Reykjalundur - 01.10.1980, Side 14

Reykjalundur - 01.10.1980, Side 14
MAGNÚS B. EINARSSON LÆKNIR Endurhæfing hjartasjúklinga Stöðug þróun í meðferð kransœðastíflu Á undanförnum árum lieíui' endurliæfing hjartasjúklinga þróast frá því að vera svotil ójiekkt í það að vera nær ómissandi, a. m. k. þar sem hún hefur komist á. Þar sem hjarta- endurhæfing gerist best, liefst hún við rúm- stokkinn á fyrsta degi, en lýkur á hlaupabraut- inni. Allt fram undir 1950 tíðkaðist að láta krans- æðastíflusjúklinga vera rninnst 4 vikur í strangii rúmlegu, síðan máttu þeir fara fram úr rúmi og auka fótaferð varlega á næstu vikum. Næstu þrír mánuðir voru kyrrseta að mestu, og síðan átti að lifa rólegu lííi það sem eftir var ævinnar. Á þessum árum sköpuðust viðhorf til krans- æðasjúkdóma, sem eru nú talin alröng og þarf að kveða niður eins og afturgöngur. Margir voru dauðhræddir við að snúa aftur til vinnu sinnar, ln æddir við að ganga upp stiga, skreppa í golf o. s. frv., — að ekki sé talað um samlíf hjóna. Það liefur orðið gífurleg breyting á sjúkra- húsmeðferð þessara sjúkdóma á undanförnum árum, og nú er sums staðar jafnvel farið að hleypa sjúklingum fram úr rúmi á 2.-3. degi eftir kransæðastíflu og þeir frískustu fara heim eftir 1—2 vikur. Víðast livar er þó rniðað við að sjúklingar fari heim eftir 2—3 vikur ef allt gengur að óskum. Nokkuð er breytilegt eftir löndum hvert framhaldið er eftir útskrift af sjúkrahúsi. Sums staðar er farið beint af hjarta- deild á endurhæfingarstofnun þar sem dvalist er í 6—8 vikur. Annars staðar, t. d. víða í Banda- ríkjunum, er þjálfuninni skipt í 3 stig. Fyrsta stig er á spítala og tekur 2 vikur, annað stig er heima þar sem sjúklingurinn hefur æíinga- prógramm frá 2.-8. viku. Þriðja stig, sem er frá 8. viku og allt upp í ár, fer oftast fram á endurhæfingarstofnunum, oftast í hópum. Þá er yfirleitt byrjað á upphitunaræfingum í leik- fimissal, síðan hlaupið inni eða úti eða synt, á 1—3ja mánaða fresti víðast livar. GAGNSEMI ÞJÁLFUNAR En til hvers er allt þetta brölt? Hverju eru menn bættari? Þjálfun hjartans, sem er hið sama og þrekþjálfun, eykur getu hjartans til að flytja súrefni um æðar líkamans. Blóðþrýst- ingur lækkar, hafi liann verið hækkaður, og hjartsláttur í hvíld og við erfiði verður hæg- ari. Með auknu þreki fæst aukin starfsgeta, aukin lífsfylling og betra andlegt jafnvægi, þar eð streituáluif minnka. Hjartaverkur minnk- ar venjulega eða hverfur. Þótt ekki hafi enn verið sannað, að þjálfunin minnki líkurnar á nýrri kransæðastíflu er vitað, að þeim mun meira þreki sem menn ná, þeim mun meiri 12 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.