Morgunblaðið - 10.03.2015, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2015
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Tónlist Beethovens býr yfir gíf-
urlegri tilfinningalegri breidd þar
sem bregður fyrir viðkvæmni og
húmor jafnt sem heift. Á sama tíma
hefur tónskáldið ótrúlegt vald á
forminu,“ segir bandaríski píanóleik-
arinn Richard Goode sem kemur
fram á tónleikum í tónleikaröðinni
Heimspíanistar í Norðurljósasal
Hörpu í kvöld kl. 20.
Goode er sérstaklega virtur fyrir
túlkun sína á verkum eftir Ludwig
van Beethoven og var fyrstur landa
sinna til að hljóðrita allar sónötur
meistarans. Hann er talinn meðal
fremstu píanóleikara heims af sinni
kynslóð og á glæsilegan feril að baki.
Á efnisskrá kvöldsins eru síðustu
þrjár sónöturnar sem Beethoven
samdi. Fyrir hlé hljóma Sónata nr.
30 í E-dúr, op. 109 og Sónata nr. 31 í
As-dúr, op. 110, en eftir hlé leikur
Goode Bagatellur 6-11, op. 119 áður
en komið er að Sónatu nr. 32 í c-moll,
op. 111.
Dularfull tengsl milli verka
„Þessar þrjár sónötur hafa alltaf
staðið hjarta mínu nærri. Í dag er
mælt með því að ungir píanóleikarar
byrji á því að stúdera sónöturnar
sem Beethoven samdi á sínum yngri
árum, en ég man að ég var ekki nema
13 ára þegar ég fór að glíma við op.
110. Ég heillaðist strax af stemning-
unni í þessum þremur síðustu són-
ötum hans og sögunni að baki verk-
unum. Verkin búa yfir ótrúlegri
tilfinningabreidd, fjölbreytni að
formi til og tilfinningu fyrir tilrauna-
og rannsóknarmennsku. Þessar són-
ötur eru svo einstök smíð að ég gæti
aldrei orðið leiður á þeim. Ég hef því
glímt reglulega við þessar sónötur
frá því ég var táningur að aldri,“ seg-
ir Goode, sem verður 72 ára í júní nk.
Spurður hvort skynjun tónleika-
gesta á verkunum breytist við það að
hlusta á þau leikin saman í stað þess
að heyra hverja sónötu leikna staka
svarar Goode því játandi. „Ég er
sannfærður um það. Það eru yndis-
leg og jafnframt dularfull tengsl milli
sónatanna þriggja. Mér þykir vænt
um hverja þeirra fyrir sig, en ég held
að þegar maður leikur þær allar
þrjár saman skynji maður breiðara
tilfinningasvið og verði sér meðvit-
aðri um þau sérkennilegu tengsl sem
eru á milli þeirra. Þannig birtast
sömu stef og þemu í öllum þremur
sónötum. Verkin þrjú eru mjög ólík
innbyrðis, en vísa þó með skemmti-
legum hætti hvert til annars,“ segir
Goode.
Nýtur þess að kenna
Eftir því sem blaðamaður kemst
næst hefur Goode ávallt haft það að
leiðarljósi að vera mjög trúr tón-
skáldum og farið í einu og öllu eftir
öllum merkingum um m.a. styrk-
leika- og hraðabreytingar. Þegar
þetta er borið undir píanistann og
hann spurður hvað valdi svarar
Goode um hæl: „Er einhver önnur
leið fær?“ og hlær góðlátlega.
„Að því sögðu er rétt að benda á að
flestir tónlistarmenn segjast vera
trúir tónskáldinu í nálgun sinni og
túlkun, en sá trúnaður birtist síðan
með afar ólíkum hætti, því allir hafa
sína leið að viðfangsefninu. Það sem
gerir tónlist Beethovens jafnfrábæra
og raun ber vitni er að hver listamað-
ur og hver ný kynslóð getur fundið
sína leið að verkum hans og samt
ávallt haldið trúnaði við tónskáldið.
Mér finnst þannig alltaf jafngaman
að hlusta á gamlar upptökur af són-
ötum Beethoven og heyra hversu
ólík nálgun listamannanna var. Hér
áður fyrr voru margir sem fóru ekki
jafnsamviskusamlega eftir forskrift-
inni í nótum, en í mínum huga úti-
lokar trúnaður við forskrift tón-
skáldsins ekki ímyndunarafl og
túlkun hljóðfæraleikarans. Við þurf-
um að lesa í nóturnar og rýna í það
sem liggur að baki þeim,“ segir
Goode og tekur fram að afstaða hans
hafi mótast þegar hann nam hjá
Rudolf Serkin, en samstarf þeirra
hófst þegar Goode var aðeins 14 ára.
Aðspurður hvort hann muni hvert
var fyrsta tónverkið eftir Beethoven
sem hann heyrði svarar Goode því
játandi. „Það var þegar fyrsti píanó-
kennarinn minn lék fyrir mig upp-
hafstónana að Tunglskinssónötunni
svonefndu þegar ég var sex ára,“
segir Goode sem sjálfur hefur sinnt
kennslu um margra áratuga skeið.
