirin í systkinaröðinni. Í vist til Reykjavíkur fór hún upp á land þegar hún hafði aldur til og þar kynntist hún afa og fór að búa með honum. Þau byggðu sér hús að Langholtsvegi 6 þar sem þau bjuggu allt fram á elliár. Að koma til þeirra á Langholtsveg- inn var yndislegt. Þar var mikill gestagangur, systkini ömmu og afa og stundum haldnar stórar veislur þar sem margar kyn- slóðir komu saman. Alltaf á jóla- dag var veisla hjá ömmu þar sem andi umhyggju fyllti and- rúmsloftið til allra ásamt veit- ingum sem ömmu einni var lagið að reiða fram. Henni var annt um það að enginn færi svangur frá sér og bað okkur ætíð að nota með af öllum sortum. Það var alltaf pláss á Langholtsveg- inum fyrir alla sem vildu koma. Hjónaband ömmu og afa var líka einstakt, hann var allur að vilja gerður að hjálpa og maður heyrir rödd hans enduróma „já, Ella mín“, en amma stjórnaði heimilinu af styrkri hendi og gætti þess að enginn yrði útund- an. Amma var mikil handa- vinnukona og það lék allt í hönd- unum á henni en hún vann einnig í Dúk sem saumakona þegar börnin voru orðin stálpuð. Það eru ófaár peysurnar sem hún hefur prjónað á barnabörn- in og langömmubörnin. Þegar ellin gerði það að verkum að þau gátu ekki lengur hugsað um húsið á Langholtsveginum, fluttu þau að Kleppsvegi 62 og undu hag sínum vel. Þau voru alltaf einstaklega samhent, amma og afi, hjálpsöm hvort við annað og maður skynjaði virð- inguna sem þau báru hvort fyrir öðru. Það var alltaf gott að koma til þeirra og finna vinarþel eða bara fá frið fyrir heiminum í rólegheitum hjá ömmu og afa. Þau báru mikla umhyggju fyrir börnum sínum og afkomendum. Amma var dyggðum prýdd og nýtni var henni í blóð borin en kjörin settu mark sitt á konuna. Hún vildi ekki skulda neinum og var komin með budduna upp ef maður gerði fyrir hana smá-við- vik en stundum var hægt að tala hana til. Amma bar ekki sorgir sínar á torg, hún var af þeirri kynslóð, sagði bara: „hvað heldur þú það gagnist að tala um þetta?“ En með aukinni vináttu okkar á milli töluðum við um sorgir okk- ar en sumt féll henni afar þungt. Við gátum þannig fengið stuðn- ing hvor af annarri og alltaf vissi hún það ef eitthvað hrjáði mann. Hún var berdreymin og dreymdi jafnan fyrir barna- börnum og kyni þeirra. Að koma til ömmu var eins og að fara í var, í lífsins ólgusjó. Þar var friður og ró og málin rædd af skynsemi. Umhyggjan sem hún bar fyrir dætrum mín- um var mikil. Við vorum fasta- gestir í viku hverri hjá henni og hún naut þess að annast þær. Hún ruggaði með þeim og fór með vísur, reri á selabát og sagði sögur. Stundum þurfti engin orð heldur var nærvera hennar svo áþreifanleg og um- hyggjan skein frá henni. Þetta eru dýrmætar stundir. Hjartans þakkir, amma, fyrir nestið sem þú gafst mér út í líf- ið. María Svavarsdóttir. MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015 Fljótlega fór ég svo að heim- sækja ömmu og afa í sumarbú- staðinn þeirra og voru þau ekki lengi að planta niður tré í mínu nafni við bústaðinn eins og þau gerðu fyrir öll sín barnabörn. Þetta var ekkert flókið í þeirra huga, ég var orðin barnabarnið þeirra og aldrei fann ég fyrir neinum greinarmun hvað það varðaði. Sumarið sem ég varð tólf ára seldi ég DV í miðbæ Reykjavík- ur. Þar sem ég var yngst og nýjust í hópnum hafði ég ekkert horn til þess að standa á eða fastakúnna. Ég flæktist því bara um miðbæinn og reyndi að selja blaðið. Það brást ekki að um hádegisbil var hún amma mín mætt til að kaupa af mér blaðið. Alveg sama hvernig viðr- aði þá fór hún út í göngutúr há- degishléinu sínu til að leita að mér. Amma starfaði við símsvörun hjá Íslandsbanka og heimsótti ég hana stundum í vinnuna sem unglingur. Það var gaman að sjá hversu góð hún var í starfi sínu og hvað hún var vel liðin af öllum í