Reykjalundur - 01.10.1980, Side 33
Frá Reykjalundi.
skrifstofu Reykjavíkurborgar.
Hæfnispróf og starfsþjálfun fara fram á
vegum Endurhæfingarráðs og Reykjalundar.
Slík þjónusta er einnig veitt þroskaheftum á
vegum ríkisins.
Eins og áður er sagt, þá eru vandamál ör-
yrkja margbreytileg og fjiilþætt, árangur af
vinnumiðlun fer því að mestu eftir því, hvern-
ig prófun, skólun og þjálfun þess, sem útvega
skal vinnu hefir heppnast.
Svíar, sem einna lengst eru komnir á þessu
sviði, gátu aðeins útvegað 10% af þeim 70000
öryrkjum sem óskuðu eftir vinnu við sitt hæfi
á almenna vinnumarkaðinum á árinu apríl
1976 til mars 1977.
Hér á landi virðist árangurinn af vinnu-
útveguninni vera nokkru betri og reyndar
benda ýmsar staðreyndir til þess að við sé-
um betur staddir í vinnumálum öryrkja en
ætla mætti.
Það hefir til dæmis verið talið, að atvinnu-
mál blindra væru hér í megnasta ólagi. Við
athugun nýlega kom þó í ljós, að yfir 90%
af alblindum eru í starfi. Segja mætti mér,
að hér væri um heimsmet að ræða. Af störfum
sem blindir gegna hér má nefna: burstagerð,
körfugerð, símavarsla, sjúkraþjálfun, bólstr-
un, hljóðfærastilling, félagsráðgjöf (aðstoð)
hljóðritun, prentun, fréttamennska og hús-
móðurstörf. Allmargir reka eigin fyrirtæki,
svo sem útgerð, fiskvinnslu, plastiðnað, sjó-
klæðagerð, húsgagnagerð, lögfræðiskrifstofu
og fleira.
Þetta er ótrúlega mikil breidd í störfum ekki
stærri hóps, og eins og segir í upplýsingum
frá þeim blindu: Flest þetta fólk hefir fengið
REVKJA1.UNDUR
31