Morgunblaðið - 10.03.2015, Page 21
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Kínverska þingið kom saman á
fimmtudaginn var, en það situr yf-
irleitt í um tvær vikur á hverju ári í
mars eða lok febrúar. Á þinginu
koma saman um 3.000 „kjörnir“
fulltrúar, sem flestir hafa verið
handvaldir af framkvæmdastjórn
landsins, og ræða saman um þau mál
er Kínverjar standa frammi fyrir.
Og á yfirborðinu lítur staðan vel
út. Kínverska hagkerfið stendur sig
enn vel þrátt fyrir minnkandi hag-
vöxt og er því spáð að landið muni
taka fram úr Bandaríkjunum sem
helsta iðnríki heims um miðja þessa
öld. Út frá þeirri sterku stöðu hafa
Kínverjar reynt að auka ítök sín á
heimsvísu. En er staða landsins
jafnsterk og ætla má?
Fimm atriði er horfa þarf til
David Shambaugh, prófessor í al-
þjóðastjórnmálum og einn helsti
sérfræðingur Vesturlanda í málefn-
um Kína, birti um helgina grein í
bandaríska dagblaðinu Wall Street
Journal, þar sem hann heldur því
fram að kínverski kommúnistaflokk-
urinn, sem öllu hefur ráðið á meg-
inlandi Kína frá árinu 1949, horfi nú
fram á „endataflið“ líkt og hann
orðar það.
Hann rökstyður skoðun sína með
því að benda á fimm atriði, sem sýni
veikleika flokksins mjög skýrt.
Í fyrsta lagi nefnir Shambaugh að
helstu viðskiptajöfrar landsins séu
nú þegar búnir að hasla sér völl er-
lendis, og séu tilbúnir til þess að yf-
irgefa landið ef útlitið versnar. Ný-
leg skoðanakönnun sem gerð hafi
verið meðal 393 ríkustu manna Kína
hafi sýnt að 64% af þeim annaðhvort
ætli sér, eða séu þegar flutt úr landi.
Jafnframt sendi þeir börn sín frekar
til náms erlendis.
Í öðru lagi hafi Xi Jinping, leiðtogi
Kína, stóraukið kúgun í landinu, sem
miði að því að bæla niður alla
óánægju með stjórnvöld í Peking.
Er þá sérstaklega reynt að koma í
veg fyrir stuðning við svonefnd
„vestræn gildi,“ líkt og lýðræði og
prentfrelsi.
Í þriðja lagi segir Shambaugh að
svo virðist sem helstu embættis-
menn kínverska ríkisins séu ekki
jafntrúaðir á áróðurinn um góða
stöðu ríkisins og þeir hafi verið áður
fyrr.
Spilling eykst stöðugt
Fjórða atriðið sem Shambaugh
nefnir í grein sinni er spilling, sem
nái í gegnum kommúnistaflokkinn,
herinn og niður í dýpstu lög sam-
félagsins. Herferð Xi gegn spillingu
beinist í raun og veru gegn pólitísk-
um andstæðingum hans og hafi ekki
dregið úr spillingu í raun.
Að lokum nefnir Shambaugh kín-
verska efnahaginn, sem svo mikið
hafi verið látið af, og segir að í raun
sé hagkerfi Kína í mikilli tilvistar-
kreppu, þar sem einræði flokksins
standi efnahagslífinu fyrir þrifum.
Þá hafi allar tilraunir til nauðsyn-
legra umbóta á efnahagnum strand-
að á sterkum hagsmunahópum.
Shambaugh segist ekki geta spáð
um það hvenær kommúnistaflokk-
urinn muni missa völdin, og segir að
það verði líklega ofbeldisfullt ferli
sem muni taka langan tíma. Ekki sé
hægt að útiloka að ferli Xi í forystu
flokksins muni ljúka með stjórnar-
byltingu, þar sem hann hafi ýtt kín-
versku samfélagi út á ystu nöf. „Við
getum ekki sagt fyrir um hvenær
kommúnisminn muni líða undir lok í
Kína,“ segir Shambaugh, „en það er
erfitt að álykta ekki að við séum að
verða vitni að lokastigum hans,“
segir Shambaugh í lok greinar sinn-
ar.
Brestir komnir í Kínamúrinn?
Einn helsti fræðimaður heimsins í málefnum Kína telur kommúnistaflokkinn kominn á endastöð
Segir hert tök Xi Jinping vera að sliga kínverskt samfélag Efnahagurinn krefst pólitískra umbóta
AFP
Þingsetning Kínverska þingið kemur saman einu sinni á ári og situr í tvær vikur. Bandarískur fræðimaður spáði
því í grein í Wall Street Journal um helgina að stjórn kommúnistaflokksins væri komin á lokastig.
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2015
HLAÐBORÐ
FYRIR FUNDinn
EÐA AFMÆLIð.
565 6000 / somi.is
Við bjóðum upp á ferska og ljúffenga
veislubakka og bjóðum ókeypis heim-
sending á höfuðborgarsvæðinu ef
pantaðir eru fjórir bakkar eða fleiri.
