Reykjalundur - 01.10.1980, Side 23
JÓN EIRÍKSSON
YFIRLÆKNIR LUNGNA- OG BERKLADEILDAR
HEILSUVERNDARSTÖÐVAR REYKJAVÍKUR
Berklaveiki
Smá hugleiðing
Mikið hefur verið rætt og ritað um berkla-
veiki, og er það kannski að bera í bakkafullan
lækinn að bæta þar við, og þó, þetta verður
hvorki langt né vísindalegt, aðeins nokkrir
þankar til íhugunar.
íslendingar, a. m. k. þeir sem eru komnir á
miðjan aldur eða eldri, vita hvílíkur vágestur
berklaveikin var hér áður.
Barist hefur verið gegn veikinni með öllum
tiltækum ráðum og uni og uppúr 1930, þegar
dauðsföll af völdum veikinnar ná liámarki,
fer að sjást nokkur árangur í baráttunni og
á næstu 25—30 árum fækkar dauðsföllum stöð-
ugt.
Enn var Jió berklaveikin algengur og alvar-
legur sjúkdómur. En smátt og smátt dregur
úr sjúkdómstilfellum og með tilkomu öflugra
lyfja um og uppúr 1950, fækkar dauðsföllum
af völdum veikinnar enn og má heita að Jtau
komi vart fyrir nú.
I>að má segja, að berklaveikin sé ekki leng-
ur [jað rnikla [jjóðfélagslega og heilsufarslega
vandamál, sem hún áður var.
En er búið að útrýma berklum á íslandi?
Maður verður þess stundum var í fjölmiðlum
og víðar, að berklum hafi verið útrýmt á ís-
landi.
I>ví miður lield ég að það sé of rnikil bjart-
sýni eða óskhyggja. Mér hefur fundist kenna
nokkurs andvaraleysis í seinni tíð meðal al-
mennings og jafnvel lækna, hvað berklaveikina
snertir, [jví hún er ennþá til hér á landi, og
enn koma fyrir tilfelli, þótt ekki sé það neitt
í líkingu við það sem áður var.
l>ví miður eru ekki til berklaskýrslur fyrir
allt landið síðan 1974, en á því ári veiktust af
berklaveiki 78 manns í fyrsta sinn og 9 urðu
veikir að nýju. Af þessum 87 sjúklingum voru
52 með lungnaberkla, og þar af 6 með smit-
andi lungnaberkla. Endaþótt berklatilfellum
fækki stöðugt hér á landi, má enn um langan
aldur búast við að þau komi fyrir, því enn er
nokkuð stór hluti Islendinga á lífi, sem hefur
fengið berklasmit, og vitað er að sá sem einu
sinni hefur smitast, getur kannski áratugum
seinna veikst. Auk þess má ekki gleyma því,
REYKJALUNDUR
21