kring um sig. Einnig var hún reglulega heiðruð innan fyrirtækisins og í tvígang gerð- ist það að ókunnugt fólk tók sér tíma til að skrifa grein í blöðin um það hversu frábær hún væri. Amma fór alltaf hjá sér við svona hrós en við hin vorum afskaplega montin af henni . Þegar amma hélt matarboð þá borðaði hún aldrei með gest- unum heldur var hún alltaf upp- tekin við að passa upp á að allir hefðu nóg af öllu og væru ánægðir. Maturinn var alltaf mjög góður en ef einhver hrós- aði henni þá sagði hún oftast bara ákveðið „nei“ og hélt svo áfram að dekra við mannskap- inn. Til dæmis var hún farin að sigta súpuna ofan í diskana fyr- ir okkur barnabörnin svo að við þyrftum ekki að borða sveppina eða aspasinn og það þótti okkur góð þjónusta. Amma Dúna var alltaf svo góð og ánægð með allt sem ég tók mér fyrir hendur. Ég minn- ist hennar sem yndislegrar konu sem ég var heppin að fá að kynnast og hafa í lífi mínu. Hvíl í friði, elsku amma mín. Ásta Axelsdóttir. Elsku amma, fyrir stuttu síð- an sagðirðu við okkur að þegar að kveðjustund kæmi þá skyld- um við muna að það væri ekki slæmt, það var huggun að vita að þú værir undir ferðina búin á góðan og betri stað. Nú þurfum við að kveðja þig og verður að segjast að þessi orð fá á einhvern hátt aðra merkingu og erfitt að trúa því að við séum að skrifa þessa grein. Elsku amma, við verðum ætið þakklátar fyrir allt sem þú hef- ur gert fyrir okkur. Ótalmargar helgarferðir með þér og afa upp í bústað þar sem við fórum í ævintýraferðir upp í fjall eða niður við lækinn, við systurnar sátum kannski á stóra steininum sem við köll- uðum Hestinn og heyrðum þig kalla okkur í mat úr fjarska „Júhúú!“. Þú passaðir alltaf uppá að okkur liði vel og hélst uppi hlátrasköllunum með skemmtiatriðum og fíflalátum. Minningarnar eru lýstar upp af gleði og einkennast af ást og umhyggju, að hugsa til þín vek- ur hjartayl og ekki annað hægt en að brosa í gegnum tárin. Elsku amma, þú verður alltaf okkar stærsta fyrirmynd og við kveðjum þig með söknuði í hjarta. Marta og Dúna. ✝ Sigrún HuldJónsdóttir fæddist 8. nóv- ember 1934 á Ísa- firði. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 16. janúar 2015. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jón Magnús Pétursson bæjargjaldkeri á Ísafirði, síðar kaupmaður og bókari í Reykja- vík, f. 17.11. 1894, d. 3. 1. 1981, og Kristbjörg Jónsdóttir hús- móðir, f. 23.5. 1904, d. 15.2. 1981. Systkini Sigrúnar voru Jóhann Þorsteinn Davíðsson Löve, f. 29.7. 1923, d. 10.4. 2002, Lísbet Jónsdóttir Willis, f. 16.3. 1931, d. 5.3. 2013. Börn Sigrúnar eru tvö. Dótt- Guðmundssyni, f. 1978. Börn þeirra eru Thelma Hrönn, f. 2009, og Viktoría Ýr, f. 2013. Hannes, f. 1988, sambýliskona Helen Lilja Helgadóttir, f. 1988. Valdís, hjúkrunarfræðinemi, f. 1992, gift Hirti Má Gestssyni, f. 1982. Sigrún giftist 8. nóvember 1958 Hannesi Pálssyni, f. 18.4. 1898, d. 15.1. 1978. Núverandi eiginmaður Sigrúnar er Hauk- ur Þórðarson, járnsmiður frá Hvallátrum, f. 21. 10. 1934. Giftust þau 14.3. 1981. Sigrún Huld ólst upp á Ísa- firði. Eftir að hún fluttist til Reykjavíkur starfaði hún við verslunarstörf, vann við setn- ingu hjá Blaðaprenti og einnig sjálfstætt sem setjari. Síðar flutti hún vestur og vann sem bóndi á Hvallátrum í Rauða- sandshreppi um skeið og lauk svo starfsævi sinni hjá Pósti og síma í Reykjavík. Útför Sigrúnar Huldar fer fram frá Bústaðarkirkju í dag, 23. janúar 2015, og hefst at- höfnin kl. 13. ir hennar er Guð- björg Jóhanna Sig- rúnardóttir, f. 17.12. 1957. Börn hennar eru Sigrún Huld, f. 1978, gift Gunnari Trausta Magnússyni, f. 1977. Börn þeirra eru Þorbjörg Hall- dóra, f. 2006, Gunnar Gabríel, f. 2014. Auðunn Jón, f. 1981. Anna María, f. 1992, sambýlismaður hennar er Bjarni Farestveit, f. 1990. Dótt- ir þeirra er Fjóla Sif, f. 2009. Vigdís Björk, f. 1994. Sonur Sigrúnar er Guðmundur Hann- esson, f. 22.9. 