Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Núna er mikilvægast að byggja upp
útihúsin gömlu sem ekki hefur verið
haldið við. Eitt þeirra, fjósið, er með
byggingarlagi frá fyrstu öldum Ís-
landsbyggðar. Fyrir fáum dögum
brotnaði þakið á því,“ segir Sigurður
Sigurðarson dýralæknir sem ásamt
fleiri áhugamönnum um gamla bæ-
inn á Keldum undirbýr málþing um
ástand bæjarins og stofnun Vina-
félags Keldna.
Áhugamönnum og vinum gamla
bæjarins og annarra mannvirkja á
Keldum á Rangárvöllum hefur lengi
sviðið að staðnum hefur hrakað.
Gömlu torfhúsin eru í Húsasafni
Þjóðminjasafnsins og hefur verið
reynt að halda þeim við. Áhuga-
mennirnir telja að ekki hafi verið til
ráðstöfunar nægir fjármunir til við-
halds og framkvæmda þar sem op-
inber framlög til þessa málaflokks
hafa farið minnkandi.
Stefnir í eyðileggingu
„Nú er ekki mikill tími til stefnu
lengur. Merkar byggingar, sem til-
heyra staðnum eru að síga ofan í
jörðina og stefnir í eyðileggingu
þeirra,“ segir í bréfi sem Sigurður
Sigurðarson skrifaði fyrir hönd und-
irbúningsnefndar málþings og Vina-
félags til sveitarstjórnar Rang-
árþings ytra. Sigurður hefur mestar
áhyggjur af útihúsum við aust-
urtraðirnar, á bak við kirkjuna, þar
sem sést byggingarlag frá fyrstu
öldum Íslandsbyggðar. Þá segir
hann að þótt Þjóðminjasafnið hafi
eftir bestu getu reynt að halda við
gamla skálanum sem sé einhver
merkasta bygging sem uppistand-
andi er á Íslandi, sé hann varla sýn-
ingarhæfur þannig að sómi sé að.
Myndarlegu átaki sem gert var fyrir
aldamót hafi ekki verið hægt að
fylgja eftir vegna fjárskorts. Margir
búsmunir sem áður voru í húsunum
þyrftu að komast þangað aftur. Þá
kemur fram í bréfi Sigurðar að
leynigöngin sem fundust fyrir til-
viljun á 20. öld og ef til vill eru frá því
skömmu eftir 1000 séu ekki sýning-
arhæf. Lambhúsin á framtúni hafi
verið lagfærð en séu samt ekki svip-
ur hjá sjón. „Hinir fögru gaflar
sneru að bænum og minntu prestinn
í jólaguðsþjónustunni á það sem
gerðist forðum við lágan stall í
Betlehem. Þeir eru kollhúfulegir og
ekki í samræmi við fyrra útlit. Hóla-
vallavarðan sem e.t.v. er forn varð-
turn og steinborg staðarins er sigin
saman,“ segir í greinargerðinni. Þar
er einnig vakin athygli á því að lækn-
ingalindin Maríubrunnur er að síga
saman. Á Framtúni leynist undir
sléttu yfirborðinu rústir af þeim bæ
sem er eldri en klausturhús Jóns
Loftssonar og fyrsta kirkjan á staðn-
um. Hér þurfi að taka til hendi, kort-
leggja rústirnar með jarðsjá og ald-
ursgreina. Staðurinn er þekktur, svo
hægt er að ganga beint að honum.
Málþing og vinafélag
Áhugahópurinn vonast til að geta
komið af stað umræðu sem leiði til
úrbóta og reisi við gamla bæinn á
Keldum. Áformað er að efna til mál-
þings í Gunnarsholti um Jónsmessu í
sumar um ástand bæjarins, aðgerðir
og framtíðarsýn en klaustrið á Keld-
um var helgað Jóhannesi skírara.
Við lok þess yrði stofnað Vinafélag
Keldna sem yrði brjóstvörn stað-
arins og fylgdist með uppbyggingu
og endurreisn.
Rangárþing ytra og fleiri aðilar
hafa lofað stuðningi við málþingið.
Sigurður vonast til að stuðningur fá-
ist til vinna að verkefnum á Keldum,
til viðbótar við það sem ríkið leggur í
viðhald húsanna.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Keldur Gamli bærinn á Keldum er talinn vera elsta hús sem uppistandandi er á Íslandi. Frá bænum liggja gömul
jarðgöng að bæjarlæknum, væntanlega frá söguöld. Sést í göngin í barðinu en þau eru ekki sýningarhæf.
Áhugamenn vilja
bjarga Keldnabænum
Merkar byggingar eru smám saman að síga ofan í jörðina
Í janúar 2015 voru 4.234 íslensk
vegabréf gefin út, en til saman-
burðar voru 3.511 vegabréf gefin út
í janúar 2014. Fjölgar því útgefnum
vegabréfum um 20,6% milli ára.
Þjóðskrá Íslands annast útgáfu
vegabréfa auk nokkurra annarra
skílríkja og á vef stofnunarinnar
kemur fram að flest vegabréf voru í
fyrra gefin út yfir sumarmánuðina.
