Reykjalundur - 01.10.1980, Side 25

Reykjalundur - 01.10.1980, Side 25
HAUKUR ÞÓRÐARSON YFIRLÆKNIR Endurhæfing á alþjóðlegum vettvangi Aldirnar í veraldarsögunni eiga sér ílestar einhverjar sérstæður sem einkenna eina þeirra frá annarri. Ein sérstæða tuttugustu aldarinn- ar er alþjóðleg samvinna og samráð — eða til- raunir í þá veru — um ýmsa óskilda málefna- flokka. Með Þjóðabandalaginu var riðið á vað- ið en það reyndist áhrifalítið og leið undir lok. Sameinuðu þjóðirnar hafa þraukað bet- ur þótt áhrifamáttur jieirra í reynd hafi ekki orðið sá sem vonast var til með stofnskrá Jjeirra. Stolnuð hafa verið bæði aljijóðleg samtök og heimshlutasamtök um málefni fatlaðra manna og öryrkja. Hér verður í stuttu máli greint frá einu slíku alþjóðasambandi. Upp- haf þess er rakið til stofnunar Aljijóðasam- bands um málefni fatlaðra barna árið 1923 (International Society for Crippled Children). Starfsemi Jiess náði brátt einnig til fullorð- inna. Eftir síðari heimsstyrjöldina var nafninu breytt í samræmi við aukna áherslu á endur- hæfingu fatlaðra og öryrkja sem þá var á baugi og hét eftir Jjað Aljijóðasamband um endurhæfingu fatlaðra (International Society for Rehabilitation of the Disabled). Enn var nafni Jiess breytt 1969 og Jiá til styttingar ein- vörðungu og lieitir síðan AlJjjóðleg endurhæf- ing (Rehabilitation International, skammstaf- að hér eftir RI). RI hefur margvísleg málefni á sinni könnu og mörg járn í eldinum á hverjum tíma. í stuttu máli miðar starfsemi RI að Jjví að bæta hag og hlutskipti fatlaðra manna í heiminum með öllum tiltækum ráðurn, m. a. með Jjví að stuðla að pólitískri stefnumörkun aðildarjjjóð- anna um endurhæfingu fatlaðra manna og ör- yrkja á sviði lækninga, menntunar, atvinnu og annarra félagslegra þátta mannlífsins. RI er til ráðgjafar Sameinuðu Jjjóðunum um endurhæfingarmál og málefni fatlaðra og öryrkja en auk Jjess mörgum öðrum aljjjóð- legum stofunum eins og AlJjjóðlegu heilbrigð- REVKJALUNIJUR 23

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.