Morgunblaðið - 20.04.2015, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2015
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
TILBOÐ VIKUNNAR
SPORTHALDARAR stakar
stærðir D-G kr. 4.800,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
!" #"
$% !
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
smidur.com
Sími 897 9933
Tökum að okkur viðhald, við-
gerðir og nýsmíði fasteigna
fyrir fyritæki húsfélög og einstak-
linga. Fagmenn á öllum sviðum.
Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373.
brbygg@simnet.is
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Farfugla
Aðalfundur Bandalags íslenskra farfugla
verður haldinn þriðjudaginn 21. apríl nk.
kl. 20.00 í Farfuglaheimilinu í Laugardal,
Sundlaugavegi 34.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Aðalfundarboð
Aðalfundur Fasteignafélagins Borgar ehf,
Höfðabraut 6, Hvammstanga, verður haldinn
miðvikudaginn 6. maí 2015 kl. 13.00 á
Hlöðunni, veitingahúsi á Hvammstanga.
Dagskrá:
1. Hefðbundin dagskrá aðalfundar, skv.
ákvæðum samþykkta félagsins.
2. Staðfesting aðalfundar á framlengdri
heimild til aukningar hlutafjár, allt að kr.
20.000.000, sem óráðstafað er samkvæmt
samþykkt aðalfundar þann 9. febrúar 2009.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Hvammstanga, 17. apríl 2015
Stjórn Fasteignafélagsins Borgar ehf.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, leikfimi kl. 10 og kl. 13 verða
félagsvist, tölvufærni, útskurður 1 og frjáls tími í myndlist.
Árskógar 4 Opin smíðastofa, útskurður kl. 8.30-16. Opin handa-
vinnustofa kl. 9-16 með leiðbeinanda kl. 12.30. Botsía með Sigríði
kl. 9.30-10.30. stafaganga um nágrennið kl. 11-11.40. Félagsvist með
vinningum kl. 13.15. Myndlist með Elsu 16.
Boðaþing 9 Myndlist kl. 9.30. Félagsvist kl. 13.
Dalbraut 18-20 Myndlist og postulín kl. 9, brids kl. 13.
Furugerði 1 Handavinna kl. 8-16, (bútasaumur, perlur, prjónað,
harðangur og klaustur), ganga kl. 13 og framhaldssaga kl. 14.
Garðabær Vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 7.30, 8.15, 12,20 og 15, stóla-
leikfimi fyrir konur og karla kl. 9.10, kvennaleikfimi kl. 10. í Sjálandi og
í Ásgarði kl. 11.
Gerðuberg Handavinnustofa kl. 9-16. Útskurður með leiðbeinanda
kl. 9-16. Línudans kl. 13-14. Kóræfing kl. 14.30-16.30.
Gjábakki Handavinnuleiðbeinandi við til hádegis, botsía kl. 9.10,
gler- og potulínsmálun kl. 9.30, lomber kl. 13, kanasta kl. 13.15,
kóræfing kl. 16.30, skapandi skrif kl. 20.
Gullsmári 13 Postulínshópur kl. 9, ganga kl. 10, handavinna og brids
kl. 13. Félagsvist kl. 20.
Hraunbær 105 Kl. 8.30 kaffi og spjall, kl. 9 opin handavinna –
leiðbeinandi, kl. 9.30 bænastund, kl. 10.10 jóga, kl. 11.30
hádegismatur, kl. 13 steinamálun, kl. 14.30 kaffi. Síðasti dagur til
skráningar á skemmtuninni Vetrarlok.
Hraunsel Þrekæfingar Haukahúsi kl. 9.10. Ganga Haukahúsi kl. 10.
Ganga Kaplakrika kl. 10- 12. Gaflarakórinn kl. 11. Bútasaumur
Hjallbraut kl. 13. Félagsvist kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 Opið kl. 8-16, molasopi til kl. 10.30 og blöð liggja
frammi, opin vinnustofa, jóga kl. 8.30, 9.30, 10.30 og 11.30, leikfimi kl.
