Morgunblaðið - 23.01.2015, Page 39

Morgunblaðið - 23.01.2015, Page 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015 ✝ SigurborgSkúladóttir fæddist 11. ágúst 1919 í Stykkis- hólmi. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni 18. janúar 2015. Foreldrar hennar voru Guð- rún Jónsdóttir, f. 4. ágúst 1879, d. 25. júlí 1966, og Skúli Skúlason skipstjóri, f. 4. apríl 1875, d. 11. desember 1950. Þau áttu heima í Skúlahúsi, Stykkishólmi, allan sinn búskap að undanteknu einu ári í Fag- urey. Sigurborg var yngst níu systkina og komust átta af barnsaldri. 1) Ingibjörg, f. 25. september 1902, d. 22. mars 1975. 2) Sigurður, f. 12. nóv- ember 1905, d. 14. janúar 1972. 3) Málmfríður, f. 9. júlí 1907, d. 24. september 1979. 4) Hólm- fríður, f. 23. desember 1908, d. 24. mars 1989. 5) Margrét Odd- fríður, f. 22. apríl 1910, d. 18. janúar 2001. 6) Ásta Kristrún, f. 1. júlí 1912, d. 27. september 1997. 7) drengur, f. 19. desember 1915, d. 19. desember 1915. 8) borgar eru níu: Hrafn Ingi Gunnarsson Kaldal, f. 2006, Oli- ver Leifsson Kaldal, f. 2007, Ragnheiður Helga Víkings- dóttir, f. 2008, Ása Júlía Leifs- dóttir Kaldal, f. 2009, Guðrún Lovísa Víkingsdóttir, f. 2010, Sigmar Kári Gunnarsson Kal- dal, f. 2010, Ingibjörg Have Kal- dal Þorbjarnardóttir, f. 2012, Birkir Logi Gunnarsson Kaldal, f. 2012, og Sigurborg Ásta Leifsdóttir Kaldal, f. 2013. Sigurborg fæddist í Stykkis- hólmi og átti þar heima til sjö- tugs, fyrst í foreldrahúsum í Skúlahúsi til 1945 að þau hjónin fluttu inn í nýbyggt íbúðarhús sitt á Tangagötu 13, þar sem þau áttu heima upp frá því meðan bæði lifðu. Sigurborg fluttist til Reykjavíkur 1989 og átti heima í Krummahólum 8 með syni sínum Ingvari. Sigurborg vann frá 15 ára aldri í Verzlun Sig. Ágústssonar og safnaði sér fyrir námi og fór í Héraðsskólann á Laugarvatni, síðan í Kvennaskólann í Reykja- vík og tók kvennaskólapróf 1940. Hún starfaði í Verzlun Sig. Ágústssonar við bókhald og síð- an í Hólmkjöri eftir að það fyrir- tæki tók við rekstrinum og til sjötugs að hún fluttist til Reykja- víkur. Sigurborg verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju í dag, 23. janúar 2015, kl. 15. Jarðsett verður í Stykkishólms- kirkjugarði. Lovísa, f. 2. júní 1918, d. 19. apríl 1938. Hinn 20. október 1945 giftist Sigur- borg Víkingi Jó- hannssyni, f. 28. júlí 1921, d. 15. nóvember 1985. Foreldrar hans voru Halldóra Helga- dóttir, f. 30. desem- ber 1884, d. 7. júní 1980, og Jóhann Þor- valdsson, f. 9. júní 1882, d. 27. júlí 1961. Þau áttu heima á Eskifirði. Systkini Vík- ings voru Ingvar, f. 1905, d. 1959, og Þórlaug, f. 1907, d. 1942. Börn Sigurborgar og Víkings eru: 1) Jóhann, f. 30. júní 1946, d. 8. apríl 2013, maki Guðný Krist- björg Óladóttir, f. 2. mars 1950. 2) Guðrún Lovísa, f. 5. desember 1947, maki Viðar Vésteinsson, f. 23. september 1948. Börn: Vík- ingur, f. 1973, Vésteinn, f. 1976, og Halldóra, f. 1980. 3) Skúli, f. 13. janúar 1949, maki Ingibjörg Kaldal, f. 27. maí 1949. Börn þeirra eru Leifur, f. 1979, Gunn- ar, f. 1981, og Sigurborg, f. 1986. 4) Halldór, f. 5. júní 1957. 