Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 28. MARS 87. DAGUR ÁRSINS 2015 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Síðustu 30 mínútur flugsins 2. Leyndi veikindum sínum 3. Reyndi að brjóta niður hurðina 4. Banaslys á Suðurlandsvegi  Tilnefningar til Norrænu tónlistar- myndbandaverðlaunanna, NMVA, sem afhent verða 23. maí nk., hafa verið kynntar og eru FM Belfast, Mammút og Uni Stefson meðal til- nefndra. FM Belfast er tilnefnd fyrir bestu listrænu stjórnun og bestu frammistöðu hljómsveitar í mynd- bandi við lagið „Brighter Days“ og Uni Stefson í síðarnefnda flokknum fyrir myndband við „Kyrie“. Mammút er tilnefnd fyrir tónlistarmyndband ársins, við lagið „Þau svæfa“. Á myndinni sést FM Belfast á Iceland Airwaves í fyrra. Morgunblaðið/Eggert Tilnefnd til NMVA  Proggrokksveitin Focus, þekktasta hljómsveit Hollands fyrr og síðar, mun halda tvenna tónleika hér á landi í sumar, í Háskólabíói 12. júní og á Græna hattinum á Akureyri 13. júní. Focus var stofnuð árið 1969 og starf- aði til 1978. Hún reis úr dvala árið 2002, hefur verið virk síðan og gaf út tíundu hljóðversskífu sína í fyrra. Þekktasta lag Focus er án efa „Hocus Pocus“ sem hefur m.a. hljómað í mörgum kvikmyndum og auglýsingu Nike fyrir heimsmeistaramótið í fót- bolta árið 2010. „Hér er um mikinn hvalreka að ræða fyrir rokkhunda landsins þar sem Focus er á svoköll- um „cult“ standard í landinu og áhrif þessara hollensku „prog“-kónga á íslenskt tónlistarlíf verða seint rannsökuð til hlít- ar,“ segir Kristinn Sæmundsson sem stendur fyrir tón- leikunum fyrir sunnan og sést á myndinni. Focus heldur tvenna tónleika á Íslandi FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 4-10 m/s og víða él en bjartviðri eystra. Snýst í norðan- átt norðvestantil. Hiti 1-5 stig við suður- og austurströndina, annars í kringum frostmark. Á sunnudag Norðaustan 10-15 m/s norðvestantil og einnig á Suðausturlandi, annars hægari vindur. Víða snjókoma eða él. Frost 0 til 7 stig, kaldast fyrir norðan. Á mánudag Norðlæg átt 5-15 m/s, hvassast austast. Snjókoma eða él á Norðaustur- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Áfram kalt í veðri. Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla, hættir sem að- alþjálfari danska meistaraliðsins KIF Kolding Köbenhavn en hann hefur stýrt liðinu síðan í febrúar í fyrra samhliða þjálfun íslenska landsliðs- ins. Haukar hafa sett sig í samband við Aron með það í huga að hann taki við Hafnarfjarðarliðinu á nýjan leik en fleiri eru í sigtinu. »1 Aron hættir hjá KIF og Haukar sýna áhuga Tindastóll tryggði sér í gær- kvöldi sæti í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfu- knattleik með sigri á Þór frá Þorlákshöfn, 88:76, á Sauð- árkróki. Tindastóll vann rimmu liðanna 3:0 en í Hafn- arfirði héldu Haukar lífi í rimmunni við Keflavík. Haukar sigruðu 100:88 en Keflavík er 2:1 yfir og næsti leikur verður í Keflavík. »2-3 Tindastóll sló Þór út 3:0 í körfunni Við förum einfaldlega í alla leiki til að vinna og höfum sýnt í þessari Evr- ópukeppni að við getum unnið hvern sem er. Það er alveg á hreinu,“ segir landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason sem verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu í dag þegar það mætir Kas- akstan í Astana. »1 Förum í alla leiki til að vinna Benedikt Bóas benedikt@mbl.is „Við erum mjög heppin hvernig stjörnurnar