Morgunblaðið - 20.04.2015, Blaðsíða 23
haldsskólaárunum urðu til þess að
ég fékk óbeit á sjúkrahúsum og varð
afhuga læknisfræðinni. Guðfræðin
varð því ofan á eftir snarpa umhugs-
un. Ég lauk embættisprófi í guð-
fræði 2007 og meistaraprófi í gamla-
testamentisfræðum 2014.
Eftir tveggja ára nám í guðfræði
var ég hins vegar orðin annars hug-
ar við námið og ákvað að taka mér
hlé sem stóð í sex ár.“
Ninna og maður hennar voru í
Súðavík 1998-99 en þar var hún leið-
beinandi við grunnskólann, tvö ár
var hún í fæðingarorlofi með elstu
tvö börnin og í þrjú ár var hún deild-
arstjóri á leikskóla.
„Guðfræðin togaði í mig aftur og
ég lauk embættisprófi, var svo
stundakennari í gamlatestamentis-
fræðum og doktorsnemi í sömu
fræðigrein 2007-2009.“
Ninna varð æskulýðsfulltrúi við
Selfosskirkju 2009 og vígðist til
prestsþjónustu við Selfosssöfnuð
2011 þar sem hún þjónar nú: „Sel-
fyssingar eru dásamlegt fólk að
þjóna, duglegt að leita til prestanna
sinna, áhugasamt um kirkjuna sína
og safnaðarstarf og það var því al-
gjör happafengur fyrir mig að fá að
hefja prestsþjónustu þar.“
Ninna var kosin í bæjarstjórn
Hveragerðisbæjar 2010 og var for-
maður fræðslunefndar 2010-2014,
formaður bæjarráðs 2012-2013 og
forseti bæjarstjórnar 2013-2014.
Ninna leiddi síðan D-lista Sjálf-
stæðisfélags Hveragerðis í kosn-
ingum 2014 þar sem sjálfstæð-
ismenn héldu meirihluta með
sannfærandi kosningu og þar er hún
formaður menningar-, íþrótta- og
frístundanefndar frá 2014.
„Ég nýt mín vel í báðum þessum
störfum sem eiga það sameiginlegt
að vera þjónusta – snúast um þjón-
ustu við fólk og við nærsamfélagið.
Ég er svo lánsöm að eiga frábæra
fjölskyldu og góða vini. Stærsta
ævintýrið í lífinu er auðvitað að fá að
fylgjast með börnunum mínum vaxa
og þroskast. Nú væri smart að geta
sagt frá einhverju ævintýralegu
áhugamáli en sannleikurinn er sá að
ég er mikil heimakona, finnst gaman
að elda, prjóna og baka, fara í leik-
hús og bíó og hitta vinkonur, en allra
skemmtilegast er að ferðast með
fjölskyldunni. Þá hef ég stundað
crossfit frá 2012 og er að koma mér
af stað aftur eftir barnsburð.“
Fjölskylda
Eiginmaður Ninnu Sifjar er Daði
Sævar Sólmundarson, f. 22.6. 1974,
málari. Foreldrar hans eru Hólm-
fríður Kristín Hilmisdóttir, f. 31.3.
1953, búsett í Hveragerði, og Sól-
mundur Sigurðsson, f. 2.6. 1956,
ferðaþjónustubóndi, búsettur í
Borgargerði í Ölfusi.
Börn Ninnu Sifjar og Daða eru
Svavar, f. 13.6. 1999; Kristín Sif f.
23.7. 2001, og Hallgrímur, f. 27.8.
2007, en þau eru öll nemendur við
Grunnskólann í Hveragerði, og Sæ-
mundur Daði, f. 15.11. 2014.
Systir Ninnu Sifjar er Íris Judith
Svavarsdóttir, f. 3.10. 1967, búsett að
Rauðalæk í Ölfusi, sjúkraþjálfari og
ráðgjafi hjá VIRK.
Foreldrar Ninnu Sifjar eru Hjör-
dís Judithardóttir, f. 19.9. 1945, leik-
skólastjóri á Akranesi og í Reykja-
vík, nú búsett í Hveragerði, og
Svavar Sigurðsson, f. 18.4.1939,
starfaði lengst af hjá Landsbanka
Íslands, nú búsettur á Akranesi.
