Morgunblaðið - 10.03.2015, Qupperneq 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2015
✝ Friðrik RagnarEggertsson
vélfræðingur fædd-
ist í Reykjavík 1.
apríl 1961. Hann
varð bráðkvaddur
á heimili sínu 25.
febrúar 2015.
Foreldrar hans
voru Ingibjörg
Friðriksdóttir
fulltrúi, f. 10. jan-
úar 1935, d. 18.
apríl 1997, og Eggert Karlsson
framkvæmdastjóri, f. 8. mars
1936, d. 25. apríl 1983. Dóttir
Friðriks er Ragna Hrund, f. 16.
ágúst 1986, móðir hennar er
Ásthildur Sigurðardóttir.
Ragna Hrund á einn son, Alfreð
Mána, f. 20. maí 2006. Faðir
hans er Ingi Magnús Gíslason.
Bróðir Friðriks samfeðra er
Ármann Eggertsson, f. 23. jan-
úar 1955. Ármann var fóstraður
af föðurbróður sínum, Ágústi
Guðmundsdóttur sem var hon-
um stoð á erfiðum tímum.
Friðrik stundaði nám við
Laugarnes- og Laugarlækj-
arskóla. Hann gekk í Vélskóla
Íslands og útskrifaðist sem vél-
fræðingur í maí 1984. Starfs-
vettvangur Friðriks var á sjó.
Hann var vélstjóri á flutninga-
skipum, fyrst á Hofsá, skipi Haf-
skipa, en síðar í nær 25 ár á
skipum Eimskipafélags Íslands,
síðast sem yfirvélstjóri á Brúar-
fossi. Friðrik var virkur í fé-
lagsmálum og gegndi ýmsum
trúnaðarstöfum um ævina.
Hann var m.a. í ritnefnd Hand-
bókar vélstjóra, sem útskrift-
arnemendur í Vélskóla Íslands
gáfu út árið 1984, hann sat um
tíma í stjórn Lífeyrissjóðs vél-
stjóra og var í samninganefnd
Vélstjórafélagsins.
Friðrik var mikill áhugamað-
ur um farartæki af öllum gerð-
um, hvort sem það voru bílar,
skip, mótorhjól eða flugvélar.
Hans aðaláhugamál var að gera
við bíla í sínum frítíma.
Útför Friðriks fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag,
10. mars 2015, og hefst athöfnin
kl. 15.
Karlssyni, og konu
hans, Guðríði Sæ-
mundsdóttur.
Bræður Friðriks
eru Hafsteinn, f. 15.
mars 1963, og Guð-
jón Ingi, f. 2. mars
1967. Börn Haf-
steins eru Eggert
Karl, Stefán Árni,
Ingibjörg Viktoría
og Árni Elvar. Móð-
ir þeirra er Þórunn
Elva Guðjohnsen. Hafsteinn er í
sambúð með Mandy Baucum og
stjúpdóttir hans er Zora Bauc-
um. Guðjón Ingi er kvæntur
Steinunni Thorlacius og eiga
þau tvær dætur, Bergdísi Ingu
Tong og Eyrúnu Önnu.
Árið 1996 kvæntist Friðrik
Guðrúnu Björgu Egilsdóttur
kennara, f. 12. apríl 1963. Þau
skildu.
Síðustu árin átti Friðrik mjög
góða vinkonu í Guðrúnu Helgu
Það er ótrúlegt til þess að
hugsa að þú hafir verið tekinn
frá okkur. Þótt heilsan hafi farið
niður á við undanfarin ár, þá
varstu að leita orsaka þessa, og
væntir þess að ná vinnuþreki á
ný innan skamms. Máttarvöldin
tóku samt í taumana, og rétt
eins og í ljóði forðum, þá skeytti
dauðinn hvorki um líf né lit.