9.45, matur kl. 11.30, baðþjónusta fyrir hádegi. Brids kl. 13, kaffi kl.
14.30, fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, tiffany´s glerskurður kl. 9,
leikfimi á RÚV kl. 9.45, ganga kl. 10, handavinnuhornið kl. 13, félags-
vist kl. 13.15, skapandi skrif kl. 16. Nánar í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð Ringó kl. 13.30 í Smáranum. Uppl. í síma 564-
1490 og á www.glod.is
Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Borgum og í Egilshöll, styrktarleikfimi hjá
Nils kl. 11 í Borgum, tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum og
félagsvist kl. 13.30 í Borgum.
Norðurbrún Kaffi kl. 8.30. Leikfimi kl. 9.45. Ganga kl. 10. Bókmennta-
hópur kl. 11. Hádegisverður kl. 11.30-12.30. Útskurður kl. 13. Samveru-
stund með djákna kl. 14.
Seltjarnarnes Gler Valhúsaskóla kl. 9 og 13. Leir Skólabraut kl. 9.
Billjard Selinu kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga Skólabraut
kl. 11. Handavinna Skólabraut kl. 13. Upplestur á handavinnutíma.
Vatnsleikfimi kl. 18.30.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi sundlaug kl. 7.15. Kaffispjall í króknum
kl. 10.30. Karlakaffi í kirkjunni kl. 14. Vorfagnaður fimmtudag 30. apríl
kl. 19.30 í salnum á Skólabraut. Grillvagninn, tónlist og gaman
saman. Verð kr. 4.000. Skráningarblöð á Skólabraut og Eiðismýri.
Sléttuvegur 11-13 Dagblöð og kaffi kl. 8.30. Helgistund kl. 10.10.
Hádegisverður kl. 11.30. Njála með Bjarna kl. 13.30. Kaffi kl. 14.30.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Tungumálanámskeið, spænska
kl. 15, enska kl. 16. Danskennsla kl. 17, kennari Lizý Steinsdóttir.
Vesturgata 7 Setustofa/kaffi kl. 9. Vinnustofa opin (án leiðbeinanda)
kl. 9. Fótaaðgerð kl. 9. Hádegisverður kl. 11.30. Kaffi kl. 14.30. Fimmtu-
dag 21. maí kl. 19 verður farið frá Vesturgötu 7 kl. 18.15 í Borgar-
leikhúsið að sjá söngleikinn Billy Elliot. Upplýsingar og skráning í
síma 535-2740.
Vitatorg Kl. 9 er leirmótun og postulínsmálun, upplestur, framhalds-
saga kl. 12.30. Frjáls spil og stóladans kl. 13. Bókband kl. 13.
Fótaaðgerðarstofa opin.
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga
Óska eftir Honda CBF 1000
árgerð 2006-2008.
Upplýsingar í síma 698 0667.
Mótorhjól
✝ GuðmundurHeimir Pálma-
son fæddist 26. júlí
1932 í Reykjavík.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu Sól-
vangi í Hafnarfirði
5. apríl 2015.
Foreldrar Guð-
mundar voru Guð-
rún Stefánsdóttir
frá Fossi í Gríms-
nesi, f. 28. maí
1903, d. 27. júní 1982, og Pálmi
Guðmundsson, f. 16. mars 1913 í
Reykjavík, d. 3. september 1993,
þau bjuggu allan sinn búskap í
Reykjavík. Þar ólst Guðmundur
Heimir upp, ásamt
bróður sínum
Garðari Óskari,
málarameistara.
Guðmundur Heimir
fór mjög ungur til
sjós og vann ekki
önnur störf en við
sjómennsku. Hann
var á mörgum tog-
urum á sinni sjó-
mannsævi.
Guðmundur
Heimir var alla tíð ókvæntur og
barnlaus.