Úr frændgarði Ninnu Sifjar Svavardóttur
Ninna Sif
Svavarsdóttir
Marinó Guðjónsson
verkam. í Klaksvik
Anna María Jóensen
húsfr. í Klaksvik í Færeyjum
Judith Jónsson
sjúkraliði í Vorsabæ í Ölfusi
Hjalti Einarsson
mjólkurfr. í Rvík
Hjördís Hjaltadóttir
leikskólastjóri í Hveragerði
Pálína Benediktsdóttir
húsfr. í Einholti í Ölfusi
Einar Sigurðsson
b. í Einholti í Ölfusi
Jón Ögmundsson b. í
Króki í Ölfusi
Elínborg Sigurðardóttir var
ljósmóðir á Akranesi
Svavar Þjóðbjörnsson
verkam. og b. í Sandgerði og á Akranesi
Guðrún Finnsdóttir
húsfr. í Sandgerði og á Akranesi
Guðfinna Svavarsdóttir
húsfr. á Akranesi
Sigurður B. Sigurðsson
bifvélavirki á Akranesi
Svavar Sigurðsson
starfsm, Landsbankans, nú búsettur
á Akranesi
Elínborg Jónsdóttir
húsfr. í Leirdal á Akranesi
Sigurður E. Hjörleifsson
múraram. og tónlistarm. í Rvík
Afmælisbarnið Ninna Sif.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2015
Jóhannes Árnason sýslumaðurfæddist 20. apríl 1935 á Geirs-eyri við Patreksfjörð. Faðir
hans var Sturlaugur Friðriksson, f.
sölumaður í Reykjavík, en foreldrar
hans voru Friðrik A. Þórðarson,
söðlasmiður og kaupmaður á Pat-
reksfirði, og k.h. Sigríður Ólafs-
dóttir húsfreyja.
Móðir Jóhannesar var Sigríður
Jóhannesdóttir, lengst af verkakona
á Geirseyri við Patreksfjörð, síðar í
Reykjavík. Foreldrar hennar voru
Jóhannes Árnason, stýrimaður,
lengst af í Flatey á Breiðafirði, síðar
á Patreksfirði og k.h. Herdís Jón-
atansdóttir húsfreyja.
Jóhannes varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri 1956
og lauk embættisprófi í lögfræði frá
Háskóla Íslands 1963. Jóhannes var
sveitarstjóri á Patreksfirði frá árinu
1963-1968 og jafnframt fulltrúi
sýslumannsins í Barðastrandarsýslu
1963-1964, en stundaði síðan mál-
flutningsstörf og útgerð samhliða
starfi sveitarstjóra. Hann varð
sýslumaður í Barðastrandarsýslu
1968-1982, en sýslumaður í Snæfells-
nes- og Hnappadalssýslu frá 1982 til
æviloka.
Jóhannes lét sig félagsmál miklu
varða. Hann sat í nefndum ýmissa
fyrirtækja og félaga, oft sem for-
maður. Hann var formaður Neista,
félags ungra sjálfstæðismanna í
Vestur-Barðastrandarsýslu, sat í
stjórn Sambands ungra sjálfstæðis-
manna, varaformaður um skeið og
var tvívegis formaður sjálfstæðis-
félagsins Skjaldar á Patreksfírði. Þá
átti hann um tíma sæti í flokksráði
Sjálfstæðisflokksins og var vara-
þingmaður Vestfjarða 1974-1978 og
sat á þingi apríl-maí og október-
desember 1978.
Jóhannes var kvæntur Sigrúnu
Sigurjónsdóttur húsfreyju, f. 12.5.
1938, bús. í Garðabæ. Foreldrar
hennar voru Sigurjón Guðmunds-
son, múrarmeistari í Reykjavík, og
Anna Margrét Ólafsdóttir húsfreyja.
Börn Jóhannesar og Sigrúnar: Ólaf-
ur Þór, Anna Berglind, Sigurjón og
Elín.
Jóhannes Árnason lést 30.4. 1989 í
Reykjavík.