Það er varla hægt að hugsa
um minningar, því þótt þær séu
margar góðar, þá finnst mér enn
sem þær bestu væru eftir. Bara
fyrir rúmum hálfum mánuði töl-
uðum við um að fara um göngu-
leiðir, hjóla og njóta náttúrunn-
ar á mínum nýju slóðum í
vestrinu, en svo snögglega er
það tekið frá okkur. Mér fannst
sem mér gæfist loks tækifæri til
að endurgjalda þér allt sem þú
hefur gefið mér. Þótt þú ættir
erfitt með að tala um tilfinning-
ar, þá sýndir þú í verki hvern
hug þú barst, og talaðir ekki
hátt um þær fórnir sem þú færð-
ir til að hjálpa öðrum. Til dæmis
þegar þú nýútskrifaður vélstjóri
áttir kost á að fara í langa sigl-
ingu, en sagðir þig frá því þótt
yrðir af vinnunni, þar sem þú
hafðir tekið að þér að vera
svaramaður minn, staðgengill
gengins föður okkar, þegar ég
gifti mig 6 vikum seinna. Ég
frétti af þessu mörgum árum
seinna. Eins þegar þú komst og
réttir enn hjálpandi hönd á tím-
um erfiðleika, breytinga og
flutninga. Þá stóðstu með mér
sem klettur og léttir mér lífsbar-
áttuna.
Á seinni tímum naut ég þess
líka að búa hjá þér þegar ég var
staddur á landinu. Og ævinlega
gast þú skotið undir mig farar-
skjóta. Ég naut líka frábærrar
matseldar þinnar, eins af áhuga-
málum þínum. Grillað saman, en
grætt á nærverunni. Þar lærði
ég loks að þekkja þig, fékk séð í
gegnum varnirnar sem umluktu
viðkvæma sálina en þráði
hlýjuna. Þú áttir svo erfitt með
að sýna tilfinningarnar, en barst
þær svo ríkulega. Oft tók það
tíma að komast framhjá gálga-
húmor og glaðlegum útúrsnún-
ingum, en þegar það hafðist
kunni ég best að meta þig. Afa-
strákurinn þinn fékk svo vel að
kynnast þínum bestu hliðum,
enda leyfum við okkur opnara
viðmót gagnvart börnunum.
Þú hafðir áhuga á mörgu,
varst vel lesinn, og svo fljótur að
lesa að ég óskaði að ég gæti það
sama. Kunnátta þín á ótrúleg-
ustu hlutum var frábær. Sér-
staklega þegar kom að áhuga á
bílum, skipum og flugvélum, en
líka á tónlist og sjónvarpsefni.
Þessi glás af mynd- og hljóð-
diskum lá þó ekkert úti um allt,
því allt var vandlega skráð og
raðað eftir settum reglum.
Litið yfir farinn veg, þá get
ég samt ekki hætt að hugsa að
okkar bestu stundir í lífinu lágu
enn fyrir stafni. Í kjölsoginu
hvirflast myndir og minningar,
birtast og hverfa, minna á skin
og skúrir mannlífsins, en mest
ber á brosi og krafti til að takast
á við hafið og hætturnar, leysa
verkefnin og koma skipi og
áhöfn heilu í höfn. Þú fórnaðir
þér svo oft fyrir aðra, að helst
var að þú gleymdir að næra
sjálfan þig. Og þar sem þú
kvartaðir ekki, fór það oftast
fram hjá okkur. En minningin
um þig mun halda áfram að
næra okkur og minna okkur á
hve dýrmætur tími okkar er
saman. Far þú í friði inn á nýjar
víddir, og ég veit að þú munt
bíða þess að aðstoða okkur þar
seinna.
Þinn bróðir,
Hafsteinn.
Elsku stóri bróðir. Ég man
það vel þegar þú réttir mér lykl-
ana að spánýrri Mözdunni þinni.
Bauðst mér að prófa. Vá, stóri
bróðir að treysta mér, nýkomn-
um með bílpróf, fyrir nýja
sportbílnum sínum. Gat lífið
orðið betra? En svona var okkar
samband. Þú treystir mér alltaf
fyrir hlutunum þínum. Jafnvel
þegar ég hélt að ég hefði fyr-
irgert traustinu, þá léstu það
ekki á þig fá og gafst mér alltaf
annað tækifæri. Svo var það
húmorinn. Það sem við gátum
bullað á góðum stundum, skild-
um algjörlega hvor annan á
meðan viðstaddir horfðu stór-
eygir á okkur og veltu fyrir sér
hvort við værum endanlega
gengnir af göflunum.
