Reykjalundur - 01.10.1980, Side 31
ODDUR ÓLAFSSON
Öryrkjar, unglingar og aldraðir eru gjarn-
an nefndir jaðarvinnuafl, það er vinnuafl sem
fyrst dettur út af vinnumarkaðinum þcgar
Jtrengist um vinnu.
HVER ER ÖRYRKI?
Öryrki er sá sem vegna sjúkdóms, slysa eða
meðfæddra örkumla á erfiðara en alheill með
að komast í vinnu á almennum vinnumark-
aði og halda henni.
Þetta er svo sem ekki nákvæm skilgreining.
Margir sem ekki falla undir það orðalag sent
hér er notað geta lent í örðugleikum á vinnu-
markaðinum einhvern tíma á ævinni og Jmrfa
á aðstoð að halda án Jtess að Jjeir verði nefnd-
ir öryrkjar.
FJÖLDI ÖRYRKJA
í könnun sem Jón Pálsson sálfræðingur
gerði á högum öryrkja í Reykjavík komst
hann að þeirri niðurstöðu að af um 6000 ör-
Vinnumál öryrkja
yrkjum á landinu Jmrfi að eigin áliti 2260
eða 37,7% einhverja fyrirgreiðslu vegna at-
vinnu.
Þarna er um að ræða öryrkja sem ættu að
geta komist út á vinnumarkaðinn með auk-
inni aðstoð. Öryrkja, sem gætu þjálfast í hálf-
verndaðri vinnu. Þá verulegan hóp, sem á
heima á vernduðum vinnustofum, jafnvel í
föndurvinnu eða heimavinnu. Loks öryrkja
óhæfa Lil vinnu, endaþótt Jaeir telji sig vinnu-
færa.
Hvernig til tekst um að leysa vanda Jtessa
fólks, getur haft niikil áhrif á afkomu Jtess
og lífsferil allan. Þessvegna er nú nauðsyn-
legt að einbeita sér að Jtví, að efla þá Jiætti
öryrkjastarfsins sem að atvinnumálunum
snúa.
Um jætta segir Jón Pálsson:
„Ljóst er að mikill fjöldi öryrkja í Reykja-
vík telur sig þurfa á fyrirgreiðslu vegna vinnu
að lialda, umfram þá, sem nú Jjegar er veitt.
Þetta er }>að stór hópur og sundurleitur, að
engin ein lausn nægir til að leysa vanda lians
alls. Til þess að fyrirgreiðslan komi að full-
um notum Jjyrlti hún að felast í margbreyti-
legum aðgerðum, ef hitta ætti á sérþarfir
hvers einstaks.“
Þarna er gripið á höfuðvandanum, Jjarfir
öryrkjanna eru svo margbreytilegar, að
vandamál hvers einstaklings verður að með-
höndla sérstaklega.
REYKJALUNDUR
29