Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 2
Árekstur Vonskuveður á Holtavörðuheiði.
Lögreglan lýsir eftir ökumanni sem
ók bifreið sinni af vettvangi á
Holtavörðuheiði eftir árekstur tíu
bíla við aðstæður sem ekki verður
lýst með öðrum hætti en blindbyl.
Áreksturinn átti sér stað við Bisk-
upsbeygju á Holtavörðuheiðinni
rétt fyrir klukkan fimm í gær og
urðu minniháttar slys á fólki.
Bílarnir voru allir á norðurleið
og var helmingur þeirra óökufær
og þurfti því bæði að flytja fólk af
vettvangi og bíla. Bíl sem hlut átti
að máli var ekið af vettvangi og lýs-
ir lögreglan eftir ökumanni hennar
svo og vitnum. Bíllinn sem um ræð-
ir er ljósgræn fólksbifreið, senni-
lega Subaru, og var ekið norður.
Tíu bíla árekstur á
Holtavörðuheiði
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kaupum bíla
Hærra uppítökuverð
Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með
fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum.
Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is
og við sendum þér staðgreiðslutilboð
þér að kostnaðarlausu.
Örfirisey veitir gömlum húsum úr miðbæ Reykja-
víkur bráðabirgðaheimili meðan unnið er að því
að finna þeim nýja staðsetningu. Gráa húsið fyrir
miðju kemur af baklóðinni á Laugavegi 36, fyrir
aftan Sandholtsbakarí, og rauða húsið stóð eitt
sinn við Grettisgötu en fyrirhugað er að end-
urreisa þau þar sem nú er bílastæði við Grettis-
götu 9. Gula húsið var upphaflega á horni Hverf-
isgötu og Frakkastígs, óvíst er hvert það fer.
Gömul hús úr miðbænum mætast í Örfirisey
Morgunblaðið/Eggert
Húsfriðun í Reykjavík
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Til stendur að kynna frumvarp
sjávarútvegsráðherra um veiðigjald
eftir helgina, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Beðið var eftir
kostnaðarmati fjármálaráðuneytis-
ins.
Lagðar verða til talsverðar breyt-
ingar á fyrirkomulagi innheimtu
veiðigjalds. Þannig verði eitt af-
komutengt veiðigjald sem komi í
stað almenna veiðigjaldsins og sér-
staka veiðigjaldsins. Með breyting-
unum á að koma til móts við sjónar-
mið útgerðarinnar en um leið eiga
tekjur ríkissjóðs vegna veiðigjalds-
ins að aukast, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins.
Afkomustuðlar og staðgreiðsla
Í frumvarpinu nú verður gerð til-
laga um tvær aðrar meginbreyting-
ar. Önnur er sú að jafna veiðigjald-
inu út á einstakar fisktegundir með
sanngjarnari hætti en verið hefur.
Töluvert var rætt um þá nálgun í
fyrra. Þá kom inn bráðabirgða-
ákvörðun um að miða við svonefnda
afkomustuðla í staðinn fyrir þorsk-
ígildisstuðla. Afkomustuðlarnir taka
tillit til afkomu ólíkra fisktegunda og
þykir betra að miða við þá fremur en
þorskígildisstuðla, það er hlutfalls-
legt verð hinna ýmsu fisktegunda.
Hin breytingin mun vera sú að
taka upp staðgreiðslu á veiðigjaldi. Í
stað þess að leggja veiðigjaldið á
fyrirfram samkvæmt úthlutuðum
aflaheimildum í upphafi fiskveiðiárs
eða vertíðar verði það lagt á eftir
hverja löndun. Gjaldið verði því
reiknað út samkvæmt þeim afla sem
landað verður hverju sinni.
Einnig munu hafa verið ræddar
hugmyndir um að breyta gjaldstofni
veiðigjaldsins í framtíðinni og skil-
greina hann víðar og út frá stöðugri
grundvelli en nú er gert.
Meginástæða þess er að skilgrein-
ing á metinni auðlindarentu, sem er í
lögunum nú, og hagnaður þykja
hvort tveggja vera of óstöðug fyrir-
bæri til að leggja þau til grundvallar
gjaldtöku veiðigjalds. Stefnt mun að
því að taka upp fyrirkomulag sem
endurspeglar betur raunverulega af-
komu útgerðarinnar.
