Morgunblaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015FÓLK
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
SPROTAR
Indverski fjárfestirinn Bala Kamal-
lakharan hefur verið áberandi í ís-
lenska frumkvöðlasamfélaginu á
undanförnum árum. Bæði hefur
hann fjárfest víða en líka verið drif-
fjöðurin á bak við verkefni eins og
Startup Iceland ráðstefnuna.
Nú hyggst Bala hleypa af stokk-
unum nýju verkefni, Founder Insti-
tute, sem unnið er í samstarfi við
samnefnt apparat í Sílíkondal. Hann
segir Founder Institute hafa það að
markmiði að gera frumkvöðla öfl-
ugri.
1.500 fyrirtæki frá 2008
„Founder Institute þjálfar efnilega
frumkvöðla og veitir þeim þá leið-
sögn sem þarf svo að þeir geti sett
kröftug og lífvænleg sprotafyrirtæki
á laggirnar. Founder Institute varð
fyrst til í San Francisco en hefur síð-
an þá breitt úr sér til yfir 120 borga
um allan heim. Varð verkefni til árið
2008 í kjölfar hruns bandaríska fjár-
málageirans. Á þeim tíma hafa 1.563
fyrirtæki orðið til í gegnum Founder
Institute þar sem yfir 15.000 manns
eru í vinnu og samanlagt markaðs-
virði þessara fyrirtækja nú um tólf
milljarðar dollara.“
Af þekktari fyrirtækjum sem orðið
hafa til í gegnum verkefnið má nefna
Udemy sem býður upp á námskeið
yfir netið, PetHub sem sérhæfir sig í
að finna týnd gæludýr og Zirtual sem
veitir aðgang að persónulegum að-
stoðarmönnum yfir netið.
Er þetta í annað sinn sem Bala
reynir að koma Founder Institute af
stað hér á landi en í fyrstu tilraun
hafði hann ekki erindi sem erfiði. Nú
virðist ganga betur og hafa um 120
manns sótt kynningar- og samtals-
fundi sem haldnir hafa verið á und-
anförnum vikum og mánuðum.
Standa vonir til að úr hópi umsækj-
enda verði valdir 30 „nemendur“ sem
fara í gegnum tólf vikna þjálfun í vor
og sumar.
Byrjuð í rekstri á tólf vikum
„Þessi hópur mun hafa aðgang að
framúrskarandi „mentorum“ úr ís-
lensku atvinnulífi og vonandi er einn-
ig að okkur takist að fá til landsins, í
gegnum Founder Institute í Banda-
ríkjunum, fyrirlesara úr hringiðunni í
San Francisco. Við notum þessar tólf
vikur til að undirbúa og efla frum-
kvöðlana og markmiðið er að á tólftu
viku verði þeir búnir að gera við-
skiptahugmynd sína að fyrirtæki og
verða vel í stakk búnir til að vinna að
áframhaldandi vexti.“
Námið kostar 800 dali en að auki
leggja allir nemendur 3,5% hlut í fyr-
irtækjum sínum í forkaupsréttar-
pott sem síðan dreifist jafnt á alla
þátttakendur. Bala segir þetta hafa
þau áhrif að gefa öllum sem þátt taka
hlutdeild í árangri hinna, og stuðla að
því að nemendurnir hjálpi hver öðr-
um að ná settum markmiðum. „Síðan
getur allt gerst á námskeiðinu. Ekki
ganga allar hugmyndir upp, og sumir
velja jafnvel að ganga frekar til liðs
við verkefni annars frumkvöðuls í
hópnum.“
Bala segir mikla þörf á frum-
kvöðlasmiðju af þessum toga og þeir
sem reynt hafa vita að það að gerast
frumkvöðull kallar á ákveðna þekk-
ingu, innsýn, reynslu, og ekki síst
sambönd sem geta gert gæfumuninn
þegar kemur að því að koma góðri
viðskiptahugmynd í framkvæmd. „Í
gegnum þetta verkefni erum við að
fara vandlega í undirstöðuatriðin og
um leið gefa þátttakendum aðgang
að gríðarstóru tengslaneti jafnt inn-
anlands sem utan.“
Er bóla að blása út?