hafa raðast upp á himn- inum. Að geta hafið nýja og ferska starfsemi í Hofi svona fljótt er frábært og gefur okkur byr undir báða vængi,“ segir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, tónlistarstjóri Menningarfélags Ak- ureyrar. Menningarfélagið tók við rekstri Leikfélags Akureyrar, Sinfóníu- hljómsveitar Norðurlands og Menn- ingarfélagsins Hofs um áramót og er Þorvaldur listrænn stjórnandi sinfón- íuhljómsveitarinnar. Hann er stór- huga þessa dagana enda framundan stórtónleikar hljómsveitarinnar á skír- dag og svo er það The Arctic Cinem- atic Orchestra-verkefnið, sem gengur út á að sérhæfa Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sem hljóðverssveit sem leikur sinfóníska tónlist inn á kvik- myndir og önnur hljómföng. Fyrstu viðskiptavinirnir eru ekki af verri endanum: Sony, Disney og Þór Akureyri. Leita eftir fjölbreytileikanum „Menningarfélagið hefur það á sinni stefnuskrá að efla menningarlífið fyrir norðan og leita eftir fjölbreytni. Mínar vangaveltur ganga út á að hljóm- sveitin hafi færi á því að spila meira vegna þess að í sjálfu sér er ekki hægt að halda marga hefðbundna sinfóníu- tónleika vegna fjölda íbúa á Íslandi og kostnaðar við að reka sinfóníu- hljómsveit. Þetta er því bæði gott til að halda öllum fingrum og vörum í þjálfun sem og að skapa okkur sérstöðu og afla gjaldeyristekna.“ Hljómsveitin byrjar að taka upp tónlist fyrir Disney fyrir sýningu söngkonunnar Gretu Salóme vest- anhafs. Í næsta mánuði mun sveitin svo taka upp kvikmyndatónlist fyrir kvikmynd sem gefin er út af Sony en Akureyringurinn Atli Örvarsson semur tónlist fyrir myndina. Þá eru einnig á döfinni upp- tökur á 100 ára afmælislagi íþrótta- félagsins Þórs. „Það vildi svo vel til að Greta Sal- ome var nýbúin að landa samningi við Disney. Hún er að búa til sína sýningu þarna vestanhafs og þurfti sinfónískan hljóm í hana. Við Greta höfum unnið mikið saman þannig að hún leitaði til mín. Í kvikmyndinni fyrir Atla og Sony erum við að taka upp alla sinfónísku tónlistina, 70 mínútur í það heila. Það er mikill fengur í svona alvöru al- þjóðlegu kvikmyndaverkefni fyrir hljómsveit á norðurhjara veraldar. Við verðum að minnsta kosti í tvo daga að moka okkur í gegnum það verkefni,“ segir Þorvaldur Alþjóðlegur hljómur í Hofi  Þorvaldur Bjarni stórhuga í nýju starfi á Akureyri Ljósmynd/Völundur Jónsson Hljómfagrir Erlend hljómsveitarverkefni munu njóta sömu kjara og kvikmyndafyrirtæki sem taka upp kvikmyndir á Íslandi í formi endurgreiðslna á virðisaukaskatti. Sérhæfð stúdíóhljómsveit er að fara að vinna með Disney og Sony. „Ég kann vel við mig hér á Akur- eyri,“ segir Þorvaldur Bjarni sem flytur búferlum í maí og er búinn að selja fasteign sína í Reykjavík og kaupa á Akureyri. „Ég er búinn að selja fyrir sunnan og kaupa fyrir norðan en lánahringekjan er núna að störfum þannig að við bíðum eftir henni.“ Todmobile hefur verið dugleg að spila á Akureyri í gegnum tíðina og segir Þorvaldur að það hafi verið hátt í sex sinnum á ári. „Ég er löngu hættur að líta á mig sem einhvern aðkomumann. Ég þekki vel til og kann vel við mig hérna. Ég háma í mig Brynjuís og ætla að reyna að komast á skíði sem allra fyrst. Verst eða best að það er bara aðeins of mikið að gera núna,“ segir Þorvaldur Bjarni. Hámar í sig Brynjuís HÆTTUR AÐ LÍTA Á SIG SEM AÐKOMUMANN Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.