Reynslan þykir hafa sýnt að af-
koma útgerðar mæld í bókhaldsleg-
um hagnaði sé ekki góð viðmiðun.
Hann geti aukist á milli ára þótt af-
koma útgerðarinnar versni í raun.
Þetta gerðist t.d. þegar illa gekk að
selja mjöl og lýsi úr uppsjávarafla
2012 og var kostnaðurinn færður til
gjalda það ár. Birgðirnar seldust svo
árið 2013 og tekjurnar færðust á því
ári. Annað sem hafði áhrif var að
gengi krónunnar veiktist á árinu
2012 en styrktist 2013. Þannig varð
gengistap 2012 en gengishagnaður á
árinu 2013.
Frumvarp kynnt eftir helgi
Eitt afkomutengt veiðigjald í stað almenns og sérstaks veiðigjalds Komið til
móts við sjónarmið útgerðar Tekjur ríkissjóðs aukast Veiðigjaldið staðgreitt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Breytt veiðigjöld Meðal annars mun verða lagt til í nýju frumvarpi að taka
upp eitt afkomutengt veiðigjald og að það verði staðgreitt eftir löndun.
Almannavarnir og Veðurstofa Ís-
lands hafa augun á Heklu en fjórir
litlir jarðskjálftar hafa mælst norð-
austur af Heklu síðustu tvo sólar-
hringa. Stærsti skjálftinn mældist
1,5 á stærð en hinir voru allir undir
1 að stærð. Engin merki eru um
hreyfingu í bergkvikunni.
Þó er talið mögulegt að skjálft-
arnir endurspegli sívaxandi þrýst-
ing undir Heklu. Á fundi Veðurstof-
unnar, Almannavarna og ISAVIA í
gær voru skjálftarnir ræddir en
ekki þótti ástæða til að hækka við-
bragðsstig líkt og gert var á sama
tíma í fyrra þegar níu skjálftar
mældust í Heklu og litakóðun fyrir
flug var breytt í gulan.
Náttúra Jarðskjálftar mælast við Heklu.
Jarðskjálftar
mælast við Heklu
Banaslys varð á Suðurlandsvegi,
vestan við Kirkjubæjarklaustur, á
tíunda tímanum í gærmorgun.
Tveir erlendir ferðamenn voru á
ferð og virðist sem ökumaðurinn
hafi misst stjórn á bílnum í slæmri
færð með þeim afleiðingum að
hann valt út fyrir veg.
Annar mannanna var úrskurðað-
ur látinn á vettvangi, en hinn slas-
aðist lítillega, að því er segir í til-
kynningu frá lögreglu. Lögregla á
Suðurlandi er með málið til rann-
sóknar.
Banaslys varð á
Suðurlandsvegi
Fyrirhugaðar breytingar á vopna-
lögum nr. 16/1998 koma sér illa
fyrir smærri söluaðila flugelda á Ís-
landi en breytingarnar lúta fyrst og
fremst að innflutningi og sölu skot-
elda. „Núna verður gerð sú krafa
að allir aðilar uppfylli CE-
samræmismerkingu og gerðarvið-
urkenningu en það hefur í för með
sér meiri kostnað fyrir alla smærri
aðila sem flytja inn flugelda og al-
veg ljóst að sá kostnaður mun að
einhverju leyti bitna á neytendum,“
segir Lúðvík Georgsson hjá KR-
flugeldum en íþróttafélögin selja
lítið af skoteldum miðað við björg-
unarsveitir landsins.
Jón Svanberg Hjartarson, fram-
kvæmdastjóri Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, telur lagabreyt-
inguna ekki munu hafa áhrif á sölu
flugelda hjá björgunarsveitum. „Ég
á eftir að kynna mér frumvarpið
betur en mér sýnist á fyrstu yf-
irferð að þetta sé í samræmi við
væntingar okkar. CE-staðallinn
vegur þarna þyngst en við höfum
ekki áhyggjur af honum enda upp-
fyllum við hann þegar í dag.“ Mark-
miðið með tilskipuninni sem laga-
breytingin byggist á er að koma á
frjálsum flutningum á flug-
eldavörum á innri markaðinum og
jafnframt að tryggja öfluga heilsu-
vernd manna og almannaöryggi og
vernd og öryggi neytenda sem og
að taka tillit til umhverfisverndar.
Flugeldar þurfi sérstaka gæðavottun
Evrópustaðall kemur niður á smærri söluaðilum