Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 28.03.2015, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015 ✝ Guðný Frið-finnsdóttir fæddist á Siglufirði 8. október 1932. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Fjallabyggðar á Siglufirði sunnu- daginn 8. mars 2015. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Friðfinnur Níels- son, f. á Kálfsskinni í Árskóg- arhreppi 18.2. 1904, d. 5.1. 1974, og Jóný Þorsteinsdóttir, f. á Svínárnesi 3.6. 1904, d. 22.12. 1997. Systkini Guðnýjar eru Að- alsteinn Hjörvar, f. 25.3. 1930, Sveinn, f. 6.2. 1936, Kristín, f. 4.8. 1939, Friðfinnur, f. 15.6. 1941, Selma, f. 4.7. 1943, og Níels, f. 28.9. 1946, d. 12.5. 2007. 16. júní 1951 giftist Guðný Hauki Kristjánssyni netagerð- armanni, f. 1.3. 1928, d. 7.1. 1997. Börn þeirra eru 1) Krist- dóttir, f. 19.12. 1961, d. 12.7. 2008. Börn þeirra eru Elías Bjarni, f. 20.1. 1981, sambýlis- kona Hanna Björg Egilsdóttir, f. 27.5. 1989, Guðný, f. 20.10. 1984, sambýlismaður Daði Már Guð- mundsson, f. 21.1. 1981, Að- alheiður Jonna, f. 22.12. 1991, og Þórey Vala, f. 7.8. 1998. 6) Selma, f. 13.4. 1963, sambýlis- maður Eric Farley Hearn, f. 18.10. 1963. Börn Selmu eru Haukur, f. 14.7. 1981, kvæntur Guðlaugu Ingibjörgu Alberts- dóttur, f. 4.2. 1982, Elsa Petra, f. 31.3. 1989, sambýlismaður Ragnar Sverrisson, f. 26.1. 1984, og Viktoría, f. 25.10. 1994. 7) Sigurjóna Bára, f. 1.1. 1966, gift Sveini Óskari Þorsteinssyni, f. 7.10. 1962. Synir þeirra eru Þor- steinn, f. 27.5. 1991, og Andri, f. 26.3. 2001. Langömmubörn Guðnýjar eru sautján. Lengst starfaði Guðný sem saumakona og afgreiðsludama hjá Önnu Láru Hertevig. Einnig starfaði hún sem matráðskona á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar og á Hótel Höfn. Útför Guðnýjar fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 28. mars 2015, kl. 14. Jarðsett verð- ur í Siglufjarðarkirkjugarði. ján Ólafur, f. 20.4. 1950, kvæntur Erlu Ósk Björnsdóttur, f. 18.6. 1951. Dætur þeirra eru Sigríður Halldóra, f. 25.9. 1971, gift Sigurði Júlíusi Leifssyni, f. 6.3. 1961, og Halla Fríða, f. 27.1. 1975, gift Oddi Gunnari Haukssyni, f. 27.10. 1963. 2) Hanna Jonna, f. 14.5. 1951, gift Guð- mundi Ingvari Lúðvíkssyni, f. 5.2. 1953. Börn þeirra eru Guðný Birna, f. 11.2. 1978, og Lúðvík Rúdólf, f. 1.1. 1986. 3) Guðrún Anna, f. 15.3. 1953. Dóttir hennar er Vibeka, f. 10.8. 1973. 4) Alla Hjördís, f. 25.10. 1954. Dætur hennar eru Esther Anna, f. 12.10. 1970, og Rakel, f. 4.2. 1981, gift Kristjáni Hrafni Árnasyni, f. 5.2. 1978. 5) Sig- urður Friðfinnur, f. 20.10. 1957, sambýliskona Sigurbjörg Elías- Elskuleg tengdamóðir mín og kær vinkona Gunna Finna er fallin frá. Hugsa ég með þakklæti og ást til alls þess tíma sem við fengum saman. Ég minnist þess þegar ég fyrst kom til Siglufjarðar með Jónu minni, fyrir 26 árum, að hitta tengdaforeldrana Hauk á Kambi og Gunnu Finna, og hversu vel var tekið á móti mér af einlægni og ástúð. Gunna var svo lífsglöð og kraftmikil og með einstaka sam- skiptahæfileika að það var ómögu- legt annað en að líka vel við hana. Tengdaforeldrar mínir voru bæði fædd og uppalin á Siglufirði. Komu þau bæði úr stórum barna- hóp og eignuðust saman sjö börn auk fjölda afkomenda sem sómi er að. Gunna var ekki fædd með neina silfurskeið í munni en tókst á við mótlæti lífsins með slíkri glaðværð og bjartsýni að eftir því var tekið. Á milli Jónu minnar og Gunnu var náið, kærleiksríkt og falleg samband. Var það mín gæfa að Gunna tók ríkan þátt í fjöl- skyldulífi okkar og fór hún oft með okkur í sumarleyfi til Spánar og var oft hjá okkur þegar hún kom til Reykjavíkur. Um ára skeið var það venja að Gunna dveldi hjá okkur yfir stórhátíðir og það gerði faðir minn einnig á meðan hann