Morgunblaðið - 20.04.2015, Síða 27
myndatónlist og tónlist fyrir önn-
ur verk og nálgastu verkefnin með
ólíkum hætti? „Þegar ég er að
semja sé ég yfirleitt myndir í
höfðinu sem ég hef búið til. Þess
vegna er auðvelt fyrir mig að
skilja stemninguna ef ég fæ mynd-
ir sem einhver annar hefur búið
til. Ég hef alltaf verið mikill kvik-
myndaáhugamaður og var m.a.
kvikmyndagagnrýnandi á dagblaði
þegar ég var að klára mennta-
skóla. Mér finnst gaman að hljóð-
skreyta myndir og eins að mynd-
skreyta hljóð. Það er gaman að
geta búið til stemningu í atriði
sem byrjaði sms flatt og óspenn-
andi en lifnaði svo við með tónlist-
inni.“
Lærði á að fylgjast
með öðrum
Hjá sumum er tónlistaráhuginn
meðfæddur og má segja að hann
fáist í vöggugjöf en aðrir læra að
meta tónlistina og taka hana til
sín og gera sína eigin. Hvernig
vaknaði áhuginn á tónlistinni og
hvaðan kemur hæfileikinn í laga-
smíðinni? „Tónlistaráhuginn var
snemma kominn. Ég lærði á flautu
ungur, svo eitt ár á píanó og svo
nokkur stig á rafgítar. Ég tel ekki
með hálft ár sem ég eyddi í að
læra að sitja og halda „rétt“ á
klassískum gítar. Það hefur aldrei
nýst mér. Ég hef lært mikið af því
að fylgjast með öðrum vinna; og
samstarfi við aðra höfunda, en lík-
lega mest af því að gera alls konar
mistök. Ég tók samt nokkurra
mánaða törn og las margar bækur
sem eru kenndar í tónsmíðanámi
og stúderaði klassíska músík. Í
listsköpun getur það hjálpað
mörgum að læra en stundum, al-
veg eins og í myndlist þar sem
fólk setur kókdós á hliðina og það
telst frumlegt, þá heyrir maður
ekki hvort tónverk sé eftir há-
menntað klassískt nútímaskáld
eða hvort þetta sé barn að leika
sér að spila eða framleiða óhljóð.
En rétt eins og í myndlist eigum
við líka okkar stórmeistara. Í mín-
um augum eru það Stravinski,
Michael Jackson, Sonic Youth,
Philip Glass, Ennio Morricone og
fleiri.“
Er einhver tónlistarstefna sem
þú hlustar meira á en aðrar? Eitt-
hvað sem er ólíkt þínum eigin
verkum? „Það eru hljómsveitir
sem ég grip alltaf reglulega. Þetta
eru Sonic Youth, Interpol, Strang-
lers, Philip Glass, Arvo Part, The
Doors, Metallica (fyrstu árin),
Portishead, Deftones og Spiritual-
ized. Ég held að ekkert af þessu
líkist minni tónlist.“
Eljusemi og frægð
Það verður ekki hjá því komist
að spyrja út í allan þann fjölda
verka sem liggja eftir Barða og
ljóst að hann situr ekki auðum
höndum eða bíður einn heima eftir
andagiftinni. Vinnurðu í skorpum
eða jafnt og þétt? Óttastu að hafa
of mikið að gera og geta ekki
sinnt öllum verkefnum í einu?„Ég
þarf alltaf að vera að semja eða
vinna í kringum músíkina. Ég sé
engan tilgang með því að hanga á
kaffihúsum í týpufötum að bíða
eftir andanum. Það er fullt af
stússi í kringum þennan bransa
sem er ekki beint músíktengdur.
Fólk gæti aldrei ímyndað sér
hvernig dagarnir manns eru.
Venjulega vinn ég mikið en tek
svo auka skorpur ef það er ein-
hver skiladagur á næstunni. Ég
myndi frekar óttast að hafa of lítið
að gera … en ég held að það muni
aldrei eiga sér stað. Það er svo
margt sem mig langar að gera ef
ég myndi hætta í músík, allt frá
lögfræði, smíði, leikstjórn, al-
mannatengslum eða að róa á
trillu.“
Fjöldi verkefna hefur dregið
Barða til Frakklands og velta
margir fyrir sér hvort hann sé
ekki þekktari þar en á Íslandi.
Sækistu eftir frægð eða er hún
ekki eftirsóknarverð? „Kannski að
ég afgreiði þessa mýtu um að ég
sé frægur í Frakklandi. Það er ég
ekki, ég á mína fylgjendur og
þekki fjölda fólks þar en er ekki
oft stoppaður úti á götu. Ég hef
einnig spilað í stórum og flottum
tónleikasölum þarna en orðið
„frægur“ nota ég um fólk sem
„allir“ þekkja. Ég held að ég sé
hvergi frægur og hef aldrei sóst
eftir því. Ef ég er beðinn um eig-
inhandaráritun finnst mér það
skrítið, sérstaklega í því ljósi þess
að ég skrifa nafnið mitt nær dag-
lega á visa-nótur. Fannst samt
mjög gaman að því þegar einn
aðdáandi fékk sér eiginhandarárit-
una mína tattooveraða á sig ásamt
nokkrum lagaheitum af Ghosts
From The Past-plötunni. Hún
sagði að platan hefði hjálpað sér í
gegnum mjög erfiða tíma og
minnti hana á hvernig hún sigr-
aðist á erfiðleikunum. Það er eitt-
hvað sem ég kann miklu meira að
meta en að vera í „hverjir voru
hvar“. Ég hef aldrei gert neitt
sérstaklega til að vera þekktur, ég
þyki meira að segja mjög frá-
hverfur í viðtölum og myndi vænt-
anlega leika fíflið í spjallþáttum ef
ég sæktist eftir viðurkenningu al-
mennings. Mér þykir aftur á móti
vænt um að heyra einlægt hrós
þegar fólk hefur verið að tengja
við tónlistina og hún jafnvel hjálp-
að því í að vinna sig í gegnum erf-
iðleika, gleði eða hjálpað til við
getnað.“
The Wolves Are Whispering
Barði mun kynna fljótlega hvar
útgáfutónleikar fyrir nýja plötu
hans, The Wolves Are Whisper-
ing, verða haldnir. Hann segist
sjaldan spila á Íslandi en vill gera
það vel. „Mig langaði að halda
tónleika í Hörpu enda aldrei spilað
þar sem solo artisti eða með Bang
Gang. Þetta á víst að vera tón-
leikastaður allra landsmanna og
við skattgreiðendur greiddum fyr-
ir hann. Til að halda tónleika þar
þarf að leggja fram tæpar
3.000.000 bara fyrir stóra salinn
og græjur, þá á eftir að borga öll-
um sem koma fram. Þetta þýðir
að aðgangseyririnn verður að vera
mjög hár til að dæmið gengi upp.
