Reykjalundur - 01.10.1980, Blaðsíða 15
líkur eru á að lifa af kransæðastíflu og fara
létt út úr henni.
Kransæðasj úkdómur er orsök helmings
dauðsfalla miðaldra manna í hinum vestræna
heimi. Þetta er óhugnanleg staðreynd, sem vek-
ur menn til umhugsunar um livað hægt sé að
gera til varnar. Það hefur sýnt sig, að kyrrsetu-
mönnum er almennt hættara við kransæða-
stíflu en íþrótta- og erfiðisvinnumönnum. Það
liefur því á siðustu 20 árum verið lögð sívax-
andi áhersla á bæði fyrirbyggjandi áhrif og
lækningaáhrif líkamlegs erfiðis.
SKOKK EÐA TRIMM
í þessu sambandi má minna á trimmæðið
sem gengur eins og eldur í sinu um öll Banda-
ríkin og reyndar Evrópu líka. Bent hefur ver-
ið á, að ýmsar hættur séu trimminu sam-
fara og það sé beinlínis heilsuspillandi. Að
vissu leyti get ég tekið undir það. í Banda-
ríkjunum hefur umferðarslysum vegna hlaup-
andi trimmara meðfram vegum fjölgað gífur-
lega. Alls konar ofreynslueinkenni koma fram,
t. d. sinabólgur, beinhimnubólgur, tognanir
og fleira þess háttar. Það er nefnilega ekki
sama hvernig æft er. Það er nauðsynlegt fyrir
óvana að fara hægt í sakirnar og njóta hand-
leiðslu kunnáttufólks.
Sem dæmi um hvernig þjálfað er á réttan
liátt, langar mig að segja frá sögulegum at-
burði, sem gerðist í hinni árlegu Bostonmara-
þonkeppni árið 1973. Þessi maraþonkeppni
er orðin svo vinsæl, að þúsundir Bandaríkja-
manna taka núorðið þátt í henni hverju sinni.
Hlaupnir eru að venju 42 krn, oft í miklum
hitum, og iðulega eru menn lagðir inn á
sjúkrahús með hitaslag. Það hafa jafnvel kom-
ið fyrir dauðsföll. Að þessu sinni liófu um
1500 manns keppni. Af þeim voru 10 lagðir
inn á sjúkrahús með hitaslag, fjöldi manns
varð að hætta af ýmsum ástæðum, en meðal
þeirra sem luku keppni voru 7 miðaldra Kan-
adabúar, sem höfðu fengið kransæðastíflu,
sumir oftar en einu sinni. Þeir höfðu æft fyrir
keppnina undir handleiðslu lækna. Þetta var
reyndar hópur, sem hafði æft saman í mörg
ár og sífellt sett markið hærra. Þessir hjarta-
sjúklingar komust allir klakklaust í gegnum
þessa eldraun. Þetta var ekki eingöngu stór-
sigur fyrir þá sjálfa, heldur einnig fyrir hjarta-
þjálfun almennt. Árið eftir voru hjartasjúkl-
ingar sem tóku þátt í maraþonkeppninni 14
talsins.
ÞREKPRÓFANIR
Að síðustu langar mig til að lýsa nánar æf-
ingum hjartasjúklinga á endurhæfingarsjúkra-
liúsi, sem ég vann á í Noregi. Þetta er Beito-
REVKJ A LUNDUR
13