Morgunblaðið - 28.03.2015, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 28.03.2015, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015 Einstökhljómgæðiúr litlutæki Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880 | www.heyrnartækni.is | Framúrskarandi tækni íOticonheyrnartækjumskilar þérbestumöguleguhljómgæðumíólíkumaðstæðum. NýjudesignRITEtækinerueinstakleganettoghafa hlotiðalþjóðleghönnunarverðlaun.Njóttuþessað heyraskýrtogáreynslulaustmeðheyrnartækisem hentarþínumpersónuleguþörfum. Fáðu þetta heyrnartæki lánað í 7 daga - án skuldbindinga Bókaðutímaí fríaheyrnarmælingu ogfáðuheyrnartækitilprufuívikutíma Sími5686880 Fullkomin þráðlaus tækni Engir hnappar Vatnshelt Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Vegagerðin hefur metið kostnað við að gera við skemmdir sem urðu á bundnu slitlagi á vegum landsins í ofsaveðrinu sem gekk yfir laugar- daginn 14. mars sl. Gróf kostnaðar- áætlun er upp á 14-18 milljónir króna, að sögn G. Péturs Matthías- sonar, upplýsingafulltrúa Vegagerð- arinnar. Á austursvæði urðu mestar skemmdir og er áætlaður kostnaður við viðgerðir þar um 6 milljónir króna. Á öðrum svæðum var tjónið minna. Að sögn G. Péturs er búið að merkja skemmdu svæðin sam- kvæmt reglum þar um svo vegfar- endur fari sér ekki að voða. Búið er að gera við sumt en annað þarf að bíða. Fer eftir eðli skemmdanna hvað hægt hefur verið að gera við strax. Veður og hitastig og annað þarf að vera þokkalegt til að unnt sé að leggja nýja klæðingu á þessa kafla. Búist sé við að öllum viðgerð- um ljúki þegar vorar. Verkið er unn- ið af starfsmönnum á þjónustustöðv- um Vegagerðarinnar og verktökum einnig. Kantarnir viðkvæmastir Spurður um ástæður þess að svona miklar skemmdir urðu á vega- kerfinu segir G. Pétur að í svona miklu veðri geti allt gerst. Líklegt sé að slitlagið hafi gefið sig í köntum af umferðinni og veðurfarinu og vatn komist undir. „Þegar það hefur gerst getur vindurinn komist þannig undir klæðinguna og svipt henni á loft. Kantarnir eru viðkvæmastir,“ segir G. Pétur. Ljósmynd/Vegagerðin Skemmdir Malbikið flettist af á Hvalfjarðarvegi við Brunná í ofsaveðrinu sem gekk yfir laugardaginn 14. mars. Sama gerðist á vegum um allt land. Kostnaður við viðgerðir vega 14-18 milljónir  Búið að merkja allar vegaskemmdir sem urðu í óveðrinu mikla 14. mars Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samþykkt var samhljóða á aðalfundi Lífeyrissjóðs bankamanna fyrir helgi sú tillaga að fela stjórn sjóðsins að láta rannsaka og kanna allar for- sendur greiðslna aðildarfyrirtækja til sjóðsins. Verður lögfræðingum falið að kanna réttarstöðu félags- manna vegna skerðinga á lífeyris- greiðslum. Flutningsmenn tillögunnar voru Kjartan Sigurgeirsson, Jóhann Birgisson, Brynjólfur Þór Brynjólfs- son og Kjartan Jóhannesson. Stend- ur til að ræða niðurstöðu rannsókn- arinnar á fundi hjá sjóðnum fyrir lok september í haust. Helsti orsakavaldur skerðingar er lenging líftíma eftir að taka lífeyris hefst, bæði vegna hækkandi almenns lífaldurs og svo þess að sjóðsfélagar hefja töku lífeyris eitthvað