Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015
Borgarbókasafn býður upp á
skemmtilega afþreyingu fyrir páska.
Meðal annars verða föndraðir
páskaungar, kanínur, páskafuglar
og fuglaskraut.
Kringlusafn hefur boðið upp á
páskaföndur fyrir gesti síðustu daga
en það stendur til 1. apríl næstkom-
andi. Bókasöfnin í Gerðubergi og
Spönginni verða með páskaföndur
frá kl. 14 í dag.
Á morgun, sunnudag, verður
páskaföndur og sögustund á bóka-
safninu í Grófinni. Fulltrúar Biblíu-
félagsins munu heimsækja safnið og
segja frá atburðum páskahátíð-
arinnar auk þess sem brúðan Viktor
kemur í heimsókn.
Páskabingó verður í Ársafni
mánudaginn 30. mars kl. 16 og í Sól-
heimasafni miðvikudaginn 1. apríl
næstkomandi kl. 15.
brynjadogg@mbl.is
Páskafönd-
ur í bóka-
söfnum
Föndur, bingó og
fleira skemmtilegt
Morgunblaðið/Rósa Braga
Páskaföndur Á Borgarbókasafni
verður föndrað og spilað bingó.
Tónleikar fóru fram fyrir troðfullu
húsi í Tjarnarbíói í fyrrakvöld en
þeir voru haldnir til minningar um
Elísabetu Sóleyju Stefánsdóttur,
sem lést fyrr í vetur eftir snarpa
baráttu við krabbamein, aðeins 37
ára að aldri. Allir þeir sem komu að
tónleikunum; listamenn, tækni-
menn og aðrir, gáfu vinnu sína og
allur ágóði rennur óskiptur til
styrktar þremur dætrum Elísabet-
ar; Hörpu Katrínu, Sólveigu Birnu
og Rebekku Hólm.
Elísabet greindist með krabba-
mein í júlí á síðasta ári og var allan
tímann staðráðin í að sigrast á veik-
indunum. Var hún ásamt vinum sín-
um og fjölskyldu byrjuð að und-
irbúa styrktartónleika í Tjarnarbíói
þegar hún lést 15. febrúar sl. Var
hún m.a. langt komin með að velja
listamenn. Fjöldi tónlistarmanna
steig á svið, eins og Jógvan Hansen
og Vignir Snær, Pétur Ben, Sigga
Beinteins, Guðrún Gunnars, Sandra
Gunnarsdóttir, Karl Olgeirsson,
Hreindís Ylfa, Kristján Gíslason og
hljómsveitin Spútnik, Guðmundur
Jónsson úr Sálinni og hljómsveit
hans, Vestanáttin, og hljómsveitin
Víó. Þá sungu tvær af dætrum El-
ísabetar; Rebekka og Harpa Katrín,
og einnig fleiri ættmenni hennar;
bróðurdóttirin Ólöf Rún, frændinn
Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson og
dóttir hans, Ása Svanhildur. Kynnir
kvöldsins var Valgerður Erlings-
dóttir, vinkona Elísabetar.
Opinn er styrktarreikningur fyr-
ir dæturnar, sem Ásdís Rósa Ás-
geirsdóttir stendur fyrir. Númerið
er 323-13-302434, kt. 160373-3429.
Tjarnarbíóið troðfylltist
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Minningartónleikar Kristján Gíslason og Vignir Snær léku og sungu með
Rebekku Halldórsdóttur, yngstu dóttur Elísabetar, í upphafi tónleikanna.
Vel heppnaðir minningartónleikar um Elísabetu Sóleyju
Í dag, 28. mars kl.
14.00, mun fær-
asta rúningsfólk
landsins mæta á
Kex Hostel við
Skúlagötu og
keppa um Gull-
klippurnar.
Keppendur eru af
báðum kynjum
og mun sá sem framkvæmir
sneggstu og bestu rúninguna standa
uppi sem sigurvegari. Meðal kepp-
enda í ár eru núverandi Íslands-
meistari Hafliði Sævarsson, Julio
Cesar, sigurvegari Gullklippanna frá
því í fyrra, Gavin Stevens frá Skot-
landi og Englendingurinn Foulty
Bush. Skemmtunin verður haldin í
portinu fyrir aftan Kex Hostel og er
hún opinn öllum, ungum sem öldn-
um. Á meðan á keppni stendur verð-
ur boðið upp á tvíreykt sauðakjöt,
kúmenbrennivín, harmonikkuund-
irleik og fleira, segir í tilkynningu.
Bestu rúnings-
menn landsins
keppa á Kex
BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16
RECAST
TVÍBREIÐUR SVEFNSÓFI
MEÐ ÞYKKRI OG
GÓÐRI SPRINGDÝNU.
KR. 129.900
ÞYKK OG GÓĐ SPRINGDÝNA
RÚMFATAGEYMSLA
SVEFNBREIDD 140X200
ÞYKK OG GÓĐ SPRINGDÝNA
RÚMFATAGEYMSLA
SVEFNBREIDD 140X200
EXTRA ÞYKK OG GÓĐ
SPRINGDÝNA
RÚMFATAGEYMSLA
SVEFNBREIDD 140X200
GÓĐ SPRINGDÝNA
SVEFNBREIDD 120X200
SVEFNBREIDD 140X200
SÓFAR SEM HENTA JAFNT FYRIR HEIMILI OG GISTIHÚS
- SKOÐAÐU ÚRVALIÐ OGMYNDBÖND AF SÓFUNUM INN Á HEIMASÍÐU OKKAR -
SVEFNSÓFAR
TILBOÐVERÐ
UNFURL
RHOMB
TRYM
LISTAVERÐ
- kr. 139.900 -
SVEFNBREIDD
120X200
SVEFNBREIDD
140X200
SVEFNBREIDD
140X200
kr. 119.900
kr. 128.900
kr. 139.900
kr. 198.900
SLY
Góðir að nóttu sem degi...
sem breytast í rúm á augabragði...
deluxe