Morgunblaðið - 23.01.2015, Page 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Bara það að sækjast eftir stöðu
gerir hana raunverulega í þínum augum.
Smá-samkeppni gæti valdið uppþoti.
Temdu þér að kanna málin áður en þú gerir
eitthvað.
20. apríl - 20. maí
Naut Áður en þú einangrast alveg skaltu
eyða tíma í að finna út hvað þú átt
sameiginlegt með öðrum. Segðu bara öðr-
um hvað þér finnst um þá og láttu þá um
að hafa áhyggjurnar ef ástæður eru til.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það reynir á hvern mann þú hefur
að geyma þegar þú verður vitni að samtali
sem ekki á að koma fyrir þín eyru. Bættu
það ærlega upp og byrjaðu á því að biðjast
afsökunar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú finnur fyrir göfuglyndi og örlæti
gagnvart öllum í dag. Fólk sem hugsar vel
til þín hefur góð áhrif á skapið þitt og léttir
þér lífið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu það eftir þér að skvetta svolítið
úr klaufunum en gættu allrar háttvísi.
Reyndu að finna skoðunum þínum farsælan
farveg og fylgdu þeim þar eftir, þótt með-
alhófið sé vandratað.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Dagurinn hentar vel til skemmtunar.
Mundu að seinna kann þig að vanta svör
við einhverju svo taktu spyrjendunum vel.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hlutirnir kunna oft að virðast flóknari
en þeir eru. Skiptu þér ekki af öðrum og
reyndu ekki að bjarga heiminum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft meiri ró og kyrrð og
finna tíma fyrir sjálfa/n þig. Nú er komið að
þér að leggja í púkk mannlegrar þekkingar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það gengur ekki að skella
skuldinni á kerfið því þú ert einn af þegn-
unum. Nú er komið að því að sinna þessum
málum og leiða þau til lykta.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hvatvísi, ævintýri og gjafmildi
eru þemun. Nú skaltu sigrast á þeim hug-
myndum og fagna sigrinum innilega.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ef fer sem horfir ætti ekkert
óvænt að koma upp á í dag. Annars er hætt
við að jákvæðni þín brenni fljótt upp í erf-
iðum samskiptum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það má ýmislegt gera sér til dægra-
dvalar án þess að það kosti mikið fé. Farðu
vel yfir allt, jafnvel tvisvar, og ekki ganga að
neinu vísu.
Þetta erindi birti Kristján Run-ólfsson á Boðnarmiði:
Leiður vetur, langur, kaldur,
leggur á jörðu heljargaldur.
Sjást á himni sortaský.
Vaknar líf þá vorar aftur,
vonarneistans eflist kraftur.
Hringrás lífsins hefst á ný.
Golli, Kjartan Þorbjörnsson, er
ljósmyndari Morgunblaðsins og
fylgir landsliðinu í Katar. Hann
bregður upp myndum úr ferðalag-
inu á fésbók. Þar á meðal eru þess-
ar limrur:
Í Katar er heimurinn handbolti
þeir halda hér mótið með brambolti
og flytja allt inn
en hvergi ég finn
súrdeigisbrauðið frá Sandholti.
Á línunni lítið á Robba.
Hann leikmönnum kemur í bobba
sem rífa hann í.
„Ca c’est la vie“
Á frönsku mun markvörðinn klobba.
Hallmundur Kristinsson kemst
svo að orði á Boðnarmiði:
Það besta sem að við bjóðum
er betra en hjá öðrum þjóðum.
Framsóknarmenn
finnast þó enn.
En fækkar trúlega óðum.
Hallmundur gerði skopmyndir að
umræðuefni á Leirnum – segist dá-
lítið hafa verið að velta því fyrir
sér, hvaða árangri þeir ætluðu að
ná þarna úti með endurteknum
birtingum skopmynda. „Ekki hef ég
komist að niðurstöðu,“ segir hann.
„Aftur á móti datt mér í hug vísa:
Brjótum nú af okkur hundingjahelsið,
höldum öllum í stuði;
til þess að varðveita tjáningarfrelsið
teiknum myndir af guði.
Vísnaflóðgáttir opnuðust. Krist-
ján Gaukur Kristjánsson sagði
tjáningarfrelsið hvorki hafa verið
auðfengið né Franska byltingin án
mannfórna. „Þú berst ekki fyrir
frelsi til þess að gefa það frá þér
aftur af því að einhver kýs að móðg-
ast.
