Morgunblaðið - 20.04.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
VITA
léttir þér
lífið
VITA er lífið
Vaxtalaus ferðalán
til allt að 12 mánaða
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
74
07
9
4/
20
14
Fjölskyldan kemst í sólina með VITA fyrir aðeins
25.900kr. á mánuði*Vaxtalaust
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444
*M.v. 2 fullorðna og 2 börn til Mallorca eða Calpe á völdum dagsetningum.
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Fjögur stéttarfélög innan BHM hófu
verkfall á miðnætti. Dýralæknar eru í
ótímabundnu verkfalli en hin eru
bundin við vinnustaði. Tvö eru hjá
Matvælastofnun, þar sem félagsmenn
í Félagi íslenskra náttúrufræðinga
fara í ótímabundið verkfall, svo og
matvæla- og næringarfræðingar
stofnunarinnar.
Háskólamenn hjá Fjársýslu ríkis-
ins eru í tímabundnu verkfalli til átt-
unda maí.
Verkföllin hafa mikil áhrif á sam-
félagið, bæði menn og dýr. Ekki eru
þó allir dýralæknar í verkfalli heldur
einungis dýralæknar sem starfa á
vegum ríkisins. Gæludýraeigendur
geta því áfram farið með dýr sín á
dýraspítala. Verkfall dýralækna mun
stöðva slátrun spendýra og fiðurfén-
aðar, eftirlit með ábendingum vegna
meintra brota á velferð dýra verður
ekki sinnt, útflutningur dýraafurða, til
ríkja utan EES/ESB mun stöðvast og
útgáfa vottorða vegna útflutnings
gæludýra mun einnig stöðvast svo fátt
eitt sé nefnt.
Skortur á ferskri kjötvöru
Þá stöðvast einnig að mestu inn-
flutningur á dýraafurðum eins og
kjöti og ostum og því viðbúið að kjöt-
úrval af ferskri kjötvöru í búðum
minnki.
Sigurður Gunnar Markússon,
framkvæmdastjóri innkaupasviðs
Kaupáss, sem rekur meðal annars
Krónuna og Nóatún, segir að nóg sé
til af kjöti í búðum Kaupáss og grill-
arar landsins geta andað rólega – í bili
að minnsta kosti.
„Það er svolítið verið að blása þetta
meira upp en efni og ástæða er til. Það
er ekki eins og það verði kjötlaust.
Lömbum er slátrað að hausti, það eru
þokkalegar birgðir til af nautakjöti í
landinu, það er til mikið af frosnum
kjúklingi og svínakjöti þannig að
birgðir af fersku kjöti munu duga alla-
vega viku í viðbót. Það eru síðan til
margra vikna birgðir af frosnu kjöti
þannig að það stefnir ekki í neinn
kjötskort.
En auðvitað er það þannig að ef allt
fer á versta veg og horft er langt fram
í tímann þar sem ekkert gerist í samn-
ingaviðræðum þá verða áhrifin eitt-
hvað meiri – en engin stórkostleg
vandræði.“
Sigurður segir að neytendur eigi að
geta gengið að kjötbirgðum vísum í
verslunum Krónunnar og engin
ástæða til að fara að hamstra kjöt.
„Það er engin launung að ef það
verður verkfall í meira en viku þá gæti
skort ferskan kjúkling en ef fólk ætlar
að hamstra þá þarf að frysta hann.“
Sjá ekki reikninga
Verkfall Fjársýslunnar getur með-
al annars tafið fyrir útborgun barna-
bóta og vaxtabóta um næstu mánaða-
mót. Þá verða greiðsluseðlar ekki
sendir út og nýjar kröfur t.d. vegna
fyrirframgreiðsluskyldu þing- og
sveitarsjóðsgjalda, vörugjalds af öku-
tækjum og greiðslufrests í tolli munu
ekki birtast í heimabanka. Þetta hefur
hinsvegar engin áhrif á greiðslu-
skyldu eða lögboðna gjalddaga og ein-
daga.
„Það stefnir ekki í neinn kjötskort“
Fjögur stéttarfélög innan BHM hófu verkfall á miðnætti Velferð dýra ekki sinnt Slátrun stöðvast
„Til mikið af frosnum kjúklingi og svínakjöti“ Bætur gætu tafist og greiðsluseðlar ekki sendir út
„Hljóðið er slæmt í félags-
mönnum, það er þungt,“ segir
Guðbjörg Þorvarðardóttir, for-
maður Dýralæknafélags Ís-
lands.
„Það er ekki byrjað að ræða
við okkur. Það er bara búið að
ræða við BHM en ekki sér-
staklega við okkur. Þetta er
bara taktík hjá samninganefnd-
inni að halda ekki fundi,“ segir
hún.
Félagsmenn
þungir á brún
DÝRALÆKNAFÉLAGIÐ
Farfuglarnir eru nú flestir farnir að tínast til landsins
og sjást þeir yfirleitt fyrst á Suðausturlandi og svo á
Suðvesturlandi. Brynjúlfur Brynjólfsson, fugla-
áhugamaður og starfsmaður Fuglaverndunarstöðvar
Suðausturlands, segir farfuglana nú halda sínu róli
miðað við fyrri ár. „Það er fátt sem kemur á óvart ef
eitthvað er,“ segir hann og bætir við að fljótlega megi
nú eiga von á spóa og kríu. Fleiri tegundir sem enn
eiga eftir að koma eru til að mynda óðinshani, sem oft-
ast kemur um miðjan maí, og þórshani en sá fugl lætur
alla jafna ekki sjá sig fyrr en í júní.