5) Ingvar, f. 22. júlí 1960. Barnabarnabörn Sigur- Elskuleg tengdamóðir mín, Sigurborg Skúladóttir frá Stykk- ishólmi, er látin. Síðustu tvö árin bjó hún á hjúkrunarheimilinu Sóltúni og fékk þar hægt andlát aðfaranótt 18. janúar eftir stutta sjúkralegu. Ég kynntist Sigurborgu fyrst um páskana 1970 þegar ég fór nýtrúlofuð með Skúla mínum vestur í Hólm að hitta tilvonandi tengdaforeldra mína, þau Sigur- borgu og Víking. Nokkuð var ég kvíðin á leiðinni í rútunni og var viss um að þeim litist ekkert á þessa Reykjavíkurstelpu. Öll hræðsla hvarf eins og dögg fyrir sólu um leið og ég var komin inn fyrir dyr á Tangagötunni og mætti yndislegu viðmóti þeirra hjóna. Margs er að minnast á langri samleið. Ferðirnar í Hólminn urðu margar og þegar börnin okkar komu til sögunnar var allt- af gaman að heimsækja afa og ömmu í Hólminn. Þegar Víkingur dó og dró að starfslokum Sigur- borgar í Stykkishólmi fór hún að huga að flutningi til Reykjavíkur. Rétt fyrir sjötugsafmælið flutti hún í Krummahóla og bjó þar með yngsta syni sínum Ingvari. Hún var trúuð kona og ekki leið á löngu áður en hún var farin að sækja félagsstarf í Fella- og Hólakirkju og Gerðubergi. Hún hafði alltaf gaman af að spila og eignaðist þar góða spilavini. Og oft fór hún í skemmtileg ferðalög með „gamla fólkinu“ eins og hún sagði. Sigurborg var alla tíð mikil hannyrðakona. Hún saumaði föt á börnin sín fimm þegar þau voru ung. Þegar þau uxu úr grasi og tengdabörnin bættust við prjón- aði hún lopapeysur á okkur öll. Eftir að hún hætti vinnu í Stykk- ishólmi og fluttist til Reykjavíkur árið 1989 heklaði hún mikið og dýrindisdúkar í ýmsum stærðum og gerðum spruttu af nálinni eins og ekkert væri. Í Krummahólum var haldið í gamlar hefðir frá Stykkishólmi eins og þá að hafa opið hús á Þorláksmessu fyrir fjölskylduna á afmælisdegi Fríðu systur Sigurborgar og þá var oft glatt á hjalla þegar afkomendur hittust. Eftir því sem þeim fjölg- aði var alltaf pláss fyrir einn til viðbótar í litlu stofunni. Barna- börnin eru sex og barnabarna- börnin eru orðin níu. Tvær úr hópnum bera nafn Sigurborgar. Þegar heilsu tók að hraka ann- aðist Ingvar hana af mikilli natni þar til hún flutti í Sóltún í árs- byrjun 2013. Þar leið henni vel og naut hún einstakrar umönnunar starfsfólksins. Þegar ég heim- sótti hana sagði hún oft með mik- illi áherslu: „Þær ERU alltaf svo góðar við mig.“ Hún naut þess að fá heimsóknir, ekki síst þegar barnabarnabörnin voru með í för. Stundum notuðum við tæknina og töluðum við „mið“-Sigurborgu og fjölskyldu hennar í Danmörku á Skype. Það fannst henni skemmtilegt. Alltaf var gaman að ræða við hana um lífið í Hólm- inum í gamla daga. Þá hafði hún frá mörgu að segja. Sigurborg hafði alla tíð gaman af manna- mótum og naut þess að vera inn- an um sitt fólk. Þegar hún varð 95 ára 11. ágúst sl. var slegið upp tveimur veislum fyrir vini og vandamenn. Ég þakka Sigurborgu tengda- móður minni fyrir langa og góða samleið. Starfsfólki Sóltúns er þökkuð einstök umönnun og væntumþykja í hennar garð og okkar aðstandenda. Ingibjörg Kaldal. Sigurborg tengdamóðir mín hefur nú kvatt í hárri elli, full- komlega sátt við guð og menn. Mér er ljúft að minnast hennar og þakka áratuga samleið. Minn- ing mín, er ég kom fyrst inn á heimili tengdaforeldra minna í Stykkishólmi, hefur verið mér of- arlega í huga síðustu daga. Það var hinn einstaki menningarblær sem sveif yfir heimilinu og ekki síst umræður og hlustun á tónlist sem kemur upp í hugann. Enda var þá Víkingur tengdapabbi primus motor í öllu er viðkom tónlistarlífi í Hólminum. Ég var vanari umræðum um sjávarút- veg, sementsframleiðslu og dá- semdir Dýrafjarðar. Heimilið