Morgunblaðið - 10.03.2015, Page 19
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Taktu
bílinn með
til Færeyja og
Danmerkur 2015
Færeyjar
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 34.500
Danmörk
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 74.500
Bókaðu
núna!
Í átta vikna ferðalagi blaðamanna Morgunblaðsins um
hverfin í Reykjavík og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu
er fjallað ummannlíf og menningu, atvinnulíf og opinbera
þjónustu, útivist og umhverfi og skóla og skipulag með
sérstakri áherslu á það sem einkennir hvern stað.
meiri hagsmunir liggi að baki svo
sem vegna rannsóknar á stærri
brotamálum,“ segir Kristján Ólafur.
Lýsingar á stuldi á símum eru
að sögn lögreglu svipaðar, það er að
símum er stolið úr veskjum og vös-
um fólks úti á dansgólfum skemmti-
staðanna en einnig af borðum þar
sem þeir eru gjarnan skildir eftir. „Í
ljósi fjölda þessara tilvika er ekki
hægt að útiloka að um skipulagða
starfsemi sé að ræða. Lögregla hef-
ur þó ekki upplýsingar eða rök-
studdan grun um að símarnir til að
mynda séu fluttir úr landi heldur
virðast þeir fremur fara til notkunar
eða sölu hérlendis.“
Tölfræði gerir
starfið hnitmiðað
Hvað varðar afbrot almennt í
Vesturbæ og miðborg Reykjavíkur
sem og á höfuðborgarsvæðinu öllu
þá hefur þróunin verið jákvæð.
Komi þar meðal annars til að mark-
miðin í löggæslunni séu skýr og
starfið mögulega hnitmiðaðra en áð-
ur, meðal annars í krafti nákvæmrar
skráningar og tölfræði sem segir til
um hvert eðlilegast sé að beina
kröftunum á hverjum tíma. Þá er að
sögn Kristjáns Ólafs gott markvisst
samstarf lögreglu og stofnana sveit-
arfélaganna á höfuðborgarsvæðinu
og það skipti verulegu máli einnig.
Tölfræðin hjá lögreglustöð 5
Eignaspjöll og þjófnaðir 2009 - 2014
Eignaspjöll
Þjófnaðir - heild
Þjófnaðir – gsm
innbrot
2009
490
1.573
103
557
2010
477
1.337
114
356
2011
400
1.040
182
224
2012
351
1.068
254
130
2013
305
1.088
398
99
2014
295
1.061
330
128
Eignaspjöll og þjófnaðir janúar og febrúar 2009-2015
Eignaspjöll
Þjófnaðir - heild
Þjófnaðir – gsm
innbrot
2009
86
323
25
159
2010
59
169
9
43
2011
84
164
31
46
2012
61
169
35
42
2013
46
158
63
13
2015
43
141
63
15
2014
42
133
47
15
Á árinu 2014 var hæsta fermetraverð
á höfuðborgarsvæðinu 377 þúsund
krónur í miðborg Reykjavíkur og það
lægsta 214 þúsund krónur í Álfaskeiði í
Hafnarfirði. Þarna á milli er 75% mun-
ur og hefur hann aldrei verið meiri. Frá
þessu er greint í pistli á vef Lands-
bankans, en starfsmenn þar fylgjast
vel með þróun fasteignaverðs eins og
fleiri breytum í hagkerfinu. Fermetra-
verð í Vesturbæ Reykjavíkur er lítið eitt
lægra, eða í kringum 350 þúsund og
stendur á pari við Seltjarnarnes og Sjá-
landshverfi í Garðabæ.
„Svo virðist sem þróun undanfarinna
tveggja ára minni dálítið á árin 2004-2006, þegar verðmunur á milli dýrustu
og ódýrustu hverfa jókst töluvert. Svo virðist sem íbúðir í miðlægum hverfum í
Reykjavík og í Garðabæ og á Seltjarnarnesi hækki meira en íbúðir á öðrum
svæðum,“ segja Landsbankamenn um fasteignamarkaðinn.
sbs@mbl.is
Miðborgarverð í hæstu hæðum
101 Kvosin er kvikan. Þangað falla öll
vötn og eignir þar seljast fyrir metfé.
Morgunblaðið/Ómar
skyldan er því lykilatriði til að gera
líf íbúanna bærilegra að þessu leyti.“
Og nú er miðborgin orðin ferða-
mannastaður. Einu má gilda hvenær
farið er um miðborgina, þar er jafn-
an mergð túrista – og hefur þeim
fjölgað mikið á síðustu árum. Og
slíkt hefur sannarlega breytt svip-
móti mannlífsins.
Raski ekki ró nágranna
„Fjölgun ferðamanna hefur
margt jákvætt í för með sér, meðal
annars má nefna fjölbreytta veit-
ingastaði og þjónustu sem við njót-
um öll. Aukinn ferðamannastraum-
ur getur þó orðið til ama. Fólk er á
ferli allan sólarhringinn, umferð
stærri bíla eykst og næturró íbúa
raskast,“ segir Áslaug. „Borgin
skoðar nú hvernig draga má úr þess-
ari umferð. En svo er deilihagkerfið
komið til að vera og því fylgir að fólk
mun leigja íbúðir og aðrar eignir út
til ferðamanna. Endurskoða þarf
reglur í kringum þá starfsemi þann-
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Ég vil ekki sjá miðborgina verða
eingöngu að ferðamannastað. Það
verður að sporna gegn einsleitri
þróun og gæta þess að íbúum fækki
ekki,“ segir Áslaug María Friðriks-
dóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins. Hún
tók sæti sem aðal-
fulltrúi í borgar-
stjórn á síðasta
ári, en hefur ver-
ið viðloðandi
borgarmálin
lengi.