Útför Guðmundar Heimis fer
fram í dag, 20. apríl 2015, kl. 13
frá Fossvogskapellu.
Látinn er Guðmundur Heimir
Pálmason sjómaður. Hann var allt-
af kallaður Lilli, og sagðist hann
hafa verið kallaður því gælunafni
frá barnæsku. Leiðir okkar Lilla
lágu saman er ég var yfirvélstjóri á
togaranum Apríl frá Hafnarfirði,
þar var Lilli háseti, skipstjóri var
Svavar Benediktsson. Lilli var með
Svavari á fleiri skipum. Við Lilli
bjuggum báðir í Breiðholti á þess-
um tíma og voru húsin sem við
bjuggum í samhliða, svo að við hitt-
umst oft og héldum kunningsskap
alla tíð síðan.
Lilli var alla tíð einhleypur og
barnlaus og bjó hann í þessari íbúð
í Breiðholti frá því ég kynntist hon-
um, þar til hann veiktist og fór á
Landakot, og síðan á hjúkrunar-
heimilið Sólvang í Hafnarfirði. Þar
sem við vorum nágrannar og vel
kunnugir, kom hann stundum í
heimsókn og um jólin borðaði hann
alltaf hjá okkur. Ég minnist þess
að ein jólin var hann í heimsókn hjá
okkur, dóttir okkar hjónanna var
þá fjögurra mánaða gömul, hún var
nývöknuð og rétti ég honum barn-
ið, hann hélt á henni og sagðist
aldrei hafa haldið á barni fyrr. Ég
tók ljósmynd af honum með barnið
í fanginu og var sú ljósmynd í önd-
vegi hjá honum upp frá því
Lilla þótti vænt um börnin okk-
ar, hann var rausnarlegur í gjöfum
til þeirra, svo og til barnabarna
okkar þegar þau komu. Ég vissi til
þess að sumum samferðamönnum
hans þótti hann stundum sparsam-
ur á fé sitt, en hann veitti sér ým-
islegt á seinni árum, hann ferðaðist
til útlanda með ferðaskrifstofum,
og var jafnan ánægður með þær
ferðir. Hann átti góða jeppabíla eft-
ir að ég kynntist honum, og ferðað-
ist á þeim um landið á sumrin.
Hann Lilli var vanafastur, hann fór
í sundlaugina í Laugardal nær dag-
lega og á Kaffivagninn við höfnina
til að hitta kunningja sína. Hann
sagði mér að fyrr á árum hefði
hann stundað kaffihúsið Hressing-
arskálann við Austurstræti og var
Bakkus stundum með í för, en þá
iðju var hann löngu hættur við.
Ævistarf Lilla var sjómennska á
togurum, það eru erfið störf, en
hann var stór og hraustur og beit
fátt á hann. Þó sagðist hann hafa
meitt sig á hné, á fjarlægum mið-
um og verið með verki í hnénu síð-
an. Þetta leiddi til þess að hann fór í
aðgerð á hnénu á sjúkrahúsið á
Akranesi fyrir nokkrum árum.
Kristján sonur minn ók Lilla á
sjúkrahúsið á Akranesi og sótti
hann að lokinni aðgerðinni, og tal-
aði Lilli oft um hversu honum þótti
vænt um þessa greiðvikni stráks-
ins, og „frítt“ sagði Lilli.
Lilli hætti sjómennsku um sex-
tugt, þá gat hann fengið lífeyris-
sjóðsgreiðslur sér til framfærslu. Á
allra síðustu árum missti hann
minnið. Eftir að Lilla fór að förlast
var mágkona hans, Guðrún Árna-
dóttir, dugleg við að heimsækja
hann og hlúa að honum, en hann
dvaldist á Sólvangi í Hafnarfirði,
þar naut hann frábærrar umönn-
unar starfsfólksins og lést hann þar
5. apríl sl.
Blessuð sé minning Guðmundar
Heimis Pálmasonar.
Pétur Kristjánsson.
Guðmundur
Heimir Pálmason