var oft mannmargt. Auk yngri bræðranna bjó Hólm- fríður, systir Sigurborgar, þar og svo bjó Halldóra, móðir tengda- pabba, líka hjá þeim. Auk þess komu í heimsókn ættingjar að sunnan til skemmri og lengri dvalar. Þar að auki komu fjöl- margir er tengdust störfum hús- bóndans. Öllum var tekið með brosi á vör, þótt sjálfsagt hafi álagið oft verið mikið. Á fyrstu árum áttunda áratug- arins, eftir að við fórum að eign- ast börn, varð það m.a. að fastri venju að dvelja í góðu yfirlæti um páska í Hólminum hjá afa og ömmu ásamt stórfjölskyldunni. Samgöngur við Snæfellsnes voru ekki sambærilegar við það sem þær eru í dag. Oft var bras að komast yfir „Fjallið“ en tilhlökk- unin og ánægjan við að fá að koma í Hólminn gerði það að verkum að allir erfiðleikar við að komast þangað gleymdust fljótt. Sigurborg var eldklár og skemmtileg kona, gat verið stíf á meiningunni stundum en alla jafna ljúf og góð og afar þakklát fyrir allt sem gert var fyrir hana og blessaði mann í bak og fyrir. Barnabörnin og barnabarna- börnin kallaði hún englana sína. Hún var útivinnandi þar til hún varð sjötug, vann hálfan daginn við bókhald, hafði einstaklega fal- lega rithönd og lærði meira að segja tölvubókhald. Þegar hún hætti að vinna og var orðin ekkja og búin að missa Hólmfríði systur sína flutti hún til Reykjavíkur til þess að vera nærri sínu fólki. Þetta var mikil breyting, en með sinni eðlislægu seiglu og dugnaði tókst hún á við hana. Hún var félagslynd að eðl- isfari og fljótlega fór hún í fé- lagsstarf aldraðra í Fella- og Hólakirkju, þar sem hún naut sín vel. Sigurborg var heilsuhraust að mestu alveg fram yfir nírætt, en þá fór að halla undan fæti hjá henni og sl. tvö ár bjó hún á hjúkrunarheimilinu Sóltúni við frábæra umönnun starfsfólksins þar og blessaði hún það og undr- aðist hvað það var allt gott við sig. Blessuð sé minning Sigur- borgar Skúladóttur. Viðar Vésteinsson. Amma situr á stól við hliðina á rúminu mínu og við förum með bænir. „Kanntu þessa“ segir hún og byrjar á nýrri. Hún situr hjá mér á meðan ég sofna. Við erum uppi í svefnherbergi á Tangagötu 13 í Stykkishólmi, heimili ömmu í 44 ár. Þetta er ein af mínum fyrstu minningum um ömmu. Ég var fyrsta barnabarn ömmu Sigurborgar og afa Vík- ings. Árið áður en ég fæddist höfðu mamma og pabbi misst frumburð sinn í fæðingu og var litli ljóshærði víkingurinn því mikill gleðigjafi og strax ljóst að ekkert gat komið í veg fyrir að- dáun ömmu og afa á mér. Ég var bara nokkurra vikna þegar ég kom fyrst á Tangagötuna, var skírður í stofunni að viðstöddu fjölmenni. Það dró ekki úr að- dáuninni að ég var skírður í höf- uðið á afa. Amma sá til þess að heimsókn- ir í Hólminn voru ávallt kærleiks- ríkar og móttökurnar konungleg- ar. Í minningunni var alltaf beðið eftir okkur með uppdekkað borð. Ef við komum mjög seint um kvöld var á borðinu kvöldsnarl með besta baunasalati í heimi. Súkkulaðikaka og mjólk var líka oft á boðstólum fyrir svefninn. Amma var mikill gestgjafi og naut þess að fá til sín fólk og vera innan um fólk, enda var alla tíð mikill gestagangur á Tangagöt- unni. Páskar og Stykkishólmur voru órjúfanleg heild alla mína æsku eða allt þar til amma flutti til Reykjavíkur 1989. Minningar frá þessum fjölskyldustundum eru dýrmætar, alltaf sól, alltaf gleði. Hænsnakofinn á bak við hús var heillandi heimur. Amma hellti kartöfluhýði og fleiru í