Morgunblaðið - 28.03.2015, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2015
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is
PÁSKALEIKUR
Deila, líka og kvitta á facebook
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Landsins mesta
úrval af trommum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.
Skákfélagið Huginn, A-sveit,vann sannfærandi sigur áÍslandsmóti skákfélagasem lauk í Rimaskóla um
síðustu helgi. Huginn hlaut 56½
vinning af 72 mögulegum. Tafl-
félag Reykjavíkur varð 2. sæti
með 55 vinninga og Taflfélag Vest-
mannaeyja varð í 3. sæti með 52½
vinning. Þessar sveitir höfðu um-
talsverða yfirburði yfir önnur lið.
Taflfélag Vestmanneyja hefur
mörg undanfarin ár lent í öðru eða
þriðja sæti keppninnar en mun-
urinn á sveit TV og t.d. sveit Hug-
ins núna og sigurvegurum fyrri
ára virðist liggja í því að keppi-
nautarnir hafa haft meiri breidd.
Sveit Hugins tefldi fram 18 liðs-
mönnum á keppnistímabilinu 2014-
2015 þar af átta stórmeisturum og
þrem þeirra vel yfir 2600 elo-
stigum. Við þessu er ekkert að
segja. Leikreglurnar að öðru leyti
teljast varla sanngjarnar, er þá
einkum litið til þess þegar öfl-
ugustu félögin eru með tvö lið í
efstu deild. Huginn var að þessu
sinni eina félagið sem var í að-
stöðu til tefla fram B-sveit. Á það
hefur verið bent að meðalstig B-
sveitar Hugins í viðureigninni við
Taflfélag Reykjavíkur hafi verið
2238 elo-stig; þegar B-sveitin
mætti A-sveit Hugins voru með-
alstigin dottin niður í 1854 elo-
stig.
Það blasir við að breytinga er
þörf á þessu fyrirkomulaginu; í
öðrum keppnisgreinum þekkist
þetta fyrirkomulag ekki; síðasta
skráða dæmið um B-lið í alvarlegri
keppni verður maður að sækja til
ársins 1968 þegar B-lið KR komst
alla leið á Melavöllinn í úrslitaleik
bikarkeppni KSÍ í knattspyrnu.
Íslandsmót taflfélaga er eitt
allsherjar gallerí af karakterum;
Áskell Örn Kárason skartaði
bleikum Lennon-gleraugum sem
fóru honum mjög vel og Héðinn
Steingrímsson kom með sérstakan
skrifstofustól til að sitja í. Ekkert
nýtt er að skákmenn haldi tryggð
við sinn stól; stóll Fischers frá
áskorendaeinvíginu við Tigran
Petrosjan haustið 1971 kom
nokkrum mánuðum síðar fljúgandi
frá Buenos Aires til Íslands.
Aftur að liðunum í efstu deild:
Kjarninn hjá Skákfélagi Akureyr-
ar samstendur af liðsmönnum sem
stigu sín fyrstu skref í skákinni
hjá þessu frábæra félagi. Einn
þeirra, Rúnar Sigurpálsson, lagði í
glannalega fórn í fyrstu umferð
gegn greinarhöfundi og tapaði. Í
næstu umferð gekk betur. Hann
tefldi þá við portúgalska stór-
meistarann Louis Galego:
Louis Galego (Víkingaklúbb-
urinn) – Rúnar Sigurpálsson (SA)
Sikileyjarvörn
1. e4 Rf6 2. d3 d6 3. f4 g6 4.
Rf3 Bg7 5. Be2 0-0 6. 0-0 c5 7.
Rc3 Rc6 8. De1 Rd4 9. Bd1
Þessa byrjun má einnig kalla
hollenska vörn með skiptum litum.
9. … Bg4 10. Rxd4 cxd4 11. Re2
Db6 12. h3 Bxe2 13. Dxe2 Rd7 14.
g4 Hac8 15. h4 e6 16. h5 gxh5?!
17. gxh5?!
