Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 8. M A R S 2 0 1 5
Stofnað 1913 74. tölublað 103. árgangur
ARON LEIKUR
50. LANDSLEIK
SINN Í ASTANA
DANSKA STÚLKAN
KVIKMYNDUÐ
Í NÝHÖFNINNI
MARGBROTIN SAGA 10FÓTBOLTI ÍÞRÓTTIR
Upptaka nýrra lyfja of hæg
Yfirlæknir á krabbameinsdeild telur kerfið of þungt í vöfum „Vildum gjarnan
geta boðið fyrr upp á fleiri ný lyf“ Lyfjagreiðslunefnd bundin af fjárlögum
á úreltar meðferðir og meðferðar-
árangur er almennt mjög góður en
við vildum gjarnan geta boðið fyrr
upp á fleiri ný lyf. Í ákveðnum til-
vikum myndi það fjölga möguleikum
í meðferð ef við hefðum aðgang að
þessum lyfjum,“ segir Gunnar
Bjarni Ragnarsson, yfirlæknir lyf-
lækninga krabbameina á LSH.
Segir hann að upptaka nýrra lyfja
gangi of hægt fyrir sig á Íslandi og
telur hann kerfið of þungt í vöfum.
Lyfjagreiðslunefnd tekur ákvörð-
un um það hvaða lyf eru tekin inn í
greiðsluþátttökukerfi ríkisins. Guð-
rún I. Gylfadóttir, formaður nefnd-
arinnar, segir að nefndin sé bundin
af fjárlögum hvers árs. Fyrir vikið
hafi hún hafnað mörgum kostnaðar-
sömum lyfjum að undanförnu.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Maður er að sjálfsögðu ekki ánægð-
ur ef ekki er hægt að nota þau lyf
sem maður vill bjóða upp á. En það
má ekki gleyma því að það hafa orðið
framfarir og lyf sem við bjóðum upp
á nú þegar eru í samræmi við það
sem notast er við annars staðar. Það
er ekki svo að við séum að bjóða upp
Ný lyf
» Yfirlæknir á LSH telur að
upptaka nýrra lyfja sé of hæg
hér á landi.
» Telur ný lyf geta fjölgað
möguleikum til meðferðar.
MLyf ekki tekin nægjanlega … »6
Þeir voru litríkir og líflegir strákarnir sem æfðu
af kappi á gervigrasvelli Fylkis í Árbæ í gær og
létu snjómugguna ekki trufla sig. Í dag fylgjast
þeir trúlega með eins og aðrir þegar „stóru strák-
arnir“ í landsliðinu mæta til leiks á gervigrasinu í
Kasakstan í undankeppni Evrópumótsins.
Morgunblaðið/Golli
Litríkir og líflegir fótboltastrákar í Árbænum
Æft af kappi og snjómuggan hafði lítil áhrif
Stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja
(SV) á nú í viðræðum við Lands-
bankann um samruna. Viðræðurnar
halda áfram í dag, samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins.
Fjármálaeftirlitið gaf stjórn SV
frest til kl. 16.00 í gær til að koma
með áætlun um hvernig styrkja
mætti eiginfjárgrunn sparisjóðsins.
Talsmenn SV mættu með þrjár til-
lögur.
Sú fyrsta gekk út á að bæta eigin-
fjárstöðu sjóðsins meðal annars með
aðkomu erlends eignarhalds. Hún
var ekki talin áreiðanleg og var því
hafnað af Fjármálaeftirlitinu.
Þá var lögð fram tillaga um að
ganga til samninga við Landsbank-
ann um samruna og er nú unnið eftir
henni. Forsvarsmenn SV munu
einnig hafa haft í handraðanum til-
lögu um viðræður við Arion banka,
en hún var ekki borin undir Fjár-
málaeftirlitið, samkvæmt heim-
ildum.
Fulltrúar Sparisjóðs Vestmanna-
eyja og Landsbankans áttu í gær
eftir að ganga frá ýmsum atriðum
samkomulags sín í milli og kemur í
ljós í dag hvað Fjármálaeftirlitið
mun veita þeim langan frest til þess.
gudni@mbl.is, ses@mbl.is »22
Ræðir við
Lands-
bankann
Mál sparisjóðsins
ættu að skýrast í dag
Eyjar Bankasamruni.
Samkvæmt nýrri reglugerð um
velferð alifugla verður notkun á
hefðbundnum búrum hætt í eggja-
framleiðslu 31. desember 2021.
Búrhænurnar eru því á leiðinni út
og frjálsar hænur það sem koma
skal. Ætla má að 78% varphæna
séu í búrum og 22% í lausagöngu.
Þetta þýðir því miklar breyt-
ingar í búskapnum. Félag eggja-
bænda fékk Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins til þess að meta
áhrifin af nýju reglugerðinni. Þar
er gert ráð fyrir því að heildar-
fjárfesting íslenskra eggja-
framleiðenda vegna aðlögunar að
nýrri reglugerð sé á bilinu 2.000-
2.500 milljónir.
Áhrifin eru lítil á suma framleið-
endur eins og Brúnegg en
fyrirtækið hefur frá stofnun 2004
eingöngu verið með vistvæn egg
úr frjálsum hænum.
Nánar er fjallað um egg og
eggjabændur í Sunnudagsblaði
Morgunblaðsins.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Frelsi Varphænurnar hjá Brúneggj-
um í Borgarfirði eru frjálsar.
Búrhænur á leiðinni út
Notkun búra hætt fyrir árslok 2021
Kostnaður bænda tveir milljarðar
Vandræða-
gangur og úr-
ræðaleysi ríkir í
skólakerfinu
þegar kemur að
bráðgerum börn-
um. Meyvant
Þórólfsson, dós-
ent við mennta-
vísindasvið Há-
skóla Íslands,
segir fátt í boði
fyrir þessa nemendur. „Það er ef-
laust ekki meiningin en mig grunar
að skólakerfið viti ekki alveg
hvernig á að aðstoða bráðgeru
börnin.“ »16
Bráðger börn út-
undan í kerfinu
Vantar úrræði í
skólakerfið.
Frumvarp sjáv-
arútvegsráðherra
um veiðigjald
verður kynnt eft-
ir helgina, sam-
kvæmt heim-
ildum Morgun-
blaðsins. Þar
mun vera lagt til
eitt afkomutengt
veiðigjald í stað
tveggja veiði-
gjalda nú. Þá mun vera komið til
móts við sjónarmið útgerðarinnar en
um leið eiga tekjur ríkissjóðs af
veiðigjaldinu að hækka.
Einnig mun eiga að festa í sessi
afkomustuðla í staðinn fyrir að miða
við þorskígildi. Önnur meginbreyt-
ing er sú að taka upp staðgreiðslu á
veiðigjaldinu. Í stað þess að það sé
lagt á fyrirfram samkvæmt afla-
heimildum verði það staðgreitt eftir
hverja löndun. »2
Veiðigjald
skili meiri
tekjum
Veiðigjald Eitt í
stað tveggja nú.