fötu sem við afi fórum með og gáfum hænunum. Ég hélt fast í afa þeg- ar við fórum inn fyrir hænsna- girðinguna, atgangurinn var mik- ill. Ég fór líka með afa í kirkjuna, fékk að sitja við hliðina á honum við orgelið bæði þegar hann æfði sig og í messum – amma beið heima með mat. Eftir að amma flutti til Reykjavíkur varð auðveldara að heimsækja hana í Krummahól- ana. Það var alltaf jafngaman að koma, alltaf tekið á móti manni eins og höfðingja. Einu sinni fékk ég að lesa undir próf hjá ömmu, fékk aðstöðu inni í herberginu hennar til lestursins en eina sem ég man er þjónusta ömmu við námsmanninn. Minningarnar eru margar. Amma Sigurborg var fyrst og síðast Hólmari. Hún unni Stykk- ishólmi og vildi veg bæjarfélags- ins sem mestan. Ég þakka henni að mér eru fáir staðir kærari en Stykkishólmur, Maðkavíkin og Tangagata. 95 ár er löng ævi og amma kvaddi þennan heim södd lífdaga. Hún hefur saknað afa í næstum 30 ár, nú eru þau loks sameinuð. Við getum glaðst yfir því. Takk fyrir allt, elsku amma. Víkingur. Þegar við minnumst ömmu okkar er okkur öllum efst í huga hversu barngóð kona hún var. Þegar við vorum yngri var há- punktur ársins þegar við fengum að fara í Hólminn til ömmu og afa í nokkra daga um páska og eigum við margar okkar bestu minning- ar þaðan. Þegar Leifur var lítill spurði hann mömmu sína: „Mamma, er- um við englar? Amma kallar okk- ur alltaf englana sína.“ Eftir að amma flutti í bæinn gátum við hitt hana oftar. Á hverju ári fóru afkomendur hennar saman í sumarbústað þar sem hápunktur hvers dags var að spila Gaur með ömmu. Þá voru miklar serimoníur viðhafðar. Aldrei brást að eftir hverja gjöf sagði amma: „Og ég sem hélt að við værum vinir.“ Þegar líða fór á spilið sagði hún oft: „Ég er nú ekki með nein sparispil“ og þá vissu allir að hún myndi vinna spilið. Þegar hún sagði svo: „Jæja, nú skuluð þið fara að losa ykkur við háu spilin“ vissu allir að hún hafði áhyggjur af að brenna inni með eitt hátt spil. Nú eru barnabarnabörnin hennar farin að spila spilið sem hún kenndi okkur öllum og við bros- um út í annað þegar við heyrum þau segja frasana hennar ömmu sem okkur finnst fylgja spilinu. Þegar við systkinin og síðar börnin okkar komu í heimsókn til Sigurborgar ömmu í Krumma- hóla og síðar í Sóltún var ávallt tekið á móti okkur með opnum faðmi og kveðjum eins og „elsku vinirnir mínir“. Amma var alltaf svo góð við barnabarnabörnin sín og hlökkuðu þau alltaf jafnmikið til að heimsækja hana. Amma var mjög trúuð kona og Sigurborgu (mið) er minnisstætt þegar hún kenndi henni faðirvor- ið í næturpössun í Krummahól- unum. Einnig er henni mjög minnisstætt eitt sinn þegar við vorum í matarboði og til umræðu var hvað Sigurborgu langaði mikið í gæludýr, en pabbi hennar vildi ekki leyfa henni það. Þá sagði amma: „Öll börn verða að fá að umgangast dýr“ og þá var það ákveðið! Sigurborg fékk þá hamstur og hefur átt dýr alla tíð síðan og þakkar það ömmu sinni. Amma var mjög nett kona en hún var ótrúlega kraftmikil fram á gamalsaldur og kröftugt faðm- lag hennar og handtak bar því vitni. Eitt af síðustu skiptunum sem við hittum ömmu eftir að hún veiktist var hún svo ánægð að sjá okkur og sagði okkur oft hversu glöð hún væri að hafa okkur hjá sér. Við eigum ótal margar góðar minningar um ömmu okkar. Hún varð langlíf og náði að kynnast barnabarnabörn- um sínum vel og fyrir það erum við