lifði. Faðir minn og Gunna náðu vel saman og er mér eftirminni- legt þegar þau sátu saman í mis- gáfulegum samræðum í garðhýs- inu, vafin í teppi og með guðaveigar í glasi. Aldrei gleymdi Gunna afmælinu mínu og hringdi alltaf til að óska mér til hamingju. Henni þótti vænt um að afmæl- isdagar okkar lágu saman og tengdi það við hvað við vorum góð- ir vinir. Við Gunna héldum sam- eiginlega upp á 70 ára afmæli hennar og 40 ára afmæli mitt, auk 70 ára afmælis Ragga frænda. Var þá glatt á hjalla í 180 ára afmæl- isgleðskap með ræðuhöldum, söng, glensi og gamni sem ávallt einkenndi þessa lífsglöðu konu Gunnu Finna. Gunna hafði ætlað að koma suð- ur í fermingu Andra sonar míns þegar heilsan gaf sig. Öllum börnum Gunnu, systkin- um, vinum og fjölskyldum þeirra votta ég samúð mína og ég þakka fyrir öll árin sem við áttum saman og ljúfar minningar. Sveinn (Svenni tengdasonur). Elsku besta amma Gunna var engri lík og svo sannarlega engin venjuleg amma. Hún var ekki bara amma mín, heldur allra vin- kvenna minna og vina, sem líka kölluðu hana ömmu Gunnu og margir krakkar á Siglufirði héldu að hún héti hreinlega amma Gunna. Heima hjá ömmu var alltaf sér- stakt andrúmsloft sem var hvergi annars staðar og ég á margar góð- ar minningar frá samskiptum okkar. Að sitja undir eldhúsborð- inu í Norðurgötunni með sæng og kodda er minning sem mér þykir vænt um. Þá sat amma við borðið og vann við einhverja af þeim þús- undum flíka sem hún saumaði í gegnum tíðina, eða fullt hús var af gestum sem röðuðu sér jafnan kringum eldhúsborðið meðan amma spilaði á gítar og söng með sinni einstöku röddu. Mikið sem mér þótti það skemmtilegt og það var ósjaldan sem við krakkarnir sofnuðum undir borðinu við saumavélanið eða söng. Amma eldaði líka oft og mikið. Ég sé hana ljóslifandi fyrir mér í eldhús- inu í Norðurgötunni, á brjósta- haldaranum að búa til hand- sprengjur, eins og við kölluðum fiskibollurnar hennar, steikja fisk eða búa til aspassúpu. Barnabörn- in, að minnsta kosti við þessi eldri, munum líka vel eftir setningunni: „Jæja, viltu þá mandarínu eða rassskell?“ sem amma sagði oft þegar hún bauð okkur einhverjar kræsingar og taldi upp ýmsa kosti sem allir voru afþakkaðir. Á unglingsárunum þótti ekki lengur spennandi að sitja undir borði hjá ömmu með sæng og kodda. Mér þótti til dæmis afleit sú staðreynd að á Siglufirði þekktu allir alla. Það kom nefni- lega í veg fyrir að við ungling- arnir kæmumst inn á böllinn á Hótel Höfn þar sem oft var 18 ára aldurstakmark. Ég man sérstak- lega eftir því að hafa langað óskaplega mikið á eitthvert ball sem var á hótelinu eitthvert föstudags- eða laugardagskvöld. Ég rölti því í Norðurgötuna til ömmu og spurði hvort hana lang- aði ekki að fara, því þannig var ég fullviss um að ég fengi að fara inn, enda í fylgd með fullorðnum. Þetta var seint um kvöld og amma var komin í náttkjólinn og lögst í letiskotið, en var samt al- veg til í kíkja á ballið með mér. Hún skellti sér í sparifötin, setti á sig rauða varalitinn og saman fórum við á ball. Ég 15 ára og amma rúmlega fimmtug. Við skemmtum okkur konunglega og ég átti flottustu ömmuna á Sigló. Eftir að við fjölskyldan fluttum til Reykjavíkur þegar ég var ung- lingur urðu samskiptin við ömmu auðvitað ekki eins oft og regluleg eins og gefur að skilja. Þó var og er oft farið heim á Sigló og mér þykir óendanlega vænt um að börnin mín og eiginmaður hafi fengið að kynnast og umgangast ömmu eins mikið og raun ber vitni. Ég sakna ömmu minnar og mun sjálfsagt gera lengi. Hún mun þó ávallt eiga stað í mínu hjarta og lifa áfram í minningum okkar sem þekktum hana. Sigríður H. Kristjánsdóttir (Sigga Dóra). Gunna Finna. Ert þetta þú, ljósið mitt? Er hægt að segja fallegri setningu