Reykjalundur - 01.10.1980, Blaðsíða 30
neytendur félagslegrar þjónustu, fram yfir það,
sem gengur og gerist um fólk í landinu, sem
allt nýtur einhverrar þjónustu af því tagi.
SAMÞYKKTIN FYRIR 9. ÁRATUGINN
Skráin er yfirlýsing um samstöðu urn alþjóð-
leg forgangsefni á áratugnum 1980—90. Hún
var afhent þátttakendum heimsþingsins í ítar-
legu formi og hafði þá þegar verið samþykkt
af fulltrúaþingi Rl, samin af starfshópi á ár-
unum 1978—1980. Umræður um samþykktar-
skrána urðu talsverðar á þinginu og verður
hún síðar gefin út í endanlegri gerð sem fram-
lag til alþjóðaárs fatlaðra 1981.
í samþykktarskránni kennir margra grasa.
Þar er m. a. að finna grundvallarskilgreining-
ar um i. d. fötlun („Fötlun er fólgin í skerð-
ingu eða takmörkun á færni manns til að
sinna einurn eða fleirum nauðsynlegum þátt-
um daglegs lífs, eins og sjálfbjörgun, félags-
tengslum eða efnahagslegu framlagi, á þann
liátt og innan þeirra marka sem talin eru eðli-
leg . . . “ ) og endurhæfingu („Endurhæfing er
framvinda samtengdrar og samhæfðrar beit-
ingar læknisfræðilegra, lelagslegra, menntunar-
legra og atvinnulegra ráða til að koma því til
leiðar að fatlaðir nái fyllstu starfshæfni og sam-
lögun í samfélaginu .. . “).
Meðal markmiða í samþykktarskránni má
finna eftirfarandi:
1) að beitt verði virkum vörnum gegn fötlun
meðal allra þjóða,
2) að tryggt verði að allir, sem fatlast, eigi kost
á endurhæfingu og fjölskyldur þeirra kost
á hverjum þeint stuðningi og aðstoð, sem
þær kunna að þarfnast, til að draga úr ör-
orkuhvetjandi áhrifum fötlunar,
3) að neyta allra ráða til að tryggja eins niikla
samlögun og unnt er og þátttöku fatlaðra
á öllum sviðum samfélagsins,
4) að dreifa upplýsingum um fatlaða og mögu-
leika þeirra, um fötlun, varnir gegn henni
og meðhöndlun, til að auka Jrekkingu al-
mennings á vandamálunum og á rétti iatl-
aðra til félagslegrar jafnstöðu.
Þjóðir heims eru hvattar í samþykktar-
skránni til að beita hver sínum bestu ráðum
til að markmiðum, Jressum og öðrum, sem rak-
in eru í skránni, verði náð, svo að Jrau verði
annað en orðin tóm.
Margvíslegt annað kemur fram í samþykkt-
arskránni. Auk ýmissa leiðbeininga um til-
högun og kærkominna skilgreininga á hugtök-
um er Jrar að finna ábendingar um livar og
hvernig skuli á garðinn ráðist innan hvers
sveitarfélags, innan hvers lands og á aljrjóðleg-
um vettvangi.
Samþykktarskrá RI fyrir 9. áratuginn er um
margt merkasta plagg.
Eins og áður segir verður lnin innan tíð-
ar gefin út í endanlegu formi og ætlunin að
hún verði á Jressu ári eða næsta afhent for-
ystumönnum allra Jtjóða heims. Hún mun sið-
ar verða birt í íslenskri Jrýðingu.
28
REYKJAI.UNDUR