Reykjalundur - 01.10.1980, Page 21

Reykjalundur - 01.10.1980, Page 21
SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR TALÞJÁLFI Á REYKJALUNDI Tal- og málþjálfun á Reykjalundi Á síðastliðnu ári (1979), vai' byrjað að veita þjónustu á sviði tal- og málþjálfunar hér á Reykjalundi. Hafði því reyndar verið örlítið sinnt áður, þegar hingað kom talkennari í lilutastarfi tvisvar í viku. Sjúklingar, sem koma í þjálfun vegna tal- og/eða málgalla, eru teknir ýmist í einstakl- ings- eða hópmeðferð. Hver meðferðartími getur verið frá 15 upp í 60 mínútur, einu sinni til fimm sinnum í viku. Sumir eru jafn- vel teknir tvisvar á dag. Lengd og tíðni tím- anna fer eftir því, hvers eðlis tjáningarörðug- leikar sjúklinganna eru. Þjálfunaráætlun er gerð fyrir hvern sjúkl- ing fyrir sig og er reynt að miða hana við ásigkomulag sjúklings, þ. e. hversu illa hann er farinn af sjúkdómi sínum og liverjar bata- horfur eru liverju sinni. Ráðgjöf við foreldra, aðstandendur og aðra, sem málið varðar, er einnig hluti af meðferð sjúklingsins. Þurfi sjúklingur með tjáningarörðugleika á annarri sérþjónustu að halda, í tengslum við talþjálfun, er hægt að vísa honum áfram. Á það sérstaklega við um sjónpróf og heyrnar- athugun. Hjá taljijálfa er nú til nýr, mjög fullkominn heyrnarmælir og eru flestir sjúkl- ingar, sem koma til meðferðar hjá taljrjálfa, heyrnarmældir og vísað áfram, ef einhver grun- ur er um heyrnarskerðingu. Til að gefa nokkra hugmynd um hvers konar viðfangsefni taljijálfinn fæst við, ætla ég hér að rekja helstu afbrigðin. AFASÍA Afasía er tal- og máltruflun, afleiðing ein- hvers konar heilaskaða. í flestum tilfellum or- sakast afasía af slagi, þ. e. blæðingu inn á heilann, blóðtappa, æxli eða af alvarlegum slysum. Sjúklingar með afasíu eiga oft erfitt með að skilja það, sem þeir heyra, en ennþá algengari eru erfiðleikarnir við að tjá sig munnlega. Einnig hefur reiknings-, lestrar- og skriftargeta sjúklinganna raskast verulega í mörgum tilvikum, en Jrað getur líka verið mismunandi eftir því, um hvaða tegund afasíu er að ræða. REYKJALUNDUR 19

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.