Áhugavert er að skoða hvernig
þróunin hefur verið í frumkvöðla-
umhverfinu á Íslandi og erlendis. Er
ekki laust við að megi sjá einkenni
bólumyndunar í frumkvöðlaheim-
inum og þannig þykir það hálfgerður
innanbúðar-brandari í Sílíkondal að
þar þurfa menn ekki að vinna heldur
bara að prenta út viðskiptaáætlun og
þeir eru komnir með peninga í fang-
ið. Nýlega sögðu íslenskir fjölmiðlar
frá því að íslenskir sjóðir hefðu tekið
frá ellefu milljarða króna til að fjár-
festa í sprotastarfi og þykir sumum
það æði há upphæð.
Stendur jafnvel til að gera sjón-
varpsþátt á einni rásinni hér á landi,
þar sem fylgst er með frumkvöðlum.
Bala tekur undir að bólumerkin
séu til staðar í Sílíkondal. „Á síðasta
ári lögðu fjárfestar til sprotafyr-
irtækjum í San Francisco og ná-
grenni 14,6 milljarða dala, rúma
2.000 milljarða króna. Er það bara á
einu ári og á meðan eru þessir ellefu
milljarðar króna sem merktir hafa
verið íslenskum sprotum að dreifast
yfir þrjú ár.“
Bala tekur undir að ekki sé ósenni-
legt að þetta mikla fjármagn sem
streymir til sprotageirans í Kali-
forníu sé afleiðing fjármagnsaðgerða
bandaríska seðlabankans, og eitt-
hvert verði umframfjármagnið í kerf-
inu að leita. „Það er hætta á að þessir
sjóðir þorni skyndilega upp“, segir
hann en bætir við að árangur sprota-
fyrirtækja snúist minna um aðgang
að fúlgum fjár og meira um það að
laða fram sterka frumkvöðla.“
„Undanfarin ár hefur verið tölu-
verður skortur á fjármagni í íslenska
sprotaheiminum og það hefur kennt
fjárfestum hér á landi að búa til verð-
mæti án þess að þurfa að stóla á
rausnarlega fjárfesta. Jafnvel þó að
ellefu milljarðar standi þeim núna til
boða þá hugsa ég að margir af þeim
sem komnir eru vel af stað muni ekki
reyna að fá meira fé inn í reksturinn,
en ef þeir gera það þá er spurning
hvort þeir leita ekki frekar að fjár-
magninu erlendis en innanlands. Ís-
lenskir frumkvöðlar hafa nefnilega
líka lært að það er ekki langt að
fljúga til Kaliforníu, og þar færa fjár-
festar þeim margt annað en bara
peninga.“
Læri hvernig má skala
Segir Bala sjóðina vestanhafs hafa
mjög skýrar hugmyndir um hvernig
má hjálpa og efla frumkvöðlana, svo
að útkoman verði skalanlegt al-
þjóðlegt fyrirtæki. „Þetta er eitthvað
sem íslensku fjárfestarnir þurfa að
gera sér grein fyrir. Ég held að fjár-
festasamfélagið þurfi að taka hönd-
um saman og byggja brýr til fjár-
festa og frumkvöðlasamfélaga í
öðrum löndum til að læra hvernig
skala má efnilegan íslenskan sprota
upp í milljarðafyrirtæki.“
Morgunblaðið/Golli
„Undanfarin ár hefur verið töluverður skortur á fjármagni í íslenska sprotaheiminum og það hefur kennt fjárfestum hér á landi að búa til verðmæti án þess
að þurfa að stóla á rausnarlega fjárfesta,“ segir Bala. Hann segir aukið framboð á fjármagni handa sprotum hérlendis gott, en meira þurfi en bara peninga.
Gerum frumkvöðla enn öflugri
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Founder Institute kennir
frumkvöðlum það sem þarf
til að gera viðskipta-
hugmynd að öflugu fyr-
irtæki. Verkefnið varð til í
San Francisco en hefur
breiðst út um allan heim.
Þar hefur orðið til fjöldi
stöndugra fyrirtækja á ör-
fáum árum. Founders Insti-
tute er nú komið til Íslands
og stefnt á að þrjátíu
manns fari í gegnum tólf
vikna námskeiðið í sumar.