Pantaðu í síma 565 6000 eða á somi.is.
Flugvélin Solar Impulse 2 hóf í gær
hnattflug sitt með því að fljúga frá
Abu Dhabi til borgarinnar Múskat í
Óman. Aðstandendur ferðarinnar
stefna að því að vélin verði sú fyrsta
sem fljúgi í kringum hnöttinn ein-
ungis knúin af sólarorku. Ferðalagið
á þessum fyrsta áfanga vélarinnar
tók 13 klukkutíma og tvær mínútur
og náði yfir 400 kílómetra vega-
lengd.
Bertrand Piccard, stjórnar-
formaður Solar Impulse-félagsins,
sagði í gær að ævintýrið væri hafið,
eftir að flugmaðurinn Andre Borsch-
berg hafði tekið á loft. Ferðalaginu
er meðal annars ætlað að vekja fólk
til vitundar um getu umhverfis-
vænna orkugjafa.
Ferðalagið markar lokahnykkinn
á 13 ára rannsóknarstarfi þeirra
Borschbergs og Piccards, og munu
þeir skiptast á um að fljúga vélinni.
Upphaflega var stefnt að því að vélin
tæki á loft á laugardaginn, en hætt
var við þau áform vegna þess að of
vindasamt var í Abu Dhabi.
Gert er ráð fyrir því að ferðalagið
muni taka þá um fimm mánuði, og
verður vélin á lofti í um það bil 25
daga á þeim tíma. Næsti áfanga-
staður vélarinnar er Ahmedabad á
Indlandi.
Lengsta tímabilið sem vélin þarf
að vera á lofti verður þegar flug-
mennirnir munu reyna að fljúga yfir
Kyrrahafið á milli Nanjing í Kína og
Hawaii á fimm dögum, en sú vega-
lengd er um 8.500 kílómetrar. Sér-
stök stjórnstöð í Mónakó mun fylgj-
ast með fluginu, auk þess sem 65
flugvirkjar ferðast samhliða vélinni.
Stefnt að sögulegum
áfanga í flugsögunni
Fyrsta áfanga vélarinnar lokið
Heimild: solarimpulse.com
Solar Impulse 2
Vænghaf: 72,3 m
Lengd: 22,4 m
Þyngd: 2.300 kg
Meðalhraði: 70 km/klst
Hámarkshæð: 8.500 m
Kolefnistrefjar: 80%
Vélarafl:
4 rafmagnsvélar
Flugstjórnarklefi: 3,8 m3
- Er ekki með loftþrýstibúnaði
- Enginn hita- eða loftstilling
- Einangrunarfroða
17.000 sólarrafhlöður eru dreifðar yfir
270 m2 af vængjum og búk vélarinnar
Þykkt rafhlaðnanna: 35 míkron
Skrúfur
4 metrar að þvermáli
Vegalengd: 35.000 km
500 klukkutímar í flugi
Ferðin tekur 5 mánuði
Áætluð hringferð um heiminn til þess að hvetja til notkunar umhverfisvænna orkugjafa
Múskat Hawaii
Abu
Dhabi
Abu
DhabiAhmedabad
Varanasi
Mandalay
Chongqing
Nanjing
Phoenix
Kyrrahafið
Atlantshafið
New York
Suður-Evrópa eða
Norður-Afríka
Miðvesturríki
Bandaríkjanna
Sólarvélin hefur langflug sitt umhverfis hnöttinn
Stríðandi fylk-
ingar í Líbíu
verða að koma
sér saman um
þjóðstjórn á
næstu dögum,
segir Federica
Mogherini, yfir-
maður utanrík-
ismála hjá Evr-
ópusambandinu.
Mogherini
sagði við öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna að Evrópusambandið
væri reiðubúið til þess að veita Líb-
íu ríkulega aðstoð um leið og búið
væri að stilla til friðar í landinu, en
tíminn væri af skornum skammti.
LÍBÍA
Evrópusambandið
krefst samkomulags
Federica
Mogherini
Barack Obama
Bandaríkja-
forseti skipaði í
gær fyrir hertar
refsiaðgerðir
gagnvart hátt-
settum embætt-
ismönnum í
Venesúela. Að-
gerðunum er ætl-
að að hegna fyrir
pólitískar ofsóknir gagnvart stjórn-
arandstæðingum í landinu, þar á
meðal ákæru á hendur borgarstjóra
höfuðborgarinnar Caracas.
BANDARÍKIN
Hert á refsiaðgerð-
um gegn Venesúela
Barack Obama
Ferðamönnum til Kúbu fjölgaði um
16% í janúar miðað við sama mánuð
í fyrra, að sögn embættismanna
eyjunnar. Er talið að batnandi sam-
skipti á milli Bandaríkjanna og
Kúbu eigi þar mestan þátt, en
75.435 Bandaríkjamenn heimsóttu
eyjuna í ár miðað við 66.195 í fyrra.
Kanadamenn eru þó langfjölmenn-
astir þeirra sem heimsóttu eyjuna,
eða rúmlega 150.000 manns.
KÚBA
Ferðamannaiðn-
aðurinn blómstrar