við þann sem kemur í heimsókn? Þessi orð leituðu á hugann ásamt mörgum fallegum en jafnframt skemmtilegum minningum um Gunnu frænku þegar ég fékk þær fréttir að hún væri fallin frá, þessi elska. Kynni okkar hófust strax þegar ég fæddist, því að það var hún sem tók á móti mér og hjálpaði til fyrstu sólarhringana með mig. Hún og mamma höfðu þó þekkst miklu lengur og auðvitað pabbi þar sem hún var systurdóttir hans. Það var ætíð mikill sam- gangur á milli heimilanna og í seinni tíð hefur mér verið tekið eins og einni af stóra barnahópn- um hennar. Gunna og mamma sátu oft löngum stundum, jafnvel fram eftir nóttu, við framleiðslu heima hjá Gunnu, hún við sauma- vélina og mamma við prjónavél- ina. Alltaf var Gunna boðin og bú- in að gera eitt og annað. Öll saumamennska lék í höndunum á henni og jóladressið á mig var hrist fram úr annarri erminni ár eftir ár. Hún var einnig snillingur að rúlla upp veislum eins og þegar pabbi varð sjötugur og ég fermd- ist. Það var aldrei lognmolla í kringum Gunnu. Heimilið var stórt og mikill gestagangur dag- inn út og daginn inn. Alltaf var stutt í söng, glens og grín og átti hún til að skella sér í hinar ýmsu múnderingar og taka lagið og þá gjarnan með gítarinn í hönd. Í seinni tíð átti Gunna falleg heimili og það var ævinlega til siðs hjá okkur fjölskyldunni að líta til hennar þegar komið var á Sigló. Hún tók Óskari manninum mínum vel eins og öllum sem hún kynntist og eftir að dætur okkar bættust í hópinn voru móttökurnar ekki síðri. Það verður tómlegra að koma á Sigló vitandi það að engin verður heimsóknin til Gunnu frænku en minning um hressa og lífsglaða konu fylgir okkur. Elsku fjölskylda, innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Elín Gísladóttir og fjölskylda. Hverfur kvenblómi, hverfur atgervi, en ljós vors lífs lifir með Guði. (Matt. Joch.) Það er marsmánuður, fyrstu vorboðarnir eru komnir til lands- ins og upprisuhátíðin er framund- an. Þá fékk ég þá fregn að Guðný Friðfinnsdóttir væri látin. Með henni er gengin kær og elskuverð frænka og góð vinkona. Þau orð sem hér fara á eftir eiga að auð- sýna minningu hennar virðingu og þökk fyrir samveru og samfylgd á uppvaxtarárum mínum á Siglu- firði og alla tíð síðan. Öðrum er ætlað að rekja ævi- feril hennar og það gerði hún einn- ig sjálf á eftirminnilegan hátt í bókinni „Svipmyndir úr síldarbæ“ í viðtali er Örlygur Kristfinnsson tók. Þeir kostir sem einkenndu hana og voru eftirminnilegir koma þar glögglega fram, einurð, hisp- ursleysi, kímnigáfa, hlýja, æðru- leysi og lífsviska. Þetta viðtal er dásamlegt og varðveitir minningu hennar um ókomin ár. Lestur þess kallaði fram bros og þakklæti. Takk Örlygur! Sumir setja svip sinn og spor á það samfélag sem þeir lifa og starfa í. Ég tel að svo hafi því verið farið með hana. Hún var einstök kona og eitt sinn sagði góð vin- kona mín að öllum þætti vænt um hana sem kynntust henni. Við vorum systkinadætur, faðir minn Gísli Þorsteinsson og Jóný móðir Guðnýjar voru systkini. Allt frá því ég man fyrst eftir mér voru heimili okkar nátengd og mikill samgangur, en yngsta dóttir Guð- nýjar heitir að fyrra nafni Sigur- jóna í höfuðið á móður minni. Ég man hvað mér þótti hún fal- leg þegar ég man eftir henni í fyrsta sinn. Yfir henni hvíldi þessi ró sem mér fannst alltaf vera rík- ur þáttur í fari hennar. Það kom líka svo glöggt í ljós þegar á reyndi að hún gat hafið sig yfir amstur hversdagsins og and- streymið, hún kunni að gefa lífinu lit og taldi sjálf að hún hafi fengið að vera sólarmegin í lífinu. Hún var einnig gædd listræn- um hæfileikum, spilaði og söng og var mikil smekk- og glæsikona. Það kom glöggt fram í hönnun og saumum fatnaðar og dýrindis kjóla, en hún lærði að sníða og sauma hjá Önnu móðursystur minni. Ég naut góðs af því á æsku- árum mínum og aldrei brást hún hvað þetta snerti. Eftirfarandi frásögn lýsir henni vel: Nokkrum dögum fyrir jól veiktist móðir vin- konu minnar og hafði þá lokið við að sauma tvo af þremur kjólum á dætur sínar. Hún sagðist myndu leita til Gunnu sem væri alltaf svo hjálpsöm þótt hún byggist varla við að hún gæti sinnt þessu sam- hliða jólaundirbúningi. „Ég get gert þetta, sagði Gunna, ef þið vilj- ið hafa verkaskipti við mig og gera hreint.