Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015
Nýafstaðnar rafrænar kosn-ingar í Sveitarfélaginu Ölfusi
eru umhugsunarverðar fyrir ým-
issa hluta sakir. Fyrir það fyrsta er
þátttakan mikið umhugsunarefni
og hlýtur að verða
talin enn ein ábend-
ingin frá kjósendum
um að þeir vilji að
gætt sé hófs í fjölda
kosninga.
Kosningarnarvoru um það bil eins aðgengi-
legar og hægt er að hugsa sér,
stóðu í marga daga og kjósendur
voru mjög hvattir til þátttöku. Samt
sáu ekki nema 43% ástæðu til að
kjósa.
Meirihlutinn kaus ekki, semverður vart túlkað sem krafa
um fjölgun kosninga, en því heyrist
oft fleygt að almenningur hafi uppi
slíka kröfu þó að krafan komi sjald-
an úr þeirri átt.
Þá er umhugsunarvert að þeirsem þó tóku þátt felldu hug-
myndir um sameiningu sveitarfé-
lagsins við önnur sveitarfélög,
þrátt fyrir stöðugan þrýsting að of-
an um sameiningar.
Loks er umhugsunarvert hvorttekið verður mark á þeim vilja
sem kom fram í þessum kosningum.
Verða sameiningaráform þarmeð lögð á hilluna eða verða
fundnar leiðir til að halda áfram að
þrýsta á um sameiningu þrátt fyrir
vilja íbúanna?
Sveitarstjórnarmenn horfagjarnan til Brussel og sækja
borgina oft heim, í brýnum erinda-
gjörðum að sjálfsögðu. Það kann að
skýra hvernig vilji íbúa til samein-
ingar sveitarfélaga er stundum
túlkaður.
Lítill áhugi á
fjölgun kosninga
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 27.3., kl. 18.00
Reykjavík 0 snjóél
Bolungarvík -2 léttskýjað
Akureyri 1 snjóél
Nuuk -8 skýjað
Þórshöfn 5 skúrir
Ósló 2 skýjað
Kaupmannahöfn 6 skúrir
Stokkhólmur 6 skýjað
Helsinki 2 skúrir
Lúxemborg 8 léttskýjað
Brussel 8 léttskýjað
Dublin 11 skýjað
Glasgow 8 alskýjað
London 12 heiðskírt
París 11 alskýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 7 léttskýjað
Berlín 8 léttskýjað
Vín 9 skýjað
Moskva 4 léttskýjað
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 18 léttskýjað
Barcelona 16 heiðskírt
Mallorca 18 léttskýjað
Róm 13 léttskýjað
Aþena 16 skýjað
Winnipeg -2 alskýjað
Montreal -2 snjókoma
New York 5 alskýjað
Chicago -2 skýjað
Orlando 25 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:01 20:06
ÍSAFJÖRÐUR 7:03 20:14
SIGLUFJÖRÐUR 6:46 19:57
DJÚPIVOGUR 6:30 19:36
Hafsteinn Þorvaldsson,
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Sjúkra-
húss Suðurlands, and-
aðist á Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands 26.
mars sl. á 84. ári.
Hafsteinn fæddist í
Hafnarfirði 28. apríl
1931 og var sonur
Lovísu Aðalbjargar
Egilsdóttur húsmóður
og Þorvaldar Guð-
mundssonar, verka-
manns og bónda.
Hafsteinn nam við
Íþróttaskólann í
Haukadal 1946-1948. Hann lauk
fyrri hluta Lögregluskólans 1964 og
kennaranámskeiði í hjálp í viðlögum
hjá RKÍ 1968. Þá sótti hann ýmis
námskeið m.a. í Stjórnunarskóla Ís-
lands og endurmenntun.
Hafsteinn var bóndi í Syðri-Gróf í
Villingaholtshreppi 1950-1961,
starfsmaður Selfoss-
hrepps, lögreglumaður
og sölumaður 1961-
1967. Hann var fram-
kvæmdastjóri Sjúkra-
hússins á Selfossi
1967-1981 og fram-
kvæmdastjóri Sjúkra-
húss Suðurlands og
Heilsugæslustöðvar
Selfoss 1982-1995.
Hann tók mikinn
þátt í félagsstörfum og
gegndi mörgum
ábyrgðarstörfum. Haf-
steinn var m.a. í stjórn
og formaður UMFÍ, í
Æskulýðsráði ríkisins og formaður
þess, í sveitarstjórn á Selfossi og
formaður bæjarráðs um tíma.