1960, kvæntur Kristlaugu Sigríði Sveinsdóttur, f. 5.5. 1958. Börn þeirra eru Ás- laug Rós, f. 1983, gift Tómasi Sigrún mágkona mín er fallin frá eftir stutt en erfið veikindi. Þótt heilsan væri farin að bila síðustu árin átti enginn von á því að hún kveddi svo fljótt. Ég kynntist Sigrúnu fyrst þegar hún og Haukur bróðir minn rugluðu saman reytum sínum. Þau voru þá á miðjum aldri, hún ekkja og átti tvö uppkomin börn en hann piparsveinn. Hún flutti til hans hingað í Dalalandið og hafa þau búið hér með okkur í blokkinni síðan. Undanskilin eru þó tvö ár eða svo sem þau voru við búskap vestur á Látrum í Rauðasandshreppi. Þau tóku við búsforráðum á Látrum þegar móðir okkar dó 1980 og faðir okkar var of heilsuveill til að sjá um búskapinn einn. Sigrúnu lík- aði búskapurinn ágætlega og reyndist hin efnilegasta búkona. Ekki reyndust þó forsendur til að halda þessum búskap áfram og var hann lagður af og þau fluttu suður. Sigrún var greind, hæfileikarík og margfróð kona sem hafði oft sterkar skoðanir á hlutunum og lét þær óhikað í ljós. Hún tók verslunarpróf og starfaði við ýmis störf í gegnum tíðina, meðal annars bókasetn- ingu um árabil. Síðustu starfs- árin sín vann hún við póstþjón- ustu, en það reyndist henni nokkuð erfitt vegna heilsu- brests. Upp í hugann koma minn- ingar um margar skemmtilegar samverustundir, t.d. frá hesta- mennskuárunum okkar saman. Sama má segja um útilegureis- urnar á sumrin með ferðahópn- um, en þá var oft glatt á hjalla. Það var fyrir tíma felli- og hjól- hýsa. Eftir að Sigrún var hætt að vinna lagði hún stund á fönd- urvinnu með gler og málm og gerði margar fallegar myndir og muni meðan hún hafði heilsu til. Einnig hafði hún mikla ánægju af að rækta rósirnar sínar og fleira í garðinum, en átti orðið erfitt með það vegna veikleika í baki. Börnin hennar og barna- börnin voru hennar stolt og yndi og fylgdist hún vel með þeim öllum. Sigrún var góður vinur og nágranni og hennar verður sárt saknað. Við munum sakna þess að sjá þau ekki lengur leið- ast upp í búðina í sinni daglegu verslunarferð og heilsubótar- göngu. Ég kveð Sigrúnu með þakklæti og hlýhug. Börnum hennar, Guðbjörgu og Guðmundi, og þeirra fjöl- skyldum og Hauki votta ég inni- lega samúð. Ragna. Leiðir okkar lágu saman þeg- ar Sigrún giftist móðurbróður mínum, Hauki Þórðarsyni. Haukur og systkini hans höfðu búið í sömu blokk í Dalalandi ásamt fjölskyldum sínum um árabil. Því fengum við bræður mínir og frændsystkin að alast upp í mikilli nálægð. Koma Sig- rúnar inn í þetta samfélag var ánægjuleg. Við börnin hænd- umst að henni. Hún sýndi okkur áhuga og var skemmtileg, uppá- tækjasöm og kom sífellt á óvart. Við kunnum vel að meta hrein- skilni hennar og lífsgleði. Við hrifumst með þegar hún sagði frá, hafði frá svo mörgu að segja og gerði það af innlifun. Sigrún og Haukur stunduðu fjárbúskap um tíma vestur á Látrum við Látrabjarg ásamt afa mínum, Þórði Jónssyni. Ég var svo lánsöm að vera hjá þeim fyrir vestan hluta úr sumri. Það var góður og lærdómsríkur tími. Sigrún hafði gaman af að miðla af þekkingu sinni og gerði það af natni og þolinmæði. Þetta sumar fórum við í ferðalag að Nauteyri við Ísafjarðardjúp á æskuslóðir Sigrúnar. Hún naut þess að segja frá og sýna okkur staðinn sinn, því þar átti hún sterkar rætur. Eftir að við frændsystkinin uxum úr grasi og fluttum að heiman var alltaf gott að leita til Sigrúnar. Hún fylgdist með okk- ur og samfagnaði á tímamótum. Tók á móti okkur með mildu brosi og opinn faðminn. Ég þakka samfylgd með Sig- rúnu og kærar minningar og votta Hauki, börnum Sigrúnar og fjölskyldu samúð mína. Megi Guð vera með þeim. Lilja Kristjánsdóttir. Sigrún Huld Jónsdóttir