Morgunblaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015FRÉTTIR Nýjustu tölur úr rekstri Sjóvár þykja góðar. Þar hefur Hermann Björnsson staðið vaktina sem for- stjóri síðan 2011 og unir sér vel, en segist samt myndu eiga erfitt með að skorast undan ef kallið kæmi frá Chelsea og þá vantaði þjálfara. Hverjar eru stærstu áskoranirn- ar í rekstrinum þessi misserin? Sjóvá hefur nýlega birt uppgjör fyrir árið 2014 þar sem fram kemur að afkoma af vátryggingastarfsemi er mjög góð. Verkefnið verður að halda áfram á sömu braut. Það er einu sinni þannig að maður getur aldrei hallað sér aftur eða slakað á. Í nútímarekstri er gegnsæið mikið, mikill hraði og sem betur fer sterk- ar kröfur um árangur. Hver var síðasta ráð- stefnan sem þú sóttir? Undanfarin þrjú ár hef ég farið á stjórnunarráðstefnu í New York þar sem sérfræðingar og aðilar með mikla stjórnunarreynslu tala. Má þar nefna Jack Welch sem mér finnst ótrúlega magnaður karl. Þessi ráðstefna hefur veitt mér mikinn innblástur. Annars var ég beðinn að flytja fyrirlestur í HÍ fyr- ir skömmu um breytingastjórnun. Ég hafði rosalega gaman af því, sérstaklega líflegum umræðum við þessa flottu stúdenta. Annars mætti ég vera duglegri almennt að sækja fyrirlestra og ráðstefnur. Hvaða hugsuður hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Fyrsti sem kemur upp í hugann er faðir minn, sem ég hef tekið mér til fyrirmyndar í lífinu. Hann á að baki áratuga farsælan stjórnunar- feril, lengst af sem tollstjóri. Án þess að vilja hljóma forn þá mætti einnig nefna það stjórnunar- umhverfi sem ríkti í Íslandsbanka á tíunda áratug síðustu aldar. Það einkenndist af vald- og ábyrgðar- dreifingu, skýru umboði og hvatn- ingu til árangurs. Ég tel að það um- hverfi hafi mótað mjög minn stjórnunarstíl. Hver myndi leika þig í kvik- mynd um líf þitt og afrek? Ætli þeir myndu ekki ráða Kief- er Sutherland til verksins. Það er oft ansi mikil spenna á skrifstof- unni og stundum nístandi álag all- an sólarhringinn. Þannig yrði það allavega að vera í myndinni! Svo hefur Donald faðir hans auðvitað verið honum góð fyrirmynd og það er brunnur sem hann gæti kannski sótt í þegar hann bregður sér í hlutverkið. Hugsarðu vel um líkamann? Líklega innbyrðir maður meiri orku en maður brennir en ég hef afar gaman af því að elda og borða góðan mat í góðum félagsskap. Annars reyni ég að hreyfa mig a.m.k. þrisvar til fjórum sinnum í viku; ég fer í ræktina, spinning, hjóla- og göngutúra auk þess að spila körfubolta með góðum fé- lögum eins og ég hef gert undan- farin ca. 20 ár. Körfuhópurinn er að uppistöðu til lögfræðingar og verk- fræðingar þar sem þeir síðar- nefndu ætla seint að ná því að úrslit í leikjum eru afstæð og hægt að rökstyðja í það minnsta tvær nið- urstöður. Ég tel mig hafa verið sig- ursælan í þessum hópi. Ef þú þyrftir að finna þér nýtt starf, hvað væri draumastarfið? Ég er mikill Chelsea-maður og hef áratugareynslu af því að horfa á fótbolta. Þeir eru misvitrir og misgóðir þessir stjórar sem veljast til starfa hjá klúbbunum úti. Ég var t.d. ekki par ánægður með Mour- inho eftir að hafa tapað meist- aradeildinni í síðustu viku. Í ljósi dómhörku og stórra yfirlýsinga í garð knattspyrnustjóra yfir árin ætti maður erfitt með að skorast undan ef kallið kæmi. SVIPMYND Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár Spennan á skrifstofunni er við hæfi Kiefer Sutherland Morgunblaðið/Golli Hermann Björnsson spilar körfubolta með félögunum, þar sem úrslit leikjanna eru oft „afstæð“ og rökstyðja má tvær niðurstöður hið minnsta. NÁM:Háskóli Íslands, Cand.Jur. embættispróf í lögfræði 1990. STÖRF: Íslandsbanki hf., lögfræðideild, forstöðumaður rekstr- ardeildar og síðar útibúasviðs, og aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, 1990-2006, Kaupþing banki hf. að- stoðaframkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs 2006-2009, Arion banki hf. framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs 2009-2011. ÁHUGAMÁL: Keppti á yngri árum í handbolta og fótbolta, og er áhugasamur um íþróttir. Hef gaman af stangveiði og ferðalögum með fjölskyldunni út í heim og ekki síður um okkar eigið land. FJÖLSKYLDUHAGIR: kvæntur Eiríku Ásgrímsdóttur og á þrjá syni, Björn Orra 26 ára, Ásgrím 23 ára og Hjört 20 ára. HIN HLIÐIN GRÆJAN Spjaldtölvur hafa verið að sækja á í atvinnulífinu en þær vantar oft þann öryggisbúnað sem alla jafna er kraf- ist hjá fyrirtækjum og stofnunum til að engin hætta sé á að gögn komist í hendur óprúttinna aðila. SecuTABLET heitir nýjasta var- an frá snjallsímaframleiðandanum BlackBerry og er, eins og nafnið gef- ur til kynna, öruggari gerð af spjald- tölvu. Er um að ræða Samsung Galaxy Tab S 10.5 spjaldtölvu sem er sér- staklega útbúin ýmiskonar öryggis- hugbúnaði. Öryggislausnirnar kosta sitt og verðmiðinn á SecuTABLET heilir 2.400 dalir, sem er fimmfalt dýrara en ef spjaldtölvan væri keypt beint frá Samsung. Meðal annars er not- aður svokallaður „innpökkunar“ hugbúnaður frá IBM sem bætir auka lagi af öryggisvörnum ofan á vinsæl snjallforrit eins og Facebook, YouTube, Twitter og WhatsApp, sem annars gætu stefnt öryggi gagnanna á tækinu í voða. ai@mbl.is Black- Berry kynnir öruggari spjaldtölvu VINNUSTÖÐIN Á sýningu Epal á HönnunarMars mátti meðal annars finna þetta skemmtilega skrifborð eftir lista- manninn Hjalta Parelíus. Þykir skrifborðið, sem fengið hef- ur nafnið D01, vera sérdeilis vel heppnað en Hjalti hannaði borðið með þarfir hönnuða og listamanna í huga. Að Hjalti skyldi spreyta sig á húsgagnahönnun kom til af því að honum hafði gengið illa að finna fal- legt borð sem hentaði líka fyrir vinnuna. Snotru borðin reyndust of smá, en þau sem voru nógu stór til að rúma tvo skjái, teiknibretti og fartölvu voru ekki nægilega mikil heimilisprýði. Hjalti segir D01 hafa fengið mjög góðar viðtökur á sýningunni og ugglaust margir sem myndu vilja sinna vinnunni sinni við svona fal- legt skrifborð, hvort heldur í krókn- um heima eða á kontórnum uppi í vinnu. ai@mbl.is Svartur vinnuflöturinn gefur skrifborðinu sterkan svip. Nóg er af skúffum. Íslensk hönnun sem fegrar skrifstofuna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.