Morgunblaðið - 10.03.2015, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2015
Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is
Síðan 1986
Sendum hvert
á land sem er
Fartölvur í skólann GX-Gaming fyrir tölvuleikina
Toshiba 2TB USB3
vasaflakkari
Genius þráðlaus
Bluetooth 4.0
ASUS X555LA 15,6 tommu
skólatölva
Intel i5 örgjörvi, 8GB
vinnsluminni, 1000GB diskur,
USB3, HDMI, Bluetooth 4.0,
5 klst. rafhlöðuending
ASUS K552EA 15,6 tommu
skólatölva
AMD Quad Core örgjörvi,
6GB vinnsluminni, 750GB
diskur, USB3, snertiskjár,
5 klst. rafhlöðuending
GX-Gaming 38W RMS
2.1 hátalarar
Silkimjúkur hljómur og
ótrúlegur kraftur
GX-Gaming músarmotta
Hönnuð með tölvuleiki
í huga
Geymdu allt að 2000GB
af gögnum á þessum
pínulitla flakkara. Engin
þörf á spennubreyti.
Aðeins 180 grömm!
GX-Gaming leikjamús
Mjög hraðvirk og
vönduð leikjamús á
ótrúlegu verði!
Virkar við iPhone, iPad,
Samsung Galaxy og fleira.
Allt að 10 metra drægni.
Vönduð vara í fallegum
umbúðum.
In Win Gamer Pro leikjatölva
Virkilega öflug leikjatölva sem spilar
alla tölvuleikina í dag og fer létt
með það!
• AMD Radeon R9 280 3GB skjákort
• Kingston 240GB SSD diskur
• 8GB DDR3 vinnsluminni
• AMD sex kjarna 4,1GHz Turbo
örgjörvi
• Þráðlaust og kapaltengt net
• Windows 8.1 og margt fleira
• Þriggja ára ábyrgð.
17.900 kr.
5.995 kr.
149.900 kr.
119.900 kr.
87.900 kr.
9.990 kr.
4.990 kr.
1.990 kr.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Mikill atburður mun hafa djúp áhrif
á þig og gera þér ókleift um skeið að sjá
hlutina í réttu ljósi. Tíminn stendur með þér,
líka í peningamálum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þekking er vissulega vald en vald get-
ur verið ofmetið. Farðu þér hægt og gerðu
ekki ráð fyrir kraftaverkum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu reiðubúinn því allar breyt-
ingar krefjast fórna. Vilji er það eina sem
þarf. Hvernig væri að nota tækifærið og sjá
þig líka ríkan og spengilegan?
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er gaman að gleðjast í góðra
vina hópi en einvera er líka holl og kjörin til
uppbyggingar. Spreðaðu í eitthvað léttúðugt,
algerlega óþarft og fullkomlega eftirsókn-
arvert.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Himnarnir gefa þér tækifæri til að
dýpka skilning þinn á samúð. Fordæmi þitt
er þeim hvatning og árangur þinn þeirra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Stundum er eins og allt sé undir
manni einum komið. Láttu það ekki koma
þér úr jafnvægi heldur auka þér styrk. Ekki
sniðganga þarfir annarra.
23. sept. - 22. okt.
Vog Athyglin sem þú veitir öðrum er gjöf.
Aðrir sjá um sig en þín verk vinnur enginn
fyrir þig. Spurðu og spurðu, þó að þú vitir
ekki hvað þú átt að gera við svörin.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú er þín stund komin því eftir
því er beðið að þú segir hug þinn og fylkir
fólki á bak við þig. Láttu því einskis ófreist-
að til að ná settu marki.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er hætt við að samskipti þín
við fólk í valdastöðum gangi ekki nógu vel í
dag. Talaðu hreint út við vinnufélaga þína og
hugaðu betur að sjálfum þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú færð góðar hugmyndir um
hvernig þú getur verið eigin atvinnurekandi
eða varðandi sérverkefni sem færa þér fé.
Ekki hlusta á þína innri rödd sem varar þig
við hættunum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Leitaðu að öruggum farvegi fyrir
atorku þína en mundu að enginn er annars
bróðir í leik. Vertu góður við sjálfan þig og
aðra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er að standast allar freistingar
um fjárútlát því staðan er orðin nógu tæp
fyrir. Margt gott kemur út úr þeim sam-
skiptum.
Sigurjóna Björgvinsdóttir yrkir áBoðnarmiði:
Sólin okkur svoldið skín
samt er enn að fenna
bjart í lofti, brekkan fín
á baráttudegi kvenna.
Hvárt er það karlremba eður ei
þegar Hallmundur Kristinsson yrk-
ir 8. mars á baráttudegi kvenna:
Veltir fyrir sér hvolpur hver
hvort megi sköpum renna,
nú í dag þegar einmitt er
alþjóðadagur kvenna.
Kristján frá Gilhaga spyr á
Leirnum hvort einhver viti höfund
þessara stórgóðu leiðbeininga?
Öldur þarf að lægja og leiðir bestu
finna
í lífi konu og manns,
og sá verður að vægja, sem vitið hefur
minna
því vitleysan er hans.