Merkir Íslendingar
Jóhannes
Árnason
100 ára
Oddur Jónsson
90 ára
Hulda Jónatansdóttir
Ólöf Margrét
Gísladóttir
85 ára
Guðlaug Pétursdóttir
Jón Skúli Ölversson
Víðir Finnbogason
80 ára
Eiríkur Hallgrímsson
Gunnar Jóhannsson
Þóra Sigurðardóttir
75 ára
Alda Guðjónsdóttir
Ásta Pálsdóttir
Gerðar Þórðarson
Hreiðar Þórhallsson
70 ára
Guðrún Árnadóttir
Guðrún Helgadóttir
Ketill Bjarnason
María Ólafsdóttir
Sverrir Berg
Guðjónsson
Þórdís Hlöðversdóttir
60 ára
Agnieszka Swatek
Einar Hafsteinn
Vilhjálmsson
Friðrika Þ.
Jónmundsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir
Halldóra Guðríður
Árnadóttir
Ólafur Gunnarsson
Sigdóra J. Aðalsteinsdóttir
Sigrún Edda Sigurðardóttir
Steinunn Þórarinsdóttir
Þórunn Andrésdóttir
50 ára
Anna María
Gunnarsdóttir
Arnhildur R. Árnadóttir
Emil Björn Héðinsson
Halldór Ómar Áskelsson
Höskuldur Þór
Höskuldsson
Ísleifur Leifsson
Jórunn Lovísa Bragadóttir
Magnús Þórir Yngvason
Ólafur Jóhannsson
Roman Grzegorz Kardasz
Svava Kjartansdóttir
Unnur Berglind Hauksdóttir
Þröstur Jónsson
40 ára
Cecilia Cira Bernabe
Hrund Sverrisdóttir
Jóhanna Sigurveig B.
Ólafsdóttir
Kristín Lárusdóttir
Ólafur Bjarni
Tómasson
Teresa Duterte Cagay
30 ára
Ásbjörg Ýr Einarsdóttir
Dominika Agnieszka Klobus
Erla Dögg Kristjánsdóttir
Hafþór Ingi
Svanbergsson
Helgi Þór Leifsson
Lilja Guðmundsdóttir
Przemyslaw Roman
Uchanski
Richel Ann Carmelotes
Enriquez
Sigurlaug Sigurðardóttir
Tomasz Smiarowski
Til hamingju með daginn
40 ára Elísabet er Reyk-
víkingur en býr á Dalvík
og er umsjónarmaður úti-
bús Lyfja og heilsu.
Maki: Birkir Árnason, f.
1972, yfirmaður á verk-
stæðinu hjá Promens.
Börn: Brynja Sól. f. 1995,
Aþena Marey, f. 1998,
Berta María, f. 1999 og
Viktor Smári, f. 2001.
Foreldrar: Tryggvi Þór
Agnarsson, f. 1954 og
Erla Sólrún Valtýsdóttir, f.
1956, bús. í Reykjavík.
Elísabet Lára
Tryggvadóttir
30 ára Óttar er Reykvík-
ingur og er með MSc.-
gráðu frá Barcelona
Graduate School of
Economics. Hann er hag-
fræðingur á efnahagssviði
Samtaka atvinnulífsins.
Bróðir: Daði Ingólfsson, f.
1975, rekur fyrirtækið
Kolibri.
Foreldrar: Þorsteinn
Snædal, f. 1953, trygg-
ingaráðgjafi hjá VÍS, og
Ágústa Axelsdóttir, f.
1952, kennari í FG.
Óttar Snædal
Þorsteinsson
30 ára Ólöf er Keflvík-
ingur en býr í Njarðvík.
Hún er viðskiptafræð-
ingur frá Bifröst, er við-
skiptafulltrúi hjá Isavia og
vinnur á viðskiptadeild á
Keflavíkurflugvelli.
Sonur: Sölvi Steinn, f.
2012.
Foreldrar: Lárus Þór-
hallsson, f. 1961, verktaki
í Keflavík, og Arnbjörg
Ólafsdóttir, f. 1965, fóta-
aðgerðafræðingur í Kefla-
vík.
Ólöf Steinunn
Lárusdóttir
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070
Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
Þarftu að framkvæma?
Við eigum pallana fyrir þig