Peðaframrás hvíts á kóngs-
vængum er ekki ýkja hættuleg en
hér átti Galego tvímælalaust að
leika 17. g5 og taka síðan h5-peðið
við tækifæri.
17. … h6 18. Hf2 Kh8 19. b3
Hg8 20. Df3
Það er erfitt að andæfa á g-
línunni þegar drottningarvæng-
urinn situr eftir.
20. … f5 21. exf5 exf5 22. Hg2
Bf6 23. Dd5?
Hann varð að leika 23. Hg6! og
þá er staðan í jafnvægi.
23. … Hxg2+! 24. Kxg2 Db4!
25. De6 Dc3 26. Hb1 Dc6+
Rúnar nær að knýja fram sigur
með nokkrum hárbeittum leikjum.
27. Kh2 Hg8 28. De2
Valdar g2-reitinn en þessi leikur
dugar skammt.
28. … Re5! 29.Df1
Eða 29. fxe5 Bxe5+ 30. Kh3
Dh1+ og mátar.
29. … Rg4+ 30. Kh3 Rf2+
– og Galego gafst upp.
Huginn öruggur sigurvegari á Íslandsmóti
skákfélaga en leikreglur sæta gagnrýni
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Vegna hæstarétt-
ardóms í sk. Al Thani-
máli og umræðna sem
urðu í kjölfarið á Al-
þingi um markaðs-
misnotkun og hugs-
anlega málsókn
ríkisins á hendur sli-
tabúi Kaupþings vakn-
ar sú spurning hvort
samtök bankastarfs-
manna eigi að fara í
mál við hina dæmdu aðila og/eða sli-
tabúin vegna misnotkunar starfs-
manna.
Það fer ekki á milli mála að starfs-
menn bankanna voru notaðir til að
veita rangar upplýsingar um stöðu
Kaupþings og nýta traust við-
skiptavina, ættingja og vina til að fá
þá til að kaupa hlutabréf í bankanum
sem síðan töpuðust. Þar fóru tölu-
verðir fjármunir í súginn og enn er
ekki gróið um heilt á milli allra aðila
sem þarna komu að máli. Varla er
eftirsóknarvert að vinna hjá fyrir-
tækjum sem nota starfsmenn með
þessum eða líkum hætti.
Auðvitað höfðu bankastarfsmenn
mismunandi möguleika til þess að
vita hvort þær upplýsingar sem
þeim var falið að veita væru réttar
eða ekki. Starfsfólkið á gólfinu hafði
eflaust ekki möguleika á að meta
þetta að neinu marki, en starfsmenn
ofar í stjórnkerfinu að einhverju
marki. Rökstuðningur
Hæstaréttar með
dómnum leiddi í ljós að
stjórnendur voru engu
betri en óprúttnir
hrossaprangarar fyrri
tíma sem voru staðnir
að því að líma sinn-
epsplástur undir tagl
söluhrossa til þess að
þau væru sem líflegust
og teldust þróttmikil og
viljug. Munurinn er sá,
að dýrin voru viðþols-
laus af sviða og ólmuðust þess
vegna, en duglegir bankamenn
gengu fram í trausti þess að þeir
hefðu réttar upplýsingar og nytu
e.t.v. einhverrar umbunar ef vel
seldist. Það er áhugavert að velta
fyrir sér hver sé réttur starfsmanna
sem eru misnotaðir með þessum
hætti og eins hvað starfsmaður sem
kemst á snoðir um eitthvað ólög-
mætt í sínu fyrirtæki á að gera með
þá vitneskju eða grun. Að sjálfsögðu
á þetta ekki aðeins við um fjármála-
fyrirtæki. Væri forvitnilegt að fróðir
menn fjölluðu um þetta opinberlega,
ekki síst núna þegar viðræður um
kjarasamninga eru nýlega hafnar.
Misnotkun
starfsmanna
Eftir Sigurð
Jónsson
Sigurður Jónsson
»Þar fóru töluverðir
fjármunir í súginn …
Höfundur er framkvæmdastjóri og
áhugamaður um sannsögli og réttarríki.