Reykjalundur - 01.10.1980, Page 5
SKÚLI JENSSON
Göngudeild í ofnæmissjúkdómum
við Vífilsstaðaspítala
Vífilsstaðahæli vai' byggt 1909—10 sem berkla-
liæli og tók til starfa 5. september 1910. Það
er því 70 ára nú í haust. Segja má að lilut-
verki þess sem berklahæli liafi að mestu verið
lokið, þegar kom fram á 7. áratug aldarinnar.
Það hefir því að verulegum mæli skipt um
hlutverk og þótti Reykjalundi vel til fallið
að gera nokkra grein fyrir þeim breytingum,
sem þar liafa orðið eða eru á döfinni. Sérstak-
lega verður þó nú rætt um göngudeild í of-
næmissjúkdómum, sem þar er starfsrækt.
Vífilsstaðir voru frá upphafi aðal berkla-
hæli landsins, þó að fleiri risu síðar, meðan
þörfin var mest. Það gegnir að visu því hlut-
verki ennþá, en sá þáttur er orðinn hverfandi
lítill. Á 6. og 7. áratugnum tekur Hælið ýms-
um breytingum, en er þó áfram liæli fyrir
lungnasjúklinga, svo sem sjúklinga með astma,
lungnaþembu o. fl.
1973 var nafni Hælisins breytt og heitir það
síðan Vífilsstaðaspítali. Síðasta áratug hafa far-
ið fram gagngerðar breytingar á liúsinu, jafn-
framt margs konar skipulagsbreytingum. Nú er
t. d. verið að breyta einni deildinni með tilliti
til þess að húðdeild Landspítalans flytji
þangað.
Þá er einnig fyrirhugað að Háskólinn fái
eitt starfsmannahús á staðnum, þar sem komið
verði upp rannsóknarstofu í ónæmisfræðum.
Ein deild er áfram lungnasjúkdómadeild,
önnur liefir verið gerð að hjúkrunardeild og
eina hefir Landspítalinn liaft undanfarin ár
og lagt þar sjúklinga til skammrar dvalar til
eftirmeðferðar eftir dvöl á Landspítalanum.
Þessa deild er nú ætlunin að taka fyrir húð-
deild Landspítalans.
Vegna allra þessara breytinga hefir sjúkra-
rúmum fækkað og eru nú 70, þ e. 38 á lungna-
deild, 19 á hjúkrunardeild og 13 á húðdeild.
GÖNGUDEILD í OFNÆMIS-
SJÚKDÓMUM
Lengi liefir ýmiss konar göngudeildarþjón-
usta verið veitt á Vífilsstöðum, fyrst í sam-
bandi við berklaveiki og síðan í sambandi við
aðra lungnasjúkdóma o. fl. Nokkuð af þessari
göngudeildarþjónustu liefir nú verið flutt á
Landspítalann, en annað er hér áfram. Á Víf-
ilsstöðum er rannsóknarstofa, þar sem gerð-
ar eru ýmiss konar rannsóknir, blóðrannsókn-
ir, talning blóðkorna o. fl. Þá er einnig rönt-
genmyndaþjónusta, sem hvort tveggja gerir
göngudeildarþjónustuna mögulega.
Fyrir all löngu var farið að gera á Vífilsstöð-
um kannanir á ofnæmi í smáum stíl, í sam-
bandi við astma, og reyna varnaraðgerðir. 1976
var starfsemi þessi verulega aukin og komst
síðan í skipulegt form, þegar sett var á stofn
við Vífilsstaðaspítala göngudeild í ofnæmis-
sjúkdómum, 1. febrúar 1977, undir stjórn Dav-
REVKJALUNDUR
3