Reykjalundur - 01.10.1980, Page 8

Reykjalundur - 01.10.1980, Page 8
Halla gcrir öndunarprófun. Að sama skapi hefir þörfin á afnæmismeðferð minnkað. Nú er ísland tiltölulega hreint og laust við ýmiss konar mengun, t. d. i sambandi við ýmiss konar efnaiðnað. Hefir ísland einhverja sér- stöðu, hvað varðar ofnœmi? Þótt landið sé lneint og mengnn lítil, þá er þetta kalda og vindasama loftslag hér áreið- anlega ekki heppilegt fyrir öndunarfærasj úk- dóma. £g liefi iðnlega rekizt á sjúklinga með þrálátar bólgur í nefi eða astma, sem liafa orðið algjörlega einkennalausir á 2—4 vikum á ferðalögum í heitari löndum, en oft liafa sjúkdómseinkennin verið komin aftur innan viku eftir heimkomuna. Þetta eru sjúklingar með viðkvæma slímhúð í öndunarfærum og þetta á ekki við um ofnæmissjúklinga. ísland hefir að ýmsu leyti sérstöðu hvað varðar of- næmissjúkdóma. I fyrsta lagi er miklu minni þekking á ýmsum umhverfisþáttum hér á landi en í nágrannalöndunum. Engar teljandi kann- anir hafa verið gerðar á frjókornum og myglu í andrúmslofti, svo að mér sé kunnugt. Mér virðist mygla valda sjaldnar ofnæmi hér en til dæmis í Svíþjóð og Jjað er líklegt að almennt lágt rakastig í húsum hér á landi eigi einhvern þátt í þessu. Gróðuroí- næmi virðist einnig nær eingöngu bundið við grös, en laufskógar og ýmiss konar jurtir valda oft mjög svæsnu ofnæmi í nágrannalöndunum. Hundar eru hlufallslega algengari sem gælu- dýr í nágrannalöndunum en hér hjá okkur og valda því tiltölulega oftar ofnæmi þar en hér. Þá held ég að ofnæmissjúkdómar í sambandi við heyvinnu á veturna skapi okkur algera sér- stöðu, t. d. borið saman við hinar Norður- landaþjóðirnar. Gamalt og nýtt fyrirbccri í sambandi við landbúnað okkar er svokallað hcymœði, sem margir hafa þjáðst af. Er þetta ofnœmi? Heyntæði er ofnæmissjúkdómur, sem hegð- ar sér talsvert öðru vísi en t. d. frjókornaof- næmi. Það er bæði mygla, og þó einkum bakter- íur í heyinu, sem valda jiessum sjúkdómi. Bakt- eríurnar vaxa í heyinu, þegar hitnar í jtví og berast niður í lungnablöðkurnar, þegar mað- ur andar að sér heyryki. Einkenni við hey- mæði koma oftast 6—12 tímum eftir að unnið er í heyinu og líkjast bráðri lungnabólgu. Ef bændur með þennan sjúkdóm sinna honum ekki, en halda áfram að fást við gegningar, má búast við varanlegum lungnaskemmdum og jafnvel örkumlun vegna lungnabilunar. Hins vegar geta menn einnig fengið bráða- ofnæmi við vinnu í heyi. Einkenni eru þá oftast í nefi og augum, en einnig stundum astmi. Einkenni koma svo til strax og komið er í hlöðuna. Ekki er vitað, hvað ofnæminu veldur, en þó eru sterkar líkur á því, að það séu rykmaurar í heyinu. Heymœði hlýtur að teljast til atvinnusjúk- dóma. Hvað getur þú sagt okkur urn aðra of- nœmis-atvinnusjúkdóma? 6 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.