Enginn hér mun yrkja meir
ef þeir banna skensið.
Þæg og prúð við lokum Leir,
og loks við drepum glensið.“
Hallmundur átti þetta innlegg:
Þótt blessun guðanna brysti
og barnatrúna ég missti,
ég minnist mynda af Kristi;
messað var undir þeim.
Þá fór ég þreyttur heim.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Limrur frá Katar, skop-
myndir og tjáningarfrelsið
Í klípu
SAMKEPPNIN ER FARIN AÐ GANGA Á GRASINU
OKKAR. ÞVÍ MIÐUR GERUM VIÐ EKKERT
MARKTÆKT, ÞANNIG AÐ ÞAÐ ER BARA GERVIGRAS.
eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... tunglskininu að
kenna.
EF ÞÚ VILT AÐ ÉG
FÆRI MIG SKALTU
LÁTA MIG VITA
MENNIRNIR VIRÐAST EKKI
VERA AÐ REYNA SITT BESTA
Í DAG...
LÍKLEGA VAR ÞAÐ SLÆM HUGMYND AÐ VEITA
KOFFÍNLAUST Í MORGUNMATINN!
SVIK OG PRETTIR HF.
Það er með ólíkindum hvað sumirstjórnmálamenn geta lagst lágt
til að hugsanlega afla sér vinsælda
og atkvæða. Nýjasta dæmið sem
Víkverji veit um er útspil borgar-
stjóra í vikunni í sambandi við frí-
daga.
x x x
Á borgarstjórnarfundi í fyrradagkom fram að borgarstjóri vildi
að 19. júní í ár yrði frídagur í staðinn
fyrir þjóðhátíðardaginn 17. júní
vegna þess að fyrrnefnda daginn
væri 100 ára afmæli kosningaréttar
kvenna og illa gengi upp að hafa tvo
frídaga með svo stuttu millibili.
x x x
Það er allt gott um kvenfrelsis-baráttuna að segja og vel til
fundið að halda sérstaklega upp á
100 ára afmæli kosningaréttar
kvenna, en borgarstjóri er vægast
sagt á hálum ís, eins og borgarar
hafa verið frá því snemma í desem-
ber sl. vegna aðgerðarleysis hans í
hreinsun gatna og stíga, þegar hann
vill þurrka út þjóðhátíðardaginn með
einu pennastriki. Það er á veturna
sem þarf að bregðast fljótt við með
ruðningi en ekki á sumrin.
x x x
Það vill svo til að 17. júní er lög-bundinn frídagur á Íslandi. Er
það helsta mál borgarstjóra í að-
draganda kjarasamninga að taka
þennan rétt af borgurum?
x x x
Víkverji veltir því einnig fyrir sérhvort þetta sé liður í lengra
sjónarspili borgarstjóra. Hann segir
að ekki gangi að hafa tvo frídaga með
einn vinnudag á milli. Sé hann sam-
kvæmur sjálfum sér gengur þá alls
ekki að hafa tvo frídaga í röð. Annað-
hvort skírdagur eða föstudagurinn
langi verður þá að víkja sem frídag-
ur, páskadagur eða annar í páskum,
hvítasunnudagur eða annar í hvíta-
sunnu, jóladagur eða annar í jólum,
gamlársdagur eða nýársdagur.
Laugardagur eða sunnudagur.
x x x
Þetta útspil borgarstjóra er dæmttil að mistakast en hverju verður
stungið upp á næst? víkverji@mbl.is
Víkverji
Ef einhvern mann í ykkar hópi brestur
visku, þá biðji hann Guð sem gefur öll-
um örlátlega og átölulaust og honum
mun gefast. (Jakobsbréfið 1:5)
• Það er ekki að ástæðulausu að fagmaðurinn
velur Spiegelau og nú getur þú notið þeirra
• Platinumlínan okkar er mjög sterk og
þolir uppþvottavél
Spiegelau er ekki bara glas
heldur upplifun
Við bjóðum Spiegelau í fallegum
gjafaöskjum sem er tilvalin
tækifærisgjöf eða í matarboðið.
• Rauðvínsglös
• Hvítvínsglös
• Kampavínsglös
• Bjórglös
• Karöflur
• Fylgihlutir
Hágæða kristalglös frá Þýskalandi
Allt fyrir eldhúsið
Verð frá
2.490 kr.
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–17, laugard. kl. 11-14.