„Ég hef kennt allt frá því ég útskrif-
aðist sjálfur. Í dag er ég aðeins með
fjóra nemendur, en ég nýt þess svo
sannarlega að kenna og skoða tón-
listina í samvinnu við nemendur
mína. Á síðustu árum hef ég í aukn-
um mæli kennt í formi masterklassa.
Það er mjög góð leið til að fylgjast
með þróun spilamennskunnar.“
Nauðsynlegt að kvelja sig
Goode hóf feril sinn sem píanóleik-
ari í kammerverkum. Spurður hvort
sá bakgrunnur hafi mótað hann sem
einleikara hugsar Goode sig vel um
og svarar svo: „Þetta er góð spurn-
ing, en ég er ekki alveg viss um hvert
svarið sé. Einn stærsti kosturinn við
píanóið í klassískum verkum er að
hljóðfærið er býsna hlutlaust, en get-
ur hermt eftir bæði heilli hljómsveit
og líka einni söngrödd. Ég var aðeins
14 ára þegar ég komst í kynni við
Marlboro þar sem kammermúsík var
í fyrirrúmi og það reyndist mér
ómetanlegur skóli þegar kom að
samvinnu við önnur hljóðfæri. Nám-
ið þar kom í veg fyrir að nálgun mín
á tónlistina væri alfarið hugsuð út frá
forsendum píanósins,“ segir Goode
sem var ásamt Mitsuko Uchida list-
rænn stjórnandi Marlboro-
tónlistarháskólans og tónlistarhátíð-
arinnar á árunum 1999-2013.
Goode hefur á ferli sínum verið
mjög ötull við að hljóðrita tónlist, en
hljómplötur hans telja á þriðja tug-
inn. Spurður hvers vegna honum hafi
þótt mikilvægt að hljóðrita jafnmikið
og raun ber vitni svarar Goode um
hæl: „Það er nauðsynlegt að kvelja
sjálfan sig. Því upptökuferlið er
hreinasta kvöl og pína. Engu að síður
hef ég litið á það sem skyldu mína að
hljóðrita. Framkoma á tónleikum er
hverfult augnablik og mér fellur sá
hverfulleiki að miklu leyti. Þegar
tónninn hefur verið sleginn lifir hann
aðeins í eyrum og síðan minningu
tónleikagesta sé hann yfirhöfuð þess
virði að minnast. En það er líka
ágætt að geta skilið eitthvað eftir sig
bæði fyrir mann sjálfan og þá sem á
eftir koma. Mér finnst ég hafa getað
lært ótrúlega mikið af því að hlusta á
túlkun fyrirrennara minna,“ segir
Goode.
Spurður hvort það venjist vel að
vera á sífelldum ferðalögum um
heiminn, en Goode kom á síðasta ári
fram á 50 tónleikum víðs vegar um
heiminn, svarar Goode því neitandi.
„En ég reyni núorðið að horfa á
björtu hliðarnar og fá sem mest út úr
ferðalögunum. Þannig nýt ég t.d.
þeirrar gæfu að fá núna tækifæri til
að heimsækja Ísland í fyrsta sinn á
ferlinum. Við eiginkona mín völdum
að fljúga til landsins nokkrum dögum
fyrir tónleikana til þess að fá tæki-
færi til að upplifa náttúruna og njóta
staðarins. Ég hlakka mikið til tón-
leikanna í Hörpu enda hef ég heyrt
afar vel af tónlistarhúsinu ykkar lát-
ið,“ segir Goode að lokum.
Þess má að lokum geta að miðasal-
an er á harpa.is, en vakin er athygli á
því að tónlistarnemendur fá ókeypis
aðgang að tónleikunum.
„Alltaf staðið
hjarta mínu nærri“
Richard Goode leikur verk eftir Beethoven í kvöld kl. 20
Ljósmynd/Steve Riskind
Heimspíanisti „Það er nauðsynlegt að kvelja sjálfan sig. Því upptökuferlið
er hreinasta kvöl og pína,“ segir Richard Goode sem kemur fram í Hörpu.
Kvenpersónur sem leggja allt
í sölurnar fyrir ástina verða í
forgrunni á hádegistón-
leikum Íslensku óperunnar
sem hefjast kl. 12.15 í Norð-
urljósum í Hörpu í dag. Á
þeim mun Sólrún Bragadótt-
ir sópransöngkona bregða
sér í hlutverk Leónóru úr
Valdi örlaganna, Elísabetar
úr Tannhäuser, Santuzzu úr
Cavalleria Rusticana og
Maddalenu úr Andrea Ché-
nier, að því er segir í tilkynn-
ingu. „Ást, afbrýði, hatur,
hefnd og hamingja einkennir
umfjöllunarefni þessara
kvenna,“ segir í tilkynning-
unni. Meðleikari á píanó er
Antonía Hevesi og aðgangur
að tónleikunum er ókeypis.
