Morgunblaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015 7SJÁVARÚTVEGUR
Fulltrúi frá atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytinu undirritaði sér-
stakan samning við rússnesk stjórn-
völd í liðinni viku sem tryggir
íslenskum útgerðarfyrirtækjum
kaup á 3.060 tonna þorskkvóta á
rússnesku hafsvæði á yfirstandandi
fiskveiðiári. Með í kaupunum fylgja
918 tonn af meðafla og af því má
veiða um 306 tonn af ýsu.
Samningurinn er gerður til eins
árs og byggist á grundvelli hins svo-
kallaða Smugusamnings sem und-
irritaður var árið 1998 í kjölfar hinn-
ar harðvítugu smugudeilu sem stóð
yfir milli Íslendinga, Rússa og
Norðmanna í upphafi tíunda áratug-
arins vegna veiða Íslendinga á
svæði sem nefnist Smugan. Smugan
er á alþjóðlegu hafsvæði í Barents-
hafi sem afmarkast af lögsögu
þeirra ríkja sem liggja að svæðinu.
Árlegur leiðangur
Jóhann Guðmundsson, skrifstofu-
stjóri í atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytinu, segir ánægjulegt
að samningar hafi tekist en að það
sé árlega sem gengið sé að samn-
ingaborðinu á grundvelli fyrrnefnds
Smugusamnings. „Þegar samningar
náðust á sínum tíma gerðum við tvo
ólíka samninga, annars vegar við
Rússa og hins vegar Norðmenn.
Norski samningurinn er að sumu
leyti einfaldari en sá rússneski og
byggist á fastri aflatölu sem afgjald
og ekki er fundað árlega um hann.
Annars vegar er þar um að ræða
500 tonn af keilu og löngu og hins
vegar ákveðið magn af loðnu sem
tekur mið af heildarafla af þorski í
Barentshafi,“ segir Jóhann.
Flóknari samningar við Rússa
Rússneski samningurinn er hins
vegar flóknari því hann byggist á
því að það er samið um hann á
hverju ári og til þess þarf tvo fundi.
Annan um meginsamninginn og
hinn um sölukvótann. „67,5% af
magninu af þorskkvótanum sem er
fast fáum við án endurgjalds en
heildarmagnið reiknast sem hlutfall
af heildarafla af þorski í Barentshafi
á hverju ári á nákvæmlega sama
hátt og heimildir okkar í norskri
lögsögu. Heildarmagnið sem íslensk
skip mega veiða í ár eru 8.158 tonn í
rússneskri lögsögu, ásamt 30% með-
afla, en þar af má ýsa aðeins telja
um 8% af meðaflanum. 5.098 tonn
fáum við þannig sjálfkrafa en 3.060
tonn af þessum rúmlega 8.000 tonn-
um þurfa íslenskar útgerðir hins
vegar að kaupa og með í þeim kaup-
um fylgja rúm 900 tonn af meðafla.
Sá hluti nefnist sölukvóti.“
Steinar Ingi Matthíasson, fulltrúi
ráðuneytisins í Brussel, stýrði við-
ræðunum um sölukvótann í Moskvu
að þessu sinni en í sendinefnd Ís-
lands var jafnframt Haukur Þór
Hauksson, fulltrúi Samtaka fyrir-
tækja í sjávarútvegi. Þeir náðu sam-
komulagi en það hefur ekki alltaf
tekist og á þeim árum er ekki veitt
upp í hinn svonefnda sölukvóta.
Útgerðirnar kaupa
Kvótinn sem úthlutað er á grund-
velli Smugusamningsins er í afla-
hlutdeild eins og annar kvóti sem
stjórnvöld gefa út. Útgerðirnar hafa
því forkaupsrétt að sölukvótanum á
grundvelli þess hlutfalls sem þær
eiga tilkall til hér heima. „Stundum
hafa til dæmis bara tvær útgerðir
viljað kaupa. Ef útgerðirnar sem
halda á aflahlutdeildinni í viðkom-
andi tegund nýta ekki sinn skammt
hafa aðrar útgerðir getað gengið inn
í samninginn og keypt kvótann sem
samið er um kaup á við Rússana,“
segir Jóhann.
Alvara fylgir samningunum
Jóhann, sem tekið hefur þátt í
þessum samningum oftar en einu
sinni, segir að þótt oft geti samn-
ingaumleitanirnar reynst flóknar sé
samstarfið milli ríkjanna að flestu
leyti gott og að samningafundirnir
séu góður vettvangur fyrir þjóð-
irnar til að hittast og ræða sameig-
inlega hagsmuni í sjávarútvegi.
„Rússanir leggja líka töluvert í
þessa samninga og til merkis um
það var einn af aðstoðarráðherrum
sjávarútvegsmála í rússnesku rík-
isstjórninni formaður samninga-
nefndar þeirra á síðasta samn-
ingafundi sem haldinn var hér
heima í desember. Hann heitir
Vladimir Sokolov og hefur langa
reynslu af sjávarútvegsmálum í
heimalandi sínu,“ segir Jóhann.
Samningar náð-
ust við Rússa
um kvótakaup
Íslensk stjórnvöld náðu í
liðinni viku samningum við
Rússa fyrir hönd íslenskra
útgerða um kaup á rúm-
lega 3.000 tonna aflaheim-
ildum í Barentshafi. Semja
þarf um kaupverð árlega.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samningar náðust í Moskvu um kaup íslenskra útgerða á rúmlega 3.000 tonnum af kvóta í rússneskri lögsögu.
Kaupin byggjast á þríhliða samningi sem undirritaður var í kjölfar hinnar svokölluðu smugudeilu á sínum tíma.
Cuxhavengata 1 • Hafnarfirði • Sími 560 0000 • www.safir.is • safir@safir.is
SKIPASALA • KVÓTASALA
J191 L178Til sölu
Til sölu
Vegna aukinnar eftirspurnar vantar okkur aflaheimildir í bæði aflamarks og krókakerfi
nánari upplýsingar í síma 560 0000
Strandveiðibátur - SKIPTI SKOÐUÐ Grásleppubátur til sölu - LÆKKAÐ VERÐ
DREIFARAR • SNJÓTENNUR • SNJÓBLÁSARAR • SLITBLÖÐ
A. Wendel ehf | Tangarhöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 551 5464 | wendel.is
Tæki til
vetrarþjónustu
Stofnað 1957
- með morgunkaffinu