Reykjalundur - 01.10.1980, Blaðsíða 17

Reykjalundur - 01.10.1980, Blaðsíða 17
Þrehþjálfun. ar voru leikfimi, þrekhjólsæfingar, gönguferð- ir, sund, hjólreiðar, skíðaferðir, reiðmennska og jafnvel dans. Fyrst um sinn voru þó æfing- arnar eingöngu takmarkaðar við gönguferðir, þrekhjólsæfingar og létta leikfimi. Sjúkling- arnir tóku þátt í hó.pleikfimi annarra sjúkl- inga á staðnum. Lögð var áhersla á róleg- ar upphitunaræfingar. Því næst var hjólað á Jarekhjóli. Einn sjúkraþjálfari var með 3 sjúkl- inga í einu og voru allir tengdir við sveiflu- sjá sem gat skrifað út hjartalinurit og skráð hjartsláttaróreglu, sem kynni að koma upp. Þannig uppgötvaðist óregla hjá nokkrum sjúklingum, sem liöfðu enga við kornu. Því var hægt að bregðast fljótt við með lyfjagjöf. Sumt af þessari hjartsláttaróreglu er talið mjög hættuleg ómeðhöndlað. Án dag- legra æfinga, þar sem sjúklingurinn er tengd- ur við sveiflusjá, hefði óreglan ekki fund- ist. Hópurinn hjólar síðan í samtals 25 mín- útur með nokkrum hléum. Á síðustu mínút- unni er miðað að því að ná 90% af þeim hæsta púls, sem sjúklingurinn náði við komuþrek- prófið. Sjúkraþjálfarinn færir púls, álag og lijartalínuritsbreytingar hvers sjúklings í dag- bók og skráir líðan hans eins og hann lýsti lienni sjálfur. Síðan taka við útiæfingar Labb-rabb tæki er með í förinni, en einn- ig er möguleiki á að fylgja einum sjúkl- ingi eftir með sveiflusjá með aðstoð sendis, sem sjúklingurinn ber á sér, t. d. ef hann er grunaður um hjartsláttaróreglu. Einnig var iiægt að taka hjartastarfsemina á segulband og rannsaka hana eftir á. Sjúkraþjálfarar voru í stöðugu sambandi við hópinn, notuðu tækifærið að ræða við og fræða sjúklingana. Einnig voru sérstakar kennslu- stundir, þar sem m. a. voru sýndar litskugga- myndir til skýringar. Það sýndi sig að þetta fyrirkomulag, að æfa í allt að 5 stundir á dag REYKJA1.UNDUR 15

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.