Hafsteinn var kvæntur Ragnhildi
Ingvarsdóttur (1929-2006) og eign-
uðust þau fimm börn, Þorvald,
Ragnheiði, Þráin, Aðalbjörgu og Vé-
stein.
Andlát
Hafsteinn Þorvaldsson,
fv. framkvæmdastjóri
Verð frá539.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta 429.900 kr.
Drykkjarpakki innifalinn ef bókað er fyrir 31. mars
Fararstjóri er Þóra Valsteinsdóttir
VITA - Skógarhlíð 12 - Sími 570 4444Flogið með Icelandair
Sigling umSuðaustur Asíu
7. - 23. nóvember
HONGKONG-VIETNAM-TAILAND-SINGAPORE
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það er kominn mikill kraftur og
hugur í samtökin. Við munum halda
starfinu áfram og efla vitund fólks
um mikilvægi þess að byggja fyrir
meginstarfsemi spítalans, ekkert má
hökta og framkvæmdir verða að
halda áfram linnulaust,“ segir Anna
Stefánsdóttir, formaður samtakanna
Spítalinn okkar, sem hélt sinn fyrsta
aðalfund sl. fimmtudag.
Anna segir ákveðna áfanga hafa
náðst í því að byggja nýjan Land-
spítala og samtökin hafi átt ágætt
samstarf við byggingarnefnd og vel-
ferðarráðuneytið. Hún segir að á
samtökin sé hlustað og vonandi verði
svo áfram.
„Við finnum jákvæða strauma og
fáum alls staðar góðar móttökur við
okkar málstað, hvar sem við komum.
Menn sjá nauðsyn þess að byggja
fyrir starfsemina,“ segir Anna en
samtökin hafa á síðustu mánuðum
haldið um 30 kynningarfundi víða
um land og tvö málþing.
Stórir áfangar hafa náðst
Anna tekur fram að ekkert sé end-
anlega í höfn þó að framkvæmdir
fari að byrja á lóð Landspítalans fyr-
ir meðferðarkjarna og sjúkrahótel.
Mikilvægt sé að sameina starfsemi
spítalans á einn stað og skapa betri
aðstæður fyrir bæði starfsmenn og
sjúklinga sem þurfa á þjónustunni að
halda.
„Við höfum fengið jákvæð skila-
boð í fjárlögum þessa árs þar sem
ákveðið var að setja meira fé í þetta.
Ráðuneytið er búið að fela bygging-
arnefnd spítalans að bjóða út fulln-
aðarhönnun á meðferðarkjarna og
hefja framkvæmdir á lóðinni fyrir
sjúkrahótel. Þetta eru stórir áfang-
ar,“ segir Anna ennfremur.
Á aðalfundinum greindi Ingólfur
Þórisson, framkvæmdastjóri rekstr-
arsviðs Landspítalans, m.a. frá
reynslu Norðmanna af byggingu
nýrra sjúkrahúsa. Tekið var dæmi
um Þrándheim og sagði Ingólfur þá
framkvæmd í anda þess sem vilji
væri til hér á landi, með góðu rými
fyrir hvern sjúkling. Þá væri góð
reynsla af því í Noregi að hafa starfs-
menn með í ráðum við hönnun nýrra
spítala, allt frá upphafi til lokastigs
framkvæmda. Með þeim hætti gætu
starfsmenn aðlagast betur nýrri að-
stöðu. Að sögn Önnu hefur þessi leið
verið farin hér á landi og Landspít-
alinn skipað starfsmenn í vinnuhópa
vegna nýs spítala.
Ekkert má hökta
með nýjan spítala
Mikill hugur á aðalfundi samtakanna
Spítalinn okkar Fá góðar móttökur
Ljósmynd/Magnús Heimisson
Spítali Frá aðalfundi landssamtak-
anna Spítalinn okkar.
Spítalinn okkar
» Landssamtökin Spítalinn
okkar voru stofnuð 9. apríl árið
2014. Stofnfélagar eru um
1.000, áhrifafólk um allt land.
» Markmið samtakanna er að
stuðla að uppbyggingu nýs
húsnæðis fyrir Landspítalann
og afla til þess stuðnings með-
al stjórnvalda og almennings.