er horfin af heimi. Þar kveður mik- il ágætiskona að loknu löngu og að sumu leyti óvenjulegu lífi. Ég kynntist Sigrúnu þegar hún gift- ist frænda mínum Hannesi Páls- syni frá Undirfelli. Þetta var fremur sérkennilegt hjónaband þar sem aldursmunur þeirra hjóna var meiri en venjulegt er eða hátt á fjórða áratug. Þetta var þriðja hjónaband Hannesar, sem ekki löngu áður hafði misst frábæra eiginkonu, Katrínu Þor- steinsdóttur, og harmaði hana ákaflega. Sigrún var á hinn bóg- inn einstæð móðir hálfþrítug. Þótt sumir hafi ekki talið þetta hjónaband til frambúðar rættist betur úr en við var búist. Hann- es gekk Guðbjörgu dóttur Sig- rúnar í föðurstað og settu þau hjón saman bú á fjórðu hæð að Háaleitisbraut 30 og þar bjó Sigrún þeim einstaklega vistlegt heimili. Þau eignuðust soninn Guðmund, mjög efnilegan dreng sem síðar var mörg sumur hjá okkur á Höllustöðum við ein- staklega góðan orðstír enda af- bragðsmaður. Örlögin höguðu því svo að ég varð heimagangur hjá þeim hjónum um margra ára skeið. Gestrisni þeirra var mikil og hjá þeim leið öllum vel og þar var gaman að koma. Sigrún var mjög myndarleg húsmóðir og ástríki þeirra hjóna duldist engum sem með þeim dvaldi. Þegar börn þeirra uxu úr grasi las Sigrún með Guðbjörgu dótt- ur sinni, tók landspróf og síðan verslunarpróf enda var hún góð- um gáfum gædd. Svo sem að lík- um lét sótti ellin Hannes heim. Hann varð fótfúinn og hjartveik- ur. Sigrún sýndi honum einstaka ástúð og er ekki ofmælt að hún hafi með umhyggju sinni lengt til muna ævi Hannesar síns. Hann hafði vinnuþrek til efsta dags og gat ekki hugsað sér að flytja í aðra íbúð þótt stigar væru langir að íbúð þeirra á fjórðu hæð. Eftir lát Hannesar fækkaði samfundum við Sig- rúnu. Hún eignaðist ágætan mann, Hauk Þórðarson frá Látrum. Við á Höllustöðum sendum afkomendum og öðrum ástvinum Sigrúnar bestu sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar Páll Pétursson. Sigrún Huld Jónsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR, Dúna, Básbryggu 5, Reykjavík, lést 17. janúar sl. á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 23. janúar kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir. . Gunnar Oddsson, Sif Gunnarsdóttir, William A. Burhans jr., Oddur Gunnarsson, Guðný Kristín Erlingsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar konu minnar, móður, tengda- móður, ömmu og fósturmóður, FANNEYJAR ÁRMANNSDÓTTUR, Hjallalundi 18, Akureyri. Sérstakar þakkir til Heimahjúkrunar á Akureyri fyrir ómetanlegan stuðning, svo og starfsfólks lyfja- deildar Sjúkrahússins á Akureyri og Heimahlynningar á Akureyri. Birgir Helgason, Svava Birgisdóttir, Sigurbjörn Reynisson, Ásdís Inga Birgisdóttir, Sesselja Gunnarsdóttir, Eyjólfur Þorri Magnússon, Hróbjartur Gunnarsson, barnabörn, fósturbörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RÖGNVALDUR ÞÓR RÖGNVALDSSON Sautjándajúnítorgi 3, Garðabæ, áður Brimhólabraut 23, Vestmannaeyjum, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold þriðjudaginn 20. janúar. Útför hans fer fram frá Vidalínskirkju föstudaginn 6. febrúar kl. 13.00. Ásta Sigurbjörg Guðjónsdóttir, Guðjón Rögnvaldsson, Ragnheiður Einarsdóttir, Bryndís Rögnvaldsdóttir, Unnar Guðmundsson, Hörður Rögnvaldsson, Sigrún Gísladóttir, Hallgrímur Rögnvaldsson, Wendi Zeng, Rannveig Rögnvaldsdóttir, Halldór Halldórsson, barnabörn og langafabörn. ✝ Elskuleg eiginkona min, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ JÓHANNSDÓTTIR, Hafnarstræti 100, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 7. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar. Stefán G. Sveinsson, Stefán G. Stefánsson, Margrét Stefánsdóttir, Sveinn S. Stefánsson, Sára Patursson, börn og barnabön.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.