Reykjalundur - 01.10.1980, Page 9

Reykjalundur - 01.10.1980, Page 9
Ásta gerir húðprójun. Þeir sjúkdómar, sem orsakast af vinnu í hey- ryki, teljast til atvinnusjúkdóma og virðast vera mjög algengir. Ég hefi rekizt á þó nokk- uð af sjúkdómum, sem á einn eða annan hátt tengjast atvinnu. Mjög algengt er að bakarar fái atvinnusjúkdóma, bæði frá öndunarfærum og húð. Stundum er um að ræða hreina ert- ingu frá mjölryki, en stundum ofnæmi. Oft valda ýmis kernisk efni ertingu í önd- unarfærum, en í fæstum tilfellum er ]já um að ræða ofnæmi. Tvisvar hefi ég rekizt á ofnærni fyrir gerlagróðri í rakatækjum, sem höfð voru á vinnustöðvum, en ekki þrifin sem skyldi. í svipinn man ég eftir dálítið einkennileg- um atvinnusjúkdómi. Tvö ungmenni komu til mín með árs millibili og höfðu bæði mikil ofnæmiseinkenni frá nefi og augum og astma. Bæði fengu ungmennin jjessi ein- kenni við að bursta þurrkaða skreið, sem hafði myglað. Við rannsókn kom í ljós ofnæmi fyrir myglutegundinni cladosporium, en þetta virð- ist vera sú myglutegund, sem oftast veldur of- næmi hér á landi. Hvernig er með rannsóknaraðstöðuna? Er hún kostnaðarsöm eða fyrirferðarmikil og parfnast hún mikils tœkjakosts? Ofnæmisrannsóknir á sjúklingum geta ekki talizt sérstaklega kostnaðarsamar og þær krefj- ast heldur ekki mikils tækjakosts. Hins vegar þarf rúmgott húsnæði og góða starfsaðstöðu, þannig að hægt sé að rannsaka sjúklinginn af nákvæmni og kostgæfni. Það var heppni að fá aðstöðu fyrir þessa starfsemi á Vífilsstaðaspítala, ]jví að við höf- um sloppið við ]já togstreitu, sem verið hefir um húsnæði á öðrum spítölum, t. d. Land- spítalanum. Hins vegar eru óneitanlega tals- REVKJALUNDUR 7

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.