Morgunblaðið - 20.04.2015, Síða 1
M Á N U D A G U R 2 0. A P R Í L 2 0 1 5
Stofnað 1913 91. tölublað 103. árgangur
HEFUR MÁLAÐ
HÁTT Í ÞÚSUND
MYNDIR
FARFUGL-
ARNIR HALDA
SÍNU RÓLI
HREINSAR VANDA-
MÁL Í GEGNUM
TÓNLISTINA
STREYMA TIL LANDSINS 2 BARÐI JÓHANNSSON 26SIGURÐUR BEN 10
Morgunblaðið/Einar S
Æfing Börn í sjötta flokki Fylkis á æfingu
á gervigrasinu sem er 10 ára gamalt.
Dæmi eru um að allt að 50-60%
iðkenda í yngri flokkum knatt-
spyrnudeildar Fylkis eigi við meiðsl
að stríða sem forráðamenn félags-
ins telja vera vegna lélegs gervi-
grass. Gervigrasið við Fylkisvöll er
10 ára gamalt og úr sér gengið.
Börnin hafa verið að meiðast í nára,
hnjám og mjóbaki.
Verkfræðingur sem sá um lagn-
ingu grassins segir að of lítið og lé-
legt gúmmí hafi verið notað þegar
völlurinn var lagður.
Verkfræðingurinn Peter W. Jes-
sen hjá Verkís segir í umfjöllun um
málið að meira viðhald vanti á gras-
inu frá hendi borgarinnar, sem fel-
ist í því að bæta við gúmmíi. Svipað
ástand er á gervigrasvöllum KR og
Fram í Safamýri. »12
Börn meiðast
vegna lélegs við-
halds borgarinnar
Verkfallið
» 108 geislafræðingar eru í
verkfalli.
» Geislameðferðardeild er nú
á 50-60% afköstum og getur
starfað til mánaðamóta.
„Við erum enn í þeirri stöðu að þurfa
að velja þá sjúklinga sem geta ekki
beðið. Það halda áfram að streyma
inn beiðnir því sjúklingarnir eru ekki í
verkfalli,“ segir Jakob Jóhannsson,
krabbameinslæknir og yfirlæknir
geislameðferðar krabbameina á
Landspítalanum.
Á geislameðferðardeildinni setjast
sérfræðingarnir niður á hverjum degi
ásamt geislafræðingum, sem vinna
samkvæmt undanþágu frá verkfalli
BHM, og fara yfir tilvik dagsins.
Ástæða fundarins er að finna út hver
það er sem er í mestri þörf fyrir
geislameðferð og hver geti beðið.
Jakob segir að um mánaðamótin
verði staðan orðin alvarleg.
„Við erum að reyna að koma í veg
fyrir skaða en það segir sig sjálft að
eftir því sem tíminn líður þá getur það
orðið erfiðara, þannig að staðan veld-
ur okkur töluverðum áhyggjum en við
reynum eins og við getum.
Í næstu viku, kannski í vikunni þar
á eftir, þurfum við virkilega að fara að
skoða hver staðan er orðin, upp á
hvað við ætlum að gera með þennan
hóp sem er að bíða – því hann getur
ekki beðið endalaust, það eru hreinar
línur.“
„Sjúklingar ekki í verkfalli“
Beiðnum um geislameðferð við krabbameinsdeild Landspítalans fjölgar
Geislameðferðardeildin getur starfað til mánaðamóta Tíminn naumur
M„Það stefnir ekki í …“ »2
Morgunblaðið/Golli
Deila Stíf fundarhöld verða í hús-
næði ríkissáttasemjara á næstunni.
Á bilinu fimm til tíu almannatengla-
skrifstofur taka að sér eða hafa veitt
ráðgjöf til verkalýðsfélaga vegna
kjaradeilna. Þetta segir Andrés
Jónsson, almannatengill hjá Góðum
samskiptum, en sjálfur veitir hann
Starfsgreinasambandinu ráðgjöf í
þeirri deilu sem nú stendur yfir.