Alla tíð hef ég litið upp til þín.
Þú varst stóri bróðir sem gast
allt. Þú varst alltaf sá sem ég
gat leitað til. Það var ekki að
spyrja að því, þegar ég í mínum
klaufaskap var búinn að mála
mig út í horn, þá hringdi ég í þig
og þú komst og reddaðir mál-
unum. Hvort sem það sneri að
viðhaldi á bílum, að laga ljós eða
hvað sem var, alltaf mátti leita
til þín og fá lausn mála.
Með aldrinum áttaði ég mig á
því að þú varst eins og við hin,
breyskur maður með þína kosti
og galla. En það breytti ekki því
að ég leit áfram upp til þín
Þú barst ekki tilfinningar
þínar á torg og ef reynt var að
ræða persónuleg mál þá snerir
þú því upp í gálgahúmor og
kaldhæðni. Innra með þér var
þó viðkvæmt sálartetur sem
þráði næringu og átti skilið að fá
mikið meira út úr lífinu en raun
bar vitni. Börnin áttu þó greiða
leið í gegnum múrinn og náðu
fram því besta hjá þér. Það hef-
ur verið yndislegt að fylgjast
með ykkur Rögnu Hrund frá því
hún fæddist og fram á þennan
dag. Svo margar góðar minn-
ingar af ykkur saman. Hún er
það besta sem lífið færði þér og
svo færði hún þér afastrákinn
hann Alfreð Mána. Hann var
þér svo ákaflega dýrmætur og
mikið sem ég hlakkaði til að fá
að fylgjast með ykkar fallega
sambandi þróast áfram.
Síðustu ár hafa ekki verið þér
auðveld. Veikindi á veikindi ofan
hafa dregið úr þér mátt, líkam-
lega sem andlega og sett þér
ýmsar skorður. Síðustu 3-4 ár
hafa hrjáð þig veikindi sem
fjöldi lækna í ýmsum sérgrein-
um hefur ekki náð að skýra.
Flestir horfðu þeir á þig í for-
undran þegar einkennin komu
fram, m.a. mikil mæðiköst og
skjálfti í útlimum, en þegar öll
próf og rannsóknir komu vel út
var úrskurðurinn að ekkert
væri að þér. Það var þér ákaf-
lega þungbært að fá enga skýr-
ingu á veikindunum, enga skýr-
ingu á því hvað rændi þig
starfsþreki og sjálfstrausti og
gerði þig að aumingja, eins og
þú orðaðir það sjálfur. Það átti
ekki við þig að geta ekki unnið
og leikið þér eins og þú vildir,
hart að þurfa leita ásjár hjá öðr-
um. Óvænt varstu svo leystur
frá þessum raunum þegar þú
varðst bráðkvaddur, kannski
mömmu og pabba hafi þótt
tímabært að fá þig til sín til að
annast um strákinn sinn. Það
var síðan eftir öðru í sjúkrasög-
unni að fyrstu niðurstöður
krufningar leiddu ekki í ljós
ákveðna dánarorsök. Eftir allt
var kannski bara ekkert að,
ekkert nema sú staðreynd að þú
ert farinn frá okkur. Lagður í
hinstu siglinguna, siglir inn í
sólarlagið. Góða ferð, elsku
bróðir.
Guðjón Ingi.
Hann er dáinn hann Friðrik
mágur minn, alltof fljótt og allt-
of snöggt. Eftir sitjum við með
minningar um góðan dreng.
Frikki var fróður og vel lesinn,
mikill dellukarl sem átti sínar
bestu stundir innan um vélar og
tæki. Í Tjaldanesinu fundum við
hann yfirleitt í vel útbúnum bíl-
skúrnum og seinna var hann
með iðnaðarhúsnæði á Lóns-
brautinni, þar sem hann gerði
við bíla og annað sem komið var
með til hans. Frikki var einkar
handlaginn og gat gert við svo
til alla hluti. Viðkvæðið á mínu
heimili hefur enda alltaf verið:
„Sjáum hvort Frikki getur ekki
fundið út úr þessu“ – sem hann
líka yfirleitt gerði. Hans starfs-
vettvangur var á millilandaskip-
um, en eins og hann sagði mér
einu sinni þá þarf að vera hægt
að laga allt sem bilar úti á sjó,
hvort sem það er skipsvélin eða
brauðristin.