Áslaug hefur
meðal annars lát-
ið til sín taka í
málefnum miðborgarinnar, hvar
hún býr með fjölskyldu sinni. Og það
hverfi freistar ungs fólks. Á síðasta
ári var á vegum Capacent gerð
könnun sem leiddi í ljós að ungt fólk
sæktist eftir því að vera í miðborg-
inni – í deiglu samfélagsins.
Flestir segjast vilja flytja í mið-
og vesturbæ Reykjavíkur eða 56%.
Og um 85% fólks á aldrinum 18-24
ára stefna á þessi sömu hverfi.
„Hvort þetta fólki vill síður flytja í
úthverfi á fullorðinsaldri er ekki
eins auðvelt að svara og fer eflaust
mikið eftir því hvernig borgin á eftir
að þróast á næstu áratugum,“ segir
Áslaug og heldur áfram:
„Miðborgin er líkust því að vera
eins konar þorp í borg, gömlu timb-
urhúsin hafa það í för með sér. Stutt
er á milli staða og fjölbreytt verslun
og þjónusta er nálæg. Helsti gallinn
er of hröð umferð og mikið er kvart-
að yfir skorti á bílastæðum. Gjald-
ig að sem mest sátt verði. Eigendur
hafi frelsi til að ráðstafa eignum sín-
um en um leið verði gerðar kröfur
um að raska umhverfi nágranna sem
minnst. Miðborgarbragurinn þarf að
ná til fleiri hverfa. Þannig styrkjast
stærri svæði.“
Sterkara götulíf
Það sjónarmið hefur heyrst að
úthverfi Reykjavíkur séu afskipt við
stjórn borgarinnar. En gildir hið
sama um miðbæinn?
„Það á við um flest hverfi að
hlusta mætti betur á íbúa. Vel mætti
heyrast hærra í íbúum í 101. Að-
staða í skólum er komin til ára sinna
og langt að sækja íþróttastarf. Ég er
fylgjandi því að bæta miðborgina
fyrir gangandi og hjólandi svo og
aðgengi fatlaðra. Tillögur að nýju
skipulagi eru spennandi og nýstár-
legar. Flestar styðja sterkara götulíf
og að hægt verði að færa veit-
ingasölu og verslun út á götu þegar
vel viðrar.“
Morgunblaðið/Ómar
Mannlíf Miðborgin er deigla samfélagsins og þangað sækir fólk mikið.
Miðborgarbrag í fleiri hverfi
Þróun á svæðinu
verði ekki einsleit
Áslaug María
Friðriksdóttir
Miðbærinn heillar. Þetta er meginniðurstaða
könnunar sem Capacent gerði nýlega fyrir
Reykjavíkurborg, þar sem ungt fólk var spurt í
hvaða hverfi það vildi búa flytti það í höfuð-
borgina.
Um 25% nefndu miðborgina sem fyrsta val-
kost, 18% Hlíðarnar og 13% sögðust vilja í Vest-
urbæinn. Þessi hverfi, að viðbættri þeirri byggð
sem kennd er við Sund, Heima og Voga, var oft-
ast annar valkostur aðspurðra.
Þegar fólk var spurt hvort það vildi flytja í
bæinn og teldi líklegt að svo yrði á næstu þrem-
ur árum þá sögðu um 33% miðbæinn mest
spennandi staðinn. Um 8% utanbæjarfólks sem
horfir á höfuðborgina horfir á Grafarvoginn sem
sína væntanlegu heimabyggð. sbs@mbl.is
Ungt fólk vill spennandi valkost
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykjavík Horft úr turni
Hallgrímskirkjunnar.
Lögreglustöðvarnar í Reykjavík
eru fimm, staðsettar við Grens-
ásveg og í Grafarholti í Reykja-
vík, í Kópavogi og Hafnarfirði.
Hver þeirra hefur sitt varð-
svæði, svo og stöð 5 við Hverf-
isgötuna, en menn þar sinna
löggæslu í miðborg, Vesturbæ
og á Seltjarnarnesi.
Á hverri lögreglustöð höfuð-
borgarsvæðisins eru 25 menn
sem ganga almennar vaktir, en
svo bætast við rannsóknar-
deildir, stjórnendahópur og
fleira. Þá eru landamæraeftirlit
og fangavarsla – auk almennrar
löggæslu – það sem Hverfis-
götumenn sinna. Erillinn þar er
talsverður svo sem á nóttunni
um helgar, þegar skemmtistaðir
í miðborginni eru opnir og
margir á ferð, glaðir á góðri
stund. Er liðsaflinn þá styrktur
og aukamenn frá öðrum stöðv-
um koma á vaktina.
Liðsauki á
helgarnóttum
FIMM STÖÐVAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2015