Mig langar ekki að hafa upp-
sprengt verð eða hafa léleg sæti
ódýr en góð sæti dýr. Mér finnst
að allir þjóðfélagshópar eigi að
geta haft efni á því að koma á
Bang Gang-tónleika og setið í góð-
um sætum, en ekki bara þeir efna-
meiri, þannig að ég mun finna ein-
hvern tónleikastað í einkaeigu sem
gefur tækifæri til að halda miða-
verðinu þannig að flestir ættu að
geta séð sér fært að mæta og allir
verið jafnir þegar kemur að því að
raða í sæti. Mér finnst ekkert
rokk í því að þeir sem eru með
betur launaða vinnu hafi efni á að
fá betri sæti en þeir sem eru í lág-
launastöðum, sérstaklega í húsi
sem við skattgreiðendur vorum
þvingaðir til að borga fyrir.
Sjáumst á útgáfutónleikunum.“
»Kannski að ég af-greiði þessa mýtu
um að ég sé frægur í
Frakklandi. Það er ég
ekki, ég á mína fylgj-
endur og þekki fjölda
fólks þar en er ekki oft
stoppaður úti á götu.
Morgunblaðið/Golli
Sinfóníutónleikar Barði Jóhannsson syngur með Keren Ann Zeidel undir undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2015
Enski leikstjórinn Mike
Leigh mun næst gera kvik-
myndina Peterloo sem
fjallar um Peterloo-
fjöldamorðin í Manchester
árið 1819, skv. vefnum
Screen International. Til
blóðugra átaka kom í
ágúst það ár milli tugþús-
unda mótmælenda korn-
laganna og fótgönguliða
Manchester á St Peter’s-
völlum og féllu 18 mót-
mælendur og um 700
særðust. Kvikmyndin
verður tekin upp árið 2017
og mun Leigh starfa með
sama kvikmyndatöku-
manni og hann gerði í síð-
ustu mynd sinni, Mr. Turn-
er, Dick Pope. Sú mynd
fjallaði um listmálarann
JMW Turner og hlaut ein-
róma lof gagnrýnenda.
Morgunblaðið/Ómar
Heiðraður Mike Leigh hlaut heiðursverðlaun Al-
þjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF, í
fyrra og sést hér með verðlaunagripinn.
Leigh gerir kvikmynd um Peterloo-
fjöldamorðin í Manchester 1819
22. apríl vinnur
heppinn áskrifandi glæsilega
Toyota Corolla bifreið að
verðmæti 4.899.000 kr.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Mið 22/4 kl. 19:00 Fim 7/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00
Fim 23/4 kl. 19:00 Fös 8/5 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00
Fös 24/4 kl. 19:00 Lau 9/5 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 19:00
Sun 26/4 kl. 19:00 Sun 10/5 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00
Mið 29/4 kl. 19:00 Mið 13/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00
Fim 30/4 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00
Sun 3/5 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00
Þri 5/5 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Mið 3/6 kl. 19:00
Mið 6/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00 Fim 4/6 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 25/4 kl. 13:00 Sun 3/5 kl. 13:00 Sun 17/5 kl. 13:00
Sun 26/4 kl. 13:00 Sun 10/5 kl. 13:00
Síðustu sýningar leikársins
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Sun 3/5 kl. 20:00 17.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas.
Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Mið 6/5 kl. 20:00 aukas. Mið 13/5 kl. 20:00 22.k.
Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Fim 7/5 kl. 20:00 18.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k.
Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k Fös 15/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Lau 9/5 kl. 20:00 20.k. Fim 21/5 kl. 20:00
Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00
Lau 2/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00
Sýningum fer fækkandi
Hystory (Litla sviðið)
Fös 24/4 kl. 20:00 5.k. Fös 8/5 kl. 20:00 auka. Fös 15/5 kl. 20:00
Mið 29/4 kl. 20:00 6.k. Fim 14/5 kl. 20:00 Mið 20/5 kl. 20:00 auka.
Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur
Peggy Pickit sér andlit guðs (Litla sviðið)
Mið 22/4 kl. 20:00 frums. Sun 3/5 kl. 20:00 5.k. Sun 17/5 kl. 20:00
Fim 23/4 kl. 20:00 2.k Fim 7/5 kl. 20:00 6.k. Fim 21/5 kl. 20:00
Sun 26/4 kl. 20:00 3.k. Lau 9/5 kl. 20:00
Fim 30/4 kl. 20:00 4.k. Sun 10/5 kl. 20:00
Urrandi fersk háðsádeila frá einu umtalaðasta leikskáldi Evrópu
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.