Ást, afbrýði, hatur,
hefnd og hamingja
Samstilltar Antonía Hevesi píanóleikari og
Sólrún Bragadóttir sópransöngkona.
Ljósmynd/Gísli Egill Hrafnsson
Sumarliði Ís-
leifsson, sagn-
fræðingur og
ritstjóri, flytur
hádegisfyrir-
lestur á vegum
Sagnfræðinga-
félags Íslands
undir yfirskrift-
inni „Hreinlæti
og óhreinlæti í
lýsingum frá Ís-
landi og Grænlandi frá 18. öld og
fram á hina 20.“ í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns Íslands í dag kl.
12.05. Í honum verður rætt um
hvernig hugmyndir um óhrein-
læti og hreinlæti birtast í erlend-
um lýsingum frá Íslandi og Græn-
landi frá 18. öld og fram á 20. og
kannað hvaða merkingu þessar
lýsingar hafa. Kynþáttahyggja
komi m.a. til umræðu og hvort
litið hafi verið á fólk þessara
landa sem „hreint“ eða ekki í því
samhengi.
Óhreinlæti og
hreinlæti
Sumarliði
Ísleifsson
Sýning á verkum Óskars Guðnason-
ar stendur nú yfir í kaffistofu Do-
mus Medica og lýkur 15. mars. Ósk-
ar sýnir þar 12 olíumálverk og tvö
akrýlverk sem hann vann á sl.
tveimur árum. Óskar hefur haldið
nokkrar einkasýningar, þá síðustu í
fyrrasumar í Pakkhúsinu á Höfn í
Hornafirði en hann er þar fæddur
og uppalinn. Óskar segist mála
óhlutbundin verk með hornfirsku
náttúruívafi.
Með hornfirsku
náttúruívafi
Hr. Burns „Af hverju grætur Hr.
Burns?“, verk eftir Óskar.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Þri 10/3 kl. 19:00 aukas. Fös 27/3 kl. 19:00 aukas. Fim 23/4 kl. 19:00
Mið 11/3 kl. 19:00 4.k. Sun 29/3 kl. 19:00 10.k Fös 24/4 kl. 19:00
Fim 12/3 kl. 19:00 5.k. Mið 8/4 kl. 19:00 11.k Sun 26/4 kl. 19:00
Sun 15/3 kl. 19:00 6.k. Fim 9/4 kl. 19:00 12.k Mið 29/4 kl. 19:00
Þri 17/3 kl. 19:00 aukas. Lau 11/4 kl. 19:00 aukas. Fim 30/4 kl. 19:00
Mið 18/3 kl. 19:00 7.k. Sun 12/4 kl. 19:00 13.k Sun 3/5 kl. 19:00
Fim 19/3 kl. 19:00 8.k. Fim 16/4 kl. 19:00 14.k Fim 7/5 kl. 19:00
Fös 20/3 kl. 19:00 aukas. Fös 17/4 kl. 19:00 15.k Fös 8/5 kl. 19:00
Sun 22/3 kl. 19:00 9.k Sun 19/4 kl. 19:00 aukas.
Fim 26/3 kl. 19:00 aukas. Mið 22/4 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 14/3 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00 Lau 18/4 kl. 13:00
Sun 15/3 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00 Sun 19/4 kl. 13:00
Lau 21/3 kl. 13:00 Lau 11/4 kl. 13:00 Lau 25/4 kl. 13:00
Sun 22/3 kl. 13:00 Sun 12/4 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi er mætt á Stóra sviðið
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Fös 20/3 kl. 20:00 Frums. Þri 14/4 kl. 20:00 aukas. Sun 3/5 kl. 20:00 17.k
Sun 22/3 kl. 20:00 2.k Mið 15/4 kl. 20:00 9.k Mið 6/5 kl. 20:00 aukas.
Þri 24/3 kl. 20:00 aukas. Fim 16/4 kl. 20:00 10.k Fim 7/5 kl. 20:00 18.k
Mið 25/3 kl. 20:00 aukas. Fös 17/4 kl. 20:00 11.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k
Fim 26/3 kl. 20:00 3.k. Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Lau 9/5 kl. 20:00 20.k.
Fös 27/3 kl. 20:00 4.k. Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k
Sun 29/3 kl. 20:00 aukas. Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 8/4 kl. 20:00 5.k. Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Mið 13/5 kl. 20:00 22.k.
Fim 9/4 kl. 20:00 6.k. Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k.
Lau 11/4 kl. 20:00 7.k. Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Fös 15/5 kl. 20:00 aukas.
Sun 12/4 kl. 20:00 8.k. Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Sun 17/5 kl. 20:00
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fim 12/3 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00
Fös 13/3 kl. 20:00 Lau 21/3 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fös 13/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00
Lau 14/3 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00
Lau 21/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00
Sprenghlægilegur farsi
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.