“ Það gekk eftir. Siglufirði unni hún og bjó þar alla tíð. „Hér er allt sem ég elska,“ sagði hún. Fjársjóður hennar var börnin og hún lét þess jafnan getið hve góð þau voru við hana. „Það er yndislegur fjársjóður sem ég á.“ Í þeirri fullvissu og upprisutrú „að ljós vors lífs lifir með Guði“ sendi ég mínar innilegustu sam- úðarkveðjur börnum hennar, systkinum og fjölskyldum þeirra. Svo geymt í hjartans helgidóm skal heilagt minninganna blóm, þar fölnar ei hin rauða rós þar roðnar hún við himneskt ljós. (Sig. Jónsson.) Blessuð sé minning Guðnýjar Friðfinnsdóttur. Þóra Steinunn Gísladóttir (Steina). Guðný Friðfinnsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma. Vertu á meðan þú ert því það er of seint þegar þú ert farinn. (Sigurbjörn Þorkelsson) Takk fyrir að vera alltaf þú sjálf og fyrir allar góðu stundirnar. Takk fyrir allar minningarnar, hláturinn og hnallþórurnar. Þú varst einstök amma og átt engan þinn líka. Skarð þitt verður ekki nokkurn tímann fyllt, en minningarnar munu allt- af lifa. Þín Elsa Petra. ÞAR SEM FAGMENNSKAN RÆÐUR Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030 Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÓLFUR V. ÓLAFSSON, Lindargötu 66, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans mánudaginn 23. mars. . Sigríður Egilsdóttir, Ólafur G. Þórólfsson, Alda Aðalsteinsdóttir, Ragnheiður Þórólfsdóttir, Þorvaldur Jensson, Margrét A. Þórólfsdóttir, Hörður Magnússon, Sigurður R. Blomsterberg, Ólöf Þ. Ólafsdóttir, Davíð Bjarnason, Unnur Karlsdóttir, afabörn og langafabörn. Okkar ástkæra, HILDIGUNNUR EGGERTSDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Reykjavík 24. mars. Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 17. apríl kl. 11. . Runólfur Runólfsson, Gerður Hulda Hafsteinsdóttir og fjölskylda. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BRYNJA BORGÞÓRSDÓTTIR til heimilis á Sólvangi, Hafnarfirði, áður Álfaskeiði 64d, sem lést á Sólvangi fimmtudaginn 19. mars, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 1. apríl kl. 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á hjúkrunarheimilið Sólvang í Hafnarfirði. . Gunnar Þór Júlíusson, Ingveldur J. Gunnarsdóttir, Guðrún Júlíusdóttir, Jón Vídalín Hinriksson, Helgi Guðbjörn Júlíusson, Stefanía Guðjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, amma og langamma, SIGRÚN HALLDÓRSDÓTTIR, Norðurbrú 1, Garðabæ, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 26. mars. Jarðarförin verður haldin í Dómkirkjunni miðvikudaginn 1. apríl kl. 13. . Dóra Elísabet Sigurjónsdóttir, Sigurjón Friðriksson, Bára Sigurjónsdóttir, Sigrún Sigurjónsdóttir, Steinar Sigurjónsson, Arna Bech, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HAFSTEINN ÞORVALDSSON, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Suðurlands, Engjavegi 28, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands fimmtudaginn 26. mars. . Þorvaldur Guðmundsson, Hjördís Leósdóttir, Ragnheiður Hafsteinsdóttir, Birgir Guðmundsson, Þráinn Hafsteinsson, Þórdís Lilja Gísladóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Ólafur Óskar Óskarsson, Vésteinn Hafsteinsson, Anna H. Östenberg, afabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.