Kristján talar um veðrið eins og
Íslendinga er siður:
Leiður veðra stendur styr
stöðugar átta þrætur,
en við höfum kannski kynnst því fyr
hvernig hún góa lætur.
Stundum frost og stundum þýtt
stundum fýkur í skjólin,
stundum kalt og stundum hlýtt
og stundum brosir sólin.
Hallmundur Kristinsson sér ekki
hið óorðna:
Fésbókarvinur sá færi
og færði prestinum snæri.
Varla neinn veit
í Viðeyjarsveit
hvað gerast nú mun á Mæri.
Ármann Þorgrímsson spyr, hvort
kannski vanti óhefðbundna lækn-
ingu.
Að þjóðarmeinsemd þetta er
víst þekkja flestir
hve margir eru sjálfum sér
og sínum bestir.
Hér er braghenda, sem Jósefína
Dietrich yrkir á Boðnarmiði:
Í þessum heimi’ er hætta mörg
og hundur víða.
Það sem kisa ljúf má líða,
lítil og með snoppu fríða!
Og að lokum gömul vísa:
Hvað er að frétta? Harðindin.
Hvað er starfað? Skorið.
Hvað er dýrast? Heybjörgin.
Hvað um bætir? Vorið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Alþjóðadagur kvenna,
veðrið og fleira gott
Í klípu
SÍMON HAFÐI HALDIÐ SÉR VAKANDI TIL ÞESS
AÐ HITTA TANNÁLFINN – SEM HONUM HAFÐI
VERIÐ SAGT AÐ VÆRI MUN MEIRA AÐLAÐANDI.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÁTTAR ÞÚ ÞIG Á ÞVÍ AÐ VIÐ ERUM BÚNIR AÐ
VERA ÚTI Í FJÓRA KLUKKUTÍMA, OG VIÐ ERUM
EKKI EINU SINNI KOMNIR Á ÞRIÐJU FLÖTINA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að kalla
eftirmiðdagslúrinn hans
„kraftablund“.
GRETTIR, ÉG VIL
HORFA Á SJÓNVARPIÐ
SLEPPTU
FJARSTÝRINGUNNI
ÞÚ GETUR
ÞETTA
GETUM VIÐ
FENGIÐ
SMÁSTUND
SAMAN FYRST?
ANNAÐ HVORT HÆTTUM VIÐ
AÐ FARA ÚT AÐ BORÐA...
...EÐA VIÐ FÁUM
OKKUR NÝJAN
VARÐHUND!
Harry Kane, miðherji TottenhamHotspur í ensku úrvalsdeild-
inni, er að verða eitt mesta ævin-
týri seinni ára í knattspyrnuheim-
inum. Fáir aðrir en hörðustu
stuðningsmenn Tottenham höfðu
heyrt þessa 21 árs gamla leik-
manns getið fyrir yfirstandandi
sparktíð en nú er hann á allra
vörum eftir að hafa gert 26 mörk í
vetur, þar af 16 í úrvalsdeildinni.
Ekkert benti til þess síðasta
sumar að Harry Kane yrði ein af
stjörnum vetrarins í ensku knatt-
spyrnunni. Hann hafði fjórum sinn-
um verið lánaður til annarra fé-
laga, með þokkalegum árangri, en
braust loks inn í lið Tottenham í
fyrra. Lék 19 leiki og gerði fjögur
mörk. Viðunandi árangur hjá ný-
liða en ekkert til að fara á líming-
unum yfir. Og klárlega engin vís-
bending um það sem var í
vændum.
Enginn leikmaður í úrvalsdeild-
inni hefur skorað meira í öllum
keppnum og aðeins Diego Costa,
Chelsea, og Sergio Agüero, Man-
chester City, meira í deildinni, 17
mörk. Hörð barátta er framundan
um markakóngstitilinn.
x x x
Kane á enn eftir að leika sinnfyrsta landsleik fyrir England
en það breytist væntanlega næst
þegar landsliðið kemur saman. Roy
Hodgson landsliðseinvaldur hefur
alltént verið hvattur til að velja
Kane í hóp sinn áður en pilturinn
stefnir skónum annað. Hann er
líka gjaldgengur í landslið Írlands
gegnum föður sinn. Lítil hætta er
að vísu á því enda hefur Kane leik-
ið með yngri landsliðum Englands.
Annar enskur miðherji sem sleg-
ið hefur í gegn í úrvalsdeildinni í
vetur er Charlie Austin, sem skor-
að hefur 14 mörk fyrir Queen’s
Park Rangers. Hann hefur heldur
ekki leikið landsleik. Til saman-
burðar má nefna að helstu mið-
herjar enska landsliðsins undan-
farin misseri hafa allir skorað
minna í deildinni í vetur: Wayne
Rooney 10 mörk fyrir Manchester
United, Danny Welbeck fjögur
mörk fyrir Arsenal og Daniel Stur-
ridge þrjú mörk fyrir Liverpool. Sá
síðastnefndi var að vísu lengi frá
vegna meiðsla. víkverji@mbl.is
Víkverji
Munnur minn er fullur lofgjörðar um
þig, af lofsöng um dýrð þína allan dag-
inn. (Sálmarnir 71:8)