Yfir 6.500 í maí og júní og alls 7.317
í júlímánuði, sem var stærsti mán-
uður síðasta árs hvað varðar útgáfu
vegabréfa.
Flest vegabréf eru
gefin út yfir sumarið
Brynja Dögg Guðmundsdóttir
brynjadogg@mbl.is
Bílastæðasjóður stefnir á kynnisferð
út fyrir landsteinana í haust í þeim
tilgangi að hrista hópinn saman fyrir
næsta kjörtímabil
og veita fimm
manna stjórn og
ótilgreindum
fjölda starfs-
manna fræðslu
um bílastæðamál
í öðru landi.
Horft er sérstak-
lega til borgar-
innar San Franc-
isco í Kaliforníu.
Sóley Tómasdótt-
ir, formaður bílanefndar, segir þó
aðra staði vel koma til greina.
Rauntímamælar áhugaverðir
Spurð um tilgang ferðarinnar vís-
ar Sóley til þess að aðrar nefndir á
vegum borgarinnar hafi verið að
fara í sambærilegar ferðir.
„Þetta er það sem ráðin hafa verið
að gera, skóla- og frístundaráð var
að koma frá Kanada úr svona kynn-
isferð og menningar- og ferðamála-
ráð fór til Amsterdam í haust. Það
skiptir máli á fyrri hluta kjörtíma-
bils að ná saman hópnum um ein-
hverja þekkingu“ segir Sóley.
Hún telur því mikilvægt að læra
af skipulagi annarra borga. San
Francisco þykir áhugaverð borg
vegna rauntímamælinga sem þar er
notast við í notkun bílastæða en
þessi mæling hefur bein áhrif á
gjaldskrá fyrir stæðin.
Réttlætir kostnað
Sóley var spurð að því hvort eðli-
legt væri að kosta slíka utanlands-
ferð fyrir starfsmenn Bílastæða-
sjóðs? „Já, það er mjög mikilvægt,
það er mjög mikilvægt að Bíla-
stæðasjóður viti hvað er að gerast í
löndunum í kringum okkur. Bara
eins og með annað starf í borginni.
Við erum hluti af alþjóðasamfélagi,“
segir Sóley. Ferðin hafi ekki verið
bókuð í fundargerð en stefnt sé að
því að fara í fræðsluferð í haust. Sól-
ey segir að almennt sé ekki mikið
um utanlandsferðir hjá Bílastæða-
sjóði.
„Ég veit að framkvæmdastjórinn
og bílastæðanefnd hafa farið á al-
þjóðlega bílastæðaráðstefnu annað
hvert ár þar sem verið er að kynna
helstu nýjungar.“
Dugar internetið ekki til? „Það er
mjög mikilvægt en það er ekkert
óeðlilegt við það að starfsfólk borg-
arinnar kynni sér það sem er að ger-
ast erlendis og nei, netið er ekki nóg.
Það er frábær viðbót og hefur gert
okkur kleift að afla mjög mikilvægra
upplýsinga með mjög einföldum
hætti.“
Ekki fengust upplýsingar um
áætlaðan fjölda embættismanna og
starfsfólks sem kæmi til með að fara
í ferðina, lengd ferðar eða áætlaðan
kostnað vegna hennar.
Vilja skoða
San Francisco
Segir utanlandsferðir Bílastæðasjóðs til
kynningar og fræðslu eðlilegan þátt í rekstri
Sóley
Tómasdóttir
Spá um fjölgun nemenda í Norð-
lingaholti kallar á viðbótarhúsnæði
en gert er ráð fyrir að nemendum
þar muni fjölga í rösklega 600 fram
til 2019. Þrjú ár eru síðan nýr Norð-
lingaskóli var að fullu tekinn í notk-
un í þessu barnmarga hverfi. Skól-
inn var byggður fyrir 450 nemend-
ur en þar eru nú 520 nemendur.
Til að leysa tímabundinn hús-
næðisvanda skólans næstu árin
verður tekið á leigu húsnæði við
Norðlingabraut 4 sem þykir betri
kostur en færanlegar kennslustofur
á nýrri skólalóð. Borgarráð sam-
þykkti því á fundi sem haldinn var í
Árbæ í fyrradag að gera 10 ára
leigusamning við BS eignir ehf.
sem mun hefja byggingarfram-
kvæmdir nú í vor. 1155 fermetra
húsnæði verður lagað að þörfum
skólans og mun Reykjavíkurborg
taka það á leigu frá og með 1. jan-
úar 2016, segir í frétt frá Reykja-
víkurborg.
Gert er ráð fyrir að 60 íbúðir
verði byggðar í Norðlingaholti á
næstu tveimur árum sem þýðir að
nemendum muni fjölga meira en
fyrri spár gerðu ráð fyrir.
Borgin leigir húsnæði
fyrir Norðlingaskóla
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 7990.- m
Vegna afnáms Vörugjalda
nú kr. 6.990 m2