Ráðgjöfin snýst að sögn Andrésar
um að veita utanaðkomandi sjónar-
horn á því hvernig almenningur upp-
lifir kjaradeilur.
„Við veitum viðbrögð við hug-
myndum verkalýðsfélaganna sem
þau vilja koma á framfæri. Það getur
verið frá því að vera texti í auglýs-
ingar, tímasetningar á yfirlýsingum
og yfir í að vera í bakgrunni eins og
þjálfari,“ segir Andrés.
Flestir ráðið almannatengla
Fjögur af sex stærstu stéttar-
félögunum, sem eiga í kjaraviðræð-
um þessa dagana, hafa ráðið al-
mannatengla til ráðgjafar um það
hvernig best sé að koma skilaboðum
á framfæri við fjölmiðla. Sömu sögu
er að segja af Samtökum atvinnulífs-
ins sem sitja hinum megin samn-
ingaborðsins. »6
Almannatenglar veita ráð
Stéttarfélögin ráða almannatengla til ráðgjafar í kjaradeilu
Þrír kátir farþegar voru um borð í þessum lestar-
vagni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þegar ljós-
myndara Morgunblaðsins bar að garði. Margir
brugðu sér út úr húsi um helgina þegar tók að
hlýna yfir landinu, en eftir hlýindi undanfarna
daga er von á kuldakasti um miðja vikuna. Þá er
útlit fyrir að sumar og vetur muni frjósa saman að-
faranótt sumardagsins fyrsta, að sögn Teits Ara-
sonar veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. »4
Börnin bregða á leik í lestarferð um Laugardalinn
Morgunblaðið/Ómar
Unga kynslóðin skemmti sér í hlýindum um helgina
Kópavogsbær
og Reykjavíkur-
borg hafa ákveð-
ið að gera sam-
eiginlegt deili-
skipulag fyrir
Fossvogsdalinn
og gera þar sam-
an sundlaug.
Einn af þremur
stöðum sem eru
til skoðunar fyrir
laugina er í miðjum dalnum, en þar
er ekki gert ráð fyrir bílastæðum.
Talið er að laugin gæti þjónað
skólasundi á daginn og almenningi
eftir lok skóladags. »4
Engin bílastæði við
Fossvogssundlaug?
Áætluð er gerð
nýrrar sundlaugar.
Ómar Friðriksson
Kristján H. Johannessen
Mikil óvissa er um hvaða stefnu kjara-
viðræður á almenna vinnumarkaðin-
um taka næstu daga, eftir að yfir-
standandi deilum hefur verið vísað til
ríkissáttasemjara. Meðal hugmynda
sem komið hafa upp í óformlegum
samtölum samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins innan verkalýðs-
hreyfingarinnar er að reynt verði að
semja til eins og hálfs árs. Samning-
arnir rynnu þá út skömmu fyrir fram-
lagningu síðasta fjárlagafrumvarps
ríkisstjórnarinnar á kjörtímabilinu
haustið 2016, til að skapa viðsemjend-
um á vinnumarkaði sterkari stöðu
gagnvart stjórnvöldum. Þessi hug-
mynd er þó sögð enn vera á frumstigi.
Félögin í Starfsgreinasambandinu
sem ljúka í kvöld kosningu um boðun
verkfalls hafa viljað semja til þriggja
ára en önnur félög í ASÍ til eins árs.
„Við erum ekki endilega að horfa til
þriggja ára samnings heldur höfum við
sagt okkar markmið vera að ná 300
þúsund króna lágmarkslaunum á inn-
an við þremur árum. Það er hægt að
gera það í áföngum, með árs samningi
eða til eins og hálfs árs,“ segir Björn
Snæbjörnsson, formaður SGS. »6
Hugmyndir um að semja
til eins og hálfs árs