Frikki hafði skemmtilega
svartan húmor, var töffari sem
var ekki mikið að flíka tilfinn-
ingum sínum. En innan um börn
var hann allur annar. Dætur
mínar sjá á eftir skemmtilegum
frænda, sem þær höfðu mikið
dálæti á. Máni afastrákur var í
miklu eftirlæti og var frábært
að sjá þá saman.
Elsku Ragna og Máni, Guð-
rún, Guðjón minn og Hafsteinn,
haldið fast í minningar um góð-
an föður, afa, vin og bróður.
Takk Frikki minn fyrir sam-
fylgdina síðustu 18 árin, þín
verður sárt saknað.
Steinunn Thorlacius.
Friðrik Ragnar
Eggertsson
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
ALLAR SKREYTINGAR UNNAR
AF FAGMÖNNUM
Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
HRÖNN JÓNSDÓTTIR,
Dalhúsum 63,
áður handavinnukennari
á Akranesi,
lést 3. mars.
Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 11. mars kl. 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Neistann styrktarsjóð;
nr. 0101 26 4995, kt. 4906952309.
.
Halldór Jóhannsson,
Berglind Halldórsdóttir,
Þóra Halldórsdóttir,
Kristjana Halldórsdóttir.
Ástkær fósturmóðir mín, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR TÓMASDÓTTIR
frá Sútarabúðum,
Grunnavík,
Jökulfjörðum,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði 25. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn
14. mars kl. 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Jón Friðrik Jóhannsson.
Okkar ástkæri,
SKÚLI KETILSSON,
Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili,
Akranesi,
andaðist 3. mars.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
föstudaginn 13. mars kl. 15.
.
Sigurjón Skúlason, Ólöf Agnarsdóttir,
Guðlaug Skúladóttir, Jón Halldórsson,
Þórdís Skúladóttir, Johannes Simonsen
og afabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
SALÓME JÓNSDÓTTIR,
fyrrum húsfreyja að Hvammi í
Vatnsdal,
lést á Hrafnistu í Kópavogi fimmtudaginn 5.
mars.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 19. mars kl. 13.
.
Theodóra Reynisdóttir, Grímur Jónasson,
Valgerður Reynisdóttir, Gísli Úlfarsson,
Sara Lind Gísladóttir, Salóme Gísladóttir,
Rakel Grímsdóttir og Salóme Grímsdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ALBERT JÚLÍUS KRISTINSSON,
Reykjavíkurvegi 52,
Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans
laugardaginn 28. febrúar.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju miðvikudaginn
11. mars kl. 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag
Íslands.
.
Elsa Kristinsdóttir,
Kristinn J. Albertsson, Sigríður Ágústsdóttir,
Magnús Páll Albertsson, Halla Björg Baldursdóttir,
Sverrir Mar Albertsson, Gréta Garðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HREINN RAGNARSSON,
Torfholti 4,
Laugarvatni,
verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju
föstudaginn 13. mars kl. 14.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á minningarsjóð Hjartadeildar
Landspítalans.
.
Guðrún Einarsdóttir,
Harpa Hreinsdóttir, Atli Harðarson,
Ragna Hreinsdóttir, Friðrik Þorvaldsson,
Freyja Hreinsdóttir, Gísli Másson,
Einar Hreinsson, Hrefna Karlsdóttir,
barnabörn og langafabarn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
SVEINN B. HÁLFDANARSON,
lést á Hrafnistu í Reykjavík 8. mars.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 13. mars kl. 11.
.
Hjalti Jón Sveinsson, Soffía Lárusdóttir,
Óttar Sveinsson, Alda Gunnlaugsdóttir,
Álfheiður Hanna Friðriksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.