Reykjalundur - 01.10.1980, Qupperneq 28

Reykjalundur - 01.10.1980, Qupperneq 28
isstofnuninni (WHO), Alþjóðlegu vinnumála- stofnuninni (ILO) og ýmsum sérstofnunum Sameinuðu þjóðanna, svo sem UNICEF o. fl. R1 hefur sjálft ckki með höndum rekstur og þjónustu fyrir einstaklinga eða hópa held- ur vinnur starf sitt með því að eiga samskipti við alþjóðlegar stofnanir og alþjóðlega aðila annars vegar, eins og áður er sagt, og við þjóða- samtök um málefni fatlaðra hins vegar. Þar sem framboð, þarfir og aðstæður varðandi end- urhæfingu eru talsvert breytilegar og frá- brugðnar eftir heimshlutum, hefur myndast ákveðinn heimshlutasamstaða innan RI og til- heyrir ísland Evrópuskor þess. Skilmálar RI gera ráð fyrir að heildarsam- tök um endurhæfingu og félagsleg málefni latl- aðra innan hvers lands standi að alþjóðlegum samtökum, en hlutaaðild er fáanleg ef svo hagar til að heildarsamtök eru engin í land- inu. Þannig eignaðist Island hlutaaðild að RI um 1960 fyrir atbeina Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Síðar gerðist Öryrkjabandalag ís- lands aðili að RI fyrir íslands hönd og liefur ísland síðan átt ]jar fulla aðild. Sá háttur er á hafður, að aðildarsamtök livers lands tilnefna einn fulltrúa sem er tengill landsins við RI og viðkomandi heimshlutaskor þess. Guðmund- ur Löve var fulltrúi af Islands hálfu þar til hann lést 1978 og tók þá Sigríður Ingimars- ardóttir við starfi landsfulltrúans. Einn liður í starfi RI er alþjóðlegar ráðstefn- ur og heimshlutamót, sem haldin eru í tilefni mála ofarlega á baugi, úrlausnarmála, grund- vallarmála eða sérstakra vandamála á sviði endurhæfingar og félagslegrar þjónustu fatl- aðra og öryrkja. Auk þess gengst RI fyrir al- þjóðlegum þingum. Fyrsta slíka þingið var haldið í Genf 1929 og síðan haldið á þriggja ára fresti á ýmsum stöðum í heiminum, en á ljögurra ára fresti síðan 1972. Þing voru þó ekki á dagskrá áratuginn 1940—50. Síðasta al- þjóðaþing RI var haldið í júnímánuði 1980 í Winnipeg í Kanada og sóttu það nokkrir ís- lendingar. Alþjóðleg þing eru gjarnan fjölsótt. Svo var einnig um Winnipegþingið sem var mann- margt, þátttakendur að sögn um þrjú þúsund að tölu. Hópurinn var einnig sundurleitur, því að þingið sóttu jafnt starfsmenn hinna marg- víslegu þátta endurhæfingar í heiminum og fulltrúar hinna fjölmörgu áhugamanna- og öryrkjafélaga, sem starfa að þeim málum í heiminum. Stjórnendur þingsins höguðu efnis- vali á þann veg að það gæti hentað sem flest- um til áheyrnar og umræðu. Þar eð þátttak- endur áttu sér að vonum margvísleg baksvið menntunar, starfs og áhugamála varð ekki hjá því komist að mörgum þótti sumt efnisins ein- kennast á köflum af því, sem íslenskt skáld nefndi á öðrum vettvangi upptalningu á „selv- fölgeligheder". Hins vegar þurftu þátttakend- ur ekki að kvarta um einhæfingu efnis, því að á flestum tíma voru margir hópar starfandi sam- tímis um mismunandi Jjætti endurhæfingar eða félagslegra málefna. Þátttakendur gátu val- ið sér aðild að hópum að vild. I sérstökum sal voru auk þess nærri látlaust sýndar kvikmyndir um ýmis svið fötlunar, örorku og endurhæf- ingu. Allan þingtímann var þátttakendum opin viðamikil sýning á margvíslegum tækja- og tæknibúnaði sent í grófum dráttum skipt- ist í tvo hluta: Annars vegar tækja- og tækni- búnaður til að nota við þjálfun, líkamlega, samskiptalega eða í menntunarskyni. Hins veg- ar tækja- og tæknibúnaður sem fatlaðir nota til að auka sér einfærni í daglegu lífi og starfi eða til að ná ákveðnum færnisáföngum á þeim vettvangi. Þó ljóst sé, að með hverju árinu þok- ast tækninýting þjálfunar- og hjálpartækja nokkuð fram, er það þeim sem þetta ritar undr- unarefni fyrr og síðar, að ekki skuli hún meiri en raun ber vitni. Ástæða þess er án efa jafnt fólgin í því, að ekki er nægt fjármagn, aðstaða og hugvit til tækniþróunarmála á þessu sviði og hinu, að við ramman reip er að draga, þeg- ar reynt er að snu'ða eftirlíkingu líkamsstarf- seminnar, þ. e. tæki til að bæta upp skerðingu á henni eða til að korna í hennar stað. 26 REVKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.