þakklát. Leifur, Gunnar og Sigurborg. Það er dymbilvika árið 1989. Ég er á leið í mikla ævintýraför með rútu frá Akranesi í Stykk- ishólm með Vésteini bróður og Gunnari frænda. Reyndar voru allar ferðir í Hólminn ævintýra- ferðir. Mýrarnar voru í huga lítils ferðalangs einn lengsti vegarkafli landsins og spennan var orðin nánast óbærileg þegar loksins sást til Stykkishólms af Kerling- arskarði. En þessi ferð var ein- stök. Engir foreldrar. Bara amma sem myndi dekra við mann næstu daga. Ferðalagið tók 12 tíma og snjógöngin á leiðinni náðu rútunni að hæð. Árni Helga beið á bensínstöðinni og skutlaði okkur krökkunum út á Tanga þar sem hlýr ömmufaðmur, hlýtt ömmuhús og heitur ömmumatur beið okkar. Við tóku dagar sem urðu að hamingjuminningu þeg- ar frá leið. Bærinn var á kafi í snjó. Maðkavíkina lagði og því var hægt að gera rennibrautir í snjónum niður klettana og út í sjó. Innivið stýrði Halldór skák- móti milli heimilismanna og Ingvar spilaði hljómplötur með tónlist sem síaðist inn í undir- meðvitundina. Og svo var amma alltumlykjandi. Hún eldaði allan matinn sem okkur fannst bestur og kunni að hlera hvað manni þætti gott. „Ó, mér þykir svo vænt um ykkur“ heyrðist svo oft. Amma var samt ekki alveg venjuleg. Það var alltaf eins og hún hefði alist upp á fínu yfir- stéttarheimili. Maður átti ekki að gera neitt sem „ekki þótti fínt“. Amma sá til þess að við lærðum almennilega mannasiði og borð- siði. Hjá ömmu átti alltaf að segja takk og afsakið, sitja kyrr og halda sig til hlés þegar fullorðna fólkið var að tala. Það var sko ekki sama hvernig maður kom fyrir. Amma var líka skarpgreind og félagslynd, var vel lesin og tal- naglögg. Hún var hrókur alls fagnaðar við spilaborðið. Að spila Gaur er list sem hún kenndi okk- ur afkomendunum og munu fras- arnir hennar lifa áfram. „Hann verður nú vetrarmaður hjá mér þessi“, „ég hélt að við værum vin- ir“ og „setjið nú út háu spilin, ég er að fara að loka“ heyrðist þegar hún var komin í vandræði. Amma fylgdist með öllu, gerði kröfur til sinna og hafði sínar skoðanir á hreinu. „Nei, ég þekkti hann aldrei, hann var framsóknarmaður.“ Amma var trúuð og ræktaði trúna. Ég vissi alltaf af ömmu við útvarpstækið þegar ég söng í út- varpsmessum og á eftir fékk ég hrós og athugasemdir um sálma- valið. Henni þótti til dæmis lítið varið í messu á föstudaginn langa ef sálmurinn Ég kveiki á kertum mínum var ekki sunginn. Prestar voru hins vegar heilagir menn og undanþegnir gagnrýni ásamt sýslumönnum og öðrum embætt- ismönnum. Amma var berdreymin. Hana dreymdi fyrir öllum stórum við- burðum, veikindum, barnsfæð- ingum og andlátum sinna nán- ustu. Voru draumarnir slíkir að enginn efaðist um merkingu þeirra. „Jæja, nú snúum við okkur í dansátt“ sagði amma þegar hún vildi halda heim. Nú hefur amma Sigurborg kvatt okkur í síðasta sinn og við höldum heim í Stykk- ishólm þar sem hún fær að hvíla hjá afa Víkingi eftir þrjátíu ára aðskilnað. Minning hennar mun lifa í okkur öllum. Halldóra. Sigurborg Skúladóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar ✝ Hjartans þakkir sendum við til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra BENTS SCH. THORSTEINSSON. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu, Heimaþjónustu og Landspítalans fyrir góða umönnun og hlýhug. Margaret Sch. Thorsteinsson og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.