fyrr en reiknað var með í forsendum við stofnun sjóðsins vegna áherslu aðildarfyrirtækja, einkum Lands- banka, á að starfsmenn fari á lífeyri fyrir 65 ára aldur, en aðildarfyrir- tæki auk Landsbanka eru Seðla- bankinn, Reiknistofa bankanna (RB) og Valitor. Kemur þorri sjóðsfélaga úr Landsbankanum. Samkvæmt reglum hlutfallsdeild- ar sjóðsins geta félagar hafið töku lífeyris þegar samanlagður starfs- aldur og lífaldur nær 95 árum eftir að 60 ára aldri er náð. Varð til úr öðrum sjóði 1997 Hlutfallssjóðurinn varð til úr Eftirlaunasjóði starfsmanna Lands- bankans og Seðlabanka Íslands árið 1997 og samþykktu um 7-8% virkra félagsmanna þá stofnun í atkvæða- greiðslu. Var bakábyrgð aðildar- fyrirtækja þá afnumin en fé- lagsmenn fullvissaðir um að það hefði óveruleg áhrif á réttindi sjóðs- félaga. Af þeim sökum koma nýtil- komnar skerðing- ar félagsmönnum í opna skjöldu. Þá horfa sjóðsfélag- ar til ágætrar ávöxtunar sjóðs- ins. Við stofnunina varð til aldurs- deild. Samþykkt- in sl. miðviku- dagskvöld varðar hlutfallsdeildina, sem var lokað 1997, en um síðustu áramót voru eftirlaun félagsmanna í henni, sem hafið hafa töku lífeyris, lækkuð um 9,72%. Þar af eru 7% skerðingarinnar – eða rúmlega 70% hennar – rakin til þess að félagar fari á eftirlaun 65 ára en ekki 67 ára. Frekari skerðingar vegna hækkandi lífaldurs hafa verið boðaðar. Kjartan Sigurgeirsson, starfs- maður hjá RB til 35 ára og lífeyris- þegi hjá Lífeyrissjóði bankamanna, segir um 915 einstaklinga nú á lífeyri í hlutfallsdeild sjóðsins, auk þess sem 241 bankamaður greiði í hann. Unnu alla starfsævina í bönkum Kjartan segir meðalgreiðslu líf- eyris úr þessari deild í fyrra hafa verið um 250 þúsund krónur. Meiri- hluti þeirra sem fái nú lífeyri séu konur sem störfuðu alla starfsævina í bönkunum. Greiddar voru út 2.295 milljónir úr þessari deild í fyrra. „Það er ekkert launungamál að Landsbankinn hefur verið drjúgur við að bjóða fólki að fara á lífeyri um leið og það getur og í raun áður en það ætlar sér,“ segir Kjartan sem bindur vonir við að fulltrúar bankans sýni málinu skilning. Spurður um réttarstöðu félagsmanna segir Kjartan horft til þess að árið 2006 hafi aðildarfélögin bætt að hluta þá skerðingu sem leiddi af því að laun starfsmanna aðildarfyrirtækja höfðu verið hækkuð umfram forsendur. Kanna réttarstöðu sjóðsfélaga  Aðalfundur Lífeyrissjóðs bankamanna samþykkir að fela lögmönnum að yfirfara skerðingar á lífeyri  Lífeyrir var skertur um 10% um áramótin  Lífeyrisgreiðslur voru að meðtali 250 þúsund kr. í fyrra Kjartan Sigurgeirsson Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir málið í skoðun. „Okkur er kunnugt um áhyggjur sjóðsfélaga í hlut- fallssjóðnum og þær hafa lítil- lega verið ræddar innan bank- ans og óformlega við forsvarsmenn Lífeyrissjóðs bankamanna. Við bíðum nú eft- ir formlegu erindi af hálfu sjóðsins þar sem sjónarmið sjóðsfélaga verða skýrð og staðan yfirfarin. Þegar erindið hefur komið fram, þá munum við bregðast við því.“ Bíða form- legs erindis VIÐBRÖGÐ LANDSBANKA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.