„Það er nú ekki komið mikið af öllu en þeir eru þó
farnir að streyma inn núna,“ segir Brynjúlfur en þær
fuglategundir sem nú sækja landið heim í miklum mæli
eru lóur, stelkar, hrossagaukar og þúfutittlingar.
Þá segir Brynjúlfur hugsanlegt að kría sé þegar
komin til landsins en íbúi á Höfn í Hornafirði telur sig
hafa séð slíkan fugl þar í bæ síðastliðinn miðvikudag.
„Ég held að fyrsta dagsetning á kríu, sem við höfum
skráð hjá okkur, sé 18. [apríl] en yfirleitt koma þær nú
ekki fyrr en 22. til 24. [apríl],“ segir hann. khj@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Komin aftur Hin ástsæla og þjóðþekkta álft Svandís er búin að koma sér fyrir við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi.
Farfuglarnir eru nú flestir
teknir að streyma til landsins
Morgunblaðið/Ómar
Væntanlegur Óðum styttist nú í komu spóans.
Ráðstefna um tjón af völdum álfta og gæsa í ræktunarlandi
bænda var haldin sl. föstudag í fundarsal Landgræðslu
ríkisins í Gunnarsholti á Rangárvöllum.
Ókeypis var á ráðstefnuna sem er sögð hafa heppnast
vel í alla staði fyrir utan mætinguna. Aðeins fimm bændur
og nokkrir embættismenn létu sjá sig samkvæmt Bænda-
blaðinu en ræðumenn voru átta.
Kynntar voru niðurstöður úr samantekt á umfangi tjóns
í löndum bænda á síðasta ári en í máli Sveins Sigurmunds-
sonar, framkvæmdastjóra Búnaðarsambands Suðurlands,
kom fram að kornrækt hefði dregist saman um 424 hekt-
ara á Suðurlandi árin 2013/2014 og sagði hann að bændur
væru einfaldlega að gefast upp gagnvart ágangi fuglanna.
Ráðstefnan er aðgengileg á vef bændasamtakanna bondi-
.is.
Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Bændasamtak-
anna, sagði álftina mikið vandamál hér á landi. „Þetta er
mál sem hefur verið lengi til umræðu meðal bænda. Rækt-
un hefur aukist, veðurfar skánað og aðstæður orðnar betri
fyrir fugla. Ágangurinn hefur verið vaxandi vandamál og
er álftin mjög alvarlegt vandamál hér á landi.“
benedikt@mbl.is
Aðeins fimm mættu á fund
Dræm mæting á ráðstefnu um tjón af völdum álfta og gæsa
Strandveiðar hefjast 4. maí næst-
komandi. Heimilt verður að veiða á
handfæri allt að 8.600 lestir af
óslægðum botnfiski á veiðunum á
tímabilinu maí, júní, júlí og ágúst.
Sá afli reiknast ekki til aflamarks
eða krókamarks þeirra fiskiskipa
sem stunda veiðarnar. Kemur þetta
fram á heimasíðu Fiskistofu.
Landinu er skipt í fjögur veiði-
svæði og er veiðiheimildin eftirfar-
andi: Á svæði A (Eyja- og Mikla-
holtshreppur til Súðavíkurhrepps)
er heimilt að veiða 715 tonn í maí,
858 tonn í júní og júlí og 429 tonn í
ágúst. Í hlut svæðis B (Stranda-
byggð til Grýtubakkahrepps) koma
509 tonn í maí, 611 tonn í júní og
júlí og 305 tonn í ágúst. Í maí er
leyfilegt að veiða 551 tonn á svæði
C (Þingeyjarsveit til Djúpavogs-
hrepps), 661 tonn í júní og júlí og
331 tonn í ágúst. Á svæði D (Sveit-
arfélagið Hornafjörður til Borg-
arbyggðar) er leyfilegt að veiða 600
tonn í maí, 525 tonn í júní, 225 tonn
í júlí og 150 tonn í ágúst.
Á komandi strandveiðum má veiða allt
að 8.600 lestir af botnfiski á handfæri
Morgunblaðið/Ómar
Aflaklær Búið er að skipta landinu upp í
fjögur veiðisvæði fyrir komandi veiðar.
Karlmaður liggur nú alvarlega
slasaður á gjörgæsludeild Land-
spítalans í Fossvogi eftir að hafa
fallið af fjórhjóli við Fróðengi í
Grafarvogi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lækni á gjörgæsludeild
er maðurinn ekki í lífshættu og
er hann með meðvitund.
Slysið átti sér stað um klukkan
hálfníu síðastliðið laugardags-
kvöld. Var maðurinn í kjölfar
þess fluttur með alvarlega áverka
undir læknishendur. Frekari upp-
lýsingar liggja ekki fyrir en lög-
reglan vinnur nú að rannsókn
slyssins.
Karlmaður alvarlega slasaður á gjörgæslu
Morgunblaðið/Ómar